Eintak - 09.06.1994, Síða 15
Þórír Waagfjörð leikur stórt hlutverk í Kjartan
Tale, víkingamyndinni sem bandaríski leikstjórin
og kvikmyndatökumaðurinn Míchael Chapma
hetur nýlokíð við að taka i
Tútí
Waagetjörd
Extrablaðiö: Hver er Tóti
Ég er tvítugur og var aö útskrifast sem stúd-
ent frá Versló, ósköp venjulegur íslendingur.
E:Hvernig fékkstu hlutverkið?
Já, það er nú dálítil saga á bakviö það. Systir
mln fór á casting fyrir myndina í Los Angeles og
hún fréttir þar að þaö vanti hávaxinn og rauö-
hæröan strák T myndina svona um það bil 18-20
ára I eitt af stærri hlutverkunum I myndinni. Og
hún segir viö þá sem sáu um að ráða leikarana að
hún eigi bróöur sem passi vel í hlutverkið og lætur
þá fá símanúmerið mitt og segir þeim að tala viö
mig. Síöan hringir hún I mig og segir að ég eigi von
á símtali um að vera beöinn um að leika I einhverri
bíómynd. Þeir hringdu og ég fór í prufu og var boöiö
hlutverkiö í framhaldi af því. Og ég ákvaö aö slá bara
til uppá gríniö.
E:Hefurðu leikið eitthvað áöur?
Nei, þaö er varla hægt að segja þaö. ég tók þátt í nem-
endamótssýningu Versló I ár, Jesus Christ Superstar.
Þar lék ég hermann og fékk að stinga Jesú á krossinum
meö spjóti, þaö er nú allt og sumt. Þaö er dálítiö fyndið
aö þegar var veriö aö taka upp myndina hitti ég Þorstein
Bachman, sem er leikari og leikstýröi Verslósýningunni, ég
spuröi hann hvað hann væri aö gera og hann sagðist vera
að leika I myndinni. Viö hlógum síöan mikiö aö því þegar
þaö kom í Ijós að mitt hlutverk var töluvert stærra en hans
því hann var nýbúinn aö leikstýra mér.
E: Hvernig var aö leika viö hliðina á atvinnuleikurum?
Það var mjög gaman, maöur heyrði mikið af skemmtileg-
um sögum og lærði mikið af þeim.
E:Kom þér eitthvað sérstaklega á óvart
geröina?
Já, þaö er voðalega skrítiö að maöur hefur ekki hugmynd
um hvernig myndin kemur til með að líta út þegar hún er
tilbúinn. Annaö sem kom mér dálítið á óvart var hve mikill
tími fór í biö. Ég var stundum mættur klukkan sex á
morgnana og fór heim klukkan nlu um kvöldið en samtals
yfir daginn vann maöur kannski ekki nema þrjá eða fjóra
klukkutíma, hitt var allt biö. Þaö tók tíma að venja sig viö
að hanga og gera ekki neitt. Fyrir vikið reykti maöur bara
meira og lét sér leiðast.
E:Stressaði þaö þig eitthvaö að leikstjórinn hefur áður
unnið með leikurum eins og: Tom Cruise, Robert DeNiro,
Harrison Ford og Tommy Lee Jones?
Nei.nei, ég pældi ekkert I því.
E: Hvor er stærri þú eða Ralph Muller? (sá sem leikur að-
alhlutverkið, þýskur risi, fyrrverandi vaxtarræktarmeist-
ari)
Hann er mun stærri. Ætli hann sé ekki eitthvaö um tveir
metrar og þvl sjö sentimetrum stærri en ég. Svo er hann
örugglega tvisvar eöa þrisvar sinnum breiöari ég.
En þú ert þó ekki lítill. Hvernig
er að vera svona stór?
Það er dálítið erfitt, maður sker sig
úr. Svo er ég rauðhærður I þokka-
bót, sem er skemmtileg blanda.
E: Hvaö á að gera núna þegar tökur
á myndinni eru búnar?
Ég er aö fara í útskriftaferö til Portú-
gals, þaö fer tvöhundruö manna hópur
frá Versló svo það verður örugglega mik-
ið fjör. Þegar ég kem heim aftur fer ég aö
vinna I álverinu I Straumsvík. Einhvern
tlmann næsta vetur ætla ég svo aö fara til
Los Angeles og heimsækja systur mína og
liðiö sem var með mér I myndinni. Annars
hef ég ekkert planað neitt langt fram I tím-
ann.
E: Ertu ekkert farinn aö spá í hvað þig lang-
ar til að veröa?
Nei, mest litið. Ég veit ekki hvort kvikmyndaleik-
urinn heillar. Framleiðandinn og leikstjórinn voru
aö hvetja mig til að halda áfram og fara út I leik-
list svo þaö sem ég var aö gera viröist virka fyrir
framan myndavélina. Annars er þetta allt frekar
óráöið. Mig langar að minnsta kosti til aö feröast
og skoöa heiminn.
E:Hvað er þaö hættulegasta sem þú hefur gert?
Ætli maöur hefi ekki verið I mestum lífsháska þegar
ég var útl Vestmannaeyjum og klifra I klettunum þar
og var næstum dottin niöur. Þaö heföi veriö ansi hátt
fall.
E: Hverri af þessum þrem vildir þú helst lenda með á
eyðieyju: Ingibjörgu Stefánsdóttur, Steinunni Ólinu eöa
Ólöfu Rún Skúladóttur?
Ingibjörgu. Hún er skemmtileg og góöur félagi.
E: Hvað ætlar þú að vera búinn að gera áður en þú verð-
ur þritugur?
Hætta aö reykja og næla mér I kvenmann.