24 stundir - 05.06.2008, Page 19
24stundir FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 19
Seðlabanki Íslands þrengir
reglur um gjaldeyrisjöfnuð
fjármálafyrirtækja, með
reglum sem taka gildi 1. júlí
næstkomandi. Samkvæmt
nýju reglunum, sem gefnar
voru út í gær, skal misvægi á
milli gengisbundinna eigna og
skulda fjármálafyrirtækja
mest nema 10% af eigin fé
hverju sinni. Samkvæmt fyrri
reglum mátti misvægið vera
mest 30%. „Lægra misvægi,
sem nýju reglurnar fela í sér,
er ætlað að draga úr áhættu og
stuðla að virkari verðmyndun
gjaldeyris á millibankamark-
aði,“ segir í frétt frá bank-
anum. hos
Konum í stjórn fyrirtækja
fjölgar á milli ára, að því er
fram kemur í nýrri könnun
frá Rannsóknarsetri vinnu-
réttar við Háskólann á Bifröst.
Konur skipa 13% stjórnarsæta
í 120 stærstu fyrirtækjum hér
á landi nú, samanborðið við
8% árið 2007. Í 13 af 120
stærstu fyrirtækjunum er
stjórnarformaðurinn kona.
Árið 2007 voru þrjár konur
stjórnarformenn í 100 stærstu
fyrirtækjunum. Í þeim 11 fyr-
irtækjum á listanum sem
skráð eru á aðallista Kauphall-
arinnar skipa konur 10%
stjórnarsæta. mbl.is
Hagvöxtur hér á landi mun
minnka hratt og atvinnuleysi
aukast ef spá OECD verður að
veruleika. Stofnunin spáir því
að hagvöxtur verði 0,4% á
þessu ári, en neikvæður um
0,4% á því næsta. Atvinnuleysi
verði að meðaltali 3,4% á
þessu ári og 5,7% á því næsta.
Skýrsluhöfundar segja mik-
ilvægt að peningamálastefna
Seðlabankans sé áfram hörð
svo lágmarka megi langvar-
andi áhrif gengisfalls krón-
unnar á verðbólgu. Gjaldeyr-
isskiptasamningar séu til þess
fallnir að draga úr óvissu. hos
Gjaldeyrisjöfnuður
Seðlabankinn
þrengir reglur
Konur – 13% stjórna
Fleiri konur
í stjórnum
Hagvöxtur neikvæður
Spá auknu
atvinnuleysi
Viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 56,7
milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins sam-
kvæmt bráðabirgðayfirlitinu. Þetta er talsvert
minna en á síðasta fjórðungi, en þá var hann
óhagstæður um 91 milljarð króna.
Seðlabanki Íslands birti í gær bráðabirgða-
yfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fyrsta árs-
fjórðungi 2008 og um stöðu þjóðarbúsins í lok
ársfjórðungsins.
Lækkun á gengi krónu hefur mikil áhrif
Seðlabankinn segir að ávöxtun erlends hluta-
fjár í eigu Íslendinga valdi mestu um að jöfn-
uður þáttatekna batnaði á milli fjórðunga.
Nokkur hækkun varð einnig á gjaldahlið þátta-
teknanna sem skýrist að mestu leyti af endur-
fjárfestum hagnaði erlendra aðila á Íslandi að
sögn bankans. Seðlabankinn segir að lækkun á
gengi krónunnar á fyrsta ársfjórðungi hafi veru-
leg áhrif á flesta liði í uppgjöri greiðslujafnaðar-
ins.
Hreint fjárinnstreymi nam 135,3 milljörðum
króna á tímabilinu. Bein fjárfesting innlendra
aðila erlendis jókst um 36 milljarða en á síðasta
fjórðungi 2007 dróst hún saman um 275 millj-
arða. Bein fjárfesting erlendra aðila á Íslandi
dróst saman og sama máli gegndi um fjárfest-
ingu þeirra í innlendum markaðsskuldabréfum.
Hrein staða versnar um 628 milljarða
Í yfirlitinu kemur fram að hrein staða við út-
lönd var neikvæð um 2.211 milljarða króna í lok
fyrsta ársfjórðungs og versnaði um 628 milljarða
á ársfjórðungnum. Seðlabankinn segir þessa
þróun einkum stafa af veikingu gengis krón-
unnar, það er hækkun á verði erlendra gjald-
miðla um 29,6% samkvæmt gengisskráningar-
vísitölu, sem endurspeglast í samsvarandi
hækkun stöðutalna um erlendar eignir og skuld-
ir. Einstakar myntir, til að mynda evra, hækkuðu
þó talsvert meira eða um tæplega 33%. Erlendar
eignir námu 7.758 milljörðum króna í lok árs-
fjórðungsins en skuldir 9.970 milljörðum.
elias@24stundir.is
Seðlabankinn birtir bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fyrsta ársfjórðungi
Viðskiptahalli minnkar um 33 milljarða
Minni viðskiptahalli Viðskiptahallinn minnkaði um 33
milljarða á milli ársfjórðunga.