24 stundir - 05.06.2008, Page 6

24 stundir - 05.06.2008, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir Rauði þráðurinn - Samfylkingin í beinni Nánari upplýsingar á www.samfylking.is Útvarp Saga fm 99,4 í dag kl. 17-18. Aðalgestur þáttarins: Steinunn Valdís Óskarsdóttir Alþingismaður og formaður samgöngunefndar Alþingis Hlustendur geta hringt inn fyrirspurnir í síma 588 1994 Umsjónarmenn: Oddný Sturludóttir og Dofri Hermannsson „Ég er hæfilega bjartsýn,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður leikskólaráðs Reykjavík- urborgar, um hvort hún telji að það takist að fullmanna leikskóla borg- arinnar á komandi vetri. „Það eru alls konar langtímaáætlanir í gangi og eru í eðlilegum farvegi og er fylgt eftir,“ segir hún og bætir við: „Ég hef lagt áherslu á að vanda val- ið þegar loksins býðst fólk til þess að tryggja að ráðið verði fólk sem verði til lengri tíma.“ Hún segir að nú þegar sé verið að meta hvernig staðan verður í haust. „Við reynum sjá þetta fyrr svo við höfum tíma til að bregðast við.“ Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í leikskólaráði, hef- ur áhyggjur og gagnrýnir að í að- gerðaáætlun meirihlutans í leik- skólamálum sé ekki minnst á aðgerðir til að leysa manneklu- vandann. elias@24stundir.is Mannekla á leikskólunum í haust Hæfilega bjartsýn Ferðamenn leggja húsbílum inni í bæjum í vaxandi mæli, í stað þess að nýta til þess tjaldstæðin, og á Hólmavík leggja þeir nánast í bakgörðum íbúanna. „Það er auðvitað voðalega hvimleitt að þeir leggi hér um allan bæ,“ segir Ásdís Leifsdóttir, sveitarstjóri í Strandabyggð. Telur hún ferðamennina vera með þessu að spara sér gistigjaldið á tjaldsvæðinu en þjón- ustuna nýti þeir samt sem áður. Vandamál í bæjum víða um landið „Það hefur borið á þessu í mörgum bæjum, ég hef heyrt þetta frá fleiri sveitarfélögum vítt og breitt um landið,“ segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísa- firði. „Þetta er svolítið vont því við höfum lagt mikinn kostnað í þessi tjaldstæði,“ segir hann. Leyfilegt er að leggja húsbílum í öll stæði önnur en einkabílastæði nema kveðið sé á um annað í þeirri lög- reglusamþykkt sem í gildi er á hverjum stað. Vegna þess hávaða og óþrifnaðar sem húsbílum getur fylgt ætlar Kristín Völundardóttir, lögreglustjóri Vestfjarða- umdæmis, að leggja til að ákvæði um að aðeins megi leggja þeim á þar tilgerðum stæðum verði sett inn í væntanlega sameiginlega lögreglusamþykkt á Vest- fjörðum, sem hún vinnur að í sumar. thorakristin@24stundir.is Ferðamenn leggja húsbílum víða annars staðar en á tjaldstæðum „Eru nánast í bakgörðunum“ Eftir Ásu Baldursdóttur asab@24stundir.is „Spilið var orðið eins og vinna en ekki skemmtun. Ég fann að dag- arnir voru upp og niður eftir því hversu vel mér gekk í leikjunum í það og það skiptið,“ segir piltur um tvítugt í viðtali við 24 stundir en hann vill ekki láta nafns síns getið. „Þetta var orðin mikil fíkn, dag- urinn snerist um það að vakna og kveikja á tölvunni. En allt í einu fékk ég bara nóg og hætti að spila svona mikið, án aðstoðar,“ segir hann. Hann hefur oft tekið þátt í tölvuleikjaspili þar sem hópur hitt- ist og spilar saman. Mismunandi er hversu margir hittast en það getur farið upp í 10-15 manns að hans sögn. Hann bætir við að hann hafi oft haldið slíkar samkomur um helgar. Svefnlausar helgar Hann segir að strákarnir sem spila sofni stundum í stól eða reyni að finna sér bedda eða sófa til að leggja sig á. „Þegar við tökum stórar helgar þá er það oftast þegar einhver er einn heima yfir helgina. Þá sofum við stundum ekkert, mætum á föstudagskvöldi og förum heim seinnipart sunnudags. Það er reyndar mannskemmandi, ég við- urkenni það,“ segir hann. Þreytta tímabilið Strákunum finnst erfiðast að vaka á laugardeginum eða á „þreytta tímabilinu“ eins og hóp- urinn kallar það. Þegar spilararnir fara heim sofa þeir í svona 17-18 tíma áður en þeir mæta í skóla eða vinnu á mánudagsmorgun. „Við gerum þetta þegar það tek- ur því ekki að fara heim að sofa, þá er bara best að taka langa helgi,“ segir hann. „Við erum oftast ekki í sama leiknum nema í fimm til sex tíma í einu en þá tökum við pásur eða skiptum um leik. En það getur samt dregist ef það er mikil stemn- ing í hópnum.