24 stundir - 20.09.2008, Page 24

24 stundir - 20.09.2008, Page 24
24 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir RÝNIR frettir@24stundir.is a Því yngri sem menn eru þegar þeir kaupa kynlífsþjónustu í fyrsta sinn, þeim mun meiri hætta er á að þeir verði fastakúnnar þegar þeir verða eldri. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Rúmlega fimmti hver strákur á aldrinum 15 til 19 ára í Dan- mörku hefur hugleitt að fara til vændiskonu, að því er ný könnun á vegum danskra yfirvalda sýnir. „Þetta var eins og að hringja og panta pitsu,“ segir S¢ren Westh í viðtali við fréttavef metroXpress. Hann var 18 ára þegar hann pantaði tíma hjá lúxusmellu í fyrsta sinn. Nú er hann 24 ára og hefur keypt sér kynlífsþjónustu fimm til sex sinnum. Ekkert athugavert við kaupin S¢ren þykir ekkert athugavert við slík kaup og þeir eru fleiri sem eru sömu skoðunar, sam- kvæmt nýrri könnun á vegum ráðuneytis velferðarmála í Dan- mörku. Rétt rúmlega helmingi stráka sem þátt tóku í könnuninni þykir það vera í lagi að fara til vænd- iskonu en 19 prósent stelpna eru þeirrar skoðunar. Alls eru 37 pró- sent stráka og 10 prósent stelpna þeirrar skoðunar að í lagi sé að stelpur fái greitt fyrir eða þiggi gjafir fyrir munnmök. Herferð yfirvalda Ráðuneyti velferðarmála hefur nú hrundið af stað herferð gegn viðskiptum ungra manna við vændiskonur. „Það vekur athygli hversu margir íhuga að kaupa kynlífsþjónustu. Við ætlum að ná til þeirra á unga aldri. Því yngri sem menn eru þegar þeir kaupa kynlífsþjónustu í fyrsta sinn, þeim mun meiri hætta er á að þeir verði fastakúnnar þegar þeir verða eldri,“ segir ráðherrann Karen Jespersen. Segja bann árangursríkara Í herferðinni er bent á nið- urstöður margra rannsókna sem sýna að meirihluti vændiskvenna hefur í bernsku búið við ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi og annað harðræði. Þessar staðreyndir eiga að fá unga karla til þess að fletta framhjá síðum með kynlífsaug- lýsingum í dagblöðum. Jafnframt er bent á niðurstöður kannana sem sýna að 78 prósent stelpna geta ekki hugsað sér að vera með strák sem hefur farið til vænd- iskonu. Ýmsir sérfræðingar hafa dregið í efa áhrifamátt herferðarinnar og segja að stjórnmálamenn eigi að ná samkomulagi um bann við kaupum á kynlífsþjónustu. Gríðarleg fjölgun Erlendum vændiskonum í Kaupmannahöfn hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum árum, að því er tölur frá Hreiðrinu, at- hvarfi fyrir vændiskonur í Kaup- mannahöfn, sýna. Á fyrri helm- ingi þessa árs hafa verið skráðar í Hreiðrinu heimsóknir 3000 er- lendra kvenna en það eru 44 pró- sent allra heimsókna á tíma- bilinu, að því er greint er frá í dönskum fjölmiðlum. Árið 2006 voru erlendar konur 18 prósent þeirra sem leituðu til athvarfsins. Í meirihluta í fangelsum Erlendum konum í fangelsum hefur einnig fjölgað. Nær helm- ingur kvennanna sem sátu í upp- hafi þessa mánaðar í gæsluvarð- haldi í Vestra fangelsinu í Kaupmannahöfn, eða alls 13 konur, kom frá Austur-Evrópu, einkum Rúmeníu, Póllandi og Slóvakíu. Hinar konurnar voru frá Danmörku, Svíþjóð og Víet- nam. Yfirfangavörðurinn, Thomas Fredh¢j, segir í viðtali við Krist- eligt Dagblad að konum frá Aust- ur-Evrópu hafi fjölgað stöðugt í fangelsinu undanfarin fimm til sex ár og séu nú að staðaldri í meirihluta á kvennadeildinni. Stunda vændi á vöktum Fjöldi austurevrópskra kvenna í Vestra fangelsinu í Kaupmanna- höfn er talinn vera vegna skyndi- leitar lögreglu í vændishúsum eða vegna stuttra fangelsisdóma fyrir þjófnað. Þegar gæsluvarðhaldinu lýkur enda þær aftur á götunni. „Maður þarf ekki annað en að líta út um gluggann til að sjá að á undanförnum árum hefur vænd- iskonum frá Austur-Evrópu fjölgað mikið. Það er urmull af þeim, einkum frá Rúmeníu, og þær vinna á þrískiptum vöktum allan sólarhringinn. Á meðan landamærin eru opin og ekki eru lög í Danmörku gegn vændi mun þessi þróun halda áfram,“ segir Henrik Orye, yfirmaður þeirrar deildar lögreglunnar sem fylgist með vændi. Arðvænlegur markaður Doriz Otzen, forstöðukona Hreiðursins, er einnig þeirrar skoðunar að erlendum konum, sem selja kynlífsþjónustu, muni halda áfram að fjölga í Dan- mörku. Hún segir landið arð- vænlegan markað fyrir hór- mangara vegna laga um vændiskaup í Svíþjóð, í Finnlandi og í