24 stundir - 20.09.2008, Page 14

24 stundir - 20.09.2008, Page 14
14 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir Síðustu daga hefur staðið yfir samgönguvika í Reykjavík að frumkvæði Reykjavíkurborgar og var fimmtudagurinn til að mynda helgaður Strætó og strætisvagna- samgöngum og á föstudeginum vígði borgarstjóri og samgöngu- ráðherra nýja forgangsakrein fyrir strætó, rauða dregilinn. Ennfremur er vert að minnast á að einnig var haldin einkar athyglisverð og fram- sýn ráðstefna – Driving Sustainabi- lity – um alþjóðlegan vettvang fyrir orkulausnir í samgöngum. Báðir þessir atburðir hafa verið okkur hjá Strætó bs. hvatning til að skoða vandlega hvort og með hvaða hætti Strætó bs. geti stigið stór skref fram á við á sviði umhverfismála með því að draga stórlega úr losun gróð- urhúsalofttegunda frá vagnaflota fyrirtækisins. Í ársbyrjun lögðum við fram raunhæfar áætlanir um endurnýjun strætisvagnaflotans þannig að innan fárra ára væru ein- göngu í þjónustu Strætó bs. vagnar sem nota innlenda og vistvæna orkugjafa. Mörg fyrirtæki og stofn- anir hafa markað sér stefnu á þessu sviði og unnið sambærilegar áætl- anir en framkvæmd þeirra er van- máttug og fáa bíla er að finna á göt- um borgarinnar sem knúnir eru vistvænum orkugjöfum. Nú er rétti tíminn Íslendingar hafa ákveðið forskot á sviði vistvænna orkugjafa en margar þjóðir munu sigla fram úr okkur í þeim efnum á allra næstu árum ef við leggjum ekki meiri áherslu á þennan málaflokk. Því er mikilvægt að bæði ríki og sveitar- félög leggist á eitt við að gera okkur óháð erlendum orkugjöfum og framkvæmi metnaðarfulla áætlun um fullt orkusjálfstæði. Sú athygli og forysta sem við myndum ná hefði í för með sér margvíslegan ávinning, umhverfislegan sem efnahagslegan. Það er ekki auðvelt að vera brautryðjandi á þessu sviði, enda getur það verið bæði kostn- aðarsamt og flókið að setja af stað slík verkefni. Engu að síður teljum við hjá Strætó bs. að nú sé lag til að hefja metnaðarfullar aðgerðir sem miða að því að innan nokkurra ára muni stór hluti strætisvagna á höf- uðborgarsvæðinu verða knúinn öðrum orkugjöfum en olíu. Áætl- anir Strætó bs. hafa hlotið góðar undirtektir eigenda okkar og ann- arra hagsmunaaðila enda er stað- reyndin sú að hinir nýju orkugjafar eru framleiddir af fyrirtækjum sem eru að mestu leyti í eigu sömu aðila er standa að rekstri Strætó bs., þ.e. sveitarfélaganna. Þannig myndu þeir sem framleiða og selja orkuna kaupa eigin framleiðslu. Samstaða nauðsynleg Við hvetjum forsvarsmenn sveit- arfélaganna á höfuðborgarsvæðinu til að sýna samstöðu og ná sam- komulagi við samgöngu-, um- hverfis- og fjármálaráðuneyti undir forystu borgarstjóra Reykjavíkur og forsætisráðherra um að móta og framkvæma metnaðarfulla áætlun um orkusjálfstæði. Einstaka stjórn- málamenn hafa tjáð sig í þessa veru. Má þar nefna Össur Skarp- héðinsson iðnaðarráðherra sem léði máls á þessari þróun í grein í Fréttablaðinu 7. september sl. þar sem hann sagði að í iðnaðarráðu- neytinu væri búið að skilgreina orkuskipti bílaflotans ásamt inn- lendri framleiðslu á eldsneyti sem eitt af meginmarkmiðum ráðu- neytisins næsta áratuginn. Enn- fremur Þórunni Sveinbjarnardótt- ur umhverfisráðherra sem lýsti þeirri skoðun sinni að til greina kæmi að ríkið styddi betur við strætósamgöngur með ýmsum hætti í Fréttablaðinu þann 13. sept- ember sl. Að okkar mati má tengja þær aðgerðir við verkefni af þess- um toga með því að stuðla að skjótri endurnýjun vagnaflotans yf- ir í vistvæn ökutæki með því að veita sveitarfélögunum skattaíviln- anir við kaup og rekstur slíkra öku- tækja. En eins og allar háleitar hug- myndir krefst verkefni á borð við þetta þess að allir hlutaðeigandi séu tilbúnir til að takast á við það, færa ákveðnar fórnir í upphafi og fjár- festa í margvíslegum innviðum sem slík verkefni kalla á. Sem dæmi má nefna að ef við kysum að notast við innlent metangas eða vetni þyrfti að bæta afgreiðslugetu