24 stundir


24 stundir - 10.09.2008, Qupperneq 16

24 stundir - 10.09.2008, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2008 24stundir Hjá okkur fáið þið mikið úrval af kerrum og vögnum fyrir börnin Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is Bandarískir læknar hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekki eigi að fjarlægja eyrnamerg hjá börnum með bómullarpinnum. Læknarnir segja að það eigi einfaldlega að láta merginn eiga sig. Alls ekki má stinga eyrnapinnum inn í eyrun því það getur skaðað meira en það gerir gagn. Eyrnamergur er ekki af hinu vonda og ekki á að fjarlægja hann, segir Peter Roland, kennari við læknadeildina í háskólanum í Tex- as. Þvert á móti hafa hann og koll- egar hans við læknadeildina fundið út að eyrnamergurinn gerir gagn. Eyrnamergurinn er náttúruleg leið líkamans til að hreinsa eyrnagang- inn. Tólf milljónir Bandaríkjamanna heimsækja lækni árlega vegna þess að eyrnamergur hefur safnast sam- an neðst í eyrnagöngunum og skapað óþægindi, til dæmis heyrn- arskerðingu. Bómullarpinnar hafa þá ýtt eyrnamergnum lengra inn göngin þar sem hann festist. Að- eins læknar geta fjarlægt merginn þegar þannig er komið. Það er gert með vatnsupplausn hjá lækni, einnig getur læknirinn fjarlægt merginn með sérstökum töngum eða hann lætur sjúklinginn fá eyrnadropa með sér heim. Fólk á ekki að hafa áhyggjur þótt það sé með eyrnamerg. Eyrun á að þrífa eins og aðra líkamsparta þeg- ar farið er í bað en alls ekki pota bómullarpinnum eða öðrum hlut- um inn í eyrun. Mjög mikilvægt er að pota ekki pinna í eyrun á litlum börnum. Eyrun á ekki að þrífa með bómullarpinnum Gera meira ógagn en gagn Eyrnapinnar Þeir geta ver- ið varasamir og gert mikið ógagn. Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@24stundir.is Hægt er að koma í veg fyrir kyn- ferðislegt ofbeldi með fræðslu og forvörnum og einn liður í því er brúðuleikhússýningin Krakkarnir í hverfinu sem Blátt áfram stendur fyrir í grunn- og leikskólum. Hallveig Thorlacius brúðuleik- ari hefur ferðast víða með sýn- inguna og segir ótrúlegt hvað börnin þurfa að spyrja mikið eftir sýninguna. „Það er nánast eins og þau hafi verið að bíða eftir tæki- færi til að tala um þetta. Sýningin okkar er upprunalega bandarísk en þetta er fræðslusýn- ing frá Kids on the Block sem er fyrirtæki sem framleiðir svona efni um eitthvað sem getur verið erfitt fyrir börn að tala um.“ Hvött til að segja frá Í leikþættinum sem fjallar um kynferðislegt ofbeldi eru tvær brúður að tala saman, að sögn Hallveigar. „Við sjáumst alveg á bak við brúðurnar en krakkarnir gleyma okkur mjög fljótt og beina orðum sínum að brúðunum. Þetta fer þannig fram að það eru alltaf tvær brúður á sviðinu í einu. Önnur þeirra varð fyrir kynferð- islegu ofbeldi og er að útskýra fyr- ir hinni alls konar hluti. Hún segir frá því sem kom fyrir hana og jafnframt frá því hvernig hún fór að því að segja frá ofbeldinu og hvernig hún fékk hjálp. Að því loknu býður brúðan börnunum að spyrja spurninga ef þau langar til að vita meira, sem er oftast til- fellið og brúðan sér þá um að svara,“ segir Hallveig og bætir við að á staðnum sé alltaf sálfræð- ingur eða félagsráðgjafi til að beina málum í réttan farveg ef eitthvað kemur upp á. „Í sýning- unni eru börn hvött til að segja frá ef eitthvað skrýtið eða óþægilegt gerist, sérstaklega ef þeim er sagt að þau megi ekki segja frá því. Það þarf ekki endilega að vera að barn- ið segi frá ofbeldinu á staðnum, því oft segir barnið frá því seinna.