24 stundir - 20.09.2008, Page 8
Mótmælandi í Svíþjóð Mótmælt var fyrir utan Aimpoint-verksmiðjuna í Málmey
sem framleiðir íhluti í riffla sem notaðir eru af bandarískum her í Írak.
Hræddar mæður Kínverskar konur bíða eftir að börn þeirra verði meðhöndluð
vegna neyslu á eitraðri þurrmjólk.
Klámblaðabrenna Lögreglumaður sýnir klámblöð og efni sem hefur verið gert
upptækt í Manila á Filippseyjum.
Borgarstjóri í baráttu
Klámefni gert upptækt á Filippseyjum
Alfredo Lim, borgarstjóri Manila-borgar á Filippseyjum, hefur hert
baráttu borgaryfirvalda gegn klámefni til muna. Klámefni fjölfald-
að á ólöglegan máta var gert upptækt og því dreift á götur borg-
arinnar áður en það var eyðilagt í eldi. Alfredo Lim sór embættiseið
sinn þann 30. júní árið 2007 eftir að hafa háð baráttu sína undir
slagorðunum: Linisin, Ibangon, Maynila (Hreinsum og byggjum
upp Manila-borg). Borgarstjórinn hefur látið hafa eftir sér að hann
muni sýna festu í baráttu sinni gegn ólöglegu klámefni.
dista@24stundir.is
Sauðfjárganga Bannað að fara með sauðfé yfir Londonbrú en sá siður að færa
sauðféð ferskt inn á markaði til slátrunar um brúna hefur verið í gildi frá 12. öld.
8 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir
Desmond Tutu, Nóbelsverðlaunahafi og erkibiskup
í Suður-Afríku, hefur sakað Vesturlönd um að láta
þjáningar Palestínumanna viðgangast þar sem þau vilji
ekki gagnrýna Ísraela vegna helfararinnar.
„Ég held að Vesturlönd séu með réttu yfirbuguð af
sekt og iðrun vegna þess hvernig þau litu framhjá hel-
förinni á skelfilegan hátt,“ sagði hann. „Það eru Palest-
ínumenn sem gjalda þessa. Ég held í vonina um að al-
mennir borgarar á Vesturlöndum vakni og neiti að
taka þátt í þessu.“
Fram kemur á hebreska fréttavefnum Ha’aretz, að
Tutu hafi sagt þetta er hann kynnti skýrslu Sameinuðu
þjóðanna um árás Ísraelshers á bæinn Beit Hanun á
Gasasvæðinu í nóvember árið 2006. Sagði hann hugs-
anlegt að skilgreina mætti árásina sem stríðsglæp og að
Ísraelar hefðu neitað að vinna með rannsóknarnefnd,
sem hann fór fyrir.
Tutu gagnrýndi einnig Hamas-samtök Palestínu-
manna og sagði þeim bera skylda til að virða þann rétt
sem ísraelskir borgarar hafi samkvæmt alþjóðalögum.
„Fjölskyldurnar sem búa í Sderot eiga rétt á að lifa án
ótta við að flugskeyti, sama hversu ófullkomin þau eru,
komi niður úr skýjunum,“ sagði hann.
sibb@24stundir.is
Vesturlönd sökuð um sinnuleysi gagnvart Palestínumönnum
Helförin enn áhrifavaldur
Eftir Sigrúnu Birnu Birnisdóttur
sibb@24stundir
Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísr-
aels og nýkjörinn formaður Ka-
dima flokksins, vinnur nú að því
að kanna hvort grundvöllur sé til
myndunar ríkisstjórnar undir
hennar forystu í landinu. Livni
tók við formennsku flokksins af
Ehud Olmert, forsætisráðherra
landsins, eftir nauman sigur
hennar á Shaul Mofaz í prófkjöri
flokksins á fimmtudag.
Ekki er hins vegar sjálfgefið að
hún verði forsætisráðherra. Til
þess þarf hún að mynda sína eigin
ríkisstjórn en takist henni það
ekki verður boðað til kosninga í
landinu.
Livni hefur enn ekki fengið
formlegt umboð til stjórnarmynd-
unar en hún hefur þó lýst því yfir
að hún hafi áhuga á áframhald-
andi samstarfi þeirra fjögurra
flokka sem mynda ríkisstjórn Ol-
merts.
Fréttaskýrendur telja nokkuð
öruggt að tveir þeirra, Verka-
mannaflokkurinn og flokkur aldr-
aðra séu tilbúnir til samstarfs við
hana. Afstaða Shas flokksins, sem
er flokkur gyðinga af miðaust-
urlenskum uppruna, er hins vegar
óljósari.
Jerúsalem í brennidepli
Talið er að hugsanlegir samn-
ingar Ísraela við Palestínumenn
muni helst standa í vegi fyrir
þátttöku Shas í ríkisstjórn undir
forystu Livni. Hún hefur verið
aðalsamningamaður Ísraela í við-
ræðum við Palestínumenn og tal-
ið er að hún muni leggja mikla
áherslu á framhald friðarferlisins.
Talsmenn Shas hafa hins vegar
lýst því yfir að þeir muni ekki
fallast á neinar málamiðlanir
varðandi stöðu Jerúsalem. Nær
ómögulegt er talið að samningar
náist án einhverra slíkra mála-
miðlana. Þá segir Ariel Attias,
ráðherra Shas, að flokkurinn
muni krefjast þess að meiri fjár-
munum verði varið til velferð-
armála.
Amira Dotan, þingmaður Ka-
dima, segist bjartsýn á að samn-
ingar náist við Shas en gangi það
ekki eftir hafi Livni einnig aðra
möguleika. „Kadima er miðju-
flokkur og því geta nokkrir flokk-
ar auðveldlega unnið með Ka-
dima,“ segir hún og nefnir til
dæmis Meretz-flokkinn og nokkra
flokka bókstafstrúaðra. Einnig er
hugsanlegt að Livni myndi minni-
hlutastjórn sem reiði sig á stuðn-
ing flokka ísraelskra araba. Ólík-
legt er þó að hún reyni að ganga
frá samkomulagi við Palestínu-
menn á grundvelli slíks samstarfs.
Netanyahu krefst kosninga
Takist Livni ekki að mynda rík-
isstjórn er líklegt að kosið verði í
Ísrael í upphafi næsta árs.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Likud flokkurinn nú mest
fylgi og hefur Benjamin Net-
anyahu, formaður hans, krafist
þess að boðað verði til kosninga.
„Það væri hreinlegast og lýðræð-
islegast,“ segir hann.
Við borðið
Leita friðar.
Friðarferlið í
brennidepli
Utanríkisráðherra Ísraels stendur frammi fyrir því erfiða verk-
efni að samræma sjónarmið að minnsta kosti fjögurra flokka
➤ Óformlegar viðræður eruhafnar um myndun nýrrar rík-
isstjórnar í Ísrael.
➤ Ehud Olmert mun verða starf-andi forsætisráðherra þar til
ný ríkisstjórn hefur verið
mynduð.
➤ Hugsanlegt er að boðað verðitil kosninga í landinu í upp-
hafi næsta árs.
ÓFORMLEGAR VIÐRÆÐUR
HEIMSÁSTAND
frettir@24stundir.is
myndir/AFP