24 stundir


24 stundir - 20.09.2008, Qupperneq 2

24 stundir - 20.09.2008, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir WWW.EBK.DK Danskir gæðasumarbústaðir (heilsársbústaðir) Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar: Anders Ingemann Jensen farsími nr. +45 40 20 32 38 netfang: aj@ebk.dk Ert þú í byggingarhugleiðingum? Ferðaskrifstofa Borgarlottó Dublin Verð frá: 59.900kr. Á mann miðað við 2 í herbergi í 3 nætur. Flug og gisting, morgunverður, flugvallaskattar og íslensk fararstjórn. Þú velur áfangastaðinn og ferðadaga en tekur þátt í lottóinu um hvaða gistingu þú lendir á. Viku fyrir brottför staðfestum við á hvaða gististað þú ferð! Fyrstur kemur, fyrstur fær. Nánari upplýsingar og bókanir á www.plusferdir.is VÍÐA UM HEIM Algarve 22 Amsterdam 16 Alicante 26 Barcelona 21 Berlín 14 Las Palmas 23 Dublin 16 Frankfurt 16 Glasgow 14 Brussel 16 Hamborg 15 Helsinki 10 Kaupmannahöfn 14 London 16 Madrid 27 Mílanó 17 Montreal 17 Lúxemborg 15 New York 20 Nuuk 1 Orlando 26 Osló 11 Genf 9 París 18 Mallorca 23 Stokkhólmur 16 Þórshöfn 12 Sunnudagurinn verður líkur mánudeginum, suðvestan 10-18 metrar á sekúndu og skúrir, en skýjað með köflum norðaustantil. Hiti 9-15 stig. VEÐRIÐ Á MORGUN 10 12 10 11 9 Skúrir og kólnar heldur Þegar stormurinn er genginn niður verður suðvestan 10-15 metrar og skúrir sunnan- og vestantil, en hægari og þurrt að kalla á Norð- austur- og Austurlandi. Hiti 8-15 stig, hlýjast norðaustanlands. VEÐRIÐ Á MORGUN 10 9 11 7 9 Haustveður en hlýtt Þróunar- og fjárfestingarfélaginu Nýsi hf. barst í gær tilboð frá Landsbankanum og Kaup- þingi í allar eignir félagsins. Eins og greint hefur verið frá í 24 stundum hefur Nýsir rambað á barmi gjaldþrots. Skuldir félagsins nema um fimmtíu milljörðum líkt og eignirnar. Skammtímalán félagsins voru farin að falla í gjalddaga og hefur verið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins undanfarna mán- uði í von um að rekstur þess geti gengið áfram. Í tilkynningu sem barst Kauphöll Íslands í gær kemur fram að ef tilboðunum verður tekið muni þau hafa veruleg áhrif á efnahagsreikning félagsins. Félagið hyggst meta tilboðin og kynna þau fyrir kröfuhöfum þar með talið kröfuhöfum verðbréfa sem tekin hafa verið til viðskipta í kauphöllinni. Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Nýsis, vildi ekki gefa upp í hverju tilboð bank- anna tveggja var fólgið. Augljós vandamál Fyrir skemmstu ákvað kauphöllin að áminna Nýsi hf. og sekta félagið um 1,5 milljónir króna fyrir brot á reglum um upplýsingagjöf. Kaup- höllin taldi Nýsi hafa borið að birta tilkynningu um slæma fjárhagsstöðu félagsins um leið og ljóst var að dráttur yrði á afborgunum af verð- bréfum útgefnum af félaginu. Þá var greint frá því í 24 stundum í gær að Nýsir skuldaði Trésmiðju Snorra Hjaltasonar enn 175 milljónir vegna byggingar Egilshallar- innar í Grafarvogi. Fjármálastjóri trésmiðjunn- ar, Ásbjörn Jónsson, sagðist ekki gera ráð fyrir því að fá þá fjármuni. Miklar eignir Nýsir ræður samtals yfir meira en 200 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði sem það leigir. Eignirnar eru á Íslandi, í Bretlandi og Dan- mörku. Ekki náðist í Stefán Þórðarson og Sigfús Jónsson, eigendur Ńýsis. magnush@24stundir.is Bankar koma Nýsi til bjargar eftir nokkurra mánaða vinnu við endurmat á stöðu félagsins Lánveitendur gera tilboð í eignir Nýsis Skipum Landhelgisgæslu Ís- lands hefur verið lagt við Reykjavíkurhöfn í sparnaðar- skyni. Þetta staðfesti Sól- mundur Már Jónsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Landhelgisgæslunnar, við 24 stundir í gær. Hár olíu- kostnaður hefur verið íþyngj- andi fyrir rekstur Gæslunnar það sem af er ári. „Það eru fyrst og fremst miklar eldsneytishækkarnir sem búa að baki. Skipin eru þó til reiðu og áhafn- ir eru við vinnu í skipunum, við viðhald og annað. En þetta þýðir að skipin eru mun meira í höfn í Reykjavík heldur en reiknað var með.“ Sólmundur segir að eldsneytishækkanirnar milli ára séu umtalsverðar. „Hækkanirnar hlaupa á tugum milljóna á ársgrundvelli og við þurfum að bregðast við þessu. Eldsneytisverð hefur þó verið að sveiflast mikið og að undanförnu hefur það verið að fara niður á við á heimsmörk- uðum.