24 stundir - 05.06.2008, Blaðsíða 4

24 stundir - 05.06.2008, Blaðsíða 4
VIKUTILBOÐ OPIÐ ÖLL FIMMTUDAGSKVÖLD TIL KL. 21:00 Í SUMAR VÍKURHVARF 6 SÍMI 557 7720 WWW.VIKURVERK.IS 85W SÓLARSELLA 7. JÚNÍ 2008 SJÓVÁ KVENNAHLAUP ÍSÍ TAKTU ÞÁTT! 4 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir Tugir vina íslensku geitarinnar hafa tekið þátt í undirskriftasöfnun á netinu þar sem óskað er eftir því að stjórnvöld veiti fé til byggingar Geitaseturs á Háafelli í Borgarnesi til að „koma íslensku geitinni í öruggt fylgsni“ eins og segir í áskor- uninni. Að söfnuninni, sem er á slóðinni www.blog.central.is/geitin, standa vinir Jóhönnu B. Þorvalds- dóttur, geitabónda á Háafelli í Borg- arnesi, en hún er með um þriðjung íslenska geitastofnsins á sínum bæ og þarf fjárstuðning til þess að ljúka uppbyggingu Geitaseturs á bænum. Hafa Bændasamtökin og Jóhanna nú þegar unnið drög að setrinu í sameiningu og er áætlað að stofnun setursins kosti 50 milljónir. Málið er til umfjöllunar í landbúnaðarráðu- neytinu. þkþ Undirskriftum safnað í þágu geitarinnar Tugir undirskrifta vegna Geitaseturs STUTT ● Afsögn Gunnar Helgason, formaður skipulags- og bygg- ingarnefndar sveitarfélagsins Voga, hefur sagt af sér vegna persónulegra ástæðna. Segir hann ákvörðun sína ekki tengda ítrekuðum afsagn- arkröfum H-listans, sam- starfsflokksins í bæjarstjórn sem krafist hefur afsagnar vegna framkvæmda á lóð þar sem eignarhald var óljóst. ● Unga fólkið upplýst Ungir jafnaðarmenn á Akranesi og Þór, félag ungra sjálfstæð- ismanna, halda í kvöld fræðslusamkomu um flótta- menn. Bæði félög hafa lýst yfir stuðningi við þá ákvörð- un að taka á móti flótta- mönnum. Fundurinn verður í félagsmiðstöðinni Þorpinu nesi og hefst klukkan 20. þkþ Hafrannsóknastofnun hefur birt veiðiráðgjöf sína fyrir komandi fisk- veiðiár. Stofnunin leggur til að þorskkvótinn verði skorinn niður um sex þúsund tonn frá þessu ári og kvótinn verði 124 þús- und tonn. Hins vegar ákvað ríkisstjórnin í fyrra að kvótinn yrði ekki undir 130 þúsund tonnum. Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að dregið verði úr sókn í ýsustofninn og að 83 þús- und tonn verði veidd í stað 95 þúsund tonna á yfirstandandi fisk- veiðiári. Aflamark á ufsa verður ákvarðað 50 þúsund tonn ef farið verður að ráðgjöf stofnunarinnar í stað 60 þúsund tonna nú. Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir það vonbrigði að viðmiðunarstofn þorsks sé ekki metinn stærri í skýrslu stofnunar- innar. Það komi þó ekki mjög á óvart. Einar sagði að ekki væri búið að fara yfir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í öðrum stofnum og því væri ekki tímabært að tjá sig um þá stofna. mbl.is Hafró vill minni þorskveiði Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Gerð var könnun á gististöðum innan Ferðaþjónustu bænda. Könnunin nær yfir flokk 2 sem er gisting fyrir tvo í herbergi án salernis en með vaski. Í öll skiptin er morgunmatur innifalinn. Athugið að ekki er tekið til- lit til gæða, þjónustu eða dægradvalar. Alls ekki er um tæmandi úrtak að ræða. Ekki er heimilt að vitna í könnunina í auglýsingum. Bændagistingin misdýr Kristín H. Einarsdóttir NEYTENDAVAKTIN Bændagisting fyrir tvo, herbergi án salernis en með vaski Gististaður Verð Verðmunur Stóra-Mörk, V-Eyjafjöllum 4.500 Kirkjuból í Bjarnadal, 425 Flateyri 8.300 84,4 % Eyjólfsstaðir á Völlum 9.500 111,1 % Engimýri í Öxnadal 9.800 117,8 % Hólar í Hjaltadal 9.900 120,0 % Hunkubakkar á Síðu, 880 Kirkjub. 