24 stundir - 05.06.2008, Blaðsíða 26
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
„Undirbúningur fyrir hlaupið
hefst í október og á fólk til að hvá
yfir því en heilmikil vinna liggur
að baki skipulagningunni. Hlaup-
ið byrjar ekki alls staðar á sama
tíma en í Mosfellsbæ er t.d. alltaf
byrjað klukkan 11 þar sem ég byrja
á að skokka og skokka síðan í
Garðabænum,“ segir Ingibjörg
Bergrós Jóhannesdóttir, formaður
Kvennahlaupsins, sem gegnir nú
starfinu fimmta árið í röð.
Hún veit ekki til þess að slíkt
hlaup sé haldið annars staðar í
heiminum nema í Finnlandi og
hópar íslenskra kvenna veki því
mikla athygli erlendis þegar þær
klæða sig í bolina og spretta af
stað.
Engin ný vísindi
Aðalhlaupið er í Garðabæ og
hefst með því að Hara-systur stíga
á stokk klukkan 13.30 en hlaupið
sjálft hefst klukkan 14. Misjafnt er
hvaða vegalengdir eru hlaupnar en
í Garðabænum var lengsta hlaupið
til að mynda lengt úr 9 km í 10 km
í fyrra. Reglulega hefur komið upp
sú umræða hvort ekki ætti að
tímataka hlaupið en Ingibjörg seg-
ir að það sé ekki það sem hlaupið
snúist um heldur sé fjöregg og sér-
staða þess sú að vekja stúlkur á öll-
um aldri og af öllum gerðum til
meðvitundar um að hreyfing sé
nauðsynleg. Hlaupið sé því ekki
ætlað keppnishlaupurum þótt þeir
séu að sjálfsögðu velkomnir.
„Það eru engin ný vísindi í því
að jákvætt hugarfar, hreyfing og
hollur matur er mikilvægast.
Rannsóknir hafa sýnt að fólk sem
flokkast sem of þungt en hreyfir
sig regulega er gjarnan heilbrigð-
ara en grannvaxið fólk sem hreyfir
sig lítið. Aðalmálið er því ekki að
vera mjög grannur heldur hraust-
ur. Sjálf er ég mikill skokkari og
hef gaman af almennri útivist auk
þess sem ég hleyp mikið á eftir
barnabörnunum mínum,“ segir
Ingibjörg.
Möguleiki á dekurdegi
Í tengslum við Kvennahlaupið
er leikur í gangi þar sem þátttak-
endur geta unnið dekurdag fyrir
vinkvennahópinn. Til að eiga
möguleika á vinningnum þarf við-
komandi að senda inn myndskeið
eða mynd af sér og/eða hópnum
sínum þar sem eigin upplifun af
Kvennahlaupinu er lýst.
Heilbrigt hugarfar og hraustar konur
Kvennahlaupið
haldið í 18. sinn
Kvennahlaupið verður
haldið í 18. sinn þann 7.
júní. Hlaupið er á 90 stöð-
um hér heima og 20 stöð-
um erlendis en að jafnaði
taka tæplega 16.000 kon-
ur þátt. Þemað í ár er
Heilbrigt hugarfar og
hraustar konur en hlaup-
ið er haldið í samstarfi
við Lýðheilsustöð.
Þjófstart Hópur
kvenna hljóp í
vikunni.
➤ Kvennahlaupsbolirnir í ár eruekki úr bómull heldur dry fit
og svolítið aðsniðnari og
dömulegri en tíðkast hefur.
➤ Þátttakendur í leik Kvenna-hlaupsins eiga möguleika á
að vinna dekurdag.
KVENNAHLAUPIÐ
26 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir
Stuðningshópur bandarískra
neytenda hefur hvatt til þess að
matvælaeftirlit þar í landi banni
átta tegundir gervilitarefna í mat
þar sem sýnt hefur verið fram á að
þau geti leitt til ofvirkni og hegð-
unarvandamála meðal barna. Hef-
ur hópurinn í þessu samhengi bent
á góðan árangur breskra stjórn-
valda við að draga úr notkun lit-
arefna meðal matvælaframleið-
enda.
