24 stundir - 20.09.2008, Page 47
24stundir LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 47
vin. Hann er töluvert sterkari skákmaður en ég.
Mestu vonbrigðin?
LOST.
Hvernig tilfinning er ástin?
Ástin er eins og sinueldur.
Erfiðasta lífsreynslan hingað til?
Það er reyndar mjög erfitt að svara þessari spurn-
ingu. Flokkast það sem lífsreynsla?
Hefurðu einhvern tíma lent í lífshættu?
Já. Svo hef ég líka haldið að ég væri í lífshættu – þó
ég hafi ekki verið það.
Hvaða hluti í eigu þinni meturðu mest?
Lopapeysuna sem konan mín prjónaði handa mér í
tilhugalífinu,
Vídalínspostilluna hans langafa míns og lituðu
flenniljósmyndina af Hvítserk.
Hverjir eru styrkleikar þínir?
Ég var nú alltaf ansi sleipur í Green-
house-tölvuspilinu.
Hvaða galla hefurðu?
Ég á það til að stökkva upp á nef
mér af litlu tilefni. Mjög litlu meira
að segja.
Ef þú byggir yfir ofurmann-
legum hæfileikum, hverjir væru
þeir?
Ég myndi gjarnan vilja geta
ferðast í tíma. Og verið á mörg-
um stöðum í einu. Vá hvað það
kæmi sér vel!
Fallegasti staður á Íslandi?
Vesturbærinn.
Hvað gerirðu til að láta
þér líða vel?
Er heima.
Hefurðu einhvern tíma
bjargað lífi einhvers?
Það gæti verið, já.
Skrýtnasta starfið?
Það er eiginlega of ógeðslegt
til að ég geti lýst því í svona víð-
lesnum fjölmiðli.
Hvað myndi ævisagan þín heita?
Ævisaga Guðmundar Pálssonar, 1.
bindi.
Hver myndi leika þig í kvikmynd
byggðri á ævi þinni?
Freyr Eyjólfsson.
Guðmundur Pálsson, útvarps- og Baggalútsmaður
Guðmundur Pálsson undirbýr sig nú
fyrir útgáfu nýjustu plötunnar með
Baggalúti milli þess sem landinn hlýð-
ir á hann í Síðdegisútvarpi Rásar 2. Í
yfirheyrslunni segir hann okkur með-
al annars að sínar fyrstu minningar
tengist flestar gólefnum. Enda eyði
menn fyrstu árunum meira og minna
á gólfinu.
LOST mestu vonbrigðin
Eftir Hauk Johnson
haukurj@24stundir.is
Hvað er á döfinni hjá þér?
Nú er ég að búa mig andlega og líkamlega undir
útgáfu plötunnar Nýjasta nýtt með Baggalúti og
brjálæðið sem henni fylgir.
Hvert fórstu í sumarfríinu?
Ég fór í stórkostlega tímamótaferð á Íslendinga-
slóðir í Norður-Ameríku. Svo sólaði ég mig aðeins
á Portúgalsströndum, í faðmi fjölskyldunnar.
Hver er þín fyrsta minning?
Sýkadelíski gólfdúkurinn í herberginu mínu,
græna gólfteppið í
stofunni og rauðu flísarnar hjá fólkinu á hæðinni
fyrir ofan. Maður var meira og minna á gólfinu
fyrstu árin.
Hvað langaði þig til að verða þegar þú varst lít-
ill?
Mig langaði til að verða prestur, af einhverjum
undarlegum ástæðum. Held það hafi verið hvíti
lampaskermskraginn sem heillaði. Þetta var sem
sagt þegar ég var lítill.
Mesta skammarstrikið fyrr og síðar?
Það var sennilega þegar ég kveikti í stofuteppinu
– og næstum því í öllu húsinu. Maður á ekki að
fikta með bensín inni í stofu. Allavega ekki þegar
maður er líka að fikta með eldspýtur.
Hvaða lifandi manneskju líturðu upp til og
hvers vegna?
Ég lít alltaf upp til Sigurðar Guðmundssonar
barítónsöngvara og
bassaleikara Baggalúts – annað er bara ekki hægt.
Stærsti sigurinn?
Það er sennilega þegar mér tókst að máta Valda
Agnar Jón Eg-
ilsson leikari er
æskuvinur Guð-
mundar ú́r Mos-
fellsbænum.
„Hann er afar geð-
þekkur maður í
alla staði og með
mjög yndislegt lundarfar. Hann
er sjúklega fyndinn. Og þó það
fari oft ekki mikið fyrir honum
þá nær hann alltaf að lauma ein-
hverju fyndnu að. Svo er hann
traustur vinur.“
Er með ynd-
islegt lundarfar
„Við erum búnir
að þekkjast of
lengi,“ segir Bragi
Valdimar Skúla-
son, samstarfs-
maður Guð-
mundar úr
Baggalúti en þeir
voru saman í MH auk þess sem
þeir lærðu báðir íslensku við HÍ.
„Gummi ætti að vera til á hverju
heimili.“
Ætti að vera til á
hverju heimili
„Hann var virki-
lega háður mér.
Ég komst ekkert
án hans. En það
var gott að alast
upp með hon-
um,“ segir Guð-
rún Björg Páls-
dóttir, stóra systir Guðmundar.
