24 stundir - 20.09.2008, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir
Á matseðli Vocal gætir áhrifa úr
ýmsum áttum. „Þetta er algerlega
fjölþjóðlegt hjá okkur. Við erum
að koma til móts við markaðinn
með því enda er þetta alþjóðlegt
hótel,“ segir Kristján og bætir við
að einnig sé reynt að höfða til
heimamanna og annarra sem leið
eigi um svæðið.
Fiskur og fiskmeti skipar stóran
sess á seðlinum. „Við fáum dag-
lega fisk enda stutt að sækja hann.
Maður á aldrei í vandræðum með
að fá ferskan fisk í Keflavík.“
Einfaldleikinn er oft bestur
Fiskur kemur einmitt við sögu í
réttunum sem Kristján lætur les-
endum 24 stunda í té. Annars veg-
ar er bleikja með wasabi-krydd-
hjúpi og appelsínusalati og hins
vegar marineraður skötuselur. Í
eftirrétt býður hann svo upp á
himneska súkkulaðitertu. Upp-
skriftirnar ættu ekki að reynast
neinum ofviða enda tekur Krist-
ján undir að galdurinn við góða
matargerð felist oft í einfaldleik-
anum. „Maður á ekki að blanda of
mörgum bragðefnum saman
heldur láta hráefnið njóta sín sem
best. Þá er höfuðatriði að vera
með réttan eldunartíma.“
Skrýtið og framandi
Þó að fiskurinn á Vocal sé ekki
langt að kominn verður það sama
ekki sagt um allt á matseðlinum.
„Við vorum með kengúru á seðl-
inum um daginn og ætlum að
halda áfram að vera með framandi
rétti og bjóða upp á eitthvað
skrýtið. Kengúran er alveg gríð-
arlega góður matur og mæltist
rosalega vel fyrir,“ segir Kristján
sem lærði að elda kengúruna á
heimavelli hennar. „Ég var fjögur
ár í Ástralíu og lærði töluvert þar
og aflaði mér reynslu,“ segir Krist-
ján Gunnarsson á Vocal að lokum.
Kristján Gunnarsson stendur vaktina á Vocal
Ferskur fiskur og
framandi réttir
Kristján Gunnarsson á
Vocal er hrifinn af fersk-
um íslenskum fiski sem
hann matreiðir gjarnan á
framandi hátt. Hann er
einnig laginn við að elda
framandi hráefni á borð
við kengúru enda vann
hann lengi í Ástralíu þar
sem hann lærði sitthvað
af heimamönnum.
Ferskt og framandi
Kristján Gunnarsson á
Vocal matreiðir ferskan
fisk á framandi hátt.
➤ Kristján Gunnarsson lærði tilkokks á veitingastaðnum
Lækjarbrekku.
➤ Hann hefur unnið í Ástralíuog á ýmsum veitingastöðum
á Suðurnesjum.
KRISTJÁN GUNNARSSON
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Flughótel í Reykjanesbæ hefur ný-
lega gengist undir miklar endur-
bætur. Meðal nýjunga í hótelinu
er veitingastaðurinn Vocal þar
sem Kristján Gunnarsson ræður
ríkjum Kristján er Suðurnesja-
mönnum að góður kunnur enda
hefur hann unnið á ýmsum stöð-
um í Keflavík og nágrenni á und-
anförnum árum. „Ég held tryggð
við heimamennina,“ segir Krist-
ján.
Félagið Matur–saga–menning
efnir til sýningar um mat og mat-
aræði Reykvíkinga á 20. öld sem
ber nafnið „Reykvíska eldhúsið –
matur og mannlíf í hundrað ár.“
Sýningin verður formlega opnuð
föstudaginn 26. september í Að-
alstræti 10.
Markmið með sýningunni er að
bjóða Reykvíkingum og öðrum
gestum að fræðast, njóta og
bragða á lítt þekktri matarsögu
höfuðborgarinnar.
Í tengslum við sýninguna verður
haldin ráðstefnan Af hlaðborði
aldarinnar – Áfangar og áræði í
íslenskri matarmenningu í Iðnó
laugardaginn 27. september kl.
14-17.
