24 stundir - 20.05.2008, Síða 31
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 31
Hið alþjóðlega Hypno-leikhús
frá Berlín býður upp á óvenjulega
blöndu af tónlist, brúðuleik og
sjónlist í sýningu Hjörleifs Jóns-
sonar, Smaragðsdýpið mikla, sem
sýnd verður í Íslensku óperunni í
kvöld klukkan 20. Um er að ræða
barnasýningu um ævintýri sjávar-
skjaldböku og gríðarlega forvitnis-
áráttu hennar. Fylgst er með ferða-
lagi hennar um undirdjúpin með
tónlist, brúðuleik og sjónlist.
Áhorfendur ferðast með ungu
indversku sjávarskjaldbökunni
Purbayan Ranjan Biswas í leit hans
að svarinu við spurningunni um
hvað leynist á botni hafsins. Á leið
sinni kynnist hann mörgum ein-
kennilegum og áhugaverðum dýr-
um og er honum fylgt eftir af tígr-
ishákarlinum dularfulla, Sigurkarli
Margleypi hinum þriðja. Eftir því
sem kafað er dýpra verður hafið
myrkara og verurnar yfirnáttúru-
legri. Áhorfendur færast sífellt nær
svarinu við spurningunni: Hvað
leynist niðri í dýpstu og myrkustu
afkimum Indlandshafsins? Viljum
við virkilega vita svarið?
Sýningin er samvinnuverkefni
Listahátíðar í Reykjavík og Skóla-
tónleika á Íslandi.
Óvenjuleg blanda af tónlist, brúðuleik og sjónlist
Smaragðsdýpið mikla
Sæskjaldbakan
Ferðast um undirjúpin.
Sýningin Listamaðurinn í verk-
inu – Magnús Kjartansson, stendur
yfir í Listasafni Árnesinga í Hvera-
gerði. Þessi sýning tekur á verkum
sem Magnús vann á pappír milli
1982 og 1988. Aðeins fáein þessara
verka hafa áður verið sýnd þótt
nokkur hafi ratað í almennings- og
einkasöfn. Í þeim má rekja tilraun-
ir Magnúsar með ýmsar ljósprents-
aðferðir sem gerðu honum kleift
að þrykkja hluti, myndir og jafnvel
eigin líkama beint á pappírinn. Í
mörgum myndunum má síðan sjá
hvernig Magnús hefur unnið með
þær áfram, stundum með kemísk-
um aðferðum en stundum með
málningu. Verkin sýna hvernig
endurtekin form, myndir og tákn
verða að persónulegu myndrænu
tungumáli og saman eru þau til
vitnis um einstæða listræna rann-
sókn Magnúsar sem ögraði ekki
einasta viðurkenndum aðferðum
heldur var líka afar nærgöngull í
sjálfsskoðun sem fól í sér gagnrýnið
endurmat á hlutverki listamanns-
ins og erindi hans í listinni.
Listamaðurinn í verkinu
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Um 60 ljósmyndir eftir fimm ára
gamla listamenn prýða nú veggi
forsals Borgarleikhússins í tilefni af
Listahátíð í Reykjavík. Myndirnar
voru teknar af leikskólabörnum í
öllum sveitar- og bæjarfélögum á
Íslandi frá desember 2005 til 2006.
Það var Hálfdán Pedersen sem
dreifði einnota myndavélum til
barnanna með það að markmiði að
gefa út ljósmyndabók. „Bókin er að
vísu ekki komin út ennþá þar sem
mig vantar ennþá útgefanda að
henni. En aðstandendur Listahá-
tíðar fréttu af þessu verkefni og
buðu mér að sýna myndirnar í
Borgarleikhúsinu og sýningin opn-
aði síðasta föstudag og stendur til
6. júní,“ segir hann.
Frjálsar hendur
Börnin fengu algerlega frjálsar
hendur varðandi val á myndefni og
þegar upp var staðið hafði Hálfdán
rúmlega 20.000 myndir til þess að
velja úr. „Ég varð alls ekki fyrir
vonbrigðum með myndirnar enda
voru margar þeirra mjög góðar.
Það sést mjög vel að börn hafa tek-
ið myndirnar. Sjónarhornið er allt-
af mjög saklaust og maður áttar sig
strax á því að ljósmyndararnir
fanga augnablikið hverju sinni og
mynda það. Mörg barnanna lögðu
sig virkilega fram og voru mjög
meðvituð um myndefnið. Leik-
föng, gæludýr, fjölskyldan og nátt-
úran eru algeng sjón. Með þessum
myndum finnst mér ég hafa öðlast
góða innsýn inn í lífið og heimilin
alls staðar á Íslandi.“
Óvenjuleg sýning í forsal Borgarleikhússins
Einlægar ljósmyndir
eftir börn
Í forsal Borgarleikhússins
má sjá um 60 ljósmyndir
eftir leikskólabörn í öll-
um sveitar- og bæj-
arfélögum á landinu.
Börnin fengu einnota
myndavélar og frjálsar
hendur um myndefnið.
Að hjóla Þessi mynd er
tekin í Reykjavík.
Ein myndanna á
sýningunni Þessi er
tekin á Ísafirði.
MENNING
menning@24stundir.is a
Sjónarhornið er alltaf mjög saklaust og mað-
ur áttar sig strax á því að ljósmyndararnir
fanga augnablikið hverju sinni og mynda það.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Costa del Sol
22. maí
Stökktu til
Verð frá kr. 39.990
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Costa del
Sol 22. maí. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að
vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og njóttu vorsins á vinsælasta
sumarleyfisstað Íslendinga.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó /
íbúð í 7 nætur, m.v. stökktu tilboð. Aukavika
kr. 14.000
M
bl
9
89
89
5
*** Allra síðustu sætin***