slíkra orkugjafa fyrir stórnotendur. Enn- fremur koma upp rafhleðslukerfi á helstu akstursleiðum ef við kjósum að knýja vagna okkar með raf- magni. Jafnframt þarf að kanna ýmis atriði er snúa að gæðum slíkr- ar þjónustu sem myndu hvetja til notkunar á henni. Þetta eru þó fyrst og fremst tæknileg úrlausn- arefni sem hægt er að leysa með góðum vilja. Tækifærin eru fyrir hendi. Nú ríður á að standa við stóru orðin og taka fyrstu alvöru skrefin í átt að orkusjálfstæði Ís- lands. Þar getur Strætó verið í framvarðasveit sjálfstæðisbarátt- unnar. Höfundur er framkvæmdastjóri Strætó bs. Strætó í framvarðasveit UMRÆÐAN aReynir Jónsson En eins og allar háleitar hugmyndir krefst verk- efni á borð við þetta þess að allir hlutaðeigandi séu til- búnir til að takast á við það, færa ákveðnar fórnir í upphafi og fjárfesta í margvíslegum innviðum sem slík verkefni kalla á. Strætó Íslendingar hafa ákveðið forskot á sviði vistvænna orkugjafa. Frá lokum síðustu þingkosninga og fram á þennan dag hef ég sann- færst meir og meir um að ákveðinn hópur fólks vinnur að því að yf- irtaka Frjálslynda flokkinn og not- ar ákaflega ógeðfelld meðöl til þess. Vinnuaðferðin er á þann veg að grafa fyrst leynt og svo núna ljóst undan því fólki sem er í forystu fyrir flokkinn. Sérstaklega hefur þingflokksformaðurinn, Kristinn H. Gunnarsson, fengið það óþveg- ið. En mörgum er það ljóst núna að þær ómaklegu árásir á Kristin sem byrjuðu á fyrsta miðstjórnar- fundi eftir alþingiskosningar voru í raun árásir á Guðjón Arnar Krist- jánsson. Þessi hópur fólks hefur verið ákaflega hávaðasamur og yf- irgangssamur á öllum miðstjórnar- fundum sem undirritaður hefur verið viðstaddur. Árásir en ekki pólitík Margir félagar okkar sem ekki tilheyra þessum hópi eru sammála um að frá því að þetta lið „gekk til liðs“ við Frjálslynda flokkinn er varla hægt að segja að miðstjórn- arfundir hafi snúist um pólitík. Þeir hafa fremur snúist um árásir á persónu Kristins H. Gunnarssonar og kröfu þessa fólks um hlutdeild í völdum og fjárráðum flokksins. Þegar aðrir gera athugasemdir við málflutning þessa hóps eða athuga- semdir við það að hugsanlega sé ekki verið að fara eftir réttum fundarsköpum á miðstjórnarfund- um þá eru þeir hinir sömu á móti lýðræðinu. Með froðusnakki og kverúlantaskap er reynt að fæla fólk frá starfi í flokknum. Ég hef til dæmis oftar en einu sinni heyrt miðstjórnarfulltrúa utan af landi lýsa því að þeir hafi fengið áfall eft- ir miðstjórnarfund. Þetta fólk er yfirleitt gamalgróið í flokknum og hefur samanburð á því þegar mið- stjórnarfundir voru fundir þar sem samheldni ríkti og mál voru rædd af yfirvegun og skynsemi. Er nema von að fólk spyrji sig að því hvort það hafi nennu til að standa í þess- ari vitleysu. Ráða sínum ráðum Nú eru miðstjórnarfundir not- aðir, af þessum hópi, til þess að ráðast á ákveðna einstaklinga í for- ystu flokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson, Kristin H. Gunnars- son, Kolbrúnu Stefánsdóttur og Magnús Reyni Guðmundsson, framkvæmdastjóra flokksins. Framkvæmdastjórann vildi hópur- inn láta reka og fá einn úr sínum hópi í starfið. Undirritaður hefur heldur ekki verið skilinn útundan og fengið sinn skammt fyrir það eitt að taka að sér heimasíðu flokksins. Glæpurinn er sá að þetta fólk vildi fá einhvern úr sínum hópi til þess að stjórna heimasíð- unni. Það hefur vakið athygli mína að þó þessi hópur sé í sérstöku vin- fengi við einn ákveðinn alþingis- mann flokksins sem sækir mið- stjórnarfundina, þá heldur þingmaðurinn sig alltaf til hlés eins og draugur í rykfrakka og fylgist með. Út á við þykist hann svo ekk- ert vita. Þó hef ég áreiðanlegar fréttir af því að hópurinn hittist oft á veitingastað eftir miðstjórnar- fundi, og þess á milli, til þess að ráða ráðum sínum. Eftir síðasta mistjórnarfund var einni ágætri konu úr hópnum falið að koma síðustu atburðum í fjölmiðla. Ekki er hægt að segja annað en að hún hafi unnið sitt