24 stundir - 10.09.2008, Side 8
Draugur við völd?
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Sextugsafmæli Norður-Kóreu var
fagnað í gær hersýningu. Athygli
vakti að Kim Jong-il, einráður leið-
togi landsins, var ekki viðstaddur
hátíðina. Orðrómur hefur lengi
verið á kreiki um bágt heilsufar
hans.
Dó hann árið 2003?
Í nýútkominni bók segir Tos-
himitsu Shigemura, prófessor við
Waseda-háskólann í Japan, að Kim
hafi látist haustið 2003. Síðan hafi
fjöldi tvífara gegnt hlutverki hans.
Shigemura bendir á að frá 10. sept-
ember 2003 hafi liði 42 dagar þar til
Kim kom fyrir almenningssjónir.
Telur hann að þá hafi Kim, mikill
reykinga- og drykkjumaður, látist
úr sykursýki.
Shigemura segir að Kim hafi haft
tvífara á sínum snærum, þar sem
hann óttaðist að vera ráðinn af
dögum. Þessir tvífarar hafi fengið
veigameira hlutverk þegar fjórir
hæstsettu embættismenn stjórnar-
innar töldu hagsmunum sínum
best borgið með því að hylma yfir
dauða Kims. Einn fjórmenning-
anna sé þó alltaf við hlið tvífara í
opinberum móttökum og stýri
honum líkt og leikbrúðu.
Tae-shik Jon, talsmaður samtaka
Norður-Kóreubúa í Japan, neitar
því að staðhæfingar Shigemura eigi
við rök að styðjast. „Þetta er helber
lygi. Við viljum ekki einu sinni tjá
okkur um jafnfáránlega hugmynd.“
Sást síðast í ágúst
Sérfræðingum í málefnum Norð-
ur-Kóreu ber ekki saman um hvert
ástand leiðtogans sé, en ekki hefur
spurst til hans í ríkisfjölmiðlunum
frá miðjum síðasta mánuði. Suður-
kóreska dagblaðið Asia Economy
hefur það eftir heimildarmönnum
sínum að kínverskir læknar hafi
sinnt Kim í Pjongjang í viku.
AP-fréttastofan hefur eftir starfs-
mönnum bandarísku leyniþjónust-
unnar að þar á bæ telji menn að
Kim sé alvarlega veikur. Talsmaður
suðurkóresku leyniþjónustunnar
segir hins vegar ekkert benda til
hrakandi heilsu hans.
Fjarvera Kim Jong-il á 60 ára afmælishátíð Norður-Kóreu vekur efasemdir um heilsu
hans Japanskur prófessor segir að einræðisherrann hafi dáið fyrir fimm árum
Kim Jong-il?
Eða tvífari hans? ➤ Kim Il-sung var leiðtogi Norð-ur-Kóreu frá stofnun ríkisins
árið 1948 til dauðadags.
➤ Kim Jong-il, sonur hans, tókvið stjórnartaumunum þegar
Kim Il-sung lést árið 1994.
➤ Í stjórnarskrá landsins er KimIl-sung sagður vera eilífur
leiðtogi Norður-Kóreu, þrátt
fyrir að hann sé farinn yfir
móðuna miklu.
➤ Óheimilt er að ræða heilsuKim Jong-il opinberlega í
Norður-Kóreu.
NORÐUR-KÓREA
8 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2008 24stundir
RV
U
n
iq
u
e
09
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Svansmerkt RV hreinsiefni með ferskum ilmi
- og Lotus Professional pappírsvörur
Á kynningarverði
Svansmerkt RV hreinsiefni
með ferskum ilmi.
UM
HVERFISMERKI
Á tilboði íseptember 2008Svansmerktar Lotus
Professional pappírsvörur20 % afsláttur
UM
HVER
FISMERKI
Pólskur karlmaður er í haldi lögreglu þar í landi,
grunaður um að hafa haldið dóttur sinni fanginni og
beitt hana kynferðisofbeldi undanfarin sex ár. Segir
dóttirin, sem nú er 21 árs, að hún hafi alið föður sín-
um tvo syni, sem hafi verið ættleiddir.
„Að vissu leyti gæti þetta verið svipað mál og í Aust-
urríki,“ segir Mariusz Sokolowski, talsmaður lögregl-
unnar. Vísar hann þar til máls Jósefs Fritzl, sem hélt
dóttur sinni við svipaðar aðstæður í 24 ár.
