24 stundir - 05.06.2008, Side 32

24 stundir - 05.06.2008, Side 32
Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag Fimmtudagur 5. júní 2008  Erpur Eyvindarson Rott- weilerhundur segir kreppu vera perfekt fyrir listamann sem á ekki neitt. » Meira í Morgunblaðinu Ferskt hipp-hopp  Í væntanlegri heimild- armynd Friðriks Þórs Frið- rikssonar eru merkilegar uppgötvanir um einhverfu. » Meira í Morgunblaðinu Í sigurliði  Evrópukeppnin í fótbolta hefst á laugardag. Hitað er upp fyrir keppnina með vel völdum slögurum. » Meira í Morgunblaðinu Fótboltaslagarar reykjavíkreykjavík 32 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir FÓLK lifsstill@24stundir.is MYNDASÖGUR Vandræði söngvarans R. Kelly ætla engan enda að taka. Nú er hann aftur fyrir rétti vegna meintra kynferðisbrota gegn stúlku undir lögaldri. Vandræðin hófust árið 2002 eftir að blaðamaðurinn Jim DeRogatis fékk myndbandsupp- töku í hendurnar af söngvaranum í kynlífsatlotum við stúlku sem þá var 13 ára. Stuttu eftir fréttaflutn- ing af því atviki var R. Kelly kærð- ur fyrir 14 brot tengd barnaklámi. Blaðamaður á að bera vitni Blaðamanninum hefur verið skipað að bera vitni í málinu, en hann hefur neitað að mæta og ber fyrir sig að þá yrði brotið á rétt- indum hans sem blaðamanns. Honum hefur nú verið skipað af dómara málsins að mæta, eða hljóta fangelsisvist fyrir að koma í veg fyrir að réttlætinu verði full- nægt. Mæti blaðamaðurinn fyrir rétt verður bannað að spyrja hann spurninga um hvaðan hann fékk myndbandið eða skyldur hans sem blaðamanns. Myndbandið var að öllum lík- indum tekið einhvern tímann á milli áranna 1999 og 2000. Vörn R. Kelly hefur gengið svo langt að gefa til kynna að myndbandinu hafi verið hagrætt á stafrænan hátt til þess að bæta andliti söngvarans inn á. Það þykir þó ekki útskýra af hverju herberginu svipar til herbergis á gömlu heim- ili hans. Samkvæmt sérfræðingum FBI eru litlar sem engar líkur á því að myndbandið sé falsað. Verði R. Kelly fundinn sekur gæti hann átt allt að 15 ára fang- elsisvist yfir höfði sér. biggi@24stundir.is R. Kelly gengur illa að verja sig gegn ásökunum um barnaklám Myndbandið ekki falsað Útgáfufyrirtæki bresku söng- konunnar Lily Allen hefur miklar áhyggjur af stjörnunni en hún var borin ofurölvi af lífverði sínum út af verðlaunahátíð Glamour magaz- ine í fyrrakvöld. Verið var að af- henda verðlaun fyrir konu ársins og er nokkuð ljóst að stúlkan eigi ekki einu sinni möguleika á til- nefningu á næsta ári haldi hún áfram að missa stjórn á drykkju sinni á almannafæri. Lily skammaðist sín svo mikið að hún ákvað að biðjast afsökunar á bloggi sínu. „Ég varð blindfull, allt of full,“ skrifar hún á síðunni. „Það er ekk- ert svalt við að verða svona fullur. Mér líður ömurlega og ég verð að þakka litla bróður mínum fyrir að koma mér heim. Krakkar, drekkið á ábyrgan hátt eða þið endið á því að líta jafn illa út og ég gerði!“ Lily hefur verið áberandi á djamminu frá því að hún missti fóstur og hætti með kærasta sínum úr The Chemical Brothers fyrr á árinu. Starfsmenn Capitol/Emi ótt- ast nú um andlega heilsu hennar og að hún sé á góðri leið með að sturta ferli sínum niður í klósetti. biggi@24stundir.is Plötufyrirtæki Lily Allen hefur áhyggjur Ofurölvi í fínu boði Stórleikarinn Bruce Willis hefur samkvæmt heimildum Variety samþykkt að leika annað aðal- hlutverkið í kvikmynd byggðri á tölvuleiknum Kane & Lynch. Leikurinn olli miklum von- brigðum á sínum tíma og því var talið ólíklegt að kvikmynd yrði gerð eftir honum en það skyldi aldrei vanmeta hugmyndaskort stóru kvikmyndaveranna í Holly- wood. Billy Bob Thornton er sterklega orðaður við hitt aðal- hlutverkið í myndinni. vij Bruce Willis í tölvuleikjamynd Aðþrengdur Afsakið að ég er til! ÉG HELD AÐ ÉG SEGI PASS Á ÞETTA ÓVIÐJAFNALEGA STEFNUMÓT ÞI TT MEÐ EILÍFU MYRKRI SEM ÞEMA. ÉG VISSI ÞAÐ! HÁRLOS IÐ YRÐI TIL VAN- DRÆÐA EINN DAGINN EKKI SVARA ÞESSU. VIÐ ERUM AÐ BORÐA. SVO ER ÉG ALVEG VISS UM AÐ ÞAÐ ER BARA VERIÐ AÐ REYNA AÐ SELJA ÞÉR EITTHVAÐ. Bizzaró Herra Kerr er til í að hitta þig ef þú tekur af þér hattinn. poppmenning

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.