24 stundir - 20.09.2008, Blaðsíða 36

24 stundir - 20.09.2008, Blaðsíða 36
HELGARVIÐTAL Þ að má þó um Valgerði segja, að hún hefur að minnsta kosti klær – öf- ugt við ýmsa þá sem telja sig snjallasta óratora og skriffinna stjórnarandstöðunnar. Valgerður Sverrisdóttir er beittasti penni stjórnarandstöðunnar, og líklega eitraðasti stjórnarandstæð- ingurinn,“ sagði Össur Skarphéð- insson á heimasíðu sinni í vikunni og þegar þessi orð eru borin undir Valgerði brosir hún út í annað og verður íbyggin á svip. ,,Ja, sagði Össur þetta? Hann segir nú ým- islegt. Ætli það verði ekki bara að teljast heiður fyrir mig,“ segir hún svo þegar við setjumst niður á heimili hennar númer tvö í Vest- urbæ Reykjavíkur. Efnahagsmál, atvinnumál og krónan, evran og ESB, allt er þetta henni ofarlega í huga, konunni með klærnar, eins og Össur orðar það. Alþingi kom saman á stuttum haustfundi í byrjun september og verður síðan sett að nýju eftir nokkra daga, 1. október. „Þetta verður harður vetur á þinginu. Ástandið í þjóðfélaginu skapar óróa. Það sem mér er þó efst í huga er hvort við höfum okkur í gegn- um þetta. Ástandið í efnahagsmál- um er mjög erfitt og ég vildi gjarn- an koma að því að stjórna þeim aðgerðum sem nauðsynlegt er að framkvæma.“ En væri hér öðruvísi ástand ef Framsóknarflokkurinn hefði setið áfram við völd? „Ég held því fram. Við erum t.d. nýbúin að kynna skýrslu er varðar gjaldmiðilinn okkar. Það er alllangt síðan ég vakti fyrst máls á því hvort krónan gæti gagnast okkur áfram. Ég setti þá fram ákveðna valkosti um stöðuna. Einn kosturinn þá var aðild að Efnahags- og myntbanda- lagi Evrópu án inngöngu í ESB sem Björn Bjarnason hefur vakið aftur til umræðu núna. Sá valkostur var hins vegar sleginn út af borðinu strax þá af sendiherra ESB gagnvart Íslandi. Fleiri ráðamenn í ESB hafa talað í sömu veru. Mér finnst þess vegna miður að það sé verið að eyða orku í þær umræður í dag. Framsóknarmenn fóru í mikla vinnu við að útbúa þessa gjaldmið- ilsskýrslu einfaldlega vegna þess að gengisfall krónunnar og smæð hennar er eitt af meginvandamál- um efnahagskerfisins og stór spurning hvort hún sé nothæf til frambúðar. Niðurstaða nefndar- innar er sú að við höfum tvo kosti, að styrkja krónuna sem myndi kosta okkur óhemjufé, þar sem þá þarf að styrkja gjaldeyrisforðann verulega, eða taka upp evru. Þetta er langt í frá einfalt mál. Við erum hins vegar tilbúin að taka upp um- ræðuna um þessa tvo kosti,“ segir Valgerður. Ákveðin mistök voru gerð „Við viðurkennum að það voru gerð ákveðin mistök í efnahags- stjórn landsins á meðan við sátum í ríkisstjórn enda fylgja miklum og hröðum vexti í efnahagslífinu hagstjórnarvandamál sem taka þarf föstum tökum. Við gagnrýndum fjárlagafrumvarpið sem kom fram fyrir ári þar sem augljóst var að það myndi ýta undir þenslu. Frum- varpið sýndi 20% aukningu á út- gjöldum frá því árinu áður sem var kosningaár og allir vita að þá er meiri eyðsla í gangi. Okkur fannst þetta glannalegt sem reyndist rétt. Núna bíða allir eftir að sjá nýtt fjárlagafrumvarp 1. október. Hver verður hallinn á ríkissjóði? Það verður halli – við vitum það – en ég vona sannarlega að menn gæti að- halds. Þar að auki eigum við eftir að sjá aukafjárlög sem geta stund- um verið skrautleg. Það er því mik- ill losarabragur á stjórn