Synir feðginanna fæddust í febrúar 2005 og janúar
2007. Segir móðir þeirra að faðirinn hafi fylgt sér á
sjúkrahúsið og neytt sig til að gefa drengina frá sér.
Leitar lögregla sonanna nú. „Við höfum skýrslur
sjúkrahússins um börnin og reynum að hafa uppi á
þeim til að geta gert DNA-prófanir,“ segir Sokolowski.
Dóttirin segir lögreglu að sér hafi ítrekað verið
nauðgað af föður sínum og haldið í gluggalausu, læstu
herbergi í sex ár. „Aðalvandamálið er það gífurlega
andlega álag sem á henni var – ógnin,“ segir Soko-
lowski. „Það kvikna mjög margar spurningar í þessu
máli, en það er enn erfitt að ræða við konuna vegna
þess í hversu miklu uppnámi hún er.“ aij
Pólskur faðir þykir minna á Jósef Fritzl
Hélt dóttur fanginni í sex ár
Leiðum að líkjast Pólverjar óttast að þeir hafi fundið
sína eigin útgáfu af Jósef Fritzl
Hollendingar hafa tekið í notk-
un heimsins stærsta orkuver sem
notar lífmassa sem orkugjafa.
Orkuverið nýtir úrgang frá
hænsnabúum til að framleiða raf-
orku og getur séð um 90.000 heim-
ilum fyrir rafmagni.
Árlega mun bruni á ríflega
440.000 tonnum af hænsnaskít –
um þriðjungur þess sem fellur til í
Hollandi – knýja vélar orkuversins.
Framleiðslugeta vélanna er 36,5
megavött af raforku og er gert ráð
fyrir að orkuverið muni skila af sér
270 milljónum kílóvattstunda á ári.
Talsmenn orkufyrirtækisins
Delta segja að orkuverið hafi já-
kvæð umhverfisáhrif í för með sér.
Förgun á hænsnaskít sé kostnaðar-
söm, auk þess sem hún verður til
þess að losa gróðurhúsalofttegund-
ir. Með því að brenna skítinn sé
hægt að minnka þá losun, auk þess
sem askan sem fellur til við brun-
ann nýtist vel til áburðarfram-
leiðslu.
Til að lyktarmengun verði sem
minnst er skíturinn fluttur í loft-
þéttum tankbílum í orkuverið, sem
losaðir eru í loftþéttu rými. aij
Virkjaðar Skít frá búr-
hænum má nýta til raf-
orkuframleiðslu.
Hollendingar opna lífmassaorkuver
90.000 heimili rafvædd
með hænsnaskít
George Bush Bandaríkjaforseti
hefur fyrirskipað að hermönnum
verði hrókerað á milli Íraks og Afg-
anistans. Verða um 8.000 manns
kallaðir heim frá Írak, en 4.500
manns bætt í lið Bandaríkjanna í
Afganistan. Nú eru 146.000 banda-
rískir hermenn í Írak, en 33.000 í
Afganistan.
Segir Bush að batnandi ástand í
Írak geri hernum í auknum mæli
kleift að beina sjónum sínum að
átökunum í Afganistan.
Harry Reid, sem fer fyrir demó-
krötum í öldungadeild Bandaríkja-
þings, segist undrast ákvörðun for-
setans. Segir Reid koma á óvart „að
hann sæki svo fáa hermenn til Íraks
og sendi svo lítið til Afganistans“.
Ike Skelton, formaður demó-
krata í hermálanefnd fulltrúadeild-
ar þingsins, tekur í sama streng.
„Meira þarf til að við getum lokið
baráttunni í Afganistan.“ aij
Bandaríkjamenn í Írak og Afganistan
Herliði hrókerað
Rannsókn vísindamanna í Þránd-
heimi á 1.500 tegundum flösku-
vatns víðs vegar að úr Evrópu
hefur leitt í ljós að antímon, eitr-
að frumefni, getur smitast úr
plastflöskum í vatnið. Segir Cle-
mens Reimann almennt ekki um
mikið magn að ræða. aij
Eiturefni bland-
ast vatni
Það gerir ekki aðeins vaxtarlagi
kyrrsetufólks gott að fara út í
göngutúr, heldur getur það bætt
sjónina hjá þeim sem sitja lengi
við lestur. Þetta er niðurstaða
rannsóknar við Kaupmannahafn-
arháskóla. Segir Nina Jacobsen,
læknirinn sem stýrði rannsókn-
inni, að útiveran geti minnkað
líkurnar á því að kúristar þrói
með sér nærsýni. aij
Hreyfing góð
fyrir sjónina