24 stundir - 10.09.2008, Síða 9
24stundir MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2008 9
ÁSTAND HEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Núna er mikilvægast að við einbeitum okkur að
björgunarstörfum. Við verðum að leggja okkur
100% fram til að bjarga lífi fólks.
Meng Xuenong héraðsstjóri.
Aur- og grjótskriða féll á námabæ
í norðurhluta Kína á mánudag.
Stjórnvöld hafa staðfest að 34
hafi látist í skriðunni og 35 slas-
ast, en heimamenn óttast að
fjöldi látinna geti verið allt að
500.
Er talið að skriðan hafi farið af
stað þegar bakkar affallslóns leyf-
islausrar námu brustu vegna
rigninga. Elgurinn, sem var sam-
bland af rigningavatni og ná-
maúrgangi, æddi inn í 23.000
manna bæinn Taoshi. Þar varð
þriggja hæða skrifstofubygging,
markaðstorg og fjöldi húsa skrið-
unni að bráð.
„Þetta var hræðilegt,“ segir
verkamaðurinn Wei Guanghui
við Xinhua-fréttastofuna. „Leðju-
og grjótflóðið virtist vera sjö
metrar á hæð.“
Ríflega 1.000 manna lið lögreglu,
hers og slökkviliðs voru að björg-
unarstörfum í gær.
„Við vitum í rauninni ekki
hversu margir voru þarna þegar
skriðan féll,“ hefur AFP-
fréttastofan eftir einum stjórn-
enda leitarhópsins. aij
Aur- og
grjótskriða
fellur í Kína
NordicPhotos/AFPLeitað Björgunarmenn leita eftirlifenda í aurflóðinu í Kína.
Bjargað Þessu svíni var komið í öruggt skjól áður en fellibylurinn Ike reið yfir Playa Giron á Kúbu. Sælkeri Samak Sundaravej, forsætisráðherra Taílands, skoðar sig um á grænmet-
ismarkaði áður en hann heldur á ríkisstjórnarfund í Udon Thani-héraði.
Atvinnuleit Burðarmenn keppast við að komast um borð í farþegaskip sem leggur að hafnarbakka í Djakarta í Indónesíu. Rannsókn Sérsveit lögreglunnar í Srí Lanka kannar verksumerki eftir sprengju sem
sprakk í höfuðborginni Kólombó. Tíu særðust í sprengingunni.