„Hann er alveg ótrúlega tryggur,
einlægur og góður drengur. Hann
er líka mjög skemmtilegur. Léttur
og mikill húmoristi. Og það er
mjög gott og gaman að vera í
kringum hann.“
Sótti mikið í
stóru systur
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Mig langaði til að verða prestur, af
einhverjum undarlegum ástæðum.
Held það hafi verið hvíti lampaskermsk-
raginn sem heillaði.
Spennandi námskeið í október
www.tskoli.is
Stafræn ljósmyndun
og myndvinnsla
Farið verður í eftirfarandi þætti: Grunnatriði
myndatöku og myndavéla, samspil ljósops, hraða,
ISO og áhrif þess á myndir, áhrif linsa á rýmið,
eftirvinnslu og leiðréttingar í myndvinnslu-
forritum, aðferðir við flokkun, skráningu og
geymslu.
Tími: 21., 22. og 23. okt.
Námskeiðsgjald: 23.000 kr.
Undirbúningsnámskeið
fyrir skemmtibátapróf
Kennd verða bókleg atriði, sem krafist er skv.
námskrá til skemmtibátaprófs, í siglingafræði,
siglingareglum og stöðugleika. Bóklegt og
verklegt próf veitir siglingaréttindi á 24 metra
skemmtibáta.
Tími: 4., 5., 8. og 9. okt.
Námskeiðsgjald: 28.500 kr.
Hásetafræðsla - námskeið
fyrir aðstoðarmenn í brú
Markmið með námskeiðinu er að nemendur öðlist
fræðslu og þjálfun í að uppfylla sett lágmarks-
skilyrði til útgáfu skírteinis til varðstöðu í brú á
stoðsviði, sbr. staðal STCW-A, II/4.
Tími: 6. – 7. okt. Námskeiðsgjald: 65.000 kr.
Málmsuða
Almennt námskeið fyrir þá sem ekki hafa lært
málmsuðu en eru að fást við það og langar að
læra meira.
Tími: 6. – 8. okt. Námskeiðsgjald: 21.500 kr.
Vélgæslunámskeið
Námskeiðið er A-námskeið fyrir vélgæslumenn
skv. reglugerð 246/2003 og grunnur að 375kW
atvinnuréttindum vélgæslumanna á minni bátum.
Tími: 27. okt. – 7. nóv.
Námskeiðsgjald: 88.000 kr.
Notkun trésmíðavéla
Á námskeiðinu verða kennd rétt vinnubrögð við
vélar og handverkfæri fyrir trésmíði.
Tími: 25. okt., 1. nóv. og 8. nóv. kl. 9:00 – 13:00.
Námskeiðsgjald: 22.000 kr.
Lesið í skóginn – tálgað í tré
Þátttakendur kynnast tálgunartækni og ferskum
viðarnytjum. Hönnun grænna viðarnytja, þurrkun
og fullvinnslu smíðisgripa, viðarfræði, skógarvist-
fræði, skógarhirðu og -grisjun.
Tími: 9., 11. og 16. okt.
Námskeiðsgjald: 15.000 kr.
Haustkrans
– efniviður skógarins
Þátttakendur fá sýnikennslu í vinnslu kransa úr
trjágreinum og leiðsögn við gerð kransa úr efnivið
skógarins. Allt efni er innifalið en þátttakendur eru
beðnir um að hafa með sér verkfæri til
kransagerðar.
Tími: 25. okt.
Námskeiðsgjald: 9.000 kr.
Smíði rafeindarása
Námskeiðið er ætlað ungmennum á aldursbilinu
12 – 16 ára. Á námskeiðinu eru kennd helstu
atriði við smíði einfaldra rafeindarása.
Tími: 23., 30. okt. og 6. nóv.
Námskeiðsgjald: 9.500 kr.
Steinaslípun
Námskeið í sögun, mótun og slípun náttúrusteina.
Þátttakendur taki með sér steina. Hámarksöldi
þátttakenda er 12.
Tími: 1. okt. – 5. nóv., á miðvikudagskvöldum.
Námskeiðsgjald: 20.000 kr.
Endurnýjun
vélstjórnarréttinda
Ætlað vélstjórnarmönnum sem hafa ekki siglt í
nokkurn tíma og vilja endurnýja vélstjórnar-
réttindin og kynna sér nýjungar í vélstjórn.
Inntökuskilyrði eru þau að þátttakandi hafi lokið
3. stigi vélstjórnar og hafi vélstjórnarréttindi.
Tími: 8. – 10. okt. Námskeiðsgjald: 72.000 kr.
ARPA-ratsjárnámskeið
Námskeiðið uppfyllir kröfur Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar (IMO) í töflum A-II/1 og II/2 í
STCW-bálknum um þekkingu, skilning og færni í
notkun ratsjár og ARPA.
Tími: 27. – 29. okt. Námskeiðsgjald: 72.000 kr.
ARPA-ratsjárnámskeið
- endurnýjun
Námskeiðið er haldið skv. staðli STCW- A-II/1 og
II/2 og reglum um endurnýjun skírteinis.
Tími: 28. – 29. okt. Námskeiðsgjald: 33.000 kr.
Upplýsingar og skráning á námskeiðin eru á www.tskoli.is, í síma 514 9000 eða á ave@tskoli.is.
yfirheyrslan