Alþýðublaðið - 29.06.1976, Side 13
bia^fö1 Þriðjudagur 29. júní 1976.
13
\
allir sitji þar við sama borð, þá
sitja menn bara mishátt við
þetta borð.
Nú vilja margir fá gjaldkera
Nato upp að háborðinu, en aðrir
segja að við höfum ekkert með
slikt fjármagn að gera, við
verðum bara að bretta upp
ermarnar.
Einhvern veginn hef ég það á
tilfinningunni, að það hafi nokk-
uð margir gert slikt fyrir löngu
siðan, og hafi jafnan gengið með
þær uppbrettar. En það er
kannske þegar röðin kemur að
hinum, sem ekki eru vanir þvi
að bretta upp ermarnar eða
herða sultarólina, að þá verði
þeim hugsað til þess hvort
„bræðraþjóðirnar” séu nú ekki
aflögufærar, svo verði hjá þvi i
að mæta erfiðleikunum af eigin
raun.
Ég er ekki einn þeirra, sem
rituðu nafn sitt undir plaggið
Varið land, og ég er einn þeirra,
sem ekki gengu frá Keflavik til
Reykjavikur á dögunum. Það er
ekki þar með sagt að ég sé einn
þeirra, sem enga skoðun hafa á
þessum málum. Min skoðun er
sú, að i fyrsta lagi sé þaö réttara
að vera i Nato eins og sakir
standa -og i öðru lagi, að við
munum verða þar áfram hvort
sem okkur likar betur eða ver.
Valdapólitik stórveldanna er
nefnilega eins og leikur sem
lýtur sinum eigin leikreglum, og
þótt okkar vilji væri annar, þá
ættum við ekki annara kosta
völ.
En hitt er svo annaö mál, að
við leggjum Atlanzhafsbanda-
laginu til dýrmæta herstöð þar
sem er landfræðileg lega ís-
lands. Hvað hverri islenzkri
rikisstjórn og fjármálastjórn
Nato semst um varðandi sam-
eiginlegar framkvæmdir sem
lúta að veru okkar i Nato má
ræða umhverju sinni. En ég tel
rétt að gera það utan allrar um-
ræðu um efnahagslega stöðu is-
lenzka rikisins annars vegar og
kostnaðaráætlana Nato um
rekstur flugvélamóðurskipa ef
Island fer úr Nato hins vegar.
Það er lika dæmi um rétta eða
ranga röð.
Bjarni Sigtryggsson.
minnst á járnasamsafnið, soðið
saman á fjölbreytilegasta hátt!
Nú þvi er ekki að neita, að
þegar til tónlistarinnar kemur,
er okkur gömlu sveitabörnum
og einkum þeim, sem i hrossa-
héröðum höfum alizt, kunnugt
ýmislegt af þvi, sem nýtizku
listamennirnir nota sem „tema
cum variationem”. Hér sýnast
hafa komið að góðu gagni
svipuö vinnubrögðog „kúklista-
maðurinn” hagnýtti eða Gisli
ritstjóri, þegar hann tók viðtalið
við Korpúlfsstaðabola á stál-
þráðinnforðum.sem sé óbeizluð
náttúruh ljóö!
Hér er þvi sannarlega um
talsvert auðugan garð að
gresja, og ætti hver og einn að
geta fundið eitthvað, sem fellur
að hans eða hennar smekk.
Tvennt i þessum opinberu
listtúlkunum má þó vera sak-
lausum sveitamönnum nokkur
ráðgáta. Annað er, að til skuli
vera þeir, sem leyfa sér að
„skemma listaverkin” og hitt,
hvernig þaö mátti eiginlega
takast!
Máske hvarflar að ein-
hverjum, sem ekki eru nógu
þjálfaöir i mati á listinni
hreinni, eins og hún nú er
túlkuð, að hreinsunardeild
borgarinnar hafi ef til vill ekki
verið svo blá, þegar allt kom til
alls!
En aðalatriðið er, að við
höfum haldið listahátið með
pomp og pragt, og það er ekki
alveg ónýtt, sem landkynning,
að hafa getað komið öðru eins i
framkvæmd. Þeir, sem halda,
að hér búi bara eintómir Eski-
móar, skulu bara koma I
bakariið!
Það er, sko, ekki ónýtt, að
geta annað eins á tveggja ára
fresti.
Oddur A. Sigurjónsson
kemur áfengis-
Breiðholti?
Liggur
Dér
eítthvað
á hiarta
Hafðu þá
samband
við Hornið
Hvenær
útsala í
,,Bakkus” i Breiðholti
hringdi:
Við verðum svo sem varir við
þaö hérna i Breiðholtinu að
margir vilja telja okkur annars
flokks borgara og telja það ein-
tóma heimtufrekju þegar við
erum aö fara fram á ýmsar lag-
færingar. En við borgum okkar
skatta og skyldur ekki siður en
aðrir og viljum fá þá þjónustu
sem okkur ber.
Það er ótalmargt sem vantar
hér í Breiöholtshverfin. Samt er
Viðskiptavinur Alþýöubrauð-
gerðarinnar hringdi og kvaðst
vilja koma á framfæri opinber-
lega kvörtun undan lakri þjón-
ustu þess fyrirtækis.
Mál er þannig vaxiö að Al-
þýðubrauðgerðin hefur opið á'
laugardagsmorgnum þótt
mjólkurbúöir séu lokaðar og
selur þar helztu mjólkurvörur
ásamt brauði og kökum
bakari'sins.
