Eintak - 09.06.1994, Síða 16
DIGABLE
Digable Planets er ekki ein
hip hop
hljómsveit sem samplar upp úr gömlum djasslögum.
Ishmael Butler, eða Butterfly eins og hann kallar sig,
leiötogi Digable Planets ólst upp við að hlusta á plötur
pabba slns með gömlum bebob djasshetjum eins og Max
Roach, Dizzie Gillespie, Miles Davis og Charlie Parker. Þeg-
ar hann komst á unglingsárin fór hann að hlusta á rapp og
sá eins og fleiri að það var sterkt samband á milli djass og
rapps. Bæði djassinn og rappið eru tónlistarstefnur sem
eru sprottnar uppúr svörtum kúltúr en þessar stefnur eiga
margt annað sameiginlegt. Djassinn var til dæmis ekki
minni áhrifavaldur á fatatísku á sínum tíma en rappið varö
seinna. Butterfly segir aö hann sé aö sýna djassinum virð-
ingu með tónlist sinni þó hann hiki ekki við að nota þessa
tónlist sem er frá annarri kynslóð eins og honum sýnist.
Digable Planets varð þannig til að Butterfly og félagi hans
Doodlebug voru nýbúnir að stofna hljómsveit en voru lítið
annað búnir aö gera I þeim málum. Svo var þaö einu sinni
sem þeir voru að skemmta sér aö þeir hittu stelpu sem
Doodlebug kannaðist við. Kvöldið endaði með þvj að þeir
skutluðu henni heim og á leiðinni í bílnum rappaðí hún fyrir
þá. Þeir urðu svo hrifnir að þei buðu henni umsvifalaust aö
ganga í Digable Planets. Stelpan heitir Mary Ann Vieria, Lady-
bug er listamannanafnið hennar en vinir hennar kalla hana .,
Mecca og hún var bara nítján ára þegar Ish og Doodlebug
lnttu hana fyrir tveimur árum siöan.
Þaö var síðan í fyrra sem þau í Digable Planets gáfu út sína
fyrstu plötu: Reachin A New Refutation of Time and Space.
Aöur en platan kom út sagði Mecca aö þau væru aö gera hluti
sem væru svo frábrugðnir ööru sem var þá á seyöi aö annað
hvort yröu þau að athlægi eöa slægju í gegn, Hún haföi rétt
fyrir sér að hálfu leiti því platan náði gullsölu í Bnadaríkjunum
og gagnrýnendur hófu til skýjanna.
Eiður Snorri hitti Butterfly, Doodlebug og Ladybug einn sólrík-
an dag í Los Angeles og smellti þá þessari mynd af þeim.
";aáá
Planets