24 stundir - 20.09.2008, Page 56
24stundir
? Senn lætur Bush af embætti forsetaBandaríkjanna. Hann segist útvalinn afguði til að leiða mannkynið til ljóssins, –og er þá líklega að tala um hið skæra ljóskjarnorkusprengjunnar. GáfnaljósiðBush hefur ekki drepið nema um nokkratugi þúsunda óbreyttra borgara í Írak,sem þykir frekar slappur árangur hjá svo
trúuðum leiðtoga.
Næsti forseti USA verður McCain sál-
ugi sem er með annan fótinn í gröfinni.
Þegar báðir fæturnir verða komnir þang-
að þá tekur varaforsetinn Sarah Palin við
en hún er sannkristin mannvitsbrekka
eins og Bússi.
Hún vill engin höft á byssueign. Segir
að stríðið í Írak sé verk Guðs. (Það er
reyndar verk Bússa en hann er hand-
bendi guðs). Hún hafnar gróðurhúsa-
áhrifunum. Er á móti hjónaböndum
samkynhneigðra. Er fylgjandi dauðarefs-
ingum. Er afar stolt af því að sonur
hennar sé slátrari í Írak. Er skilyrðislaust
á móti fóstureyðingum. Vill bara drepa
fædda einstaklinga, enda sannkristin
kona. Segir að stríð við Rússa komi vel til
greina. Hafnar þróunarkenningunni og
vill að við förum 200 ár aftur í tímann
og förum að kenna sköpunarsögu Bibl-
íunnar sem vísindi í skólum. (Ætli hún
sé Íslendingur?) Hún sagðist hafa notað
Gamla testamentið sem leiðarvísi um
það hvernig hún ætti að stjórna Alaska.
(Er Palin galin?) Þetta kallast víst í USA
að vera til hægri. Ég kalla þetta að vera
með hausinn á bólakafi uppi í borunni á
sér.
Sannkristnir krimmar í Hvíta Húsinu
Sverrir Stormsker
vill ekki fleiri þroska-
hefta Bússa
YFIR STRIKIÐ
Hvenær
verður Hómer
forseti USA?
24 LÍFIÐ
Poppsöngvarinn og rapparinn
mæta á Gljúfrastein og fjalla hvor
um sig um eina af bók-
um Nóbelsskáldsins.
Bergur Ebbi og Erp-
ur fjalla um Laxness
»50
Dagskrárstjórar RÚV ákváðu að
sættast við Stöð 2 og færa þáttinn
til svo að hann rekist
ekki á við Dagvaktina.
Svartir englar færðir
á dagskrá RÚV
»51
Nemendur Borgarholtsskóla eru
með bíladellu og héldu bíladaga í
vikunni. Nemendur
kepptu m.a. í kvartmílu.
Bíladagar í Borg-
arholtsskóla
»50
● Lætur gamm-
inn geisa „Ég legg
upp með að þátt-
urinn verði ívið
kröftugri um-
ræðuþáttur en
hefur verið. Til að
byrja með fæ ég til
mín gesti og síðan
sé ég til hvort tími gefst til að opna
símann. Það leggst vel í mig að
vakna á sunnudögum í vetur til að
setjast á bak við míkrófóninn,
enda er þetta nú ekki svo snemmt
og ég vaknaður fyrir allar aldir,“
segir Sigurjón M Egilsson um þátt
sinn Sprengisand, nýjan þjóða-
málaþátt sem hefur göngu sína á
Bylgjunni á sunnudaginn kl. 10:30.
● Hjónaplata
Dúettinn Pikk-
nikk sam-
anstendur af
hjónakornunum
Þorsteini Ein-
arssyni og Sigríði
Eyþórsdóttur, sem
vinna nú að fyrstu
breiðskífu sinni, Galdri. „Þetta er
svona póstmódernísk nýendur-
reisnarsveitarómantíkurballöðu-
tónlist,“ segir Þorsteinn til útskýr-
ingar, aðspurður hverskyns
galdratónlist prýði plötuna. Hann
segir samvinnuna ekki hafa boðið
upp á fleiri rifrildi. „Alltjent ekki
sem ég man eftir í svipinn. Það er
voða þægilegt að vinna þetta svona
heima hjá sér.“
● Bara að plata?
„Við erum að
vinna á fullu,“
segir Þórhallur
Sigurðsson, eða
Laddi, um vinnslu
á fyrstu plötu
sinni í áraraðir
með nýjum lögum
er kemur út fyrir jól. „Við erum
ekki komnir í hljóðverið ennþá en
ég er að vinna í textagerð og pæla í
lögunum og svona. Það er kominn
slatti en við ætlum að velja úr.“
Laddi segir að hljóðvinnsla verði
hröð þegar hún hefst og að „ein-
hverjir úr fjölskyldunni“ fái vissu-
lega að fljóta með.
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við