landsins. Síðan auka misvísandi skilaboð frá flokkunum ekki álit fólks á efna- hagsstjórninni. Utanríkisráðherra sagði á Alþingi að gjaldmiðillinn nyti ekki trausts og því get ég verið sammála. Ég tel hins vegar ekki heppilegt að Ingibjörg Sólrún skuli setja þetta fram á Alþingi þar sem orð hennar eru þýdd og fara víða um heim. Geir heldur því hins veg- ar fram að krónan sé í góðu lagi. Ég hef lengi verið þeirrar skoð- unar að það séu mjög miklar líkur á því að við lendum inni í Evrópu- sambandinu og þá er spurningin hvort það sé nokkuð til bóta að fresta því að taka ákvörðun. Það er engin áhætta í því falin að taka ákvörðun um aðildarviðræður. Þjóðin mun alltaf eiga síðasta orðið í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild- arsamninginn og getur þá fellt hann ef niðurstöðurnar teljast ekki hagstæðar. Ég var mjög ánægð með þá ákvörðun sem tekin var á mið- stjórnarfundi okkar í vor að það væri eðlilegt að ákvörðun um að ganga til aðildarviðræðna við ESB verði borin undir þjóðaratkvæði, óháð öðrum kosningum. Við vilj- um með þessu koma málinu á hreyfingu. Framkvæmdastjórn flokksins er einhuga um að það þurfi að ræða Evrópumál og við er- um að útbúa ýmislegt fræðsluefni um málið fyrir flokksmenn.“ Þurfum að breyta pen- ingastefnunni Allir vita að þú ert hlynnt ESB en eru ekki margir á móti aðild í Framsóknarflokknum, t.d. for- maðurinn? „Aðalatriðið er að við komumst að samkomulagi á miðstjórnar- fundinum um að fara þessa leið. Ég vil ekki svara fyrir Guðna Ágústs- son en hann var sammála þessari niðurstöðu og átti frumkvæði að því að þessi niðurstaða fékkst. Framsóknarflokkurinn er búinn að vinna í fjölmörg ár að ýmsu fræðsluefni um Evrópusambandið, sérstaklega í tíð Halldórs Ásgríms- sonar. Fleiri vel unnar skýrslur eru til um t.d. ESB og landbúnaðinn og ESB og sjávarútveginn. Við ætlum að gera þetta efni aðgengilegt á net- inu á heimasíðu flokksins. Einnig hafa greinar Jóns Sigurðssonar í Morgunblaðinu verið mjög upp- lýsandi um þessi mál. Samfylkingin er búin að vera með á stefnuskrá sinni að ganga í ESB en hefur ekki unnið neitt í þeim málum. Engin skýrsla hefur komið frá þeim flokki um hvernig sambandsaðild muni virka á at- Valgerður Sverrisdóttir er ötull fylgismaður hugmynda um aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru Eftir Elínu Albertsdóttur elin@24stundir.is a … það voru gerð ákveðin mistök í efna- hagsstjórn landsins á meðan við sátum í ríkis- stjórn … ,,Eitraðasti“ stjórnar- andstæðingurinn Stærstu málin Þessi vetur mun ráða miklu um stór mál, efnahags- málin og stöðu gjaldmiðilsins. Þetta verða stærstu málin á þinginu í vet- ur,“ segir Valgerður Sverrisdóttir. Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður og varafor- maður Framsóknarflokksins, var einn umdeildasti stjórnmálamaður landsins sem iðnaðar- og við- skiptaráðherra á árunum 2000 til 2006, enda gekk þjóðin þá í gegnum miklar breytingar í viðskiptalíf- inu, m.a. með einkavæðingu bankanna. Auk þess var farið í stóriðjuframkvæmdirnar á Austurlandi og stækkun í Hvalfirði. Valgerður var fyrst kvenna til að stýra þessum ráðuneytum og jafnframt var hún fyrsta konan sem varð utanríkisráðherra. Nú er hún í stjórn- arandstöðu í fyrsta skipti og kann því ekki illa. 36 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.