24 stundir - 05.06.2008, Page 15
24stundir FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 15
Bankarnir hafa verið áhrifa-ríkir og slegið um sig ennú er öldin
önnur. Í dag hefst
laxveiðitímabilið og
þá kemur í ljós að
mikið er óselt af
laxveiðileyfum.
Skessuhorn greinir
frá þessu og segir á heimasíðu
sinni: „Aldrei hafa verið til fleiri
óseld veiðileyfi en nú, veiðileyfi
fyrir marga tugi milljóna króna.
Bankarnir hafa t.d. vegna sparn-
aðar í rekstri ákveðið að draga
mjög úr kaupum á slíkum mun-
aði miðað við undanfarin ár.
Glitnir er sá banki sem mest hef-
ur haldið að sér höndum nú. Í
fyrra keyptu bankarnir veiðileyfi
fyrir 100-120 milljónir króna,
mest í Víðidalsá.“
Óvinsældir borgarstjórn-armeirihlutans í Reykja-vík taka engan enda.
Menn þar geta ekki sameinast um
nokkurn skapaðan
hlut og nú vilja þrír
verða borgarstjórar,
Hanna Birna, sem
reyndist vinsælust í
skoðanakönnun, og
svo Gísli Marteinn
og Júlíus Vífill. Samt er Villi
„gamli og góði“, eins og hann
sjálfur kallaði sig, ekkert á þeim
buxunum að segja bless og á
meðan liggur óvissan í loftinu.
Borgarstjórinn, Óli F., bætir ekki
ástandið þótt hann haldi 15 mín-
útna ræðu á borgarstjórnarfundi
um hversu Sjálfstæðisflokkurinn
hafi gert marga góða hluti. Í raun
hljómar það eins og gömul slitin
plata í eyrum þeirra sem á hlýða
og er ákaflega óspennandi.
Mörður Árnason kann oftað koma orðum aðhlutunum og því geta
leiðarar hans á heimasíðu Sam-
fylkingarinnar verið
skemmtiefni.
Mörður er ekkert að
skafa utan af hlut-
unum þegar hann
ræðir um núverandi
borgarstjóra. „Borg-
arstjórinn er ósköp einfaldlega
„enginn fokking borgarstjóri“ svo
vitnað sé í áhrínsorð á unglinga-
máli frá Ráðhúspöllunum 24. jan-
úar,“ segir íslenskufræðingurinn
og telur eðlilegast að núverandi
meirihluti sjái sóma sinn í því að
viðurkenna mistök og afhenda
Tjarnarkvartettinum svokallaða
völdin á ný. Er Mörður ekki
óeðlilega bjartsýnn á þessum síð-
ustu og verstu …?
elin@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Það styttist í 11. júní, daginn
sem frestur íslenskra stjórnvalda
rennur út til að svara mannrétt-
indanefnd Sameinuðu þjóðanna.
Eins og margir vita komst nefnd-
in að þeirri niðurstöðu að ís-
lenska fiskveiðistjórnunarkerfið –
„kvótakerfið“ – brjóti í bága við
alþjóðasamninginn um borgara-
leg og stjórnmálaleg réttindi um
jafnrétti allra manna. Nefndin
hefur óskað eftir upplýsingum
um ráðstafanir sem þá hefðu ver-
ið gerðar til að fylgja niðurstöð-
unni eftir. Rétt er að ítreka vægi
þessarar niðurstöðu mannrétt-
indanefndarinnar sem ekki er að-
eins ráðgefandi heldur hafa Ís-
lendingar skuldbundið sig til að
fylgja niðurstöðum hennar í sam-
ræmi við það sem felst í und-
irritun alþjóðlegs samnings sem
þessa.
Tillögur VG að svari
Mannréttindanefndin gefur
ekki skýr fyrirmæli um tæknilegar
útfærslur á þeim úrbótum sem
gera þarf. Hitt er ljóst að slíkar
breytingar þurfa að leiða til meira
jafnræðis milli aðila í greininni í
aðgengi að sjávarauðlindinni.
Starfshópur Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs um sjáv-
arútvegsmál hefur í samráði við
stjórn flokksins og þingflokkinn
unnið tillögur að æskilegu svari
til mannréttindanefndar Samein-
uðu þjóðanna, ásamt ítarlegri
greinargerð um málið. Tillögurn-
ar eru af hálfu VG einnig hugs-
aðar sem almennt innlegg til mál-
efnalegra skoðanaskipta og
upplýstrar umræðu. Þær eru okk-
ar framlag í því skyni að takast
megi góð þverpólitísk samvinna
um endanlega úrlausn málsins.