Þessi viðskiptavinur var á
ferð i búöinni s.l. laugardag og
beið eftir þvi að röðin kæmi að
honum. Auk ýmissar annarrar
vöru ætlaði hann að kaupa tvo
potta af undanrennu. Meðan
hann beiö sá hann að það var
kassi meö nokkrum undan-
rennupottum á gólfinu þar sem
búið að gera talsvert og ber að
þakka fyrir það. En mér finnst
það hart að ekki skuli búið að
opna riki hér uppfrá. Verðiö á
vini er orðið svo óguðlega dýrt,
að þaö er ekki nema sanngirnis-
krafa að hafa útsölur á fleiri
stöðum en nú er. Hún er oröin
skratti dýr hvitvinsflaskan sem
ég var að kaupa áðan þvi af
sérstökum ástæðum þurfti ég aö
flýta mér mjög og varð þvi aö
kaupa mér leigubil.
Er ekki kominn timi til að
Afengisverzlunin geri eitthvað
mjólkin stendur (ekki geymd i
kæli). Þegar röðin svo loks kom
að honum bað hann fyrst um
undanrennuna. Afgreiðslukon-
an leit viö, sá undanrennuna i
kassanum, en flýtti sér með
hana bak viðogkom svo til baka
og sagði: Þvi miður.það er öll
undanrenna búin.
Ég var ekkert að þakka kon-
unni lygarnar. Hún má hafa
sinar aðferðir við að taka frá
vörur fyrir sig og sina, en i mih-
um augum er þetta ósmekkvisi,
sem veldur þvi, að ég mun ekki
leita i þessa verzlun framar. Ég
fór i staðinn upp i Njarðar-
bakari við Njarðargötu, þótt
það væri nokkuð löng ganga, en
þar eru lika seldar mjólkurvör-
ur um helgar, sagði maðurinn.
til að bæta þjónustuna við viö-
skiptavini sina?
Homið hafði samband við Jón
Kjartansson forstjóra ATVR og
spurði hvenær opnuö yrði útsala
i Breiðholti. Hann svaraði þvi
til, að Reykjavjkurborg væri
búin að ætla ATVR lóð i Breið-
holti. Ekki yrði þó nein útsala
opnuð þar á þessu ári og ekki á-
kveðið hvenær það yrði. Hins
vegar virtist þurfa að fjölga út-
sölum i borginni og það þaö
kæmi að þvi að útsölur opnuðu i
Arbæjar- og Breiöholtshverfi.
Vel
gerður
sjónvarps-
þáttur
BV hringdi:
Sjónvarpsþáttur á sunnu-
dagskvöld sem var stjórnað af
Magdalenu Schram og þar sem
sýnd voru nokkur úrvalsatriði
af siðustu Listahátið, var
óvenjulega skemmtilegur. Það
var kostur við þennan þátt að
atriðin voru stutt og þarna var
augljóslega stiklað á þvi bezta.
Svona þáttum hefur oft hætt við
að veröa langdregnum, og þaö
ermikill kostur þegar það er
ekki. Svona eiga
listkynningarþættir að vera.
ÓALÞÝÐLEG AFGREIÐSLA
f ALÞVÐUBRAUDGERÐINNI
HRINGEKIAN
Bezt vaxni maður í heimi?
t
„Örkin hans
Nóa” á far-
aldsfæti
— Ja, þaö skeður nú margti
henni Ameriku. Nú sföast átti
að flytja örkina hans Nóa, eftir-
líkingu vitanlega, úr einum
skemmtigarði i annan i Los
Angeles borg. Flutningunum
var aflýst vegna rigningar.
í fangelsi
vegna hunds
Þritugur hollenzkur skransali
Ian Hendricks varð fyrir þvi
óláni á dögunum að vera
dæmdur til þess að eyða sumar-
frii sinu innan brezkra
fangelsismúra.
Það sem leiddi til þessa, var
að Hendricks kom til Englands
með hund sem hann smyglaði
fram hjá sóttvarnaryfir-
völdunum. Breska lögreglan
veittihundinumathygli þar sem
hann hljóp um á tjaldstæði i einu
af úthverfum Lundúna.
Hendricks var handtekinn og
dæmdur til að greiða 120 þúsund
krónur i sekt. Þegar i ljós kom
að hann átti ekki fyrir sektinni
var honum umsvifalaust
stungið inn.
Arnold Schwarzen-
egger, sem margir á-
lita að hafi heimsins
best byggða karl-
mannslikama iðkar
lyftingar á hverjum
degi.
Fyrst jafnhattar
hann 100 kg, siðan
lyftir hann 200 kg með
hryggnum og siðast 300
kg meðfótunum. Þetta
gerir hann bara til þess
að halda sér i formi.
Schwarzenegger er 28 ára.veg-
ur 115 kg , brjóstmálið er 140
cm, og ummál upphandleggs-
vöðvanna er 55 cm. Þetta hefir
gert hann að „Herra Heimur”
einu sinni, „Herra Alheimur”
fimm sinnum og „Herra
Olympus” sex sinnum. Hann
hefir ekki tapað keppni um best
byggða Ukamann” i átta ár.
Hann hefir nú fengiö hlutverk
i mynd bandariska leikstjórans
Bob Rafaelsson „Stay hungry”
— Þetta er min fyrsta mynd,
segir Schwarzenegger,ég vona
að hún verði ekki sú siöasta. Ég
byrjaöi á likamsþjálfuninni
fyrir þrettán árum, nú gæti ég
vel hugsað mér að byrja á ein-
hverju nýju.
— En hvað skeður þegar
likamsþjálfuninni er skyndilega
hætt og breytt er um lifnaðar-
hætti? Um 50% af vöðvunum
hverfur en hitt heldur sér
nokkurn veginn. Það er þó ekki
um það að ræða að hætta
likamsþjálfuninni fyrir fullt og
allt, segir Scnwarzenegger,
þetta er eins og hver önnur della
sem þú losnar ekki svo auöveld-
lega við.