Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 07.04.1994, Qupperneq 24

Eintak - 07.04.1994, Qupperneq 24
FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994 Það er ekki fínt að reykja. Það þykir sóðalegt, hættulegt og beinlínis heimskulegt. Svo heimskulegt að Sameinuðu þjóðirnar eru búnar að samþykkja það fyrir hönd allra jarðarbúa að hætta að reykja ekki seinna en um næstu aldamót. Stórreykingamaðurinn > Proppé "Qallar hér um sígarettur og hina forsmáðu nautn að reykja. > > & Seint um kvöld Ég sat keikur í stólnum, hallaði mér aftur, dró upp pakkann og kveikti mér í sígarettu. Ég dró reykinn ofan í mig og stundi lágt. Þegar ég andaði frá mér reis grá- leitt ský fram af munni mér og huldi um stund veröldina sem stóð mér fyrir augum. Þá kom þetta í huga mér: Tóbakið er fjölær jurt af kart- öfluætt (solanum á latínu) — skyld belladonna-jurtinni sem er ban- vænt eitur líkt og tóbakið er að sögn. Tóbakið er af tegundinni ni- kotiana (nefnt eftir Jean Nicot sem var sendiherra Frakklands í Lissabon á fyrri hluta sextándu ald- ar og sendi fræ plöntunnar heim til drottningar sinnar, Katrínar af Medici). Heimahagar tóbaksins eru í nýja heiminum. Indíánarnir þar reyktu það, tuggðu og tóku í nefið, og meðal guða nýja heimsins var tóbakið ein eftirsóttasta fórnin. Maður getur ímyndað sér samræð- ur guðanna að lokinni helgistund: — Fékkst’ í nefið? — Nei, ég fékk bara geit í dag. — Hvað segirðu! Ég fékk þetta fína stykk’ í vörina. — Lukkunnar pamfíll, þú. Indíánar í Norður-Ameríku töldu tóbakið vera helga jurt og ræktuðu það í sérstökum görðum sem helgaðir voru guðunum. Yuc- hi-indíánarnir í suð-austurhluta Norður-Ameríku töldu tóbakið sprottið af sæði, en Fox-indíánarn- ir sögðu hins vegar sögu af manni sem guðirnir sendu norður á bóg- inn og sögðu að undir stóru tré myndi hann ftnna jurt sem honum bæri að hlynna að og íjölga. Þegar hann hafði komið sér upp dálítilli tóbaksekru sendi hann eftir öld- ungunum og gaf þeim öllum af- leggjara. Þannig breiddist tóbakið út. Um ræktun jurtarinnar giltu ávallt strangar reglur, líkt og nú gilda um neyslu hennar. Meðal Crow-indíánanna var komið upp sérstöku leynifélagi til að annast tóbaksræktun og - neyslu. Það hét Leynilega tóbaksfé- lagið og meðlimir þess ræktuðu einkum afbrigðið nikotiana multi- WMtlWf Htm* ****** /vtmMm', ti*MíO0Í>* ***** ****'■» r4SB- y**» *>r# *y» aweeii ‘éirtimsitm. « *»# mmrtr? valvis og þótti það nokkur ný- breytni, því frá því öndverðu höfðu menn reykt tóbakið nikoti- ana qudrivalvis. Reyndar var lítið reykt í leynifélaginu, heldur upp- skáru meðlimirnir, héldu fræjun- um eftir til að planta að ári og fleygðu blöðum jurtarinnar með mikilli viðhöfn i ánna og ákölluðu um leið guðinn Hidasta. Svo virðist sem indíánarnir hafi ekki haft mikla ánægju af því að reykja; fyrir þeim var smókurinn fyrst og fremst galdur og oft voru það aðeins töfralæknarnir — sha- manarnir — sem máttu smóka sig. I vímunni áttu þeir samræð- ur við andana. Samræður við andann Þegar hér var komið sögu hafði ég keðjureykt sjö Gauloises-sígar- ettur og var kominn í mjög and- lega stemmningu — orðinn and- stuttur, eins og töfralæknarnir orðuðu það. Ég teygði letilega fram hendina og hrærði með henni í þykkum reykjarmekkin- um sem grúfði sig eins og óveð- ursský yfir skrifborðinu. Þá sá ég að fyrir framan mig stóð hávax- inn maður, dökkur á húð og hár, en einsog grænleitur um liða- mótin. Ég hóstaði varfærnislega, teygði meðvitundina upp gegn- um nikótínvímuna og yrti á að- komumanninn: — Sæll, vinur. Viltu rettu? Hann hristi höfuðið og kveikti sér í vindli. Ég sá strax að hér var verðugur andstæðingur. Okkur