24 stundir - 20.09.2008, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir
Það er dýrmætt fyrir unglinga að eiga val
BORGARALEG FERMING 2009
Skráning er í fullum gangi
Upplýsingar á heimasíðu félagsins:
www.sidmennt.is og í símum
567 7752, 557 3734 eða 553 0877.
Skráning í sömu símum
eða á eyðublaði á heimasíðunni.
Boðið verður upp á helgarnámskeið,
ætlað landsbyggðarfólki.
10
47
82
5
Verðlaunabyggingin umdeilda sem teiknuð
var við Laugaveginn er samstarfsverkefni +Arki-
tekta og Adepts Architects í Kaupmannahöfn.
Hún er því hálfdönsk, þótt lítið hafi borið á því í
fréttum á Íslandi. Danska arkitektastofan vinnur
áfram að verkefninu með +Arkitektum og
borgaryfirvöldum, en verið er að reyna að koma
húsinu heim og saman við skipulagið og pólitík-
ina.
Skammarleg kynning
Martin Krahg, arkitekt á Adept Arcitects-stof-
unni í Kaupmannahöfn, segir að stofurnar tvær
hafi unnið verkið sem jafningjar, höfundarréttur
og öll skipting sé 50% - 50%. „Það er alveg á
hreinu og algjörlega til skammar að beggja höf-
unda skuli ekki ævinlega hafa verið getið í um-
fjöllun um verðlaunahúsið. Páll Hjaltason, arki-
tekt á íslensku stofunni, segir að +Arkitektar hafi
ævinlega gætt þess að halda nafni Adept Arki-
tekta fram í öllum kynningum. Það hafi hins
vegar ekki alltaf skilað sér í fjölmiðlum. „Kynn-
ingin var skýr frá okkar hendi frá fyrstu tíð, þótt
dönsku höfundarnir hafi fengið minni athygli
fjölmiðla. Ætli þeir hafi ekki aðallega verið að
hugsa um aðrar fréttir í tengslum við málið. Póli-
tíkina og deilur,“ segir Hjalti. Danska arkitekta-
stofan hefur nú ráðið Íslending til starfa til að
aðstoða við að halda vinnu við verkefnið áfram.
Beðið eftir borgarstjóra
Arkitektarnir eru nú að vinna með skipulags-
stjóra og skiplulagsráði Reykjavíkur að frekari
útfærslu á byggingu Listaháskólans við Lauga-
veg. Hjalti segir ótímabært að segja neitt um hver
lokaniðurstaða þeirrar vinnu verður. Höfundar
verðlaunahússins, Júlíus Vífill Ingvarsson for-
maður skipulagsráðs og Hanna Birna Kristjáns-
dóttir borgarstjóri áttu boðaðan fund í vikunni.
Honum var frestað en Hjalti segir unnið þétt og
dagleg samskipti séu við borgina.
beva@24stundir.is
Dönsk arkitektastofa sem teiknaði Listaháskólann með +Arkitektum féll í skuggann
Hálfdanskur Listaháskóli við Laugaveg
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Sauðfjárbændur eru margir hverjir
æfir yfir mikilli útflutningsskyldu á
dilkakjöti. Í sumar ákvað landbún-
aðarráðherra eftir tillögu Markaðs-
ráðs kindakjöts að 28 prósent
lambakjöts skyldu eyrnamerkt til
útflutnings. Var ákvörðunin byggð
á birgða- og sölutölum en ljóst
þótti að umtalsvert meiri birgðir
yrðu til í landinu við upphaf slát-
urtíðar í ár heldur en í fyrra. Hins
vegar glæddist sala á lambakjöti
mjög seinnipart sumars og því
voru birgðir í ár mjög svipaðar og í
fyrra. Því eru bændur mjög
óánægðir með að útflutningsskyld-
an nú skuli vera svo miklu meiri en
í fyrra en þá var hún 16 prósent.
Bændur fá ríflega eitt hundrað
krónum hærra verð fyrir hvert kíló
af kjöti sem slátrað er á innan-
landsmarkað.
Útflutningsskyldan minnkuð
Gunnar Sæmundsson, sauðfjár-
bóndi í Hrútatungu í Hrútafirði og
fyrrverandi varaformaður Bænda-
samtaka Íslands, segir að í ljósi
birgðastöðu lambakjöts nú sé
borðleggjandi að minnka beri út-
flutningsskylduna. „Birgðir sem til
eru af lambakjöti í landinu eru
komnar niður í 713 tonn sem er
1,4 prósentum minna en í fyrra.