Bandaríska matvælaeftirlitið
hefur ítrekað hunsað slíkar beiðnir
og segir á heimasíðu sinni að þótt
slík litarefni hafi áður verið talin
valda slíku séu engar sannanir fyrir
hendi um slíkt í dag.
Segir talsmaður eftirlitsins að öll
litarefni séu vandlega prófuð áður
en þau séu sett í matvæli. Á meðan
hefur hópurinn sent undirskrifta-
lista til eftirlitsins og krafist þess að
matur með slíkum litarefnum
verði sérstaklega merktur þar til
gripið verði til annarra aðgerða.
Krafist sérstakra merkinga um litarefni í mat
Geta leitt til ofvirkni
Höfuðverkur er sár og leiðinleg-
ur en margir fá álagshöfuðverk
þegar stressið og áreitið verður of
mikið. Meðferð við höfuðverk er
margvísleg eftir tíðni og styrk en
eitt af því sem mælt er með er að
bæta líkamsstöðu sína með ýmsum
ráðum.
Forðastu að standa, sitja eða
vinna í sömu stellingu of lengi,
reyndu að breyta til og liðka þig
inn á milli. Passaðu þig að vera í
góðum skóm og teygja þig reglu-
lega og styrkja vöðva með æfingum
fyrir háls og herðar. Góður koddi
og góðir skór skipta líka miklu máli
svo og heilsusamlegt mataræði og
hófleg drykkja.
Líkamsstaðan getur haft mikið að segja
Ráð við höfuðverk
Hvimleitt Engum
finnnst skemmtilegt
að fá höfuðverk.
Svokallað 5rytma dansnámskeið
hefst í Gróttusalnum á Seltjarnar-
nesi í dag og stendur yfir helgina.
Hér er um að ræða dans sem þró-
aður er af hinni bandarísku Gabr-
ielle Roth en í honum er dansað í
gegnum 5 rytma eins og nafnið
gefur til kynna og kafað ofan í mis-
munandi tilfinningar með flæði,
stakkató, kaos, lýrík og kyrrð.
Hreyfingar skapa öldu
„Að mínu mati er þessi dans
meðferð í eðli sínu þótt hann sé
ekki þekktur sem slíkur. Uppbygg-
ing mismunandi takts leggur fram
vissar hreyfingar við hæfi í dans-
inum en annars er ekki um að ræða
ákveðin dansspor. Þetta byggist
frekar þannig upp að þegar fólk
byrjar að hreyfa sig við vissa tóna
fer af stað alda sem fólk hreyfir sig í
gegnum,“ segir Anna Sigríður
Ólafsdóttir, einn skipuleggjenda
námskeiðsins. Hún segir heilmikla
heimspeki tengjast dansinum þar
sem komið er inn á alla þá hringrás
sem mikið er talað um í dag, það er
að segja hvernig hugur og sál virð-
ast tengjast í eðlisbundnum takti.
„Þetta er mjög djúpt en um leið
ótrúlega skemmtilegt og létt sem
kemur í veg fyrir þau þyngsli sem
oft virðast einkenna djúpa vinnu,“
segir Anna Sigríður.
Opin kynning
Námskeiðið hefst í kvöld klukk-
an 18:30 með opinni kynningu þar
sem fólk getur kynnt sér námskeið-
ið nánar og skráð sig í framhaldi af
því, en skráning fer einnig fram á
www.ildi.is.
maria@24stundir.is
Dansað í
gegnum
tilfinningar
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Það eru engin ný vísindi í því að já-
kvætt hugarfar, hreyfing og hollur
matur er mikilvægast.
heilsa
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.
PAUSE CAFÉ
Pils og toppar
Stærðir 34-52
HEILL HEIMUR
AF SKEMMTUN
Opið sunnudaga til fimmtudaga
11.00 -24.00
Opið föstudagaoglaugardaga
11.00 - 02.00
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744
Hvað ætlar
þú að gera
í dag?