24 stundir - 20.09.2008, Page 50

24 stundir - 20.09.2008, Page 50
50 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir Stelpnasveitin Spice Girls var verðlaunuð á nýafstaðinni Voda- fone Live tónlistarverðlaunahátíð fyrir bestu endurkomu síðasta árs. Hinar vel krydduðu hnátur þóttu hafa haldið betri end- urkomutónleika en sveitir á borð við Led Zeppelin og The Verve sem einnig voru tilnefndar til verðlaunanna. Emma Bunton var eina kryddpí- an sem sá sér fært að mæta á há- tíðina. Hún var mjög hissa að stúlkurnar skyldu hafa skákað rokkgoðunum í Led Zeppelin en var eigi að síður ánægð með að hafa hreppt verðlaunin. „Við skemmtum okkur konunglega. Mér finnst ég hafa verið svo heppin að fá tækifæri til að gera þetta aftur,“ sagði Bunton í við- tali við BBC. vij Betri en Led Zeppelin? Hollywood-leikkonan Hilary Swank er að jafna sig eftir skurð- aðgerð þar sem góðkynja æxli var fjarlægt úr ónefndum líkams- hluta hennar. „Frú Swank fann til óþæginda og var strax flutt á spít- ala þar sem æxlið var fjarlægt. Nú þarf hún aðeins nokkra daga til að jafna sig að fullu,“ sagði um- boðsmaður hennar, Jason Wein- berg. Hilary Swank laus við æxli Leikkonan Michelle Rodriguez situr þessa stundina við skriftir á kvikmyndahandriti sem hún seg- ir vera einskonar blöndu af barna- og unglingamyndunum Jumanji og Goonies. „Hún gerist 2012, þegar regnskógarnir eru farnir og dýrin gera uppreisn gegn þeim sem ekki eru hjarta- hreinir. Ég hef haft þessa hug- mynd síðan ég var 15 ára.“ Vill búa til barnamynd ert að vera alvarlegt.“ Eitt af því sem ung skáldin munu fjalla um er hvort verk Hall- dórs Laxness eigi erindi til unga fólksins nú til dags. Skyldu hinar ástsælu bækur Nóbelsskáldsins vera orðin börn síns tíma? „Verk Laxness eiga fullt erindi til unga fólksins í dag og ég held að það sé búið að standa mjög vel að því að halda þeim á lofti,“ segir Bergur. Hann játar þó að hann þurfi að fara að endurnýja kynnin við Heimsljós áður en hann fer að ræða um bókina við gesti Gljúfra- steins. „Ég þarf nú að fara að lesa hana aftur, það eru mörg ár síðan ég las þessa bók,“ segir Bergur. vij „Ég mun bara flytja góða fram- sögu um verkið en það þarf ekki að vera neitt fræðilegt. Þetta er bara mín upplifun á verkinu, hvernig það kemur mér fyrir sjónir,“ segir tónlistarmaðurinn Bergur Ebbi Benediktsson en hann mun stýra dagskrárliðnum Verk mánaðarins á Gljúfrasteini 28. september. Þar mun hann fjalla um bók Halldórs Laxness, Heimsljós. Bergur mun verða fyrstur af þremur ungum listamönnum til að rýna í verk Nóbelsskáldsins en einnig munu ljóðskáldið Ingunn Snædal og rímnakóngurinn Erpur Eyvindarson rýna í bækur meist- arans. Ingunn tekur fyrir Sjálfstætt fólk en Erpur fjallar um Atómstöð- ina. Aðspurður segist Bergur vera passlega mikill aðdáandi verka Laxness, hafi lesið öll helstu verk hans og líkað vel. Hversdagslegt spjall Bergur segir að þótt vettvangur fyrirlestrar hans virki kannski fræðilegur þá þýði það ekkert endi- lega að fyrirlesturinn verði á þeim nótum. „Þetta þarf ekkert að vera mjög alvarlegt. Á Gljúfrasteini fá þau oft fræðimenn til að koma og tala, bókmenntafræðinga og þess háttar. Ég held að hugmyndin með þessu sé að þetta sé bara venjulegur borgari, í þessu tilfelli ungt fólk. Þetta er kannski ekkert grín og glys en ég held samt að þetta þurfi ekk- Bergur Ebbi, Erpur og Ingunn Snædal fjalla um verk Halldórs Laxness 24 stundir/Ómar Rýnir í Laxness Bergur Ebbi mun halda fyrirlestur um Heimsljós 28. september. Hann þarf þó fyrst að lesa bókina á nýjan leik. Eiga enn fullt erindi til æsku landsins Í gær lauk svokölluðum Bíla- dögum í Borgó í boði Toyota, þriggja daga bílahátíð á vegum Borgarholtsskóla. „Borgarholtsskóli er með bestu bílanámsbrautina á landinu og þarna gafst færi til að skoða flotta bíla, keppa í kvartmílu, prufukeyra nýja bíla og gera flest sem við- kemur bílum,“ sagði Valentína Tinganelli, skipuleggjandi hátíð- arinnar og nemandi í skólanum. Flestir nemar á bíl „Bíladagarnir hafa einnig ákveð- ið forvarnargildi, því það fylgir því auðvitað ábyrgð að aka. Það eru um 90% nemenda skólans sem koma á bíl í skólann og því var einnig boðið upp á fyrirlestra um akstur og VÍS minnti á hörmulegar afleiðingar bílslysa,“ sagði Valent- ína sem sjálf ekur um á Toyotu Co- rolla 9́9 árgerð. „Þetta er fínn bíll, en ég er samt enginn glanni!“ Bílasýning nemenda fór einnig fram í gær, þar sem hver glæsi- bifreiðin af annarri skartaði sínu fegursta. Var mál manna að sjálfur Verslunarskólinn ætti jafnvel undir högg að sækja, en bílafloti vers- linga hefur löngum þótt afar glæs- legur. traustis@24stundir.is Bíladagar í Borgarholtsskóla Fjölmiðla- og fréttamaðurinn Kristinn Hrafnsson og leikarinn Campbell Scott eru nauðalíkir. Kristin þekkja flestir úr fréttum Stöðvar 2 og Kompási, en Camp- bell Scott hefur leikið í mörgum bíómyndum, til dæmis Singles, The Spanish Prisoner, The Exorc- ism of Emily Rose og Music and Lyrics. Þá leikur hann í sjón- varpsþáttunum Six Degrees, sem sýndir eru á RÚV. Kristinn og Campbell lygilega líkir FÓLK 24@24stundir.is a Ég þarf nú að fara að lesa hana aftur, það eru mörg ár síðan ég las þessa bók,“ segir Bergur. fréttir Aðþrengdur Afsakið að ég er til! ELSKAN, ER Í LAGI ÞÍN VEGNA AÐ ÉG FARI NÚNA ÚT Á SVIÐ OG TALI VIÐ ALLT ÞE TTA NOTALEGA FÓLK SEM ER Í SALNUM NÆRGÆTNIS NÁMSKEID FYRIR ALLA LEITT AÐ ÞURFA AÐ TRUFLA ÞIG EINU SINNI ENN. EN Á LEIÐINNI HEIM STAKK HANN HAUSNUM ÚT UM GLUGGANN Bizzaró Konan mín hefur alveg einstakt lag á plöntum margar þeirra hafa tekið hana meira að segja sér til fyrirmyndar MYNDASÖGUR TVÍFARINN

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.