24 stundir - 20.09.2008, Side 21

24 stundir - 20.09.2008, Side 21
24stundir LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 21 Þegar Northern Travel Holding keypti Sterling á 20 milljarða króna milli jóla og nýárs árið 2006 voru sex milljarðar króna greiddir með reiðufé. Afgangurinn var í formi þess sem þá var kallað í til- kynningum seljendalán til þriggja ára. Í síðustu tilkynningu Stoða vegna málsins er lánið hins vegar kallað hluthafalán. Í sömu til- kynningu segir að lánið hafi verið gert upp, en forstöðumaður sam- skiptasviðs Stoða, Júlíus Þorfinns- son, vildi ekki gefa upp hversu mikið fékkst greitt til baka af lán- inu. Stoðir/FL Group færðu niður verðmæti eignarhlutarins í NTH í lok annars ársfjórðungs og end- urmat virði lánsins. Ekki hefur heldur fengist uppgefið hvert end- urmatið á láninu var. Síðustu skráðu upplýsingar um ætlað virði láns og hlutar er að finna í ársupp- gjöri FL Group þar sem kemur fram að virði þriðjungshlutarins og lánsins sé 15,3 milljarðar króna. Sund fékk ekki lánað Börsen ræddi síðan við Pál Magnússon, framkvæmdastjóra Sunds, í frétt sem birtist 7. maí síð- astliðinn. Þar segir að Sund hafi fjárfest í NTH fyrir um 300 millj- ónir danskra króna í árslok 2006, eða vel á fjórða milljarð króna að þávirði. Hluturinn, sem var 22 pró- sent, var síðan seldur NTH síðla árs 2007. Haft er eftir Páli í Börsen að Sund hafi grætt á hlutnum en hann vill ekki segja hversu mikið. Páll sagði ennfremur að Sund hefði ekki fengið lán frá FL Group þegar félagið keypti sig inn í NTH heldur greitt með eigin peningum. Seljendalánið sem FL Group veitti var því ekki til Sunds heldur ann- ars tveggja hinna eigendanna, FL Group sjálfs eða Fons. Seljendalán FL Group til Northern Travel Sund fékk ekki lánað Hannes Smárason var forstjóri FL Group þegar seljendalánið var veitt. Northern Travel Holding (NTH) var stofnað síðla árs 2006. Félagið er til húsa hjá Iceland Ex- press. Þrátt fyrir að vera móður- félag nokkurra flugfélaga/ ferðaskrifstofa og hafa yfirtekið rekstrarlán og ábyrgðir var ekki ráðinn starfsmaður til félagsins fyrr en í lok september 2007, þegar Þorsteinn Örn Hilmarsson var ráðinn forstjóri þess. Eigendur fé- lagsins í upphafi voru Fons (43 prósent), FL Group (35 prósent) og Sund (22 prósent). Eignir fé- lagsins eru flugfélögin Iceland Ex- press (allt hlutafé), Sterling Air (allt hlutafé), Astraeus (allt hlutafé) og ferðaskrifstofurnar Tic- ket Travel Group og Hekla Travel. Ticket Travel Group Fons keypti hlut í hinu sænska Ticket í upphafi árs 2006. Ticket var á þeim tíma afar skuldsett félag og afkoma þess hafði verið slök. Í síð- asta mánuði var tilkynnt um að Fons hefði keypt tæp 30 prósent í Ticket af NTH á 700 til 800 millj- ónir íslenskra króna. Ticket er eina félagið í NTH- samsteypunni sem er skráð félag og upplýsingar um það því aðgengileg- ar. Samkvæmt heimasíðu félagsins átti NTH ekki hlut í Ticket í lok júlí 2008. Landsbanki Íslands hf. og Kaupþing Lúxemborg voru hins vegar skráðir eigendur um þriðj- ungs hlutafjár í félaginu. Í upphafi árs 2006 þegar Fons keypti í félag- inu var gengi þess um 18,5 sænskar krónur á hlut. Það hélst nokkuð stöðugt næstu ár og var 16,7 í byrj- un árs 2008. Gengi félagsins hefur hins vegar hríðfallið það sem af er ári og var 7,2 í gær. Félagið hefur þó skilað rekstr- arhagnaði á síðustu árum. Árið 2007 var til að mynda besta ár í sögu félagsins og þá skilaði það 37,7 milljónum sænskra króna í hagnað, eða rúmum hálfum milljarði króna. Töluverður samdráttur varð á fyrri hluta ársins 2008 en Ticket skilaði þó hagnaði upp á 1,9 millj- ónir sænskra króna, eða um 26 milljónum íslenskra króna. Iceland Express Félagið var stofnað árið 2002 og fyrsta flug á vegum þess var farið