“ Skilar árangri Sýningin virðist hafa mikil áhrif á börnin því Hallveig veit dæmi þess að átta tilkynningar hafi komið inn á borð barnavernd- arnefndar eftir að sýningin var haldin í einum bæ hér á landi. „Svipaða sögu má segja um árang- ur sýningarinnar í Bandaríkjunum því nýleg rannsókn leiddi í ljós fylgni á milli tilkynninga um kyn- ferðisleg brot og sýninga brúðu- leikhússins. Um það bil eina af hverjum þremur tilkynningunum er hægt að tengja við brúðuleik- hússýninguna,“ segir Hallveig og bætir við að hún sé virkilega þakk- lát fyrir að fá að taka þátt í svona verkefni. „Ég finn það greinilega að verkefnið skilar miklum árangri á sviði þar sem þarf að vera árang- ur.“ Brúðuleikhússýning um kynferðislegt ofbeldi vekur umræðu Börnin bíða eftir tækifæri til að tala ➤ Sýningin Krakkarnir í hverf-inu hefur slegið í gegn víða um heim. ➤ Ásamt Hallveigu sjá HelgaArnalds og Sigríður Sunna Reynisdóttir um brúðuleik- hússýninguna. ➤ Skólar og foreldrafélag getapantað sýninguna en haust- starfið er um það bil að hefj- ast. KRAKKARNIR Í HVERFINUBrúðuleikhússýning þar sem brúður tala um kynferðislegt ofbeldi virðist hafa þau áhrif að börn tali frekar um of- beldi sem þau hafa ver- ið beitt. Eftir sýningu úti á landi komu átta tilkynningar til barna- verndarnefndar. Krakkarnir í hverfinu Hallveig Thorlacius og Helga Arnalds með brúðunum góðu. Börn og uppeldi Umsjónarmenn: Svanhvít Ljósbjörg svanhvit@24stundir.is Kristjana Guðbrandsdóttir dista@24stundir.is María Ólafsdóttir maria@24stundir.is Ef barnið er órólegt getur verið gott ráð að nudda það blíðlega. Þetta eykur líka tengsl við barnið og getur til dæmis verið afar góð leið fyrir systkini að kynnast því betur. Best er að gefa sér góðan tíma í nuddið þegar verið er heima með barnið í rólegheitum og ekki þörf á að mæta neins staðar á til- teknum tíma. Þá er best að barnið sé hæfilega satt, hvorki pakksatt né svangt þegar það er nuddað. Pínulítið af olíu Láttu fara vel um þig og sittu á rúminu eða gólfinu eða með barn- ið í fanginu. Hafðu hlýtt í herberg- inu og jafnvel einhverja þægilega tónlist í bakgrunninum. Taktu vel eftir því hvernig barnið bregst við nuddinu en aðeins nokkrar mín- útur geta nægt nýfæddu barni. Ef þér finnst betra að nota nuddolíu skaltu nota barnaolíu eða þá ein- faldlega nokkra dropa af ólífuolíu. Notaðu olíuna aðeins á búk barns- ins og ekki á höfuð eða andlit. maria@24stundir.is Gott að auka tengslin með nuddi Róar barnið til muna Námskeið fyrir börn sem eiga, foreldri, systkini, ömmu, afa eða nákominn aðstandanda sem hef- ur greinst með krabbamein verða haldin í Ljósinu nú um miðjan mánuðinn. Ljósið er endurhæf- ingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstand- endur þeirra og hefjast þar tvö námskeið 16. september. Annað er fyrir börn á aldrinum 7-9 ára og hitt fyrir 10-12 ára. Kvíði og dapurleiki Þegar nákominn ættingi grein- ist með krabbamein gerist það oft að kvíði og dapurleiki gerir vart við sig hjá barninu. Þetta getur valdið því að stoðir tilver- unnar bresta og barnið verður óöruggt. Á námskeiðinu geta börn sem slíkt hafa upplifað hitt börn í svipuðum aðstæðum og fengið tækifæri til að tjá sig í þeim hópi. Umræðan í hóp- unum snýst ekki endilega um krabbamein, heldur er leitast við að efla börnin og gera þau öruggari. Unnið er með sjálfs- myndina, samskipti, úrlausn vanda og bjargráð og er mark- miðið að börnin fái aukið sjálfs- traust og að þau geti treyst að- stæðum. Leiðbeinendurnir á námskeið- inu hafa allir margra ára starfs- reynslu í að vinna með börnum en þeir eru Ósk Sigurðardóttir, iðjuþjálfi með sérmenntun í æv- intýrameðferð fyrir börn, El- ísabet Lorange listmeðferð- arfræðingur og Hrafndís Tekla Pétursdóttir sálfræðingur. Stuðningsnámskeið fyrir börn Unnið með sjálfsmyndina

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.