9.950 121,1 % Skálafell í Suðursveit, 781 Höfn 10.000 122,2 % Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Tillögur um aðgerðir í miðborg Reykjavíkur sem átti að leggja fyrir borgarráð fyrir apríllok eru enn ekki tilbúnar. Tillögurnar voru hluti af skýrslu starfshópsins „Reykjavík, betri miðborg“ sem skilað var til borgarstjóra 19. jan- úar. Skýrslan var lögð fyrir borg- arráð 3. apríl og við það tækifæri var bókað að leggja ætti endur- skoðaðar tillögur sérstaks að- gerðahóps fyrir borgarráð fyrir apríllok. Á að skila tillögum úr til- lögum Í aðgerðahópnum sitja fjöl- margir embættismenn borgarinn- ar auk borgarstjórans og aðstoð- armanns hans. Í erindisbréfi hópsins er hlutverk hans sagt vera að samræma og gera tillögur um nauðsynlegar aðgerðir í miðborg- inni og verkefni hans að setja þær tillögur „í réttan farveg innan borgarkerfisins“. Þegar tillögur hópsins lægju fyrir átti þriggja manna hópur sem í sitja borg- arstjóri, Dagur B. Eggertsson og Jórunn Frímannsdóttir að fara yf- ir þær og leggja fyrir borgarráð. Það hefur hins vegar ekki gerst. Veit ekki hvað veldur töfum Dagur segir erfitt að svara því hvað valdi töfunum. „Því var heitið að þetta yrði botnað fljótt og vel en síðan dróst fram eftir öllum apríl að boða fyrsta fund. Svo voru haldnir tveir fundir í maí en síðan hef ég ekkert heyrt af þessu starfi eða hvað var gert við þær ábendingar og tillögur sem ég kom á framfæri inni á þeim fundum.“ Dagur segir að hann muni kalla eftir upplýsingum um hvað valdi töfunum á borgarráðsfundi í dag. Skiptar skoðanir á veggjakroti Jórunn segir vinnu að tillög- unum vera á lokasprettinum. „Það eru svo margir fletir sem koma að þessu og við viljum vera búin að hugsa þetta til enda þannig að það sem við leggjum fram verði allt framkvæmanlegt.“ Ein af þeim tillögum sem ekki hefur náðst sátt um innan hóps- ins snýst um hver stefna borg- arinnar eigi að vera í aðgerðum gegn veggjakroti. Jórunn segir vissulega skiptar skoðanir um stefnuna innan aðgerðahópsins. „Inni á fundunum eru sumir sem aðhyllast það að það eigi að leyfa veggjakrot á ákveðna veggi.“ Ekki náðist í borgarstjóra við vinnslu fréttarinnar en Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, aðstoðar- maður hans, segir aðgerðahópinn hafa fundað í gær og að reiknað sé fastlega með því að tillögurnar verði lagðar fyrir borgarráð í næstu viku. Áttu að liggja fyrir í lok apríl ➤ Skýrslunni „Reykjavík, betrimiðborg“ var skilað 19 jan- úar. ➤ Skipaður var aðgerðahópur3. apríl til að vinna tillögur úr skýrslunni sem átti að skila þeim af sér fyrir apríllok. ÚRBÆTUR Í MIÐBORGINNI Laugavegurinn Stefnt er að því að leggja tillögurnar fyrir borgarráð í næstu viku.  Minnihlutinn kallar eftir upplýsingum um ástæður tafanna  Vinnu að ljúka segir meirihlutinn  Tekist á um veggjakrot

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.