24 stundir - 20.09.2008, Blaðsíða 32

24 stundir - 20.09.2008, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag Laugardagur 20. september 2008  Alma og Bóas hanna fyrir sig og hjálpa líka öðrum. » Meira í Morgunblaðinu Framkvæmdafólk  Útlendingar eru duglegri að versla á Íslandi en Íslendingar í útlöndum. » Meira í Morgunblaðinu Nú er verslað hér  Myndaröð Ragnars Axelssonar birt í heild með athugasemdum lesenda. » Meira í Morgunblaðinu Öll röðin í Lesbók  Fjögurra síðna aukablað um kvennahandboltann. » Meira í Morgunblaðinu Kvennaboltinn  Hvaða áhrif hafa aðgerðir stjórnvalda og seðlabanka á hinn almenna borgara? » Meira í Morgunblaðinu Viðskipti Safnast í sarpinn „Ég veit ekki hvort þetta er góð- ur þverskurður af því sem ég hef verið að gera. Ég hef nú alltaf verið dálítill dugnaðarforkur og það safnast í sarpinn,“ segir Atli Heimir um tónleikaröðina. Veislan hefst í Þjóðleikhúsinu kl. 16 á sunnudag þar sem flutt verða brot úr leikhúsperlum tónskálds- ins. Um kvöldið verða hátíðartón- leikar í Salnum þar sem kammer- tónlist, rapp og kórtónlist eru á dagskrá. Ný fiðlusónata eftir Atla Heimi verður frumflutt á tónleikum á Kjarvalsstöðum á mánudagskvöld auk þess sem flautusónata hans er á dagskránni. Hugleiðslutónlist Sigur Rósar Glæný einsöngslög og íhugul einleiksverk hljóma síðan í Lista- safni Íslands á þriðjudagskvöld. „Þessi einleiksverk eru öll svolítið innhverf, eins konar hugleiðslu- tónlist. Kannski getur öll hæg og veik tónlist flokkast undir það. Ég býst við að tónlist Sigur Rósar sé ekki langt frá því að teljast hug- leiðslutónlist, eða hvað?“ Undanfarin ár hefur Atli Heimir aðallega verið að semja sinfóníur og verður sú nýjasta frumflutt snemma á næsta ári. „Það tekur svolítinn tíma að setja saman eina sinfóníu og þær eru yfirleitt langar hjá mér. Ég veit ekki af hverju. En það gerir ekkert til. Þær verða bara að vera svona hafi maður eitthvað að segja.“ Fjölbreytt höf- undarverk Boðið verður upp á allt frá íhugulum einleiks- verkum til leik- hústónlistar. Tónleikaröð í tilefni sjötugsafmælis Atla Heimis Sveinssonar Hef alltaf verið dugnaðarforkur Vinir Atla Heimis Sveins- sonar tónskálds fagna sjötugsafmæli hans með tónleikaröð þar sem stikl- að er á stóru í miklu og fjölbreyttu höfundar- verki tónskáldsins. ➤ Meðal þeirra sem koma fram ítónleikaröðinni eru leikarar úr Þjóðleikhúsinu, Víkingur Heiðar Ólafsson, Bergþór Pálsson, Una Sveinbjarnar- dóttir og Áshildur Haralds- dóttir. TÓNLEIKARÖÐIN Hin heimskunna sópransöng- kona Inesa Galante kemur fram ásamt Jónasi Ingimundarsyni í Salnum í Kópavogi í dag. Á efnis- skrá er Ave María eftir Caccini og söngvar eftir Stradella, Händel, Tsjaikovskíj og Rachmaninoff og glæsilegar sópranaríur úr þekktum óperum meftir Catalany, Puccini og Verdi. Tónleikarnir marka upphaf nýrrar tónleikaraðar innan Tíbrár- tónleikaraðarinnar sem hlotið hef- ur heitið Töfrar í Tíbrá. Tónleik- arnir verða alls tíu talsins og fara fram síðdegis á laugardögum. Sér- staklega verður vandað til tónleika- haldsins en hálftíma áður en tón- leikarnir hefjast eru gestir boðnir velkomnir með fordrykk og kynn- ingu. ej Galante í Salnum Heimskunn sópransöngkona Söngkonan fræga Inesa Galante syngur í Salnum í dag. 24stundir/G. Rúnar Sjónþing um víd- eólistakonuna Steinu Vasulka fer fram í Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi sunnudaginn 21. september kl. 13.30. Í tengslum við sjónþingið verður opnuð yf- irlitssýning á verkum hennar. Verkin eru frá ýmsum tímabilum á listferli Steinu og meðal annars er sýnd innsetningin Geomania frá árinu 1987. Sjónþingið stendur frá kl. 13.30 til 16. Stjórnandi er Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir, sýningarstjóri en spyrlar eru Halldór Björn Run- ólfsson, safnstjóri Listasafns Ís- lands, og Margrét Elísabet Ólafs- dóttir fagurfræðingur. Sýningin stendur til 2. nóvember og er opin virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis. ej Sjónþing um Steinu Vasulka LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is menning 24stundir/G. Rúnar Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Atli Heimir Sveinsson tónskáld fagnar sjötugsafmæli sínu á sunnu- dag og af því tilefni efna nokkrir vinir hans til tónleikaraðar þar sem margir af helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar leika verk tónskálds- ins. Í tónleikaröðinni er komið víða við og meðal annars boðið upp á leikhústónlist, kammertónlist, són- ötur, einsöngslög og íhugul ein- leiksverk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.