Í lok ráðstefnunnar efna aðstand-
endur sýningarinnar til hátíð-
arkvöldverðar í Iðnó. Á boð-
stólum verða sýnishorn af
hátíðarréttum liðinnar aldar svo
sem dádýracarpaccio með furu-
hnetum og fetaosti, rækjukokteill
með ristuðu brauði og fjallalamb
níunda áratugarins.
ej
Reykvískt eldhús
liðinnar aldar Saga Jacob’s Creek hefst með landnámi Suður-Ástralíu, þegar William Light ofursti nefndi árið 1837 dal
nokkurn eftir sigri Englendinga á Barossa-svæðinu á Suður-Spáni. Þegar Jacob-bræðurnir, William og John,
voru í könnunarleiðangri um Barossa-dalinn tveimur árum síðar, eignuðu þeir sér landareign á svæði sem kall-
ast Hundred of Moorooroo. Moorooroo kemur úr máli frumbyggjanna og merkir í beinni þýðingu „tvö vötn
mætast“. Vatnið sem um er að ræða er í raun Norður-Para-áin og lækurinn sem í hana rennur. Hitt vatnið gekk
undir nafninu Cowieaurita og þýðir „gulbrúnt vatn“ en liturinn er vegna járnmagnsins í jarðveg-
inum. Nafninu var síðar meir breytt í Jacob́s Creek í höfuðið á William Jacob en kofi þeirra
bræðra stendur enn við lækjarbakkann.
Tæplega áratug síðar keypti Johann Gramp, þýskur innflytjandi, landskika og
hóf ræktun víngarðs sem var upphafið á einu helsta víngerðarhúsi og útflutnings-
fyrirtæki Ástralíu.
Aðlaðandi ilmur af bláberjum og brómberjum með undirliggjandi
votti af fjólum, mokka og krydduðum eikartónum. Munnurinn er ríkur
af svörtum skógarberjum, plómum og bökunarkryddum. Mjúk, gómsæt
tannín með byggingu í góðu jafnvægi. Langur endir með súkkulaði- og
lakkríseinkennum.
Vínið fær að þroskast á bandarískum og frönskum eikartunnum í 18–
22 mánuði og tilvalið að drekka með lambakjöti, nautakjöti, villibráð og
veigameiri ostum.
Tilbúið strax en mætti geyma í 2–3 ár í viðbót.
Þrúga: Shiraz.
Land: Ástralía.
Hérað: Suður-Ástralía – Barossa Valley. 1.990 kr.
Vín vikunnar
Elísabet Alba Valdimarsdóttir
vínþjónn.
Jacob’s Creek Reserve Shiraz 2001
Fyrir 4
Kryddhjúpur (hráefni):
2 bollar hreint brauðrasp
(Kötlu)
2 tsk. wasabi (japönsk piparrót)
50 grömm heslihnetur
50 grömm smjör
eitt knippi steinselja
nokkrir stórir hvítlauksgeirar
Aðferð:
Allt þetta er sett í matvinnsluvél
og maukað þar til iðgrænt og þétt.
Fiskurinn:
Reiknið með 80-100 grömmum af
fiski á mann.
Raðið fiskibitunum á vel smurðan
ofnabakka, stráið því næst wa-
sabi-maukinu yfir örlítið af grófu
náttúrusalti og pipar.
Hitið ofn upp í 200 gráður, bakið
því næst fiskinn í 8 mínútur.
Salat (hráefni):
klettasalat
lollo rosso
appelsínulauf
kóríander
rauðlaukur
Aðferð:
Skolið salat og kóríander mjög
vel, skerið appelsínur í lauf og
rauðlauk í sneiðar.
Sósa (hráefni):
6 msk. Dijon-sinnep
safi úr 1 appelsínu
1 msk. sesamfræ
1 bolli olía
Aðferð:
Sítrónusafi og salt eftir smekk,
allt sett í drykkjarblandara og
hann látinn ganga þangað til sós-
an er jöfn.
Rétt áður en bleikjan er bökuð
þá er sósunni blandað við salatið
og látið á diskana og örlítið af
sósunni sett með á diskinn
skreytt með kryddjurtum að vild.
FORRÉTTUR
Bleikja með wasabi
og appelsínusalati
24stundir/Ellert Grétarsson
Elísabet Alba Valdimars-
dóttir vínþjónn mælir með
Banfi San Angelo Pinot Gri-
gio 2005. Ávaxtaríkur ilmur
af sítrus og hvítum blómum.
Þroskað greipaldin í munni
ásamt perum, eplum og létt-
um steinefnakeim. Létt og
fersk sýra í þægilegu jafn-
vægi. Þrúga: Pinot Grigio.
Land: Ítalía. Hérað: Toscana.
1.994 kr.
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Við fáum daglega fisk enda stutt að
sækja hann. Maður á aldrei í vandræð-
um með að fá ferskan fisk í Keflavík.
matur