nútímamönnunum sem reykja sígarettur eru vindlareykinga- mennirnir eitur í beinum, líkt og færir handverksmenn eru há- menntuðum verkfræðingum. Þeir eru óþolandi púristar — eins og jazzfrík. Ég stundi óþolinmóður: — Hver ertu? — Vertu rólegur, svaraði hann og blés framan í mig vindla- reyknum. — Þú mátt kalla mig Hidda ef þú vilt, en ég er kominn hingað til að segja þér sögu. „Enn eitt helvítis ungskáldið,“ hugsaði ég, en var þó var um mig. Það var eitthvað við þennan hávaxna mann sem heillaði mig og mér fannst ég heyra rödd í brjósti mér sem segði mér að fýlgja honum, líkt og tjaran í lungum mínum iðaði og fengi rödd. Ég fékk mér smók og lagði við hlustir. Saga tóbakguðsins Lengi var tóbakið aðeins guða- fæða, en þegar Kólumbus kom til Ameríku varð breyting á. Það var Spánverjinn Rodrigo de Xeres sem fyrstur Vesturlandabúa varð tóbaksins var. Kólumbus sendi hann upp í land til að leita að gulli, en Rodrigo sneri aftur með þær fréttir að í stað gulls hefði hann fundið heimkynni strompmann- anna. Þar búa, sagði hann, menn sem halda að þeir séu strompar og reykja allan daginn — eins og strompar. Kólumbus hélt sjálfur upp í land til sjá þessi undur en ánetjaðist ekki. Hann hélt aftur af sér. Guðirnir voru þó enn hliðhollir tóbakinu og vaninn breiddist hratt út í Evrópu. Það var í fyrstu eink- um notað þurrt í nefið, enda var hætt við að það þornaði í laufun- um á leiðinni yfir hafið. En fljót- lega fóru menn að hafa tóbakið sitt í pípu og sá siður varð svo út- breiddur að Karl II Bretakonungur fann sig knúinn til að skrifa bæk- ling gegn tóbakinu sem hann taldi sljóvgandi og jafnvel óheilsusam- legt. Um svipað leyti og Karl hóf áróður gegn tóbakinu í Evrópu var notkun þess að breiðast út uppi á tóbakið ört. Hin nýja hagfræði ní- tjándu aldar fann fyrir örvandi áhrifum tóbaks- ins og flestir helstu hag- fræðingar þessa tíma voru forfallnir reykingarmenn. Hinn ungi Liebknecht sagði vini sínum í bréfi frá reykingum Karls Marx: Marx er ákafur reyk- ingamaður. En þar sem hann er alltafblankurþarf hann alltaf að leita uppi ódýrustu vindlana í Lund- AUrAMB -»94: They JCTj éh ie&x 'l&a'.t »3* c Bww»» vm’! n. «*MK(V&Kt * tíw ffíanw frc «# ért*« ix tSw «o* *&f. ■dhtrsráiaia trM. "ÍS* HtMtTt&a, tta/K ftu ***** i*. msriNum Snmim Mwpww'*,. »«4 1,'W 5* fimwrf m; **maS «0** **t*mðiJ á' JL -y I ««*» Islandi. Það varð fljótlega mjög eft- irsótt í afdölum þessa norðlæga lands, en það voru ekki síst draug- ar, útilegumenn og álfar sem heill- uðust afþessu nýstárlega nautna- lyfi — það þótti á átjándu öld óbrigðult ráð við ásókn að bjóða draugnum í nefið. Fyrsti mann- skaði af tóbaksvöldum sem skráð- ur er á íslandi varð eina nótt eftir Þorrann árið 1751. Þá kviknaði eld- ur af tóbakspípu í bænum á Hvít- árvöllum og brunnu þrír inni en draugi var eignaður bruninn. Hagfræði tóbaksins Það varð fljótlega ljóst, hélt guð- inn áfram, að tóbaksbrúkunin væri gróðafyrirtæki. Eftirspurn kallar á framboð eins og lungun á reyk og fljótlega var komið á fót arðvæn- legum bissniss í nýja heiminum til að svala þörf þess gamla eftir ni- kotiana. Þó fór það svo að offram- leiðsla varð að vandamáli, enda vex únum. Þegar hann hefur keypt sér kassa tekur hann fyrsta vindilinn, ét- ur helminginn af honum og kveikir svo í restinni. Eitt sinn átti hann er- indi niður í Hol- born ograkstþá á vindla í búð sem kostuðu aðeins þrjá skildinga kassinn, en hann hafði þá reykt vindla sem kostuðu þrjá og hálfan. Hatin keypti marga kassa og var montinn af því að grœða sexpens á hverjum kassa sem hann reykti. Það var svo lœknir hans sem batt enda á þessa gróðastarfsemi. Tóbakshagfræðin