24 stundir - 05.06.2008, Side 38
Eftir Trausta S. Kristjánsson
traustis@24stundir.is
„Ég sagði upp hjá Hr. Örlygi 1. maí,
meðal annars vegna þess að ég hef
ekki fengið greidd laun í nokkra
mánuði,“ segir Diljá Ámundadótt-
ir, sem starfað hefur að Iceland
Airwaves-hátíðinni undanfarin ár.
Deilt um reksturinn
Fyrrverandi framkvæmdastjóri
hátíðarinnar, Eldar Ástþórsson,
sagði einnig upp vegna ágreinings
um rekstrarform hátíðarinnar við
eigandann, Þorstein Stephensen,
og sagði í yfirlýsingu á þriðjudag að
rekstur hennar hefði ekki verið að-
skilinn frá öðrum verkefnum og
fjárfestingum Hr. Örlygs. Hvorki
Þorsteinn Stephensen né fjár-
málastjóri Hr. Örlygs, Inga Dóra
Jóhannsdóttir, vildu tjá sig um
málið.
Samkvæmt starfsmanni menn-
ingarsviðs Reykjavíkurborgar, sem
er einn helsti styrktaraðili hátíð-
arinnar, eru allir styrkir skilyrðum
háðir og grannt fylgst með því
hvernig þeim er varið af styrkþega.
Upplýsingafulltrúi Icelandair,
Guðjón Arngrímsson, tók í sama
streng. „Við erum núna að fara yfir
stöðuna með öllum rekstrarað-
ilum, með það í huga að næsta há-
tíð verði haldin með sóma, líkt og
hingað til.“
Gúmmílaunaseðlar
„Hr. Örlygur hefur gefið út
launaseðla, en ekki greitt nein laun
og þar af leiðandi get ég sjálf ekki
starfað hér áfram. Ég tel þó að Eld-
ar sé best til þess fallinn að sjá um
framkvæmd hátíðarinnar, líkt og
hann hefur sannað undanfarin ár.
Þá er hætt við því að hátíðin verði
ekki haldin með sama glæsibrag og
áður vegna fjárhagsörðugleika, sem
er synd, því næsta hátíð verður sú
tíunda í röðinni.“
Trúir ekki á verkefnið
„Við sem enga innsýn höfðum í
fjármálin, þurftum samt að skrifa
undir samninga og gefa loforð sem
í ljós kom að aldrei gátu staðist,“
segir Diljá og vísar til útistandandi
skulda Hr. Örlygs við ýmis hótel,
sem hefur orðið til þess að erfitt er
að bóka gistingu fyrir erlendar
hljómsveitir. „Ég vil ekki starfa að
verkefni sem ég hef misst trúna á.
En ég vona þó að hátíðin fari fram,
því hún er það mikilvæg.“
Fjárhagsvandræði Hr. Örlygs leiða til uppsagna
Engin innistæða
fyrir launaseðlum
Styr stendur um rekst-
urinn á Airwaves-tónlist-
arhátíðinni. Starfsmenn
hátíðarinnar segja nú
upp hver af öðrum, enda
ekki fengið greidd laun í
marga mánuði.
Ósáttur Eldar Ástþórsson er ósáttur við
rekstrarfyrirkomulagið.
Meðan allt lék í lyndi Þor-
steinn Stephensen handsalar
styrkarsamning við Icelandair
og Reykjavíkurborg.
38 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir
Sími 588 9900 hopar@itferdir.is
Leiguflug með Icelandair
9.-11. september.
Verð á mann í tvíbýli:
49.900 kr. (gengi GBP 30. maí 2008)
Innifalið: Flug, skattar,
flugvallaakstur og góð
gisting í miðborginni. Íslensk fararstjórn.
„Ég hætti að fara í bíó fyrir löngu.
Það er bara enga n veginn
skemmtun í mínum huga að sitja
fyrir framan risaskjá með hljóðið
svo hátt stillt að ég hrekk í kút í
hvert skipti sem eitthvað mark-
vert gerist. Kannski er ég bara
orðin svona gömul? Að fara í bíó
er góð skemmtun … eh nei!“
Valgerður G
overmaster.blog.is
„ … ísbjarnargreyið sem langaði
að verða Skagfirðingur (ekki lái
ég honum það!). Heldur fólk í al-
vöru að menn hafi bara ætlað að
byrja á því að týna honum í þoku
og hinkra svo eftir því að hann
færi að tína ungabörn upp úr
vögnunum sínum og éta þau sem
snarl?“
Helga Sigrún Harðardóttir
helgasigrun.blog.is
„Þegar hvítabirnir koma að landi
á Grænlandi eru þeir tafarlaust
skotnir, jafnvel étnir með góðri
lyst, því þar kunna menn að
bregðast fumlaust við. Þar hefur
líka verið hlegið í hartnær sólar-
hring að viðbrögðum okkar. Ef
Keikó-leiðin hefði verið farin,
hefði einhver dáið úr hlátri.“
Gísli Ásgeirsson
malbein.net
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Tökum á Dagvaktinni er nú lokið og er mál manna
að þær hafi tekist ljómandi vel. Leikstjórinn Ragnar
Bragason er þegar byrjaður að klippa þættina sam-
an en fyrsti þáttur fer ekki í loftið fyrr en í sept-
ember. Ævintýri Georgs Bjarnfreðarsonar og fé-
laga á bensínstöðinni halda áfram í þáttaröðinni en
eitthvað er um að nýjar persónur séu kynntar til
leiks. Mikil leynd er þó yfir söguþræðinum. bös
Umsjónarmenn Zúúper á FM957 gengu fram af
húsmæðrum í Vesturbænum á þriðjudagsmorgun.