“ mh Skipum lagt til að spara landssamtakanna kemur fram að málskostnaður hafi ítrekað verið úrskurðaður svo lágur að land- eigendur hafi þurft að bera mik- inn kostnað vegna þess sem útaf stendur. Forsætisráðherra hefur ekki svarað erindinu. fr Landssamtök landeigenda hafa sent Geir H. Haarde bréf þar sem farið er fram á að stjórnvöld standi við loforð um að landeig- endur þurfi ekki að bera kostnað af málarekstri vegna þjóð- lendukrafna ríkisins. Lög um þjóðlendur voru sett fyrir áratug og hefur fjöldi mála farið fyrir dómstóla. Eru hæstaréttardómar í þjóðlendumálum orðnir 36 tals- ins auk þess sem sex málum hef- ur verið vísað til Mannréttinda- dómstóls Evrópu. Í bréfi Ríkið greiði málskostnað Eftir Kristínu Ýri Gunnarsdóttur kristing@24stundir.is „Ég man eftir einu máli á þessu ári hér í Reykjavík fyrr á árinu þar sem við þurftum að biðja um lögreglu- rannsókn sökum alvarleika þess,“ segir Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri Barnaverndar. „Málin sem koma inn á borð hjá Barnavernd eru misjöfn en alvarleg ofbeldismál gegn börnum eru ekki algeng. Um 100 börn eru í varan- legu fóstri hér í Reykjavík og hefur sú tala að mestu haldist ár frá ári.“ Ferlið er misjafnt „Við fáum tilkynningar til okkar frá fólki og oftast nær eru þær um að foreldrar séu að niðurlægja börn sín með orðum. Í þeim tilvikum skoðum við málið og bjóðum for- eldrum oft upp á foreldranám- skeið.“ Halldóra segir að þegar erfið mál koma upp og það þarf að fjarlægja barn af heimili vegna ofbeldis þá fari ákveðið ferli í gang. „Við bjóð- um öllum börnum upp á aðstoð. Það er öðruvísi þegar börn eru beitt kynferðisofbeldi því margir sérfræðingar veigra sér við að taka að sér þau börn því viðeigandi menntun er ekki til staðar. Barna- hús tekur að sér börn sé grunur um kynferðisofbeldi. Þegar börn eru beitt líkamlegu ofbeldi eða grunur er um það eru þau send í lækn- isskoðun og fá viðeigandi sálræna aðstoð. Þurfi lögregla að koma að málinu þá er barn fjarlægt svo brotamaður geti ekki hitt barnið og reynt að hafa áhrif á framburð þess við skýrslutöku.“ Reynt að sameina fjölskyldur Halldóra segir tilgang barna- verndarlaga vera svolítið ákveðinn að því leyti að þeim ber að stuðla að sameiningu barna og fjöl- skyldna. Þar gildir sú meginregla að það sé nánast fullreynt með all- an hugsanlegan stuðning áður en foreldri er svipt forsjá. Í neyslumál- um er þetta oft flókið því þá geta foreldra átt góða daga meðan þeir eru edrú og verið fínustu foreldra, en svo falla þeir þá þarf að grípa inn í. Ítrekuð tækifæri geta verið gefin en síðan þarf að meta hvenær er komið nóg. Andlegt ofbeldi algengast  Margar tilkynningar til barnaverndar eru sökum niðurlægingar foreldris  Alvarleg líkamleg ofbeldismál eru ekki algeng Andlegt ofbeldi Al- gengast er að foreldrar tali illa til barna sinna. ➤ Staðfesti barn ofbeldi í við-tali eru viðeigandi ráðstafanir gerðar í kjölfarið. ➤ Árið 2007 var í málum 14barna gripið til neyð- arráðstöfunar á grundvelli 31. gr. barnaverndarlaga hér í Reykjavík sem segir að barnaverndarnefnd taki forsjá í sínar hendur. BARNAVERND STUTT ● Samningafundur lækna og ríkisins hjá ríkissáttasemjara varð árangurslaus í gær. Læknar ætla ekki að sætta sig við lægri laun en ljósmæður. ● Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Frjálslynda flokks- ins leiðir hjá sér vantrausts- yfirlýsingu sem kom frá ungum Frjálslyndum í gær, því hún sé persónuleg og ekki málefnaleg á nokkurn hátt. Hann segir fé- lagið stofnað að undirlagi Jóns Magnússonar. ● 24 stundir Næsta tölublað 24 stunda kemur út þriðjudag- inn 23. september. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Bretinn Roland Grimm er sár og reiður. Honum hefur verið meinaður aðgangur að hverf- islauginni með kafaragler- augun sín. „Ég hef notað þessi gleraugu í yfir 100 sundlaug- um um allan heim og enginn hefur kvartað,“ segir Grimm. Laugarstarfsmenn segja gler- augun hættuleg þar sem þau hylji nef hans. jmv Sár sundkappi Reglufesta SKONDIÐ

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.