Fyrsta skrefið í breytingum til
að bregðast sómasamlega við áliti
mannréttindanefndarinnar er að í
lögum um stjórn fiskveiða komi
orðið jafnræði inn í markmiðs-
grein laganna: „Markmið laga
þessara er að stuðla að verndun
og hagkvæmri nýtingu þeirra og
tryggja með því trausta atvinnu
og byggð í landinu um leið og
jafnræðis verði gætt við úthlutun
afnotaréttar og aðgengi að hinni
sameiginlegu auðlind.“ Slíkri
breytingu yrði fylgt eftir með ít-
arlegri útfærslu til að tryggja
þetta jafnræði. Álit mannréttinda-
nefndarinnar kallar á að endur-
ráðstafa þarf að minnsta kosti
hluta þeirra aflaheimilda sem nú
ganga kaupum og sölum eins og
hver önnur markaðsvara þrátt
fyrir að vera í orði kveðnu sam-
eign þjóðarinnar.
Breytt fiskveiðistjórn
Við leggjum til að hafist verði
strax handa við að innkalla afla-
heimildir frá núverandi handhöf-
um og þeim endurráðstafað á
nýjum grunni. Nærtækasta leiðin
er að okkar mati sú sem kynnt
hefur verið í sjávarútvegsstefnu
flokksins, enda er hún í fullu
samræmi við niðurstöðu mann-
réttindanefndarinnar. En til að
flýta fyrir og hefja þegar aðlögun
að framtíðarskipan mála leggjum
við líka til að stjórnvöld tryggi
með lögum að unnt verði frá og
með næsta fiskveiðiári að halda
eftir hluta þeirra aflaheimilda sem
leigðar eru innan ársins (t.d. 5%)
þegar til endurúthlutunar kemur
að ári. Þá leggjum við líka til að
það skapist forsendur til að auka
heildarafla í einstökum tegundum
umfram jafnstöðuafla allmargra
undangenginna ára verði slíkt
svigrúm notað að hluta eða öllu
leyti til að flýta innleiðingu hins
nýja stjórnunarfyrirkomulags.
Við endurráðstöfun þeirra afla-
heimilda sem til ríkisins koma
með þessum hætti verði jafnræð-
issjónarmið sérstaklega höfð í
huga um leið og kappkostað verði
að styrkja stöðu minni sjávar-
byggða og byggja þar upp lág-
marksafnotarétt, eins konar
frumburðarrétt viðkomandi
strandsvæða. Þar verði um
óframseljanlegar byggðatengdar
aflaheimildir að ræða. Með al-
mennum leikreglum verði ætíð
tryggt að jafnræðissjónarmiða sé
gætt án þess að slakað sé á kröf-
um um að nýting auðlindarinnar
verði á forsendum sjálfbærrar
þróunar.
Höfundur er alþingismaður
11. júní nálgast
VIÐHORF aKolbrún Halldórsdóttir
Álit mann-
réttinda-
nefndarinnar
kallar á að
endurráð-
stafa þarf að
minnsta kosti
hluta þeirra aflaheimilda
sem nú ganga kaupum
og sölum eins og hver
önnur markaðsvara þrátt
fyrir að vera í orði kveðnu
sameign þjóðarinnar.
PL 01 Svart PL 45 Silfur-
metallic
PL 20 Dökk Grá PL 22 Dökk Rauð PL 56 Dökk brún PL 42 Rauðbrún PL 80 Hvítt PL 55 Kopar -
metallic
Aluzink Kopar
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74 – 200 Kópavogi – Sími 515 8700
www.funi.is – www.blikkas.is
Fr
um
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Úrval lita á lager
Það er engin ástæða til að horfa á heiminn
í svarthvítu. SIBA–ÞAKRENNUKERFI í fjölda lita
Létt í m
eðföru
m lang
ódýras
t
Nesbyggð ehf óskar að ráða pípulagnameistara.
Starfssvið meistarauppáskrift, verkstjórn og
almenn pípulagnavinna. Hjá Nesbyggð starfa
4 til 6 píparar og eru næg verkefni framundan.
UPPLÝSINGAR GEFUR
PÁLL Í SÍMA 840 6100
Vestmann ehf.
Fjöltæknilausnir
Komum á staðinn og gerum föst verðtilboð
Engin verk eru of stór eða lítil
• Almenn raflögn • Löggildir rafverktakar • Málarar
Vestmann ehf • torfi.vestmann@simnet.is
Torfi gsm: 856 0066
Hilmar gsm: 856 0065
Áskell gsm: 856 0066
Leikskólinn Undraland ehf. er lítill
notalegur, einkarekinn leikskóli í Kópavogi.
Okkur vantar samviskusaman og lífsglaðan
starfsmann í 100% starf frá 19. ágúst.
Upplýsingar í síma 554 0880
Skemmtilegt starf !
- kemur þér við
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744
íþróttir útivist
pólitík heilsa
fréttir fé&frami
golf 24fólk veiði
neytendavaktin
golf dagskrá
menning viðtöl
ferðalög viðskipti
garðurinn grill
24lífið bílar
neytendur umræða