Eintak - 09.06.1994, Page 22
-Meöan við bíðum er tilvalið að rifja upp
sögu Saint Etienne.
Það var árið 1990 sem Pete Wiggs og Bob
Stanley ákváðu að setja saman hljómsveit.
Þeir voru frá byrjun staðráðnir I því aö gera
bara þaö sem þeir höfðu gaman af og fyrsta
smásklfulag hljómsveitarinnar, gamli Neil
Young slagarinn „Only Love Can Break Yo-
ur Heart" í poppútsetningu er ágætis
dæmi um það. Þetta lag féll I ágætis jarö-
veg og strákarnir héldu aftur í hljóðver og
tðku upp næsta smáskífulag sem var
„Kiss and Make Up“. Á þessum tíma var
Sara Cracknell ekki komin til sögunnar
heldur höföu aörar söngkonur liösinnt Bob
og Pete á tveimur fyrstu plötum. Sara
söng hins vegar á þriöju smáskífu Saint
Etienne, „Nothing Can Stop Us Now" sem
var svo sannarlega réttnefni því hljóm-
sveitin sló I gegn i Bretlandi meö þessu
lagi og Sara varö fastur meölimur í Saint
Etienne. Áriö 1991 sendi hljómsveitin frá
sér stóra plötu, Foxbase Alpha, og gagn-
rýnendur tóku aö keppast viö aö hlaða Sa-
int Etienne lofi. Síöan þá hafa komiö út
tvær breiðskífur með hljómsveit-
inni: So Tough sem kom út í fyrra
og Tiger Bay sem er nýkomin út.
Saint Etienne varð fljótt eftirlæti
bresku tónlistarpressunnar sem á
sinn yfirlýsingaglaða hátt kallaöi
hljómsveitina poppband tíunda áratug-
arins.-
Þegar síðustu tónar „Like a Motorway",
nýjasta smáskífulags Saint Etienne, eru
að deyja út birtist Bob í salnum, og Sara
og Pete stíga niður af sviöinu og koma til
okkar.
Veöriö er svo gott aö viö ákveöum aö
spjalla saman úti. Viö röltum út fyrir og
komum okkur vel fyrir í sólinni ð bökkum
síkis sem liggur steinsnar frá salnum.
Saint Etienne er búin aö vera á miklu
tónleikaferöalagi um meginland Evrópu
og Bob, Sara og Pete eru hálf þreytu-
leg. „Þaö er eins og við höfum veriö
mörg ár á feröalagi þótt þetta séu
bara rúmlega tvær vikur," segir Pete
og Sara bætir viö: „Viö erum farin aö
halda aö viö komumst aldrei heim,
en sem betur fer eru bara tveir dagar eftir
af feröinni." Þaö hefur verið stlf keyrsla á
bandinu, þau hafa fariö til sex landa á átj-
án dögum og haldið fimmtán tónleika.
Hvernig lif er þetta?
„Maöur gleymir því hvernig lífiö gengur fyrir
sig heima," segir Sara, „þetta er hálf óraun-
verulegt líferni, maður sefur lítið og þaö fer
allt úr skorðum. Það sem er þó skritnast af
öllu er að eiga heima í bll," bætir hún viö og
bendir á tveggja hæöa risastóra rútu sem
er lagt fyrir utan tónleikasalinn.
Var þaö draumur ykkar þegar þið voruð
litil að vera í hljómsveit?
„Á hverjum degi," segir Bob og hin eru hon-
um mjög sammála.
Hvernig er þetta núna þegar draumur-
inn hefur ræst?
„Þetta er helmingi skemmtilegra en ég
bjóst viö. Þegar ég var lítil vissi ég ekki af
öllu þessu skemmtilega sem fylgir því að
vera í hljómsveit fyrir utan aö spila tónlist.
Hið villta líf og allt þaö," segir Sara. „Hún
er að tala um áhættuþáttinn viö aö vera I
hljómsveit," segir Pete.
„Þegar ég var lítill langaöi mig annaöhvort
aö vera í hljómsveit eöa aö vera fótbolta-
maður. Ef ég hefði fariö I fótboltann væri ég
sjálfsagt meö ónýt hné núna og bæklaður
fyrir lifstíö. I staöinn er ég sjálfsagt aö eyöi-
leggja lifrina í mér fyrir lífstíö meö bjór-
drykkju," segir Bob.
Nú er mikið bjórþamb á ykkur?
„Bara þegar viö erum á tónleikaferö," segir
Boþ. „Þegar viö erum heima snertum viö
það ekki," segir Sara og heldur áfram:
Þetta er bara hluti af því að lifa í svona
óraunverulegum heimi. Þegar heimili
manns er í rútu fer maður aö gera alls
kyns hluti sem maöur er ekki vanur að
gera."
Hafið þið farið i margar tónleika-
feröir?
Pete svarar þessari spurningu: „Þetta
er í fyrsta skipti sem viö förum i tón-
leikaferð utan Bretlands. Viö höfum
farið einu sinni til Japans og spiluö-
um þá nokkrum sinnum þar en
HlfllM: