24 stundir


24 stundir - 05.06.2008, Qupperneq 2

24 stundir - 05.06.2008, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir ostur.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Grill og ostur – ljúffengur kostur! VÍÐA UM HEIM Algarve 23 Amsterdam 20 Alicante 22 Barcelona 23 Berlín 27 Las Palmas 23 Dublin 12 Frankfurt 19 Glasgow 18 Brussel 16 Hamborg 23 Helsinki 20 Kaupmannahöfn 21 London 20 Madrid 26 Mílanó 19 Montreal 14 Lúxemborg 17 New York 17 Nuuk 8 Orlando 24 Osló 26 Genf 16 París 17 Mallorca 22 Stokkhólmur 23 Þórshöfn 12 Suðaustan 5-10 m/s. Skýjað með köflum sunnan- og vestantil og stöku skúrir, en yf- irleitt léttskýjað norðaustantil og víða þoku- bakkar við austurströndina. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast norðantil. VEÐRIÐ Í DAG 9 10 11 10 9 Skýjað með köflum Suðaustan 8-13 m/s og rigning með köflum um sunnan- og vestanvert landið, en annars hægari og úrkomulítið. Hiti 9 til 17 stig, hlýj- ast norðanlands. VEÐRIÐ Á MORGUN 8 10 12 11 8 Rigning með köflum „Við sendum spítalanum orð í gær sem varð til þess að þeir sendu sérfræðinga degi fyrr en áætlað hafði verið … á því var mjög brýn þörf,“ segir Bryndís Friðgeirsdóttir, fulltrúi Rauða Krossins sem dvelur í jarðskjálftamiðstöðinni á Selfossi. Hún segir dæmi um að fólk sé í slæmu ástandi eftir skjálftana og nokkrum hafi verið ráðlagt að leggjast inn á geðdeild. „Viðbrögð sumra eru mjög alvarleg.“ Áfallateymi frá Landspítalanum, djákni, sálfræðingur og geðhjúkr- unarfræðingur fóru austur í gær. Talið er að á annað hundrað manns hafi leitað aðstoðar á Selfossi og álíka margir í Hveragerði. Bryndís segir viðtöl benda til þess að eft- irskjálftar og skortur á upplýsing- um hafi farið verst með fólk. Síma- sambandsleysi strax eftir skjálftann sé nefnt í flestum viðtölum. beva@24stundir.is Þeir verst stöddu þurfa að fara á geðdeild Landspítali mættur Eftirskjálftar Stjórnlausar aðstæður fara illa með fólk. að fara með snáðann heim fóru foreldrarnir, Jóhanna og Þorsteinn Newton, með hann nokkurra daga gamlan til Boston. „Ósæðarlokan var of þröng og hún var víkkuð út á sjúkrahúsinu í Boston. Við fórum svo aftur með Daníel til Boston í sama tilgangi þegar hann var 3 mánaða,“ greinir Jóhanna frá. Hún segir örvef hafa verið farinn að vaxa fyrir innan ósæðarlokuna sem aðgerð var gerð á þann 22. maí síðastliðinn. „Lokan var snyrt til. Það var orðið erfiðara fyrir hana að vinna.“ Mikil breyting eftir aðgerðina Að sögn Jóhönnu þurfti sá stutti iðulega að setjast niður til að hvíla sig. „Hann skoðaði þá bækur eða fór í tölvuleiki. Við sjáum hins veg- ar mikla breytingu á honum eftir aðgerðina. Hann er ekki jafn- þreyttur á kvöldin og áður. Það er ekki að sjá að hann hafi verið í mikilli aðgerð. Ég bjóst ekki við að þurfa að stíga á bremsuna strax. Það verður maður hins vegar að Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Hólmvíkingar fagna sumrinu meira í ár en venjulega. Einn af yngstu bæjarbúunum, Daníel Freyr Newton, er nefnilega farinn að leika sér úti í blíðunni, aðeins nokkrum dögum eftir mikla hjartaaðgerð í Boston í Bandaríkj- unum. „Hann var ekki sérstaklega mik- ið fyrir útileiki áður þar sem hann þreyttist fljótt vegna hjartagallans sem hann fæddist með. Við kom- um heim frá Boston 29. maí og daginn eftir var hann kominn út að leika sér. Ég hefði haldið að hann myndi taka það rólega en nú þarf í rauninni að hemja hann,“ segir Jó- hanna Guðbrandsdóttir, móðir Daníels litla. Til Boston af fæðingardeild Hjartagallinn uppgötvaðist þeg- ar Daníel, sem er 6 ára, var í loka- skoðun fyrir heimferð frá fæðing- ardeild Landspítalans. Í stað þess gera vegna þess að brjóstbeinið er ekki enn gróið og hann má ekki verða fyrir hnjaski á meðan svo er. Þess vegna verðum við að vera með honum þegar hann er úti að leika sér.