Þetta segir okkur bara að það hefði
ekki átt að hækka útflutningspró-
sentuna frá síðasta ári. Ég segi það
núna að ég geri kröfu til þess að
Landssamband sauðfjárbænda,
Bændasamtökin og sláturleyfishaf-
ar beiti sér fyrir því við ráðherra að
útflutningsprósentan verði lækkuð
í um 18 prósent. Það þarf að gerast
hratt. Ég veit að Markaðsráðið
fundar í næstu viku en mér finnst
það fullseint. Þessi ákvörðun þarf
að taka gildi um miðja næstu viku
og hún þarf að gilda fyrir allt
haustið. Þetta munar umtalsverðu
fyrir bændur.“
Jóhannes Sigfússon, formaður
Landssambands sauðfjárbænda og
formaður Markaðsráðs kindakjöts,
segir að hann sé alls ekki viss um að
birgðatölur nú segi alla söguna.
„Ég er ansi hræddur um að kjöt-
vinnslurnar séu nú að tryggja sér
kjöt til vinnslu og það er alveg óvíst
að það kjöt sé selt þó það teljist
þannig í þessu reikningum.“ Jó-
hannes segir að það sé ekkert
ákveðið um að málið verði tekið
upp á fundi Markaðsráðs í næstu
viku. Spurður hvort hann telji
ástæðu til þess að útflutningsskyld-
unni verði breytt segir Jóhannes:
„Ég útiloka það ekki. Þetta hefur
verið nefnt við mig en engin
ákvörðun hefur verið tekin um
það. Ég vil hins vegar fara mun bet-
ur yfir þær tölur sem standa að
baki þessu áður en ég tjái mig um
málið.“
Bændur æfir
Bændur telja að útflutningsskylda á lambakjöti sé allt of mikil
Fá ríflega 100 krónum meira fyrir kílóið á innanlandsmarkað
Slátrun Mun minna er greitt
fyrir lambakjöt sem skylt er
að slátra til útflutnings.
➤ Einar K. Guðfinnsson land-búnaðarráðherra segir að
ekki hafi verið farið fram á
það við sig að minnka út-
flutningsskylduna.
➤ Ef Markaðsráð kindakjötsgerði tillögu um slíkt myndi
hann meta hana og taka
ákvörðun á sínum for-
sendum.
RÁÐHERRA
Íslenska krónan styrktist um
3,55 prósent í gær og stóð
gengisvísitalan í 172 stigum
við opnun markaða í gær-
morgun. Daginn áður stóð
gengisvísitalan í rúmlega 178
stigum í lok dags og hafði þá
aldrei verið veikari.
Við lok dags í gær var gengi
Bandaríkjadals rúmlega 91
króna en hafði verið rúmlega
93 daginn áður. Sterlings-
pundið var tæplega 67 krónur
í lok dags og evran rúmlega
131 króna. Hún var tæplega
134 krónur daginn áður. mh
Krónan styrktist
Styrktist en er
ennþá veik
Davíð Oddsson, formaður
bankastjórnar Seðlabanka Ís-
lands, sagði í viðtali við Kristján
Má Unnarsson, fréttamann
Stöðvar 2, á fimmtudagskvöld að
vandamál í íslensku efnahagslífi
hefðu ekkert með íslensku krón-
una að gera. „Sá vandi sem við
erum að glíma við núna hefur
ekki nokkurn skapaðan hlut með
krónuna að gera […] Atlagan
gegn krónunni sem verið hefur er
afskaplega ógæfuleg og óskiljan-
leg í rauninni og menn eiga ekki
að leyfa sér hana um þessar
mundir. Sjálfsagt er að ræða öll
mál, Evrópumál, gjaldmiðlamál
og þess háttar mál, en menn eiga
ekki að láta það trufla sig og gefa í
skyn og gefa fólki til kynna að
menn geti leyst úr einhverjum
vandamálum, sem menn eru
með núna, með einhverjum
töfraráðum af því bragði. Það eru
lýðskrumarar af versta tagi sem
þannig haga sér og maður hlýtur
að hafa á þeim mikla skömm og
fyrirlitningu.“
Annar tónn
Orð Davíðs, þess efnis að
vandamál sem íslenskt efnahags-
líf glímir við nú séu ekkert tengd
krónunni, eru í öðrum tóni en
þau sem Arnór Sighvatsson, aðal-
hagfræðingur Seðlabanka Ís-
lands, hefur látið hafa eftir sér á
opinberum vettvangi. Í viðtali við
fréttavef þýska blaðsins Frankfur-
ter Algemeine Zeitung hinn 9.
