24 stundir - 20.09.2008, Side 31

24 stundir - 20.09.2008, Side 31
Eftir Kristjönu Guðbrandsd. dista@24stundir.is Sveinn segist hafa tekið ákvörðun um að læra leiklist eftir að hafa farið með veggjum Háskóla Ís- lands í nokkur ár þar sem hann nam íslensku og heimspeki. „Ég hætti í háskólanáminu á endasprettinum eða þegar ég var að skrifa lokaritgerðina mína sem átti að vera um Snorra Hjartarson ljóðskáld. Við ritgerðarsmíðina fann ég heimild; Þögnin er eins og þaninn strengur, eftir Pál Valsson. Það var eiginlega allt í þessari bók sem ég vildi skrifa í þessari ritgerð þannig að ég hætti bara að skrifa ritgerðina.“ Sveinn segist ekki hafa séð eftir ákvörðun sinni um að læra leiklist og hefur fengið mörg spennandi hlutverk síðustu ár. Fyrir eitt þeirra, hlutverk Eddies í Fool for Love, fékk Sveinn tilnefningu til Grímunnar fyrir bestan leik í að- alhlutverki. Verkið er nú í sýningu á fjölum Leikfélags Akureyrar. Í vetur mun Sveinn Ólafur Gunnarsson fara lipurlega með hlutverk Óþellós í uppfærslu Leikhússins Láka á verkinu í parkour-stíl. Lipurlega í bókstaf- legri merkingu, því uppfærsla leikhússins reynir verulega á fimi, lipurð og úthald þeirra leikara sem verða í sýningunni. Sveinn telur ekki eftir sér að fara í helj- arstökk og fara með texta Sha- kespears í loftköstum og segist líklega verða sannkallaður Spi- derman Óþelló. „Ég leyni á mér,“ segir Sveinn. „Þess utan hef ég verið að leika í Hamrinum, saka- málaseríu í leikstjórn Reynis Lyngdals, unnið með Guðmundi Inga í Útvarpsleikhúsinu og vinn að leikriti mínu Syni guðs sem fer vonandi á svið í vetur.“ Spiderman-Óþelló Sveinn er stór vexti en seg- ist þó vera ótrúlega lipur. Hvaða vefsíður birtast þegar nafnið þitt er gúglað á netinu? Sveinn Ólafur Gunnarsson leikari STARF: Leikari. FÆÐINGARDAGUR: 6. janúar 1976. MENNTUN: Nám í íslensku og heimspeki í Háskóla Íslands og BA- gráða í leiklist árið 2006 frá Listaháskóla Íslands. HJÚSKAPARSTAÐA: Í sambúð með Jóhönnu Helgu Þorkelsdóttur myndlistarkonu. HNOTSKURNHávaxinn og glæsilegur leikari, ljóðskáld og leik- ritahöfundur, fimur og mun fara í heljarstökk meðan hann fer með lín- ur Óþellós í vetur. Ým- islegt kemur í ljós þegar rýnt er í netsíður þar sem nafn Sveins Ólafs Gunn- arssonar leikara kemur upp. 24stundir LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 31 SVEINN ÓLAGUR GUNNARSS0N http://www.ljod.is/viewpo- em.php?iPoemID=21428&sSe- arch=authors Ást Á netsíðunni ljod.is má finna fjölda ljóða eftir Svein. Hér til hliðar er birt eitt þeirra sem hann hefur nefnt Ást. Sveinn segist ávallt hafa skrifað meðfram öðrum verkefnum og ætli sér að halda áfram að vaxa í hlutverki höfundarins og skáldsins. KOMMENT: Ég hef samið ljóð og smásögur síðan ég var lítill strákur og geri enn. Ég hef að auki áhuga á leikritun og hef samið nokkur leikverk til uppfærslu. Nú er ég með verk í vinnslu sem ég kalla Sonur guðs. Vonandi fer það upp á svið í vet- ur. Ljóð eftir Svein á ljóð.is Semur ljóð og sögur http://www.othelloparkour.blogs- pot.com/ Liðugur leikhópur Á netsíðu Leikhússins Láka má líta leikhópinn sem tekur þátt í upp- færslu leikhússins á Óþelló í vetur. Þar fara fremst Sveinn og Álfrún Örn- ólfsdóttir sem munu fara með hlutverk Óþelló og Desdemónu. KOMMENT: Þetta er laglegur hópur sem kemur að sýningunni og spennandi verkefni. Gríðarlega krefjandi þar sem verkið er í parkour-stíl sem krefst mikillar fimi. Ætli ég verði ekki nokkurs konar Spiderman Óþelló. Ég er ágætur í svona, þótt ég svo svolítið lufsulegur á velli þá leyni ég á mér. Lunkinn í áhættuatriðum Spiderman Óþelló http://silfurtunglid.blog.is/blog/ silfurtunglid/entry/43926 Glæsilegur á sviði Á síðunni silfurtunglid.blog.is er birt gagnrýni Silju Aðalsteinsdóttur um verkið Fool for Love þar sem hún lýsir Sveini á eftirfarandi máta: „Sveinn Ólafur er sérlega glæsilegur á sviði, hávaxinn og flottur, og sniðinn fyrir hlutverk Eddies að öllu leyti.“ KOMMENT: Ég veit ekki hvað ég á að segja, en þetta er auðvitað mjög gleðilegt. Getur maður beðið um betri gagnrýni en þetta? Ég held ekki! Þykir glæsimenni á sviði Hávaxinn og flottur http://griman.is/index.php?op- tion=com_con- tent&task=view&id=337&Itemid=1 Gagnrýnendur héldu ekki vatni Sveinn Ólafur sló í gegn í uppsetn- ingu Silfurtunglsins á verkinu Fool for Love. Gagnrýnendur fóru fögrum orðum um frammistöðu hans í verkinu og fyrir hana hlaut hann tilnefn- ingu til Grímunnar. KOMMENT: Ég frétti aðeins fyrr af tilnefningunni og var yfir mig ánægður. Ég þurfti að halda henni leyndri. Mér leið eins og ég væri óléttur og gat varla á mér setið að segja frá fréttunum. Ég var í stórkostlegum hópi manna í verkinu Fool for Love. Sló í gegn í Fool for Love Tilnefning til Grímunnar Netið býður upp á ótal möguleika og með lítill fyrirhöfn má draga upp ófullkomið ættartré með aðstoð Íslendingabókar. Guðmundur Guðmundsson Fæddur 1797 Guðmundur Guðm. 1767-1825 Guðrún Bjarnadóttir Fædd 1757 Guðríður Guðmundsdóttir Fædd 1836 Guðrún Lilja Finnbogadóttir Fædd 1866 Finnbogi Dalmann Laxdal Sigurðsson 1901-1988 Kolbrún Finnbogadóttir 1938-1994 Sveinn Ólafur Gunnarsson Fæddur 1976 LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Sveinn Ólafur er sérlega glæsilegur á sviði, hávaxinn og flottur, og sniðinn fyrir hlutverk Eddies að öllu leyti. gúglið

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.