í lok febrúar 2003. Þá flaug félagið til London og Kaupmannahafnar. Eigendur Fons keyptu félagið árið 2004 af stofnendum þess á fimm- tán milljónir króna eftir að stofn- endurnir höfðu verið í miklum rekstrarerfiðleikum. Umsvif fé- lagins hafa vaxið jafnt og þétt og sumarið 2008 voru áfangastaðir þess fjórtán talsins, allir í Evrópu. Iceland Express leigir þær vélar sem félagið er með í rekstri. Sterling Air Félagið var stofnað 1962 og var þá í leiguflugi. Félagið varð gjald- þrota árið 1993 en var endurreist ári síðar. Þá var fraktflugi bætt við reksturinn. Stjórnendur félagsins keyptu síðan Sterling árið 1995 og ári síðar keypti dótturfélag norska fyrirtækisins Fred Olsen 90 pró- sent hlutafjár þess. Það félag átti orðið allt hlutafé Sterling þegar af- skipti Íslendinga af því hófust á vordögum 2005. Samkvæmt heimasíðu félagsins rekur Sterling alls 26 þotur. Astraeus Limited Astraeus er breskt flugfélag sem var stofnað árið 2002 af starfs- mönnum British World Airlines sem hafði lagt niður starfsemi í des- ember 2001, og Aber- deen Asset Manage- ment International Investment Group. 30. október 2006 keypti Fons 51 prósent í félaginu. Iceland Express hefur notað vélar frá Astra- eus-flotanum. Í október 2007 yf- irtók Fons allt hlutafé í félaginu. Fyrr á þessu ári breytti Aestreus viðskiptamódeli sínu og hætti áætl- unar- og leiguflugi og einbeitti sér að því að sjá öðrum flugfélögum fyrir vélum. Höfuðstöðvar félagsins eru á Gatwick-flugvelli í London. Samkvæmt upplýsingum frá flugmálayfirvöldum í Bretlandi á félagið í dag níu flugvélar, þar af tvær sem eru notaðar í flug Iceland Express. Hekla Travel Fons keypti dönsku ferðaskrif- stofuna Hekla Rejser á fyrri hluta ársins 2006. Kaupverðið var ekki gefið upp. Fyrirtækið er með höf- uðstöðvar í Kaupmannahöfn og einbeitir sér meðal annars að markaðssetningu ferða til Íslands, Írlands og Kýpurs. Northern Travel Holding Bankar áttu í Ticket 1. júlí 2005 samþykkti Fons að kaupa rekstur danska flugfélags- ins Maersk Air og sameina það Sterling. Í tilkynningu vegna kaupanna kom ekki fram hvert kaupverðið hafði verið en Almar Örn Hilmarsson, forstjóri Sterl- ing, sagði í fjölmiðlum að reiknað væri með hagnaði á rekstri hins sameinaða félags ári síðar. Þotur Maersk fylgdu ekki með í kaup- unum en samkomulag var gert um að Sterling myndi leigja þær af seljandanum, A.P. Möller Ma- ersk Group. Pálmi Haraldsson sagði við Morgunblaðið við þetta tækifæri að yfirtakan hefði verið fjármögnuð með eigin fé Fons. Verðmiðinn sagður ein króna Viku síðar sagði Viðskiptablað- ið frá því að heimildarmenn þess segðu Maersk hafa verið keypt á eina danska krónu. Pálmi hefur ætíð neitað því að hafa ekki greitt fyrir Maersk en hefur ekki viljað segja hversu mikið var greitt. Börsen bætti því við skömmu síðar að fráfarandi eigendur Ma- ersk Air yrðu að leggja um 3,5 milljarða íslenskra króna til fé- lagsins til að bæta eiginfjárstöð- una áður en Fons tæki við flug- félaginu. Í frétt Börsen kom fram að rekstur Maersk hefði kostað fyrri eigendur félagsins um 35 milljarða frá aldamótum og þeir því áfjáðir í að losna við rekst- urinn. FL Group vill sameinað félag Formlega var síðan gengið frá samruna Maersk Air og Sterling 13. september 2005. Daginn eftir birtu fjölmiðlar af því fregnir að FL Group, sem þá átti Icelandair, vildi kaupa Sterling. Nokkrum dögum síðar voru birtar afkomu- tölur Maersk fyrir árið 2005 og voru þær mun verri en tilkynnt hafði verið um í upphafi. Samkvæmt Morgunblaðinu höfðu spár gert ráð fyrir því að taprekstur fyrir árið 2005 í heild yrði tveir milljarðar króna, eða 200 milljónir danskar krónur. Samruni Maersk og Sterling Kaupverð ekki gefið upp

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.