“ Þakklát fyrir stuðninginn Jóhanna segir bæjarbúa sam- fagna fjölskyldunni innilega. „Við höfum fengið bæði fjárhagslegan og andlegan stuðning frá þeim vegna ferða okkar til Boston. Það er mjög gott að finna fyrir þessari samkennd.“ Og bróðir Daníels, Róbert Máni, sem er 5 ára, er auðvitað feginn að fá stóra bróður með sér í útileiki. Fór strax út að leika sér  Daníel Freyr, 6 ára Hólmvíkingur, er ný- kominn heim eftir hjartaaðgerð í Boston ➤ Árið 2006 samþykkti Trygg-ingastofnun ríkisins greiðslur vegna aðgerða erlendis á 42 börnum og 104 fullorðnum. ➤ Samþykkt var að greiðakomu lækna til landsins vegna 30 sjúklinga. ➤ Greiddur kostnaður 2006vegna ferðanna var tæpar 616 milljónir króna. AÐGERÐIR ERLENDIS Að lokinni aðgerð Fresta þurfti aðgerð á Daníel þrisvar sinnum vegna veikinda hans. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Fyrirhuguð er lokun þriggja Nóatúnsverslana. Verslun Nóatúns í Hverafold í Grafarvogi lokar eftir helgi, versl- unin í Smáralind um miðjan júní og verslun Nóatúns í Furugrund í Kópavogi lokar í byrjun júlí. Bjarni Friðrik Jóhannesson, rekstrarstjóri Nóatúns, segir þessar verslanir ekki vera hluta af framtíðarstefnumótun fyrirtæk- isins. Fram undan sé að styrkja þær átta verslanir sem áfram verða opnar, en síðar verði fleiri búðir opnaðar. Ekki sé hægt að segja til um hvar þær verða stað- settar að svo stöddu. hos Nóatún lokar verslunum Óvíst er hvenær og hvort allir flokksformenn hittast til að end- urskoða eftirlaunalögin. Samfylk- ing segir á heimasíðu að formað- ur VG hafi lofað að taka þátt í því starfi, en þingflokkurinn bannað honum það. Steingrímur J. Sig- fússon segir Samfylkingu ljúga, þingflokkurinn hafi aldrei rætt málið og ekki tekið það upp á fundi í gær. „Enda virðist lítið liggja á og formenn stjórn- arflokkanna fjarri, helst í útlönd- um, “ segir Steingrímur. bee 100% lygi, segir formaður VG Hvítabjörninn sem skotinn var í Skagafirði í fyrradag verður stopp- aður upp og að líkindum verður hann staðsettur í Skagafjarðarsýslu í framtíðinni. Þetta segir Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Nátt- úrufræðistofnunar Íslands. Þegar hefur verið gert að birninum og er skrokkurinn kominn í frysti. „Við munum taka sýni úr kjöti og lifur dýrsins og síðan verður kannað hvort í honum hafi verið sníkjudýr. Við munum einnig kanna innihald maga bjarnarins með það í huga að reyna að leggja mat á hversu lengi hann hefur verið hér á landi.“ Jón Gunnar segir að koma bjarnarins nú hljóti að verða til þess að gerð verði aðgerðaáætlun um viðbrögð við komu hvítabjarna í framtíðinni. „Það þarf auðvitað að vera til áætlun um viðbrögð, sama hver þau eru.“ freyr@24stundir.is Hvítabjörninn verður stoppaður upp Ísbjörninn frystur Reglur um garðhirðu hafa ver- ið hertar í bænum Canton í Ohio-fylki þetta sumarið. Garðeigendur sem trassa að slá grasið sitt þurfa nú að greiða 20.000 krónur í sekt. Ef trassaskapurinn er sér- staklega slæmur bíður slugs- aranna allt að 30 daga fangels- isvist. aij Snyrtipinnar setja lög Slátt eða stein SKONDIÐ STUTT ● Óhapp Lítilli einkaflugvél hlekktist á á Patreksfjarð- arflugvelli á sjöunda tímanum í gærkvöld. Tveir voru um borð og sakaði þá ekki, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. ● Hvalir Steypireyðar sáust á Skjálfandaflóa í gær. Áhöfinin á bátnum Bjössa Sör sá að minnsta kosti fimm steypi- reyðar í flóanum. mbl.is ● Leiðrétt Plata Bang Gang fékk fimm stjörnur en ekki fjórar af sex í franska tónlistar- blaðinu Magic. ● Leiðrétt Nafn Önnu Maríu Jónsdóttur geðlæknis misrit- aðist í frétt hér í blaðinu í gær.

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.