24 stundir - 20.09.2008, Side 13

24 stundir - 20.09.2008, Side 13
ingamenn þeirra hafa eftir sér að ríkið væri að ýta þeim út í aðgerðir. Betra hefði fyrir ríkið að ljúka samningum við læknana áður en miðlunartillagan kom fram. Böðvar Jónsson segir að auðvitað hafi allir samningar áhrif á kröfugerðir og þannig hafi það alltaf verið. Að öðru leyti telur hann ekki rétt að tjá sig um samningshorfur vegna þeirra sjö félaga sem eftir eru. Samningarnir eru allir stuttir og því styttri sem seinna er samið. Samningar við félög hjá ríkinu renna út um mánaðamótin mars/apríl, svo ekki eru líkur á að langt hlé fáist á milli þessarar samningalotu og þeirrar næstu. Miðað við hljóðið í lögreglumönnum síðustu daga má búast við mikilli hörku þar, ekki síður en hjá læknum, en minna hefur heyrst í hinum stéttunum. Enda er sjálfsagt algjörlega þýðingarlaust hjá búninga- og leikmyndahönnuðum að hóta verkfalli. Leiðrétt fyrir nám en ekki kyn „Þetta eru orðnir svo miklir vinir okkar, samn- ingamenn ríkisins, að okkur fannst rétt að kveðja þá fallega,“ segir Guðlaug Einarsdóttir, formaður Félags ljósmæðra. „Niðurstaðan sem nú fékkst er kannski leiðrétting fyrir námið en alls ekki fyrir kynið, sá pakki er alveg eftir. Þess vegna bindum við miklar vonir við nefndir ríkisstjórnarinnar. Niðurstaðan á að koma á haustmánuðum. Ríkissáttasemjari kom ekki lengra til móts við okkur en fjármálaráðherra. Þetta var það sem hann treysti sér til að leggja fram. Við fögnum því að þetta er búið. Törnin var löng og ströng, sumarfríin fóru fyrir lítið. Við erum fyrst og fremst að fagna sam- stöðunni og einingunni og því að þetta sé búið. Við höfum lært mikið af þessari baráttu og búum að því í næstu samningum.“ Guðlaug bendir á að ekkert sé mikilvægara í heilbrigðiskerfinu en mannauðurinn. Það fá vonandi allar stéttir viðurkennt. aBjörg Eva Erlendsdóttir Árangurinn sem ljós- mæður náðu er mikill. Ekki aðeins í krónum og aurum. Þær njóta líka virðingar í baráttu sinni fyrir réttlátari kjörum. Öfugt við ríkisstjórnina sem ræður hvorki við óhóflegu eftirlaunin sín né sjálfvirkar kauphækkanir. 24stundir LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 13 Handarskjálfti getur tíðum leitt til þess að rangt er slegið inn á reiknivélum og svo virðist nú farið þeim aðildarsinnum sem reiknað hafa út að aldrei hafi fleiri Íslend- ingar verið hlynntir ESB-aðild en nú. Ef litið er á tölur á heimasíðu Samtaka iðnaðarins sést að þetta er rangt. Fylgið við aðild að ESB náði meiri hæðum í netbólukreppunni í byrjun þessarar aldar en rénaði fljótt um leið og um hægðist á mörkuð- um. Þannig töldu 67 prósent þeirra sem tóku afstöðu í febrúar 2002 að Ísland ætti að ganga í ESB en nú er sambærileg tala 60 prósent. Frænd- ur okkar Svíar gengu í ESB í krafti einnar atkvæðagreiðslu sem sýndi meirihlutafylgi við aðild. Bæði fyrir og eftir þá kosningu hefur meiri- hlutinn verið andvígur ESB-aðild þar í landi en úr ESB er engin leið út. Skrýtla í skrifræðinu Í nýjum Lissabonsáttmála er reyndar ein skrýtla um úrsögn þar sem gert er ráð fyrir að þjóð megi ganga úr ESB en verði þá fyrst að sæta því að vera í gíslingu hinna ESB-landanna í tvö ár án þess að ráða nokkru um sín mál eða koma nokkuð að ákvörðunum innan sambandsins. Í öllu skrifræði sam- bandsins er þetta eitt af örfáum dæmum um skopskyn og enn fyndnara þegar einhver tekur reglu sem þessa alvarlega. En áfram um talnafræðin. Þegar horft er til sögu Svía og niðurstöður skoðanakannana á Íslandi síðustu ár er handarskjálfti ESB-sinna hér heima ofur skiljanlegur. Reynslan kennir þeim að meirihlutafylgi við ESB-aðild er mjög hverfult. Fæstir hafa skoðað málið til þrautar og fyr- ir flestum rennur upp önnur mynd þegar þeir átta sig á að með aðild að ESB hefur Ísland glatað nýfengnu fullveldi um alla framtíð. Fullveldi sem hefur skilað okkur svo fram á brautina að frá því að vera frum- stæðust og fátækust allra Evrópu- ríkja erum við nú þau