24 stundir - 05.06.2008, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir
www.tækni.is
Fjölmenningarskólinn
Fjölmenningarskólinn er hluti af Tækniskólanum, skóla atvinnulífsins.
Tækniskólinn er nýr framsækinn framhaldsskóli, sem byggir á traustum
grunni Fjöltækniskóla Íslands og Iðnskólans í Reykjavík.
• Sérdeild. Er fyrir þá sem hafa stundað nám í sérdeildum grunnskólanna.
• Nýbúabraut. Öflugt nám fyrir nýbúa með áherslu á íslensku,
tölvugreinar og stærðfræði.
• Janus endurhæfing. Nám fyrir þá sem hafa lent í slysi og eru á
leið út í atvinnulífið að nýju.
Nýir möguleikar
Umsóknarfrestur er til 11. júní
Verslanir í Þýskalandi eru farnar að kvarta
undan mjólkurskorti, eftir að mótmæli þar-
lendra bænda hafa staðið í rúma viku. Ástandið
er verst í suðurhluta landsins, þar sem öll mjólk
er uppurin í stöku búð. Samtök mjólkurfram-
leiðenda telja að aðgerðirnar hafi þegar kostað
mjólkuriðnaðinn um sex milljarða króna.
Samband þýskra kúabænda, BDM, boðaði til
verkfalls 27. maí síðastliðinn. Fara samtökin
fram á að mjólkurlítrinn hækki í 43 evrusent,
eða um 51 krónu. Það er 20% hækkun frá því
afurðaverði sem nú er, sem talsmenn BDM segja
nauðsynlega til að koma til móts við aukinn
eldsneytis- og fóðurkostnað.
Hafa aðgerðir bændanna meðal annars falist í
að hella niður mjólk, mótmæla fyrir utan versl-
unarkeðjur sem þeir telja halda verði niðri og
loka fyrir stór mjólkurbú.
Ekkert virðist ætla að draga úr samstöðu
bændanna. „Bændur eru reiðir og munu halda
áfram þangað til eitthvað breytist,“ segir tals-
maður BDM. Um 70% kúabænda hella nú
mjólkinni sinni niður. Samtökin hvetja bændur
í grannríkjunum til að sýna stuðning og flytja
ekki mjólk til Þýskalands.
Horst Seehofer landbúnaðarráðherra leggur á
það áherslu að deilan leysist sem fyrst, svo
mjólkuriðnaðurinn verði ekki háður innflutn-
ingi hráefnis. „Í orkugeiranum höfum við séð
hvað það getur haft slæm áhrif á efnahagslífið
að vera háð innflutningi,“ segir Seehofer.
„Mjólkurbændur þurfa að fá sanngjarnt verð
fyrir framleiðslu sína. Það er í allra þágu. Aðeins
með því að tryggja viðurværi mjólkurbænda
getum við forðast að þurfa að flytja inn mik-
ilvæg hráefni til matvælaframleiðslu.“ aij
Þýskir bændur mótmæla lágu afurðaverði mjólkur
Allt að verða mjólkurlaust
Dulbúin mótmæli Bóndi brá sér í dulargervi til
að mótmæla lágu mjólkurverði.
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Barack Obama verður fyrsti þel-
dökki forsetaframbjóðandinn í
sögu bandaríska Demókrataflokks-
ins, eftir að hafa tryggt sér stuðning
meirihluta kjörfulltrúa á lands-
fundi flokksins. Hillary Clinton
ætlar að nota næstu daga til að
ákveða næstu skref, en útilokar
ekki að vera varaforsetaefni
Obama.
Snýr sér að McCain
Sigur Obama markar endapunkt
16 mánaða kapphlaups um útnefn-
ingu Demókrataflokksins fyrir for-
setakosningarnar. Undanfarna
mánuði hefur mikið púður farið í
keppni Clinton og Obama, þannig
að nokkur klofningur hefur orðið í
flokknum. Nú hvetja leiðtogar
Demókrata flokksbræður sína til
að lægja öldurnar og einbeita sér að
fimm mánaða baráttunni um for-
setaembættið sem framundan er.
„Ég er staðráðin í því að sameina
flokkinn okkar svo við horfum
sterkari fram á við og séum
reiðubúin að ná Hvíta húsinu aftur
í nóvember,“ sagði Clinton, án þess
þó að játa sig berum orðum sigr-
aða.
Clinton gleymist ekki
„Ég vil að tillit verði tekið til
þeirra nærri 18 milljóna Banda-
ríkjamanna sem greiddu mér at-
kvæði,“ sagði Clinton stuðnings-
mönnum sínum, þegar
niðurstöður lágu fyrir, og vottaði
Obama virðingu sína.
Obama lýsti ennfremur ánægju
sinni með Clinton. „Flokkurinn og
landið eru betri vegna hennar,“
sagði hann. „Og ég er betri fram-
bjóðandi eftir að hafa att kappi við
Hillary Rodham Clinton.“
Obama segist þess fullviss að að-
stoð Clinton í ýmsum mikilvægum
málaflokkum muni hjálpa til við að
leiða flokkinn til sigurs í komandi
kosningum. Staða hennar í ríkis-
stjórn Obama myndi svo ekki síst
fara eftir því hversu mikil áhrif
hann telur að Bill Clinton, forset-
inn fyrrverandi, muni reyna að
hafa.
Obama hrósar sigri
Barack Obama og John McCain munu takast á í forsetakosningum í Bandaríkjunum
➤ Landsþing demókrata kemur sér saman um forseta-
frambjóðanda 25. til 28.
ágúst
➤ Repúblikanar funda 1. til 4. september.
➤ Landsmenn kjósa um forseta 4. nóvember.
➤ 15. desember liggur fyrir hver verður forseti.
FRAMUNDAN
Sigurreif Hjónin Barack og Michelle Obama fagna með stuðningsmönnum eftir að
Obama lýsti yfir sigri í kapphlaupinu um útnefningu Demókrataflokksins.
Hópar stríðandi fylkinga
stefna saman í miðhluta Súd-
ans. Óttast David Gressley,
umdæmisstjóri Sameinuðu
þjóðanna, að erjur hópanna
geti hleypt af stað borgara-
styrjöld í landi sem enn er að
jafna sig eftir áratuga átök.
„Það er hæg stigmögnun í
herafla allra deiluaðila um
þessar mundir,“ segir Gress-
ley.
Er helsta bitbein hópanna um
þessar mundir bærinn Abyei,
en á svæðinu þar í kring má
finna miklar olíulindir. Hafa
flestir íbúar Abyei flúið átök
undanfarinna vikna. aij
Liðssafnaður í Súdan
Ófriðarský
hrannast upp
Bandarísk herskip hverfa senn
brott úr nágrenni Mjanmars,
þar sem herforingjastjórnin
hefur neitað að taka við hjálp-
argögnum sem Bandaríkja-
stjórn bauð upp á í kjölfar
fellibyljarins Nargis.
Segir Timothy Keating aðmír-
áll að undanfarnar þrjár vikur
hafi fimmtán tilraunir verið
gerðar til að sannfæra stjórn-
völd um að veita þyrlum lend-
ingarleyfi á Irawaddy-ós-
hólmasvæðinu, sem aldrei
hafi fengist. aij
Aðstoð afþökkuð
Herskip hverfa
frá Mjanmar