24 stundir - 20.09.2008, Page 49

24 stundir - 20.09.2008, Page 49
24stundir LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 49 Hjá okkur fáið þið mikið úrval af barnabílstólum Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is Mikki Mús Dýragarðurinn HVAÐ VILJIÐ ÞIÐ BORÐA Í HÁDEGISMAT Í DAG, STRÁKAR? HVAÐ SEGIÐ ÞIÐ UM NOKKUR ARNAREGG? ARNAREGG? JÁ, ÞAU ERU MJÖG GÓMSÆT! ÉG VEIT HVAR ÉG GET FUNDIÐ ÞAU! SKÖMMU SEINNA... FÁIÐ YKKUR BARA AÐ BORÐA... ÉG VERÐ AÐEINS OF SEINN Nemendur í Hlíðaskóla eru kannski svolítið heppnir vegna þess að rétt hjá skólanum þeirra er Öskjuhlíðin og á hverju hausti eru haldnir svokallaðir Öskjuhlíðar- dagar í skólanum. Þeir voru ein- mitt haldnir fyrir stuttu. „Öskjuhlíðardagurinn er gömul hefð í skólanum okkar. Við veljum okkur tvo daga í september og brjótum skólastarfið aðeins upp. Þá förum upp í Öskjuhlíð og vinnum að allskyns verkefnum,“ segir Ásthildur S. Þorsteinsdóttir, kennari í 2. bekk í Hlíðaskóla. „Núna vann fyrsti bekkur t.d. með reynitré og skógarþresti en við í öðrum bekk fræddumst um kan- ínuna og hennar líferni.“ Kanínurnar voru í felum Kanínur sjást oft Öskjuhlíðinni en í þetta skipti hafði 2. bekkur ekki heppnina með sér að því leyti. „Hlíðaskóli á grenndarskóg í Öskjuhlíð og við sjáum yfirleitt kanínur þegar við förum þangað. En í þetta skipti sáum við engar. En við fundum hins vegar kanínu- skít!“ Læra um kartöfluna Krakkarnir í 2. bekk hafa líka verið að kynna sér margt annað í sambandi við náttúruna. „Við höfum lært um blaðgrænu og það hvers vegna laufin falla af trjánum og skipta um lit. Og vegna þess að nú er ár kartöflunnar höf- um við verið að fræðast um kart- öflur. Ég tók upp kartöflugras og við skoðuðum hvernig kartöflurn- ar vaxa í moldinni. Svo horfðum við á skemmtilegt myndband um Kartöfluna undursamlegu. Seinna ætlum við líka að þrykkja með kartöflum, búa til kartöflufólk og skrifa svo stuttar sögur um það.“ Það er því ýmislegt skemmtilegt framundan hjá krökkunum í 2. bekk í Hlíðaskóla. haukurj@24stundir.is Öskjuhlíðardagar voru nýlega haldnir í Hlíðaskóla Læra um kanínur og kartöflur Hvernig verða kartöflur til? Krakkarnir fengu að skoða kart- öflugrasið í þaula. DÝR VIKUNNAR VÍSINDAHORNIÐ -Tungan í gíröffum er svört á lit- inn og er næstum 50 cm löng. -Fallhlífin var fundin upp á und- an flugvélinni. -Öll fullorðin skordýr eru með sex fætur. Kóngulær eru með átta fætur og teljast ekki til skordýra heldur áttfætlna. -Yfir 20 þjóðir í heiminum tala spænsku. -Síberíutígurinn er stærsta katt- ardýr í heiminum. Hann getur orðið yfir 300 kg. Vissir þú þetta? Er kóngulóin skordýr? Fjórar sprækar andarnefjur hafa verið í fréttunum á Íslandi upp á síðkastið en þær hafa hafst við í Pollinum á Akureyri. Andarnefjur eru hvalir en þær eru með mjótt trýni sem minnir á andarnef. Karldýrin kallast tarfar og kvendýrin kýr. Tarfarnir verða oft um átta metra langir og 3600 kg þungir en kýrnar ná um sjö metr- um og 3000 kg. Þær eru spendýr og verða kynþroska á aldrinum 9-12 ára. Meðgöngutíminn er um það bil 12 mánuðir. Andarnefjur eru mjög forvitnar og fara oft mjög nálægt skipum til að skoða þau. Og ef skipin gefa frá sér hljóð þá kafa þær oft undir þau til að athuga hvaðan hljóðið kem- ur. Einnig eru þær einstaklega fé- lagslyndar og tryggar og yfirgefa t.d. ekki særðan félaga fyrr en hann deyr. Þær eru grásvartar á litinn og ljósari að neðan en að ofan. Og oft lýsast þær með aldrinum. Hverjir eru gestirnir í Pollinum á Akureyri? Andarnefjur a Af hverju fljúga farfuglar til útlanda á veturna? Svar: Af því það er svo langt að labba. Ský eru safn örsmárra vatns- dropa. Þau myndast þegar vatnsgufa í andrúmsloftinu kólnar. Við það þéttist hún og skýin verða til. Þegar loft streymir upp á við lækkar bæði þrýstingur og hiti. Uppstreymi verður til dæm- is þegar vindur lendir á fjöllum en þá þvingast loftið upp á við. Þegar það gerist kólnar loftið, vatnsgufan þéttist og ský mynd- ast. Þegar skýin eru alveg við jörðina þá köllum við þau þoku. Helsti munurinn á þoku og skýjum er að þokan verður ekki til við uppstreymi heldur oftast við kólnun vegna snertingar lofts- ins við kalt yfirborð jarðarinnar. Margir hafa heyrt talað um Austfjarðaþokuna. Hún er svoköll- uð aðstreymisþoka sem verður til þegar rakt loft streymir yfir kalt yfirborð lands eða sjávar. Aðstreymisþoka er mjög algeng hér við land að vetrarlagi þegar hlýtt loft sunnan úr höfum streymir hingað norður yfir kaldari sjó eða þegar fremur milt loft af sjó streymir inn á kalt land. Emilíla Rut spyr: Hver er munurinn á þoku og skýi? LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is krakkar

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.