24 stundir - 20.09.2008, Page 19
24stundir LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 19
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Óhætt er að fullyrða að bæði Dóra
María Lárusdóttir og Guðrún Sóley
Gunnarsdóttir séu glæsilegar fyrir-
myndir í íslenska kvennaboltanum.
Báðar hafa sannað sig svo um mun-
ar bæði með félagsliðum sínum og
ekki síður með landsliðinu sem
hefur staðið sig stórkostlega und-
anfarin misseri.
Þó að vinátta ríki milli þeirra
dagsdaglega er víst að hvorug mun
vanda kveðjurnar mikið í dag þegar
félagslið þeirra, Valur og KR, mæt-
ast í úrslitum Visa-bikarkeppninn-
ar en þessi tvö félög eru í algjörum
sérflokki í kvennaboltanum.
Uppgjör óumflýjanlegt
Með tilliti til þess að Dóra María
er sóknarmaður en Guðrún Sóley
varnarmaður er uppgjör milli
þeirra í leiknum óumflýjanlegt.
Sjálfar eru þær þó lítið fyrir skot
þess vegna.
Guðrún: „Það er ekki ólíklegt að
ég þurfi að passa upp á Dóru í
leiknum og koma í veg fyrir að hún
ógni okkur mikið enda skeinuhætt
en ég er hundrað prósent tilbúin í
það verkefni. Við misstum af Ís-
landsmeistaratitlinum en ætlum
okkur að tryggja okkur bikarmeist-
aratitilinn í staðinn. Leikur endar
3:1 fyrir okkur.“
Þessu mati Guðrúnar er Dóra
María eðlilega ekki alveg samþykk
en spáir sínu liði engum stórsigri
þó.
Dóra: „Ég giska á 1:0 fyrir okkur.
Það yrðu góð úrslit enda alltof langt
síðan við unnum þennan bikar síð-
ast.“
Munurinn
Valsliðið hefur orðið Íslands-
meistari þrjú ár í röð en KR fylgt
þeim eftir eins og skugginn að
mestu þann tíma. En hver er mun-
urinn á þessum tveimur liðum?
Dóra: „Mér finnst munurinn
persónulega ekki mikill. Þau skipti
sem þessi lið mætast er sjaldnast
mikill munur á þeim og kannski
bara dagsformið hverju sinni sem
ræður því hvort félagið sigrar þann
daginn. En þær eru ekkert með lak-
ari mannskap finnst mér.“
Þessu jánkar Guðrún og tekur
undir að erfitt sé að setja einn fing-
ur nákvæmlega á hvað geri félögin
tvö frábrugðin.
Söknuður
Breytingar eru í nánd hjá báðum
félögum. Helena Ólafsdóttir er að
hætta sem þjálfari KR eftir gott starf
og íþróttamaður ársins, Margrét
Lára Viðarsdóttir hjá Val, hyggst
reyna fyrir sér erlendis á næstu leik-
tíð.
Guðrún: „Það verður missir að
Helenu enda hefur hún verið hjá
okkur lengi og er ein af hópnum.
Hvað gerist í framhaldinu verður
bara að koma í ljós en hún hefur
staðið sig vel sem þjálfari að mínu
viti.“
Dóra: „Margrét ætlar að fara og
mér finnst það frábært og nauðsyn-
legt skref hjá henni. Auðvitað
sjáum við eftir henni, annað er ekki
hægt, en við munum áfram pluma
okkur í boltanum tel ég örugglega
því bæði kemur maður í manns
stað og liðið er með góða breidd þó
að auðvitað fari enginn auðveldlega
í hennar skó.“
Kvennadeildin í sumar
Mörgum áhugamönnunum um
kvennafótbolta verður tíðrætt um
deildina sem ár eftir ár virðist lítið
breytast. Valur og KR og mögulega
eitt annað lið berjast á toppnum
hálfpartinn eins og í lokuðum
klúbbi þar sem önnur félög fá ekki
félagsaðild svo auðveldlega.
Guðrún: „Vissulega er leiðigjarnt
þetta mikla bil sem virðist alltaf
vera fyrir hendi í deildinni. Mér
finnst engu að síður hlutnirnir hafa
breyst aðeins til batnaðar. Fyrripart
þessa sumars var hending að sjá
einhverja stórsigra en það reyndar
breyttist þegar líða fór á sumarið.
Það er engin töfralausn til í þessu
en ég held að það sé góð þróun fyrir
smærri félögin að reyna að laða til
sín hæfa erlenda leikmenn.“
Dóra: „Það kemur fyrir að það
dofnar yfir hópnum þegar staðan er
4:0 eða 5:0 í hálfleik og það er engin
kjörstaða. Spennandi leikir eru allt-
af skemmtilegastir, ekki bara fyrir
okkur heldur áhorfendur líka.
Stöku félög hafa sýnt ágæta hluti og
ég vona að sú þróun haldi áfram.“
Þær eru samherjar í landsliðinu og þeim kemur vel saman í daglegu lífi
Vinahótin fara þó fyrir lítið í dag þegar þær Guðrún Sóley Gunnarsdóttir og
Dóra María Lárusdóttir mætast í úrslitaleik Visa-bikars kvenna
Blaðamaður átti jafnvel
von á kýlingum, spörkum
og látum þegar ákveðið
var að leiða saman í spjall
einn besta varnarmann-
inn og eina mestu marka-
maskínuna í kvennabolt-
anum hérlendis en þær
mæta hvor annarri í dag
þegar úrslitaleikurinn í
Visa-bikarkeppni kvenna
fer fram á Laugardals-
velli. Lítið fór hins vegar
fyrir látunum enda ágæt-
ar vinkonur utan vallar.
Dóra María Lárusdóttir
➤ Leikurinn hefst á Laugardals-vellinum klukkan fjögur í
dag.
➤ KR er núverandi bikarmeist-ari en þann titil hafa þær unn-
ið þrívegis.
➤ Valur á hins vegar heldur bet-ur metið þegar kemur að
fjölda bikarmeistaratitla. Þær
hafa unnið hann tíu sinnum.
LEIKURINN
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
Verðum ekki
vinkonur í dag
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Það er ekkert ólíklegt að ég þurfi að
passa upp á Dóru í leiknum og koma í
veg fyrir að hún ógni mikið enda skeinuhætt.
Ég er hundrað prósent tilbúin í það verkefni.
ÚR MÍNUS
Í PLÚS
ÞÚ ÁTT NÓG AF PENINGUM TIL AÐ:
...Greiða hratt niður skuldir
...Byggja upp sparnað og eignir
...Hafa gaman af að eyða peningum
EFTIRFARANDI NÁMSKEIÐ
VERÐA Í BOÐI Í HAUST
FJÁRHAGSKERFI HEIMILISINS
Akureyri 30. sept.
Reykjanesbær 7. okt.
Reykjavík 13. okt.
Egilsstaðir 21. okt.
Reykjavík 3. nóv.
Selfoss 11. nóv.
Borgarnes 3. nóv.
Nýtt tölvukerfi verður kynnt á
námskeiðinu sem sameinar
bókhalds- og uppgreiðslukerfi
spara.is og ýmsar reiknivélar
sem finna hagstæðasta lánið og
besta sparnaðinn. Þetta er
fjárhagskerfi fyrir þá sem vilja
ná árangri í fjármálum og hafa
gaman af peningunum sínum.
Námskeið byrja kl 18:15 og eru til 22:15