24 stundir - 10.09.2008, Side 4

24 stundir - 10.09.2008, Side 4
➤ Sá spennir sem nú var reynt að koma ígang bilaði í nóvember í fyrra. ➤ Hinn spennirinn bilaði síðan á að-fangadag. Engin framleiðsla hefur ver- ið í virkjuninni síðan þá. ➤ Framleiðsla hefst í fyrsta lagi á nýjanleik upp úr áramótum. SULTARTANGAVIRKJUN„Það varð bilun þegar reynt var að setja spenninn inn,“ segir Þorsteinn Hilmars- son, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, um bilun sem varð í Sultatangarvirkjun í fyrradag. Báðir spennar virkjunarinnar eru óstarfhæfir sem stendur. Sá fyrri bilaði í nóvember og sá síðari á aðfangadag. Síð- an þá hefur virkjunin ekki framleitt neitt rafmagn, en hún framleiðir vanalega um 120 megavött. 200 milljónir í kostnað Áætlaður heildarkostnaður vegna við- gerða á báðum spennunum er um 200 milljónir króna. Þorsteinn segir líkur á því að sú tala geti hækkað en að tap Lands- virkjunar vegna rekstrarstöðvunarinnar verði óverulegt. „Það eru ekki háar upp- gegn því að hægt sé að rjúfa straum á þá við aðstæður sem þessar. Loðnubræðslur eru dæmigerðir af- gangskaupendur þar sem þær eru með katla sem ganga fyrir rafmagni en eru til vara með olíukatla. Því gæti farið svo að rafmagn verði framleitt með olíu hér- lendis á álagstímum. Þorsteinn segir að enn liggi ekki alveg fyrir hvað hafi gerst. „Þetta er náttúrlega alvarlegt mál því hinn spennirinn kemst líklega ekki í rekstur fyrr en upp úr áramótum. Það sem þarna gerðist þýðir margra mánaða töf á að koma þessum spenni aftur í gang. Þetta hefur verið svolítil hrakfallasaga og við verðum að taka það til skoðunar af hverju þetta gerist aftur og aftur.“ thordur@24stundir.is Spennir sem hefur verið óstarfhæfur frá því í nóvember bilaði á ný þegar reynt var að setja hann aftur í gang Spennirinn Einn spennanna tveggja sem eru bilaðir. Enn engin framleiðsla í Sultartangavirkjun hæðir í sjálfu sér en þetta veikir raf- orkukerfið. Við teljum okkur hafa næga orku fyrir viðskiptavini okkar í vetur, en það að missa út þessa stöð getur þýtt að það verði aflskortur. Þá gætum við þurft að skerða sölu til afgangskaupenda.“ Af- gangskaupendur fá orkuna á lægra verði 4 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2008 24stundir Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Blokkirnar í fyrsta áfanga Skugga- hverfisins verða endurklæddar. Nokkrar flísar hafa fallið af þeim á undanförnum árum og í kjölfarið voru um 200 flísar fjarlægðar sem varrúðarráðstöfun. Klæðning blokkanna, sem eru svokallaðar „lúxusíbúðir“, hefur því verið nokkuð götótt í á annað ár. Framkvæmdirnar hefjast í haust og standa fram á vor. Þetta stað- festir Ágúst Kr. Björnsson, fram- kvæmdastjóri 101 Skuggahverfis. „Við erum að leita leiða til að gera við þessi hús á sem bestan hátt og höfum lagt ríka áherslu á það við lagfæringuna að það verði engin ásýndarbreyting á húsunum. Flís- arnar verða því eins en með nýju upphengjukerfi. Við höfum náð samkomulagi við forsvarsmenn húseigenda um hvaða leið sé far- sælust í þessu. Á grundvelli þess samkomulags erum við að fara að hefja framkvæmdir.“ Ágúst segir að vandkvæðunum varðandi klæðninguna hafi fylgt eitthvert tjón, svo sem leka- skemmdir. Dómkvaddir skila á næstunni Ekki liggur enn fyrir hver mun bera kostnaðinn af framkvæmdun- um þar sem dómsmál milli 101 Skuggahverfis og Eyktar, sem var aðalverktaki við byggingu fyrsta áfanga Skuggahverfisins, hefur enn ekki verið til lykta leitt. Dóm- kvaddir matsmenn hafa verið kvaddir til og eiga þeir að skila nið- urstöðu sinni á næstunni. Upphaf- legar kröfur og gagnkröfur deilu- aðila voru upp á um 200 milljónir króna en Ágúst vill ekki uppljóstra hversu hár kostnaður vegna end- urbótanna er. Hann sé þó allnokk- ur. Óskaði eftir skýringum Í desember 2006 féllu þrjár flísar af blokkunum og í kjölfarið voru hátt í 200 til viðbótar fjarlægðar. Í maí síðastliðnum var sagt frá því í 24 stundum að tvær til viðbótar hefðu fallið af úr nokkurri hæð og brotnað á gangstéttinni fyrir neð- an. Hver flísanna er um fimm kíló að þyngd. Í kjölfarið skrifaði Magnús Sæ- dal Svavarsson, byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar, 101 Skugga- hverfi bréf og óskaði eftir skýring- um á málinu. Hann segist hafa fengið þær skýringar. „Þetta voru hitabreytingar sem ollu þessum skemmdum. Það varð misjöfn þensla í festingarkerfinu hjá þeim.