efnamestu. Reynsla Norðmanna bendir raunar til að við kosningar sé þjóð- leg hollusta og skynsemi mun meiri en í yfirborðslegum skoðanakönn- unum. Meirihluti Norðmanna hef- ur samþykkt ESB-aðild í könnunum en hafnað hinu sama í kosningum. En hinu er ekki að neita að ef fjár- málakreppan dýpkar enn og verð- bólgan heldur áfram er líklegt að fylgi við ESB-aðild eigi jafnvel enn eftir að aukast – áður en það hjaðn- ar hratt á ný, líkt og gerðist á árinu 2002. Þá gerðist það að fylgi við ESB féll mjög hratt um mitt ár 2002 og hefur síðan lónað í 40 prósent allt fram til ársins 2006 að það fór að skríða hægt upp undir helming en sú þróun stöðvaðist í raun og veru fyrir ári. Munurinn á ágústtölum Samtaka iðnaðarins nú (48,8%) og ágústtölunum frá 2007 (47,9%) er innan skekkjumarka. Almenningur á að hlýða! ESB-sinnar eiga ekki langt að sækja það að vera ónákvæmir á reiknivélum þegar kemur að skoð- unum almennings. Hjá sjálfu Bruss- elvaldinu hefur aldrei tíðkast að far- ið sé eftir skoðunum almennings – það er almenningur sem á að fara eftir skoðunum valdsins. Kosningar eru til að staðfesta þegar markaða stefnu og ef almenningur hafnar því sem fyrir hann er lagt er það vegna þess að sami almenningur hefur ekki skilið kosningarnar. Þessu er nú haldið fram um Lissabonkosningar Íra. Frakkar höfðu hafnað sömu til- lögum í þjóðaratkvæðagreiðslu með mjög afgerandi hætti og sama gerðu Hollendingar. Í stað þess að farið væri að vilja almennings var nafni á hinni nýju stjórnarskrá breytt og hún kölluð Lissabonsamningur. Síðan sjá þjóðþingin um að keyra það í gegn sem almenningur hafði hafnað. Andstaða almennings við Evrópusamrunann innan ESB- landanna er orðin áþreifanleg og feigðarmerki sambandsins flestum augljós. Höfundur er alþingismaður. Reikniskekkjur skjálfhentra ESB-sinna VIÐHORF aBjarni Harðarson Andstaða al- mennings við Evrópusam- runann innan ESB-land- anna er orðin áþreifanleg og feigðarmerki sam- bandsins flestum augljós. Borgarveisla í haust & vetur Fullt af frábærum sértilboðum! www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Allt verð er netverð á mann. Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is Barcelona Frá kr. 24.900 Flugsæti báðar leiðir m. sköttum Prag Frá kr. 24.900 Flugsæti báðar leiðir m. sköttum Búdapest Frá kr. 59.990 Flug og gisting Brottför 23. okt., m.v. gistingu í tvíbýli á Mercure Duna í 3 nætur. Kraká Frá kr. 24.900 Flugsæti báðar leiðir m. sköttum Róm Frá kr.19.900 Flugsæti aðra leið m. sköttum, 7. eða 10. okt. Montreal Frá kr. 29.990 Flugsæti báðar leið m. sköttum, 2 fyrir 1, 26. sept. Gisting frá kr. 4.900 Netverð á mann á nótt, m.v. gistingu í tvíbýli á Travelodge Montreal með morgunverði. Gisting á Best Western Ville Marie kr. 5.900 á mann á nótt. E N N E M M / S IA • N M 3 53 95 Fjárlagagerð er vandasamt verkefni þetta árið vegna óvissu um tekjur og þrengingar í efna- hagslífi. Kröfur á fjárlaganefnd Alþingis eru mótsagnakenndar, því krafist er aðhalds- sparnaðarfjárlaga á sama tíma og ríkið er hvatt til framkvæmda svo að hjól atvinnulífsins stöðvist ekki. Það er ekki öfundsvert að hnoða þessu saman þegar ríkisstjórnin veit ekkert hvað hún vill hafa í fjárlögum. Það á bæði að spara og auka útgjöld, þetta er enn eitt dæmið um hvað rík- isstjórnin er ráðvillt. Jakob Kristinsson http://jakobk.blog.is/blog/jakobk/entry/646721/ BLOGGAÐ UM ÞYNGRI RÓÐUR Í RÍKISREKSTRI Fjárlög 24stundir 19. september Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur beva@24stundir.is Fjárlagagerð er vandasamt verkefni þetta árið vegna óvissu um tekjur og þrenginga í efnahagslífi. Kröfur á fjárlaganefnd Alþingis eru mót- sagnakenndar, því krafist er að- halds- sparnaðarfjárlaga á sama tíma og ríkið er hvatt til fram- kvæmda svo að hjól atvinnulífsins stöðvist ekki. Sjálfvirkar hækkanir víða „Auðvitað munu breytingar á tekjum og ýmsar sjálfvirkar hækk- anir auka umfangið og gera verk- efnið yfirgripsmeira en það var í fyrra. Rýna þarf í tölurnar mjög ná- kvæmlega, vegna óvissu,“ segir Gunnar Svavarsson, formaður fjár- laganefndar sem fundar nú dagana langa, já l ð k á á að fjárlögin hafi ekki gert ráð fyrir honum.