maí á þessu ári sagði Arnór að
upptaka evru yrði til þess fallin að
skapa stöðugleika í íslensku efna-
hagslífi. „Við erum í mjög hættu-
legum aðstæðum. Aðalvandi
okkar er að ná stöðugleika í gengi
gjaldmiðilsins, til þess þurfum
við að skapa traust á íslensku
krónunni.“
Aðspurður hvort lítið land eins
og Ísland þurfi á sjálfstæðum
gjaldmiðli að halda sagði Arnór:
„Það kostar okkur talsvert að
halda gjaldmiðlinum í jafnvægi.
Gengið er mjög óstöðugt, sem
gerir það líka að verkum að
neyslan sveiflast mjög eftir verði.
Gjaldmiðillinn er frekar upp-
spretta óstöðugleika en að hann
geti dregið úr utanaðkomandi
sveiflum.“
Sammála um vexti
Þó að áherslur Davíðs og Arn-
órs varðandi krónuna séu ólíkar,
og viðhorf þeirra til hennar sem
gjaldmiðils séu augljóslega ekki
þau sömu, þá eru þeir báðir á
einu máli um að ekki komi til
greina að lækka stýrivexti á með-
an verðbólgan er há og mikil. Þeir
eru nú 15,5 prósent. Um vaxta-
stefnu ríkir einhugur en ekki um
krónu.
Magnús
Halldórsson
magnush@24stundir.is
FRÉTTASKÝRING
Ólíkir tónar í
Seðlabanka Íslands
Ljósmæður og fjármálaráðherra
samþykktu miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara í atkvæðagreiðslu sem
lauk í gær. Kjarasamningur ljós-
mæðrafélagsins gildir til 31. mars á
næsta ári. Grunnlaun hækka um
allt að 22,6%. Þar af 5% í stofn-
anasamningum. Meðallaunahækk-
un er á bilinu 60 til 90 þúsund. Vís-
indasjóður ljósmæðra verður
lagður af en í hann hafa vinnuveit-
endur greitt 1,5% af launum.
191 ljósmóðir, 82,68 % fé-
lagsmanna, greiddi atkvæði um til-
löguna, 162 greiddu atkvæði með
henni, 22 ljósmæður vildu fella
hana og 7 skiluðu auðu.
Ljósmæður boða áframhaldandi
baráttu þegar samningurinn renn-
ur út 1. mars, enda vanti enn 10%
upp á markmiðið um laun í sam-
ræmi við menntun.
Miðlunartillaga ríkissáttasemjara samþykkt
Yfirgnæfandi meirihluti
samþykkti sáttatillögu
Stjórn Reykjavík Energy Invest (REI) smþykkti á fundi sínum í gær að
kanna möguleikann á því að ganga til samstarfs við fagaðila um stofn-
un opins fjárfestingarsjóðs sem hafi með höndum fjármögnun verk-
efna félagsins. Stjórn REI, sem er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur,
ákvað jafnframt að skipuð yrði sérstök ráðgjafanefnd sem mun hafa
það verkefni að finna heppilega útfærslu og aðferð til þess að innleiða
fyrrnefndar breytingar. Áður en endanlega verður ákveðið að breyta
REI kemur málið til kasta stjórnar Orkuveitunnar. mh
REI verði opinn fjárfestingarsjóður
Hjörleifur
Kvaran hef-
ur verið
ráðinn for-
stjóri Orku-
veitunnar.
Þetta var
samþykkt á
fundi
stjórnar í
gær. Hjör-
leifur hefur
verið starf-
andi for-
stjóri frá í
vor, þegar Guðmundur Þórodds-
son var látinn víkja. Átján sóttu
um starf forstjóra Orkuveit-
unnar, en Hjörleifur var sá eini
sem opinbert var að sóttist eftir
starfinu. bee
Hjörleifur for-
stjóri Orkuveitu