24 stundir - 10.09.2008, Síða 30
Eftir Trausta S. Kristjánsson
traustis@24stundir.is
„Þetta gengur bara nokkuð vel. Ég
er enn taplaus eftir sex bardaga,
eftir jafntefli í þeim fyrsta,“ segir
hinn tvítugi Gunnar Nelson,
fremsti bardagaíþróttamaður Ís-
lands, en hann hefur tekið hvern
andstæðing sinn á fætur öðrum í
karphúsið undanfarið.
Faðirinn fyrirmyndin
„Ég fór í karate eins og pabbi,
sem var líka í kickboxi, og svo fór
ég smám saman að prófa þessar
blönduðu bardagaíþróttir og
festist algerlega í þessu. Ekki
skemmdi fyrir þegar við pabbi
horfðum á Bruce Lee- og Jackie
Chan-myndir þegar ég var lítill.
Ég held við höfum séð þær allar
oftar en einu sinni,“ segir Gunn-
ar, sem skartar tveimur við-
urnefnum í hringnum.
„Já, ég er víst kallaður Shotgun
af einhverjum, en þjálfarinn kallar
mig Silfurbak, sem er górilluteg-
und, en við þykjum hafa álíkar
hreyfingar,“ segir Gunnar sem leist
illa á viðurnefnishugmynd blaða-
manns, Mandela, enda Afr-
íkumaðurinn alþekktur frið-
arsinni.
Styður strákinn sinn
„Ég geri mér grein fyrir því að
þetta er harðger íþrótt, en ég styð
hann alveg í þessu. Þetta er hans
ástríða og ég reyni að styðja hann
eftir fremsta megni. Það er frekar
móðir hans sem er svolítið smeyk,
hún horfir aldrei á bardaga í beinni
útsendingu, bara eftir á , þegar hún
veit úrslitin. Ég byrjaði auðvitað að
athuga slysatíðnina þegar hann
byrjaði í þessu og komst að því að
hún er lægri en í íshokkíi, ruðningi
og boxi, þar sem fleiri höfuðhögg
líðast,“ segir Haraldur Dean Nel-
son, faðir Gunnars.
Hefur fundið ævistarfið
„Ég sé ekki að ég fari að vinna
við eitthvað annað. Þetta er ástríða
mín númer eitt, tvö og þrjú og mér
gengur vel í þessu. Ég ætti að geta
barist til 35-40 ára aldurs, en þá
mun ég eflaust fara út í þjálfun,
sem er fín vinna,“ segir Gunnar,
sem berst aðeins inni í hringnum.
„Það er auðvelt að halda sér ut-
an vandræða ef maður vill það.
Það eru einstaka vitleysingar sem
leita vandræðin uppi, en ég er ekki
einn af þeim.“
Gunnar „Silverback“ Nelson kýlir þá kalda í hringnum
Lærði af Bruce
Lee og pabba
Gunnar Nelson er at-
vinnumaður í blönduðum
bardagaíþróttum, aðeins
tvítugur að aldri. Hann er
enn taplaus eftir sex bar-
daga og þykir gríðarlega
efnilegur.
Hvíta vonin Gunnar gerist þjóðlegur
Lætur hnefana tala Gunnar berst við
breska sérsveitarmanninn Barry Mairs í
desember. Gunnar sigraði á rothöggi.
30 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2008 24stundir
„Ég byrjaði ævina svarthærður,
var á tímabili sköllóttur, síðar
skolhærður, þá brúnhrokk-
inhærður og loks hálfkollóttur og
fúlskeggjaður. Sumir tala um bad
hairday. Ég hef átt við bad hairlife
að stríða. En ég varð þó ekki
rauðhærður, Guði sé lof.“
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
postdoc.blog.is
„Nú er sem sagt búið að gera söng-
leik byggðan á Evil Dead. Ekki nóg
með það heldur er Sam Raimi nú
beðinn um að gefa leyfi fyrir því
að kvikmynd verði gerð eftir söng-
leiknum. Ég ætla að reyna að kom-
ast á Evil Dead: The Musical ef
tækifæri gefst. Skilst að uppvakn-
ingarnir fái öll bestu lögin!“
Hannes Birgir Hjálmarsson
mojo.blog.is
„Fyrsti tíminn í súludansinum
búinn og þetta er bara alveg fer-
lega skemmtilegt. En vá hvað
þetta er erfitt. Það er ekki beint
hægt að segja að maður hafi verið
neitt sérlega glæsilegur á súlunni
– stirð og klaufaleg – eins og belja
á... súlu.“
Guðlaug Birna Björnsdóttir
godpool.blog.is
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Þær sorgarfregnir hafa borist að vestan að áhuga-
verðasta fegurðarsamkeppni landsins, Óbeisluð feg-
urð, verði ekki haldin á nýjan leik. Keppnin var
haldin í fyrsta sinn í mars á síðasta ári á Ísafirði. Þá
