24 stundir - 20.09.2008, Side 27
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 27ATVINNAstundir
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is
Norðurál er eftirsóttur vinnustaður. Starfsmenn eru á fimmta hundrað talsins, verkefnin margvísleg og störfin fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfa
m.a. verkfræðingar, tæknifræðingar, viðskiptafræðingar, sálfræðingar, efnafræðingar, eðlisfræðingar, líffræðingar, tölvunarfræðingar, rafvirkjar,
vélvirkjar, vélstjórar & rafsuðumenn, auk ófaglærða starfsmanna sem öðlast dýrmæta sérhæfingu við störf sín og nám hjá fyrirtækinu.
Verksvið og ábyrgð
Umsjón með rekstrartengdum verkefnum
varðandi viðhald og endurbætur á vélbúnaði
og framleiðslukerfum álversins. Einnig
verkefnastjórnun stærri nýverkefna, gerð
framkvæmda- og fjárhagsáætlana auk
samskipta við verktaka og framleiðendur
búnaðar.
Hvaða kröfur gerum við?
Við leitum að vélaverkfræðingi með nokkurra
ára starfsreynslu, helst að viðkomandi hafi
starfað í iðnaðarumhverfi.
Aðrar hæfniskröfur:
l Metnaður
l Góð samskipta- og samstarfshæfni
l Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
l Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og
rituðu máli
Nánari upplýsingar veita Óskar Jónsson,
framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
og Rakel Heiðmarsdóttir framkvæmdastjóri
starfsmannasviðs í síma 430-1000.
Hvernig sækir þú um?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir
6. október n.k. Þú getur sótt um á vef fyrir-
tækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína
á netfangið umsokn@nordual.is eða póstlagt
umsóknina merkta: Vélaverkfræðingur.
Jafnrétti
Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla
og kvenna til starfa hjá Norðuráli.
Trúnaður
Við förum með umsókn þína sem
trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað.
Við óskum að ráða vélaverkfræðing til starfa hjá
Norðuráli á Grundartanga
Vélaverkfræðingur
Bílamálari óskast !
Bílasprautun Sævars óskar eftir
að ráða bílamálara.
Uppl í síma: 568 9620 eða 897 3041
Auglýsingasíminn er
510 3728 og 510 3726
Margir leita sér hjálpar ráðn-
ingarskrifstofa þegar þeir leita eft-
ir starfi. HH Ráðgjöf er ráðning-
arþjónusta sem þjónustar
atvinnurekendur með að finna
starfsfólk og fólk í atvinnuleit.
Hulda Helgadóttir, fram-
kvæmdastjóri HH Ráðgjafar, segir
ívið fleiri umsóknir í ár en á sama
tíma í fyrra en þó ríki betra jafn-
vægi milli framboðs og eftir-
spurnar á atvinnumarkaðnum.
„Nú er t.d. auðveldara að manna
viss störf sem áður gekk illa að fá
fólk í,“ segir hún. Um það hvort
ákveðnir hópar leiti frekar til
þeirra en aðrir, þá miðað við kyn,
aldur og menntun, segir Hulda
þau fá alla flóruna. „Þetta er
nokkurn veginn í samræmi við
framboðið á atvinnumarkaðn-
um.“
Hulda segir það mjög misjafnt
um hversu langan biðtíma sé yf-
irleitt að ræða. „Það veltur mjög
mikið á umsækjandanum og
hversu virkur hann er í atvinnu-
leitinni.“ HH Ráðgjöf er með
mörg þúsund umsækjendur á
skrá, töluverður hluti þeirra er í
starfi og hefur hug á að skipta um
starf en aðrir eru án atvinnu.
Þjónusta HH Ráðgjafar er m.a.
fólgin í því að vinna úr umsókn-
um, leita að kandidötum í gagna-
grunni, taka forviðtöl, afla með-
mæla og velja þá einstaklinga sem
best uppfylla hæfniskröfur og ósk-
ir atvinnurekanda. Í heildina segir
hún ástandið á atvinnumarkaðn-
um gott enn sem komið er enda
ekki nema 1,2% atvinnuleysi í
ágúst á þessu ári samkvæmt töl-
um Vinnumálastofnunar.
Atvinnumiðlanir geta létt fólki atvinnuleitina
Ráðgjöf og
vinnumiðlun
Hulda Helgadóttir Í
heildina er ástandið á
atvinnumarkaðnum
gott enn.