“ Í pásum fer hóp- urinn síðan oft út til að ná sér í skyndibita eða sælgæti. Tölvuleikjamót „Á mótum eru margir strákar þjófhræddir og vaka bara allan tímann eða sofa hjá tölvunum sín- um,“ segir drengurinn en hann hefur sjálfur stundað þau, m.a. SKJÁLFTA-mót. Annar piltur á sama aldri segir að spilamennskan geti orðið mjög öfgafull. „Það er mikilvægt að vera vak- andi fyrir því að þetta getur orðið að mikilli fíkn sem getur haft mikil áhrif á vinnu og skóla,“ segir hann. ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Svefnlausar helgar í tölvuleikjaspili  Piltar um tvítugt segja sögu sína af gegndarlausu hópspili  Leikjaspilið getur orðið að mikilli fíkn  Heilu helgarnar fara í að spila tölvuleiki án þess að sofa Við tölvuna Tölvuleikjaspil getur fljótt orðið að mikilli fíkn ➤ Spilarar koma með skjá,lyklaborð, fjöltengi og tölvu. Þeir notast oftast við borð- tölvur sem þeir koma með að heiman. ➤ Einnig koma spilarar oft meðtölvumús, netsnúru og stýri- kerfisdiska en sumir koma einnig með hátalara og hljóð- kerfi. ➤ Næsta tölvuleikjamót verður íEgilshöll 6.-8. júní þar sem boðið er upp á gistingu. TÖLVULEIKJASPIL „Andlegt uppnám og deilur voru undanfari fjögurra af 15 umferð- arslysum í umferðinni árið 2007. Aksturslag ökumanna í uppnámi einkennist oft af skeytingarleysi og hraðakstri sem getur lagt líf þeirra og annarra í hættu,“ segir Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rann- sóknarnefndar umferðarslysa. Í þremur þessara tilfella kom áfengi einnig við sögu. Ágúst segir að slys af þessu tagi verði oftar að sumarlagi þegar fólk fer út að skemmta sér og ágreiningur kemur upp. Undirliggjandi ástæður Þegar slys eru skoðuð með tilliti til ástæðna þeirra segir Ágúst að fólk eigi ekki að hika við að til- kynna um ökumenn sem eru ekki í ástandi til þess að setjast undir stýri og þegar vinir og ættingjar verða vitni að slíku. „Það þarf að ræða þessi mál til að reyna að koma í veg fyrir að ökumenn fari út í umferð- ina sem ekki eru í andlegu eða lík- amlegu ástandi til að keyra,“ segir Ágúst. Þjóðarátak „Andlegt og líkamlegt jafnvægi í umferðinni er lykilatriði, bæði fyrir ökumenn, umferðina og aðstand- endur alla,“ segir Ágúst. Vátryggingafélag Íslands efnir til þjóðarátaks gegn umferðarslysum í sumar. Áherslan er einnig lögð á að vekja athygli á hættunni sem fylgir því þegar ökumenn setjast undir stýri án þess að vera í andlegu jafn- vægi. Yfirskrift átaksins er „Gefðu þér tíma“ til að hvetja ökumenn til þess að leggja ekki út í umferðina í tímaþröng og stressi. Einnig ber að athuga að símanotkun er vaxandi áhættuþáttur í umferðinni. asab@24stundir.is Þjóðarátak gegn umferðarslysum Andlegt uppnám orsök slysa DÆMIGERÐ SPILAHELGI Föstudagur 20:00 Hópurinn hittist oftast í for- eldrahúsum þegar einhver er einn heima. Fjöldi spilara getur farið upp í 10-15 manns. 20:00-21:00 Tölvurnar, oftast borðtölvur, tengdar saman. Tölvurnar tengdar saman svo þær geti samnýtt Internetið. 21:00-23:00 Spilatími, skipt í lið. 23:00-24:00 Hópurinn tekur pásu og borðar. 24:00-06:00/07:00 Spilatími. Spilarar vilja oftast ekki hafa áfengi með í spilum. Þá gætu þeir átt það á hættu að skemma tölvubúnaðinn. 07:00 Spilarar fara að sofa. Á lengstu helgunum sofa þeir ekki fyrr en á sunnudeginum. Laugardagur 15:00-17:00 Hópurinn týnist aftur á staðinn. 17:00-21:00 Spilatími. 21:00-22:00 Skyndibitatími 22:00-06:00-07:00 Spilatími. Mismunandi hvort fólk fer heim eða fer að sofa á staðnum (eða sleppi því alveg). Sunnudagur 15:00-16:00 Ef spilarar hafa sofið eitthvað um helgina koma þeir saman snemma þennan dag til að spila áður en foreldrar koma heim. 17:00 Ósofnir spilarar fara heim.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.