þótti Ásta Dóra Egilsdóttir bera höfuð og herðar
yfir keppinauta sína og bar hún sigur úr býtum. Það
er því ljóst að Ásta mun halda titli sínum um
ókomin ár enda er hún vel að honum komin. vij
Hárgreiðslu- og ljósastofur höfuðborgarsvæðisins
ættu að gleðjast, því það er aldrei of seint að fá sér
strípur og gervibrúnku fyrir Skímó-ball. Tilkynning
barst frá Einari Bárðarsyni til fjölmiðla í gær, um
að sveitin, ásamt Ingó úr Veðurguðunum og fær-
eyingnum Jogvan, spilaði á balli á NASA á laug-
ardaginn. Hefur sveitin ekki spilað í Reykjavík í 2 ár,
og því full ástæða til að mæta. tsk
Fjölmiðlar landsins eru nú loks búnir að átta sig á
því að landsmenn hanga tímum saman á samfélags-
vefnum Facebook. Því hafa bæði mbl.is og visir.is
tekið sig til og gert lesendum sinna miðla kleift að
senda fréttir beint yfir í Facebook. Nú hefur áreið-
anlegasti netmiðillinn gert slíkt hið sama og les-
endur Karls Sigurðssonar og félaga hans í Baggalút
geta nú sent „fréttir“ þaðan beint á fésbókina. vij
„Þetta myndi ég segja að væri
framtíðin. Að vígsluathafnir inn í
framhaldsskóla breytist úr nið-
urlægjandi innvígslu yfir í vinalegt
handtak,“ segir Jón Jósep Snæ-
björnsson, félagsmálafrömuður
Tækniskólans, en skólinn bauð í
gær nýnema skólans velkomna til
starfa. Nýnemavígslan var býsna
frábrugðin því sem þekkist í öðr-
um framhaldsskólum enda svívirð-
ingar og valdníðsla fjarri góðu
gamni.
„Í stað þess að við séum að láta
fólk þamba mysu og drattast í
gegnum drullupytt þá aðgreindum
við eldri nemendur frá yngri nem-
endum. Eldri nemendur voru allir
klæddir í svarta boli og að stuttu
ræðuhöldum loknum voru yngri
nemendum afhentir svartir bolir.
Við notum þetta sem sameining-
arhátíð.“ Þá voru Veðurguðirnir
fengnir til að leika á hátíðinni til að
gera þessi tímamót enn eft-
irminnilegri.
Busavígslan deyjandi hugtak
Jónsi segir að hinar hefðbundnu
busavígslur séu þess eðlis að þær
fari gjarnan úr böndunum. „Busa-
vígsla er deyjandi hugtak. Það er
búið að fara svo oft úrskeiðis að
við þurfum að fara að hugsa þetta
öðruvísi.“
Honum er enn minnisstæð sín
eigin busavígsla en hún gekk ekki
eins og best væri á kosið. „Hún var
bara af hefðbundnara taginu í
Menntaskólanum á Akureyri og ég
minnist þess enn að bæði í minni
busavígslu og þegar ég var að taka
þátt í busun, þá slasaðist fólk.“
viggo@24stundir.is
Nýnemar ekki beittir neinu harðræði
Vinaleg busavígsla
í Tækniskólanum
Allir vinir Það fór ekki mikið fyrir svívirð-
ingum í garð nýnema.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
5 8 2 3 6 1 7 9 4
6 4 3 7 8 9 1 2 5
7 9 1 2 4 5 6 8 3
3 1 7 4 5 2 8 6 9
2 5 4 6 9 8 3 1 7
8 6 9 1 3 7 4 5 2
9 3 6 5 1 4 2 7 8
4 7 5 8 2 6 9 3 1
1 2 8 9 7 3 5 4 6
Flúin? Nei nei, hana langar stundum bara
svo rosalega í ostborgarara og franskar.
a
Miðað við stöðu krónunnar
gagnvart pundinu, þá verður
þeim ekki skotaskuld úr því.
Ómar, tímdu skotarnir að kaupa miða á leikinn?
Ómar Smárason er markaðsstjóri KSÍ, en í
dag fer fram landsleikur Íslands og Skot-
lands í undankeppni HM.FÓLK
24@24stundir.is fréttir
HAFNAFJARÐARLEIKHÚSINU
„Fær hugann til að fljúga og kemur
tilfinningum á rót“
M.K MBL
„Falleg, fyndin,sönn og kvenleg“
V.G Bylgjunni
„Ég hvet fólk til að drífa sig
á leikinn og njóta“
Jón Viðar DV
FÆRRI KOMUST AÐ EN VILDU Í VOR EN NÚ GEFST
TÆKFIFÆRI Á NÝ TIL AÐ SJÁ ÞESSA EINSTÖKU OG
SKEMMTILEGU SÝNINGU
ÖRFÁAR SÝNINGAR EFTIR
FIM 11. SEPTEMBER
SUN 14. SEPTEMBER
FIM 18. SEPTEMBER
mammamamma.netwww.midi.is
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA
Feim-Lene Bjerre • Bæjarlind 6 • Kóp.
Sími 534 7470 • Vefverslun www.feim.is
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 10-16.
Erum að taka upp
nýjar vörur