“ Hann segir ekkert sérstakt eftirlit með þessum húsum í dag. „Þeir bera náttúrlega ábyrgð á því að þetta valdi ekki skaða á fólki og passa sig á því sjálfir. Þeir vita hvaða galli var á ferðinni og brenna sig ekki á sama soðinu tvisvar.“ Magnús mun þó óska eftir upplýs- ingum um nýja festingarkerfið. ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Lúxusblokkir verða endurklæddar  Blokkir í Skuggahverfinu verða endurklæddar að fullu  Framkvæmdir standa fram á vor  Enn óljóst hver ber kostnað  Byggingafulltrúi hafði samband vegna fallandi flísa Götótt Nokkrar flísar hafa dottið af blokkunum og um 200 voru fjar- lægðar í varúðarskyni. ➤ Í fyrsta áfanga Skuggahverfisvoru byggð fjögur hús með alls 79 íbúðum. ➤ Í öðrum áfanga sem nú er ver-ið að byggja eru fleiri íbúðir, eða 97 talsins. Áætlað heild- söluvirði þeirra var í byrjun árs 5,4 milljarðar. SKUGGAHVERFIÐ Nýtt göngudeildarhús barna- og unglingageðdeildar Landspítalans var tekið formlega í notkun í gær. Viðbyggingin er 1244 fm og er hún tengd núverandi húsi með glerjuð- um tengigangi. Fjölmargir hafa lagt sitt af mörk- um við uppbyggingu nýja húsnæð- isins. Til dæmis gaf Hringurinn 50 milljónir króna til byggingarinnar á sínum tíma. Auk þess hafa Thor- valdsenkonur, Kiwanismenn, Lionsmenn, kvenfélagasamtök og margir aðrir lagt verkefninu lið með drjúgu framlagi, að því er seg- ir á vef heilbrigðisráðuneytisins. Starfsmenn BUGL eru nú rúm- lega 100. Komur á göngudeildina hafa verið allt að 7000 á ári. ingibjorg@24stundir.is Aðstæður skjólstæðinga BUGL batna Nýtt hús í notkun Hæstiréttur hefur staðfest úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður, sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að stela skart- gripum að verðmæti 1,5 milljónir króna í skartgripabúð við Laugaveg í síðustu viku, sæti gæsluvarðhaldi til dagsins í dag. Annar maður var einnig úrskurðaður í gæsluvarð- hald vegna málsins. Fram kemur í úrskurði héraðs- dóms að maður hafi komið inn í verslunina og kíkt í einn glerskáp þar sem voru ýmsir skartgripir. Hann hafi síðan gengið rakleiðis út en komið fljótlega aftur og beðið um að fá að sjá armbönd. Af- greiðslukona gat ekki sinnt mann- inum þar sem hún var að sinna öðrum manni, sem þannig dró að sér athygli hennar. Samkvæmt myndavélaupptökum, sem liggja fyrir í málinu, sést hvar hinn mað- urinn teygir sig yfir afgreiðsluborð verslunarinnar og tekur þaðan skartgripi. Áætlað verðmæti þeirra hluta, sem stolið var, er 1,5 millj- ónir króna og eru þeir ófundnir. mbl.is Skartgripaþjófnaður í Reykjavík Gæsluvarðhald staðfest Úr umferð Skart- gripaþjófur hefur verið settur í gæsluvarðhald. Eftir var að veiða 148 hreindýr á mánudagskvöld þegar rétt vika var eftir af veiði- tímabilinu. Því lýkur að kvöldi 15. september. Alls er því búið að fella 1185 hrein- dýr af útgefnum 1333 dýra heildarkvóta þessa árs en hann er sá stærsti sem gefinn hefur verið út. „Ég hef trú á að þetta fari langt með að nást, ef veðrið skánar undir næstu helgi eins og spáð er,“ sagði Jóhann G. Gunnarsson, starfsmaður Umhverfisstofnunar á Egils- stöðum. mbl.is 1185 hreindýr felld Þoka og rign- ing á veiðislóð Árni Johnsen alþing- ismaður hefur fallið frá stefnu gegn Agnesi Braga- dóttur vegna ummæla sem Agnes við- hafði um Árna í útvarpsþætti á Bylgjunni fyrr á þessu ári. Til stóð að þingfesta stefnuna í Héraðsdómi Reykjavíkur í vik- unni en Árni krafðist 5 millj- óna króna í miskabætur. Í yf- irlýsingu segist Árni fyrirgefa Agnesi ósmekklegt orðaval en hún kallaði hann m.a. stórslys. mbl.is Árni Johnsen Hættur við að stefna Agnesi

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.