24 stundir - 10.09.2008, Side 27
Leikstjóri: Paul W.S. Anderson.
Aðalhlutverk: Jason Statham, Joan Allen,
Ian McShane.
Death Race
Eftir Trausta S. Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Þegar hasarmyndunum Mad Max,
The Running Man og Fast and the
Furious er blandað saman, er út-
koman Death Race. Hún er
kannski ekki merkilegasta kvik-
mynd sögunnar, en henni tekst
ætlunarverk sitt fullkomlega, að
skemmta áhorfendum með því að
sprengja bíla og allskyns drasl í loft
upp.
Frjálshyggjuframtíð
Árið er 2012. Fangelsi í BNA eru
yfirfull, og hafa öll verið einka-
vædd. Hin illa Hennessey er fang-
elsisstjóri í Terminal Island,
harðgerasta fangelsi í heimi. Þar
keppa fangar til frelsis í Dauða-
kappakstrinum en Hennessey
græðir á sjónvarpstekjunum.
Stælti stálverkamaðurinn sem
Statham leikur, er einnig fyrrver-
andi ökuþór og fær Hennessey
hann til að taka þátt, og hljóta þar
með frelsi.
Angar af pungsvita
Helsti kostur myndarinnar eru
áhættuatriðin, sem voru gerð í
raun og veru, en ekki teiknuð í
tölvu. Það er ekki er verið að flækja
hlutina með óþarfa dýpt, persónu-
sköpun eða einhverju listrænu
bulli. Myndin er hrá, ofbeldisfull
og hröð. Þetta er mynd um bíla
með byssur og hluti sem springa í
tætlur. Myndin angar af pungsvita,
er full af kvenrembu og homma-
bröndurum. En það er allt í lagi,
því það eru allir að fylgjast með
bílunum hvort eð er.
Einkavæðum Litla-Hraun og það strax!
Ýkt kúl Hvað er flottara
en 850 hestafla Must-
ang með vélbyssu,
sprengjuvörpu og
slöngvisæti, ha, strák-
ar!? (Og stelpur.)
– allt á 70%
afslætti...
Við vinnum á verðbólgunni
Höfum opnað
FATÓ
á allri 2. hæðinni
Merkjavara á ótrúlegu verði
Opið í dag frá 7 til 7
Laugavegi 91 s. 512 1717 www.ntc.is
– fyrstur kemur fyrstur fær...
Gallabuxur 4900 kr
24stundir MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2008 27
Hollywood-framleiðandinn Scott
Faye afhjúpaði í spjalli við tölvu-
leikjavefsíðuna Kotaku.com að
hann væri að undirbúa gerð kvik-
myndar um hina klassísku tölvu-
leikjapersónu Duke Nukem. Faye,
sem hefur meðal annars unnið
við að koma tölvuleikjapersón-
unni Max Payne á hvíta tjaldið,
vinnur nú náið með framleið-
endum Duke Nukem-leikjanna,
3D Realms, við að leggja drög að
söguþræði og fjármögnun mynd-
arinnar. vij
Bíómynd um
Duke Nukem
Í öllu því æði sem fylgir sam-
félagsvefjum á borð við Facebook
er ekkert skrýtið að fleiri aðilar
vilji koma á fót sínum eigin sam-
félagsvefjum. A-Space er einn
slíkra vefja en hann mun verða
samstarfsvettvangur 16 stofnana
sem vinna með upplýsingar,
stofnana á borð við CIA, FBI og
NSA. Að sjálfsögðu fær almenn-
ingur ekki aðgang að vefnum. vij
Er James Bond
á A-Space?
Leikkonan Mischa Barton virðist
vera búin að sætta sig við það að
leiklistarferillinn sé fyrir bí og
leitar nú á önnur mið. Fyrir
skömmu kynnti hún sína eigin
línu af handtöskum en nú hefur
hún gengið skrefinu lengra. Bar-
ton kynnti á dögunum nýjustu
línu sína en það munu vera hár-
fylgihlutir á borð við spangir og
hárbönd. Línan er unnin í sam-
starfi við fylgihlutamógúlinn Sta-
cey Lapidus. vij
Fer í hártískuna
Sony-fyrirtækið hefur tilkynnt að
nýr SingStar sé á leiðinni fyrir
PS2-leikjatölvuna. Leikurinn mun
þó seint höfða til allra þar sem
leikurinn ber nafnið SingStar Co-
untry og eins og nafnið gefur til
kynna er kántríinu gert hátt undir
höfði. Á meðal flytjenda í leiknum
eru Keith Urban, Kellie Pickler og
margir fleiri flytjendur sem eng-
inn utan Nashville þekkir. vij
SingStar snýr
sér að kántríinu