24 stundir


24 stundir - 05.06.2008, Qupperneq 22

24 stundir - 05.06.2008, Qupperneq 22
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Barði Jóhannsson og Keren Ann Zeidel leiða saman hesta sína og halda tónleika ásamt Sinfóníu- hljómsveit Íslands í Háskólabíói í kvöld. Tónleikarnir eru liður í Listahátíð í Reykjavík og haldnir í samstarfi við sendiráð Frakklands á Íslandi. Franski hljómsveitarstjór- inn Daniel Kawka var fenginn til þess að stjórna tónleikunum og er staddur hér á landi í annað skipti. „Ég kom hingað fyrst í fyrra og vann þá með nokkrum meðlimum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sú reynsla var afar góð þannig að þeg- ar Barði hafði samband við mig fyrr á árinu og bað mig um að koma og taka þetta verkefni að mér 2. júní þótti mér leitt að þurfa að segja honum að ég kæmist ekki þar sem ég væri að stjórna tónleikum í París daginn áður. En þá bauðst hann til þess að færa tónleikana fram til 5. júní og ég stóðst ekki mátið,“ segir hann. Góð tengsl Daniel kom hingað til lands síð- astliðinn þriðjudag og hefur æft stíft með söngvurunum og hljóm- sveitinni. „Æfingarnar hafa gengið vonum framar. Sinfóníuhljóm- sveitir eru í raun eins og einstak- lingar og eins og við öll könnumst við geta samskipti einstaklinga stundum verið stirð, stundum hlutlaus en einstaka sinnum ná tvær manneskjur strax að tengjast nánum böndum og skilja hvor aðra. Ég náði strax góðum tengslum við Sinfóníuhljómsveit Íslands og met það mikils, enda er það ekkert sjálfgefið að stjórnendur nái slíkum tengslum við hljóm- sveitir, ekki frekar en það sé sjálf- gefið að tvær manneskjur nái alltaf saman. Svo gengur líka mjög vel að spila með Keren Ann og Barða og á æfingum hef ég fengið það á til- finninguna að þau tvö, hljómsveit- in og ég myndum eina heild í stað þess að við förum hvert og eitt í mismunandi áttir,“ segir hann. „Þessa tilfinningu er mjög gott að hafa og hún auðveldar vinnuna mjög og lætur mann ekki fá það á tilfinninguna að tíminn sé of lengi að líða á æfingum.“ Tilfinning mikilvæg Á sínum unglingsárum spilaði Daniel á rafmagnsgítar í þunga- rokkshljómsveit en skipti svo yfir í klassíska tónlist í kjölfar þess. Hann hefur mikið dálæti á tón- skáldum á borð við Wagner og Strauss en segist þó hlusta á allar tegundir tónlistar. „Ég hef til dæm- is alltaf haldið upp á Jimi Hendrix og svo finnst mér mjög margt gott hafa komið frá ensku hljómsveit- inni Coldplay. Það skiptir ekki allt- af máli hvort verið er að spila rokk- tónlist eða klassíska tónlist svo lengi sem hún er samin og flutt af mikilli tilfinningu. Það er ekki nóg að vera bara með grípandi laglínu og takt; ef tónlistarmenn myndu spila ekki af tilfinningu er alveg eins hægt að láta vélar sjá um allan flutninginn.“ Daniel Kawka Stjórnar tónleikum á vegum Listahátíðar í kvöld. Franski hljómsveitarstjórinn Daniel Kawka Árangursríkt samstarf Einn afkastamesti hljóm- sveitarstjóri Frakklands, Daniel Kawka, er staddur hér á landi og ætlar að stjórna tónleikum Barða Jóhannssonar, Keren Ann Zeidel og Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands í Há- skólabíói í kvöld. ➤ Er fæddur og uppalinn íFrakklandi en er af pólskum ættum í föðurætt. Hann talar hrafl í pólsku og heldur tengslum við Pólland. ➤ Er einn afkastamesti hljóm-sveitarstjórinn í Frakklandi. ➤ Er reglulegur gestastjórnandimeð hljómsveitum á borð við Sinfóníuhljómsveit Varsjár, Fílharmóníusveit Radio France, Fílharmóníusveit Lille og ýmsum fleiri. DANIEL KAWKA 22 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir www.flugskoli.is Flugskóli Íslands er stærsti og öflugasti flugskóli landsins með 17 flugvélar, þyrlu og flughermi í rekstri og á næsta ári bætist B-757 flughermir í flotann. Skólinn býður upp á allt nám sem þarfnast til að flugmaður geti hafið störf hjá flugfélagi sem atvinnuflugmaður. Að auki sinnir skólinn tegundarþjálfunum og endurmenntun fyrir flugmenn innlendra og erlendra flugfélaga. Settu markið hátt Flugskóli Íslands Flugskóli Íslands er hluti af Tækniskólanum, skóla atvinnulífsins. Tækniskólinn er nýr framsækinn framhaldsskóli, sem byggir á traustum grunni Fjöltækniskóla Íslands og Iðnskólans í Reykjavík. LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Það skiptir ekki alltaf máli hvort verið er að spila rokktónlist eða klassíska tónlist svo lengi sem hún er samin og flutt af mikilli tilfinningu. menning 10. Griðastaður - kilja Raymond Khoury 9. Þúsund bjartar sólir - kilja Khaled Hosseini 8. Brúðkaupsnóttin - kilja Ian McEwan 7. Áður en ég dey-kilja Jenny Downham 6. Dísa ljósálfur G.T. Rotman 5. Þórarinn Eldjárn - kvæðasafn Þórarinn Eldjárn - kvæðasafn 4. Aska - kilja Yrsa Sigurðardóttir 3. Ástin á tímum kólerunnar - kilja Gabriel Garcia Márquez 2. Sjortarinn- kilja James Patterson 1. Harðskafi - kilja Arnaldur Indriðason Listinn er gerður út frá sölu í Eymundsson og Bókabúð Máls og menningr 28.05.2008 til 03.06.2008 METSÖLULISTI Bækur á íslensku 10. Sleeping Dol Jeffrey Deaver 9. Third Degree Greg Iles 8. Human Body Steve Parker/Dorling Kindersley 7. New Earth Eckhart Tolle 6. 501 Must-Drink Cocktails Bounty Books 5. 501 Must-Visit Natural Wonders Bounty Books 4. Chameleon’s Shadow Minette Walters 3. Step on a Crack James Patterson 2. Judas Strain James Rollins 1. 501 Must-Visit Cities Bounty Books Listinn er gerður út frá sölu dagana 27.05.2008 - 02.06.2008 í Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar METSÖLULISTI Erlendar bækur

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.