Noregi. Frá og með 1. októ- ber næstkomandi verður bannað að kaupa vændi í Noregi en slíkt bann hefur verið í gildi í Svíþjóð frá árinu 1999. Í Finnlandi hefur verið refsivert að kaupa vændi frá 2006. Ruslakista kynlífsþjónust- unnar „Þegar nágrannar okkar þrýsta með þessum hætti á þá sem standa á bak við vændið og við- skiptavinina er augljóst að þeir fara að líta í kringum sig eftir arðvænlegri markaði. Þess vegna er ástæða til að óttast að innan fárra ára verði Danmörk rusla- kista kynlífsþjónustunnar á Norðurlöndum,“ hefur Kristeligt Dagblad eftir forstöðukonunni. Hjá hinu opinbera, sem á hverju ári reynir að reikna út hversu margar konur stunda vændi og hvernig högum þeirra er háttað, er bent á að erlendar vændiskonur séu ekki bara úti á götum stórborga, heldur starfi þær einnig á nuddstofum um landið. Svelta sig fyrir kúnnana Rannsóknir danskra yfirvalda á vændiskonum sem komið hafa frá Taílandi til Kaupmannahafnar hafa leitt í ljós að þær svelta sig til þess að ganga í augun á þeim viðskiptavinum sem vilja litlar og grannar stúlkur. Margar kvennanna eru þess vegna van- nærðar. Þær borða bara einu sinni á sólarhring og taka megr- unarpillur og lyf til að halda sér grönnum, að því er greint var frá í Jyllands-Posten í fyrra. Þetta var eins og að panta pitsu  Meirihluta danskra stráka þykir í lagi að fara til vændiskonu  Gríðarleg fjölgun erlendra vændiskvenna í Danmörku ➤ Yfirvöld í Kaupmannahöfntelja að þar starfi rúmlega 2000 vændiskonur. ➤ Talið er að í allri Danmörkuséu vændiskonurnar að minnsta kosti 5.500 og að um helmingur þeirra sé erlendar vændiskonur. ➤ Víst þykir að margar erlenduvændiskvennanna séu fórn- arlömb mansals. ➤ Skiptar skoðanir eru meðalstjórnmálamanna um hvort banna skuli kaup á kynlífs- þjónustu. VÆNDI Í DANMÖRKU Vændiskonur Erlendar vændiskonur vinna á vöktum, að sögn dönsku lögreglunnar. a Það er urmull af þeim, einkum frá Rúmeníu, og þær vinna á þrískiptum vöktum allan sólarhringinn. Ungar rúmenskar stúlkur, sem seldar hafa verið til kynlífsþjón- ustu erlendis, eru farnar að snúa heim. Sumar þeirra, allt niður í 13 ára, hafa fengið skjól á end- urhæfingarheimilinu Reaching Out. Samkvæmt opinberum tölum voru 415 rúmenskar konur seldar til kynlífsþjónustu á síðasta ári. Forsvarsmenn athvarfa fyrir kon- ur, þaðan sem stúlkum sem hafa leitað skjóls er meira að segja rænt, segja raunverulegan fjölda kvenna sem seldar eru frá Rúm- eníu á hverju ári miklu meiri. Þeir segja jafnframt að fórnarlömbun- um hafi fjölgað eftir að Rúmenía gekk í Evrópusambandið 1. jan- úar 2007, að því er greint er frá á fréttavef Kristeligt Dagblad í Danmörku. Auðveld fórnarlömb Konurnar koma yfirleitt frá fá- tækum, sundruðum fjölskyldum þar sem ofbeldi er daglegt brauð. Skólaganga þeirra hefur verið stutt. Með þennan bakgrunn eru þær auðveld fórnarlömb þeirra sem bjóða þeim gull og græna skóga í útlöndum. Þeim eru til dæmis boðin störf sem þjónar eða herbergisþernur en fljótlega kemur í ljós að þær eiga hvorki að bera fram mat né búa um rúm. Þær eiga að borga farseðilinn til útlanda með kyn- lífsþjónustu. Geri þær ekki eins og hórmangararnir vilja eru þær beittar andlegu og líkamlegu of- beldi. Björgun úr óvæntri átt Björgunaraðgerðirnar geta komið úr óvæntri átt. Í sumum tilfellum frá viðskiptavini sem þær hafa trúað fyrir raunum sín- um. Þess vegna setur forstöðukona athvarfsins Reaching Out spurn- ingarmerki við ágæti þess að refsa viðskiptavinunum. Hættulegt að hjálpa „Það er hættulegt að hjálpa konu við að flýja. Þeir sem stunda mansal eru engin lömb að leika sér við. En þurfi viðskiptavinirnir jafnframt að óttast refsingar yf- irvalda munu fáir tilkynna um mansal eða reyna að hjálpa fórn- arlömbunum,“ segir Ianata Matais í viðtali við Kristeligt Dag- blad. Samkvæmt dönskum reglum er hægt að vísa erlendum vænd- iskonum strax úr landi. Velji þær að aðstoða yfirvöld við rannsókn á þeim sem smygluðu þeim inn í landið fá þær dvalarleyfi í 100 daga. Sumir stjórnmálamenn eru þeirrar skoðunar að þær eigi að fá dvalarleyfi til framtíðar í Dan- mörku. ingibjorg@24stundir.is Hundruð rúmenskra stúlkna árlega seld úr landi Fórnarlömbin frá 13 ára Bjargað Þessar stúlkur eru meðal þeirra sem hefur verið bjargað.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.