24 stundir - 20.05.2008, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Ég er alltaf að fá þessa spurningu,“
segir Euan Patrick Wallace að-
spurður af hverju Ísland hafi orðið
fyrir valinu þegar hann ákvað að
koma hingað til lands sem skipti-
nemi. „Ég hafði heyrt mikið um Ís-
land. Vinafólk foreldra minna
hafði komið til Íslands og sagt mér
hvað landið væri fallegt og fólkið
indælt. Svo finnst mér tungumálið
svalt, það er svo gamalt og fáir tala
það.“ Euan er frá Louisiana-fylki í
Bandaríkjunum og segir voðalega
fátt sameiginlegt með landslaginu
þar og hér. „Í Louisiana er flatlent,
hér eru fjöll. Þar vaxa tré, á Íslandi
eru engin tré. Þar er einnig rosalega
heitt og ég vildi prófa eitthvað al-
gerlega nýtt og því var Ísland til-
valið,“ bætir Euan við. Helene Ja-
dot kemur frá franska hluta Belgíu
og segir meðal annars að áhugi
hennar á norrænu sögunum hafi
dregið hana til Íslands. „Ég elska
norrænu sögurnar. Svo heilla vík-
ingarnir og Ísland er mjög fallegt
land,“ segir hún. Helene gengur í
Kvennaskólann í Reykjavík auk
þess sem hún spilar í lúðrasveitinni
Svaninum. Taylor Theodore Sels-
back kemur frá Minnesota-fylki í
Bandaríkjunum og lætur því ekki
íslenskt veðurfar mikið á sig fá. „Ég
kom hingað til lands fyrir þremur
árum með fjölskyldu minni. Mig
langaði að fara á öðruvísi stað,
flestir fara til Frakklands eða Spán-
ar en ég valdi Ísland. Félagar mínir
vissu ekkert um Ísland og voru
frekar hissa þegar ég sagði þeim
hvert ég væri að fara,“ segir Taylor.
Krakkarnir eru öll 18 ára og halda
aftur til síns heima í sumar. Þau eru
núna að klára próf í skólunum sem
þau hafa gengið í í vetur. Taylor
hefur stundað nám í Menntaskól-
anum við Sund, Euan í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og Hel-
ene í Kvennaskólanum.
Meira frelsi á Íslandi
„Fólk treystir manni miklu betur
hér en í Bandaríkjunum, það er
Skiptinemar tala reiprennandi íslensku og elska frelsið á Íslandi
Komum pottþétt
aftur til Íslands
Euan, Taylor og Helene
hafa dvalið hér á landi
sem skiptinemar síðasta
árið en þau koma frá
Bandaríkjunum og Belg-
íu. Bandarísku strákarnir
tveir tala nær óaðfinn-
anlega íslensku og Hel-
ene tekur fullan þátt í
samræðum, en franska er
hennar móðurmál.
Hress Krakkarnir kunna
afar vel við sig á Íslandi.
➤ Euan Patrick Wallace og Tay-lor Theodore Selsback eru frá
Bandaríkjunum en Helen Ja-
dot er frá franska hluta Belg-
íu.
➤ Þau eru skiptinemar á vegumAFS-samtakanna á Íslandi.
SKIPINEMAR Á ÍSLANDI
farið meira með mann eins og full-
orðinn einstakling hér. Einhverjir
höfðu sagt mér að það væri erfitt
að tala við Íslendinga en það finnst
mér alls ekki, maður byrjar bara að
tala við þá og allir hafa verið mjög
vinsamlegir við mig. Í skólanum
býr maður við meira frelsi en skól-
inn minn í Bandaríkjunum var
mjög strangur,“ segir Taylor en það
er greinilegt að krakkarnir eru með
puttann á púlsinum á því sem er í
gangi á Íslandi því um leið og Tay-
lor minnist á meira frelsi byrjar Eu-
an að raula samnefnt lag með ís-
lensku hljómsveitinni Mercedes
Club. Krakkarnir voru heppin og
lentu öll hjá frábærum fjölskyldum
að eigin sögn sem þau eru þakklát
fyrir. Þau hvetja fleiri íslenskar fjöl-
skyldur til að taka að sér skipti-
nema enda ekki vanþörf á. Þau eru
öll staðráðin í að koma aftur og
stefna jafnvel á háskólanám hér á
landi. „Ég vil ekki fara og verð að
koma aftur, ég elska Ísland,“ segir
Helene og strákarnir taka undir.
LÍFSSTÍLLFERÐIR
ferdir@24stundir.is a
Svo heilla víkingarnir og
Ísland er mjög fallegt land
Sérfræðingar
í saltfiski
466 1016
- Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu
- Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar
- Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur
- Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Súpersól til
Búlgaríu
26. maí
frá kr. 39.990
Kr. 39.990
Netverð á mann, m.v 2-4 í hótelherbergi / íbúð í
viku. Súpersól tilboð, 26.maí. Aukavika ekki í boði.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilja sér rétt
til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Aðeins örfá sæti í boði!
Golden Sands í Búlgaríu hefur sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum.
Terra Nova býður nú síðustu sætin í maí á ótrúlegum kjörum. Gríptu
tækifærið og skelltu þér til þessa vinsæla sumarleyfisstaðar sem býður þín
með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika,
fjölbreytta veitingastaði og fjörugt næturlíf. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú gistir.