Umræðuefni þeirra um illa snyrtar konur í Vestur-
bæjarlauginni þótti fara úr böndunum þegar það
leiddist út í munngælur. Einn hlustandi hringdi og
benti á að stöðin hefur töluverða hlustun hjá börn-
um og því væri umræðuefnið óviðeigandi. Skellt var
á hana og henni sagt að skipta um stöð. bös
Riddari götunnar, trúbadúrinn Jójó, hóf í gær for-
vinnslu á plötu sem hann ætlar að gefa út til styrkt-
ar Hjartavernd. Jójó, sem sjálfur er hjartveikur, seg-
ir það vera fyrir hvatningu Guðmundar Jónssonar
úr Sálinni að hann ákvað að ryðjast í verkefnið. Jójó
hefur svo fengið vilyrði frá félögum sínum Pálma
Gunnarssyni, Valgeiri Guðjónssyni og Magnúsi Ei-
ríks fyrir því að þeir syngi á plötunni. bös
„Ég er búinn að læra heilmikið á
þessu sjálfur,“ segir Mikael Torfa-
son sem þýddi nýverið og gaf út
bókina Aðferðin eftir milljarða-
mæringinn Warren Buffett. Bókin
kennir þá skynsömu aðferðafræði
er þessi ríkasti maður heims hefur
tileinkað sér í fjárfestingum.
„Það var mjög mikill lærdómur
að vinna þessa bók. Sérstaklega á
tíma sem maður var að heyra ótrú-
legar fréttir frá fjölmiðlum. Hvern-
ig fólk hefði fjármagnað risahluta-
fjárkaup með lántöku og öðru. Ég
var að velta því fyrir mér hvort það
væri okkur að kenna hvernig væri
að fara. Á sama tíma var ég að
þýða bók um mann sem upplifir
engar sveiflur. Vegna þess að hann
setur öryggið á oddinn. Galdurinn
við fjárfestingar er að tapa ekki og
það á við allt.“
Nægjusemi dugar
Mikael segir merkilegast hversu
nægjusamur Buffett sé. Hann
borgi sér aðeins um 600 þúsund
krónur í laun á mánuði, keyri á
sama bílnum þar til hann gefur sig
og að hann hafi búið í sama húsinu
í um 50 ár.
„Það hlýtur að fylgja kreppu að
við séum búin að sigla vissri hug-
myndafræði í strand. Ég get lofað
því að Buffett býður upp á algjöra
andstæðu þeirrar hugmyndafræði
er við höfum tileinkað okkur síð-
ustu tíu ár.“
Sjálfur er Mikael að skrifa skáld-
sögu er hann vonast til að klára
fyrir jólaútgáfuna. Hún er um ís-
lenskan útrásarvíking sem svo
skyndilega er dæmdur fyrir fjár-
svik.
Forlag Mikaels Torfa gefur út nýja bók
Býður upp á lausn
gegn kreppunni
Mikael Segir íslensku þjóðina hafa siglt í
strand með rangri hugmyndafræði.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
1 2 3 4 7 6 9 5 8
6 4 8 2 5 9 3 7 1
7 9 5 8 1 3 2 4 6
3 1 7 5 4 2 6 8 9
2 5 6 9 3 8 7 1 4
9 8 4 7 6 1 5 2 3
8 3 2 1 9 5 4 6 7
4 6 1 3 2 7 8 9 5
5 7 9 6 8 4 1 3 2
Fyrst þú ert hætt að framreiða morgunmat, þá
fæ ég mér bara kornflögur í hádegismat.
Séra Gunnar, tókstu prestana til bæna?
Séra Gunnar Sigurjónsson er sókn-
arprestur í Digraneskirkju, en hann
varði titilinn sterkasti prestur í heimi á
föstudaginn.
FÓLK
lifsstill@24stundir.is a
Já, ég jarðaði þá báða!
fréttir