verk. Stöndum saman Ágætu flokksfélagar! Nú þurfum við að standa saman. Þegar ég lít yfir farinn veg styrkist ég í þeirri skoðun að lævíslega sé verið að reyna að yfirtaka Frjálslynda flokk- inn. Eftir síðasta miðstjórnarfund er mér nóg boðið. Héðan í frá áskil ég mér allan rétt til þess að koma mínum sjónarmiðum á framfæri þegar mér finnst augljóst að halli á sannleikann í málflutningi þessa hóps sem rær nú öllum árum að því að grafa undan stöðu núver- andi forystu Frjálslynda flokksins. Ég skora á flokksfólk að standa með núverandi formanni, Guðjóni Arnar Kristjánssyni. Ég get ekki stillt mig um að bæta við að lokum: Lítur nú sennilega margur maðurinn skömmustulega í gaupnir sér er hann minnist orða Margrétar Sverrisdóttur sem hann trúði ekki. Höfundur er varamaður í miðstjórn og formaður Frjálslynda flokksins í Kópavogi Yfirtaka á Frjálslynda flokknum? UMRÆÐAN aHelgi Helgason Þegar ég lít yfir farinn veg styrkist ég í þeirri skoðun að lævíslega sé verið að reyna að yfirtaka Frjáls- lynda flokkinn. Frjálslyndi flokkurinn Á að yfirtaka flokkinn? Að setjast að í nýju landi er bæði gefandi og erfitt. Hindranir og tækifæri haldast hönd í hönd en flestir landnemar eiga það sameig- inlegt að þykja aðgengi að upplýs- ingum oft á tíðum ekki nógu gott. Greinarhöfundar sitja í ráðgjafa- hópi Norræna menningarsjóðsins, Nordisk Kultur Fond, en honum er ætlað að finna leiðir til að fjölga innflytjendum í hópi umsækjenda um menningartengd verkefni. Sagan hefur sýnt að fáir innflytj- endur sækja um styrki til Norræna menningarsjóðsins. Ástæður þess geta verið margar og margvíslegar. Lítil þekking á tilvist sjóðsins al- mennt, lítil þekking á hefð nor- rænnar samvinnu og skortur á tengslaneti. Úr þessu vill stjórn sjóðsins bæta og nú þegar hefur ráðgjafahópurinn fundað tvisvar og margt er á döfinni til að ná at- hygli nýrra Norðurlandabúa. Umsóknir frá öllu listafólki En hvað styrkir Norræni menn- ingarsjóðurinn? Markmið sjóðsins er að styðja við samnorræn menn- ingarverkefni og styrkja samband norrænna þjóða í gegnum menn- ingu og listir. Verkefni sem sjóð- urinn styrkir geta bæði farið fram innan Norðurlandanna og utan þeirra. Sjóðurinn fagnar umsókn- um frá öllu listafólki, bæði at- vinnufólki og áhugafólki. Verkefni sem sjóðurinn hefur styrkt hafa verið valin út frá gæðum, aðgengi- leika og fjölbreytni og verkefnin hafa verið jafnt hefðbundin og ný- stárleg. Sjóðurinn hefur líka styrkt ráðstefnur, tónleika, sýningar, há- tíðir, nám og rannsóknir. Fleiri upplýsingar er að finna á: www.nordiskkulturfond.org. Á Íslandi eru fjölmargir listrænir landnemar sem við viljum ná til og kynna fyrir þeim þann öfluga sjóð sem Norðurlöndin hafa byggt upp í þágu menningar og lista. Næst- komandi mánudag, 22. september, verður opinn kynningarfundur klukkan 20 fyrir innflytjendur í Al- þjóðahúsinu þar sem Norræni menningarsjóðurinn, Reykjavíkur- borg, Norræna húsið og mennta- málaráðuneytið kynna styrki sína. Ertu með góða hugmynd að menn- ingartengdu verkefni? Vertu vel- komin/nn! Höfundar sitja í ráðgjafahópi Norræna Menningarsjóðsins fyrir Íslands hönd The Nordic Culture Fund has an open meeting for foreigners living in Iceland to learn more about its grants and application process. The meeting is organized in cooperation with The Nordic House, the Inter- cultural Centre, Reykjavik’s Depart- ment of Culture and Tourism and the Ministry of Education and Cult- ure. The object of the meeting is to explain ways to apply for public grants. The meeting will be in Engl- ish and Icelandic. The meeting will take place in Alþjóðahús at Lauga- vegur 37 on Monday the 22nd of September at 8 pm. Styrkir til menningarmála Grants for Cultural Projects UMRÆÐAN aEinar SkúlasonOddný Sturludóttir Markmið sjóðsins er að styðja við samnorræn menningar- verkefni og styrkja sam- band nor- rænna þjóða í gegnum menningu og listir.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.