“ Svipaður halli fyrri hluta árs Þyngri róður í ríkisrekstri  119 ríkisstofnanir fóru meira en 4% fram úr fjárheimildum fyrri hluta árs  Forstöðumenn segja laun hærri og tekjur lægri Fjárlaganefnd Margar hugmyndir um verkefni koma á hennar borð.  100 milljarða króna afgangur FJÁRLAGAVINNAN Þessari tilraun með þennan (ó)frjálslynda flokk fer nú brátt að verða lokið, enda eins máls flokkur sem hefur ekki tekist að finna sinn hugmyndafræðilega grunn, hann er að minnsta kosti ekki frjálslyndur. Flokkurinn reyndi að skipta „eina málinu sínu“ úr kvótakerfi í neikvæðni gagnvart út- lendingum en það tókst ekki því Íslendingar eru ekki þannig þenkjandi. Guðjón Arnar er svo sem ágætur og öfgalaus en hann er líka það eina í flokknum sem er skynsamt. Þegar hann hættir eða er bolað frá þá er ekkert eftir, enda voru það hans atkvæði á Vest- fjörðum sem drógu hina inn á þing og þeir eiga allt undir Guðjóni Arnari. Það eru í raun einungis 3 stjórnmálaöfl á Íslandi sem eru stjórntæk. Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Framsóknarflokkurinn. Vinstri grænir eru ekki bara óstjórntækir hér á landi heldur í flestum öðrum þjóðþing- um sem hafa slíkan flokk innanborðs. Sterkur Framsóknarflokkur er þjóðinni til heilla, það vita flestir sem hafa kynnt sér söguna og þá skynsamlegu stefnu sem hann rekur fyrir land og þjóð. Ritstj. Alfreðs, Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík http://fufalfred.blog.is/blog/fufalfred/ BLOGGAÐ UM NÝTT AFL MEÐAL FRJÁLSLYNDRA 3 stjórntæk öfl á Íslandi 24stundir 19. september inga sem fari utan í atvinnuleit fari til Norðurlandanna og flestir til Danmerkur. „Langflestir sem koma hingað koma jafnframt frá Dan- mörku og eru íslenskir námsmenn eða fyrrverandi námsmenn, stærsti hlutinn. Með því að ganga í svo- kallaðan A-kassa á síðasta náms- árinu geta þeir fengið lágmarksbæt- ur að loknu náminu í Danmörku og þetta hafa Íslendingar notfært greiddar danskar bætur í allt að 3 mánuði eftir að þeir koma heim.“ Fleiri út þegar vinna er lítil Að sögn Jóngeirs virðist sem fjöldi útgefinna vottorða hér hald- ist í hendur við umfang atvinnu- leysis. „Við höfum ekki borið þetta nákvæmlega saman en það má sjá að árið 1995 fóru 263 út en þá var atvinnuleysi verulega mikið.  Til að halda bótum sínum í at-vinnuleit í öðru EES-landi þarf að sækja um svokallað E-303 vottorð hjá Vinnumálastofn- un.  Fylgja þarf reglum um at-vinnuleysisskráningu í því landi sem dvalist er í. „Þetta kemur mér ekkert á óvart. Ég var að reyna að segja þetta, “ segir Margrét Sverrisdóttir sem gekk úr Frjálslynda flokknum eftir varaformannsslag við Magnús Þór Hafsteinsson fyrir tveimur árum. Þá sagði Margrét að Nýtt afl væri að reyna að leggja undir sig Frjáls- lynda flokksins og það telur hún nú vera að rætast. Margrét telur skiln- ing Kristins H. Gunnarssonar þingflokksformanns sem mið- stjórnin vill víkja alveg hárréttan. „Ég skil bara ekki hvernig Guð- jón Arnar bregst við þegar fram kemur tillaga á miðstjórnarfundi sem er ótæk. Sigurjón Þórðarson, sem íhugar formannsframboð í Frjálslynda flokknum telur Kristin fara með rugl og ósannindi. Sjálfur segist Sigurjón vilja frið og hann neitar því að hann sé í bandalagi við Jón Magnússon og Magnús Þór um að koma formanninum frá. Kristinn hafi komið sér þannig í flokknum að hann óttist allar breytingar. Sigurjón vill frekar sjá Jón Magnússon í sæti þingflokks- formans. „Kristinn hangir í Guð- jóni Arnari eins og bjarghring.“ beva@24stundir.is Margrét telur sínar spár hafa ræst Nýtt afl meðal Frjálslynda Guðjón Arnar Frjálslyndir Í ólgusjó. www.ellingsen.is TB W A\ RE YK JA V ÍK \ SÍ A Ullarnærfatnaður frá Devold í miklu úrvali. Gæðavörur á góðu verði.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.