varð þó ekki langlíf, enda vita allir að maður græðir ekkert á því að reykja ódýrt tóbak: tóbaks ber að njóta tilfulls og þá dugir ekkert neina það besta. Guðinn tekur sér málhvíld Þegar hér var komið sögu tók guðinn sér málhvíld og fór höndum um vasana, vandræðalegur á svip. — Heyrðu, sagði hann. Ég er víst lens; þú átt’ ekki rettu? Ég reif upp nýjan pakka, bauð guðinum sígarettu og fékk mér eina sjálfur. Þegar við höfðum kveikt í og fengið okkur fyrsta smókinn sagði hann: — Það er langt síðan ég hef reykt þessa tegund. Ég þarf I annars að segja þér söguna af j því hvernig sígaretturnar urðu til... Hvernig sígarettur urðu tíí og guðirn- ir hættu að reykja Það var end- ur fyrir löngu, þegar Puebló- indíánarnir réðu vesturslétt- unum, að farið var að rækta ni- kotiana rustica sem menn höfðu áður tínt villta. Þessi teg- und var í uppá- haldi hjá mörg- um af valda- mestu þjóðun- um á sléttunum um þetta leyti, en hún hefur þann galla að blöðin eru götótt og það er erfitt að vefja úr þeim góða vindla. Þá var það að hugvitsöm- um indíánastrák kom í hug að vefja tóbakið í kornblað. Hann skar tóbakið sitt smátt, reif sér hæfilega stórt stykki úr þurru kornblaði og rúllaði fyrstu rettuna. Hinir strákarnir vildu að sjálfsögðu ekki vera minni menn og fýrr en varði voru allir í þorpinu púandi sígarettur. Þessar frumstæðu sígarettur náðu þó ekki mikilli útbreiðslu og á endanum þurfti að enduruppgötva þær í Evrópu. Það voru fá- tæklingar á Spáni sem fóru að veíja sér rettur með pappír úr ódýrum tóbaksúrgangi og köll- uðu þetta papeletes eða cigarillos. Franskir og enskir soldátar kynnt- ust svo þessum sið þegar þeir börðust á Spáni í Napóleóns- stríðinu árið 1814. Fyrsta sígarettuverk- smiðjan var þó byggð í heimalandi vindlanna, Kúbu, árið 1853. Mark- hópurinn var einkum bandarískar konur, enda var strax árið eftir farið að kvarta yfir þessu í New York: „Tískudrósirnar apa það upp eftir útlend- ingum að reykja tóbak úr pappír, en það er veikari og um leið kvenlegri útgáfa af vindlum.“ Á næstu árum fjölg- aði sígarettuverksmiðjunum. Breskir hermenn komust í tæri við tyrkneskar sígarettur í Krímsstríð- inu og komu allir reykjandi heim. Afkomendur þeirra urður nær allir stórreykingamenn. Árið 1880 voru framleiddar 500.000.000 sígarettur og áttatíu árum síðar var ársfram- leiðslan komin upp í 500.000.000.000 rettur. Tóbakslaust 1 guðaheimum Það var upp úr þessu, sagði guð- inn, að þeir hættu að fórna okkur tóbakinu og fóru að reykja það allt sjálfir. Þetta var erfiður tími hjá okkur guðunum. Sumir urðu svo stressaðir að þeir eyddu heilum þjóðflokkum í tómu ergelsi, en aðrir fóru að sækjast eftir matfórn- um og hlupu í spik. Flestir hættu alveg að reykja og urðu svo heilagir að það mátti ekki fá sér smók ef þeir voru nærri. Á endanum vor- um við reykingarguðirnir útskúf- aðir algjörlega og þannig byggðist helvíti. Eru reykinaar af hinu illa? Þegar guðinn sagði þetta var eins og rofaði til í huga mér. Ég drap í og spurði hvassyrtur: — Ertu að segja mér að sígarett- urnar séu af hinu illa? — Nei, nei. En það var samt yfir þessu reykingamáli að við fórum að greina milli góðs og ills. Áður reyktu þeir sem vildu en aðrir átu sveppi eða geitur eða þáðu mann- fórnir. Allir voru sáttir og undu hver öðrum sína nautn, en þegar hallærið kom var eins og enginn gæti séð annan í friði. Þá var hver með nefíð ofan í annars koppi og ef það fannst reykingalykt úr kopp- inum þá var fjandinn laus. — Éáttu mig þekkja það! Nú er áróðurinn orðinn svo mikill gegn reykingum að það þarf sterkan ka- rakter til að hætta ekki.0 i

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.