Vikublaðið - 30.12.1992, Síða 9
Miðvikudagur 30. desember 1992
VIKUBLAÐiÐ
9
hefur svikið þjóðina
tekur hann ákvörðun unt veigamiklar
breytingar á heildarstei'nunni.
Leifur: Verkalýðshreyfingin þarf
að móta sér stefnu í velferðarmálum.
En það er erfitt að mynda sér skoðun
þegar ríkisstjómin skiptir um stefnu
yfir nótt. Það er engin leið að vita
hvað þessir menn eru að fara. Ég
treysti engum ráðherra ríkisstjómar-
innar með barn yfir læk þótt hann
væri vatnslaus; þeir myndu ábyggi-
lega geta drekkt baminu. Það er ekki
Þetta er blaut tuska framan í okkur.
Guðmundur: Þegar svo verð-
bólgan fer af stað eftir áramót má
búast við fjöldagjaldþroti heimila í
landinu. Það er þrengt að fólki á öll-
um sviðum og ekkert er að gert. Það
er talað um álver einhvem tíma í
framtíðinni og að EES eigi að redda
svo og svo miklu og þar fram eftir
götunum. I gærkvöldi heyrðum við
félagsmálaráðherra segja að aðgerðir
ríkisstjómarinnar væru í takt við það
tengivagni eða krana og hefur unnið
í 15 ár hjá sama fyrirtækinu, hann
fær 56 þúsund krónur á mánuði. En
tölum áfram um bætumar sem eru
rétt rúmar 46 þúsund á mánuði og
með hverju bami eru borgaðar 85
krónur á dag. Ég fór úl í búð í gær og
sá að ef bam biður um eina hangi-
kjötssneið í dag þá verður það að
bíða til morguns eftir smjöri og
brauði; 30 grömm af hangikjöti
kosta 85 krónur. Við erum að tala um
skrá að skerða kjörin, afnema rétt-
indi og loka sjúkrahúsum. Það var
allt annað sagt í kosningunum og
þegar ríkisstjómin svíkur þjóðina á
þennan hátt verðum við að bregðast
við því og fara í þennan slag.
Eiríkur: Það má líkja þessu við
fararstjóra sem hefur tekið að sér að
fara á tiltekinn áfangastað. Ef farar-
stjórinn fer eitthvað allt annað en um
var samið verður að kasta honurn út
og hópurinn ræður sér nýjan farar-
langt þá er henni vikið frá. Ég er
þeirrar skoðunar að við eigum að
gera allt sem í okkar valdi stendur til
að koma þessu ferlíki frá.
Blaðamaður: Hvaða meðöl hefur
verkalýðshreyfingin til knýja fram
breytingar?
Guðmundur: Það verða bara
átök, stríð. Ég sé ekki að við fáum
breytingar með því að skrifa bæna-
skjöl. Ríkisstjómin - sérstaklega
Sjálfstæðisflokkurinn - er búin að
Sigríður Kristinsdóttir
Þegar Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
segir að þetta lagist ekki fyrr en EES tekur gildi
þá skil ég ekki hvað hún er að fara.
Leifur Guðjónsson
Mér skilst að það sé orðin hálfs mánaðar bið
eftir viðtali hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur.
Eiríkur Jónsson
Aðstoðarmaður forsœtisráðherra sagði við
okkur að aðgerðir ríkisstjórnarinnar snerust
ekki um peninga heldur prinsipp.
hægt að vinna með þessum mönn-
um. En það er annað sem við þurfunt
að taka inn í umræðuna og það er at-
vinnuleysið. A borðinu hjá okkur í
Dagsbrún eru núna 100 umsóknir um
atvinnuleysisbætur og í dag eru tíu
atvinnuiausir Dagsbrúnarmcnn að
fara í 16 vikna bið og fá engar bætur
þann tíma. I yfirlýsingu forsætisráð-
herra frá síðustu samningum stendur
skýrum stöfum að það skuli strax á
þessu ári unnið að því að draga úr at-
vinnuleysi. En hvað hefur verið gert?
Þeir settu peninga í vegafram-
kvæmdir en eru núna að taka þá til
baka í botnlausan kassann.
Atvinnuleysið alvarlegast
Guðmundur: Öll vandamál eru
lítil miðað við atvinnuleysið. Fólk
missir vinnuna og allar áætlanir þess
fara úr skorðum, það missir sjálfs-
virðinguna og þegar atvinnuleysis-
bætumar er teknar af verður fólkið
að leita til félagsmálastofnunar,
segja sig til sveitar. Við þurfunt fyrst
og fremsl að vinna bug á atvinnu-
leysinu.
Guðrún: Og þegar við erum að
ræða þetta þá stendur ríkisstjórnin
upp og hreykir sér af því að við séum
samt undir Evrópumeðaltali í at-
vinnuleysi. Þessi þjóð er ekki undir
það búin að hafa hér atvinnulcysi.
sem Alþýðusambandið hafði sagt, en
það er algjörlega út í hött.
Guðrún: Jafnframt sagði hún að
stjómarandstaðan hefði engar tillög-
ur fram að færa, en Alþýðubandalag-
ið var með tillögur sem á margan
hátt voru góðar.
Sigríður: Félagsmálastofnun
Reykjavíkur stærir sig af því að það
sé svo gott skipulag hjá þeim að þeir
noti ekki alla þá peninga sem eru til
ráðstöfunar. Skipulagið virðist mið-
ast við að reisa girðingar þannig að
fólk kcmst ekki að hjá stofnuninni.
Fólk sem hefur ekkert að borða og er
sagt að það geli komið til félags-
málastofnunar eftir þrjár vikur, það
hefur ekkert á meðan. Fólk er auð-
mýkt á öllum vígstöðvum, það fær
ekki einu sinni það sem það á rétt á.
Guðmundur: Nú er farið að gefa
súpu.. .
Sigríður: Já, þetta er orðið eins
og í Ameríku. Þegar Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráðherra, segir að
þetta lagist ekki fyrr en EES tekur
gildi þá skil ég ekki hvað hún er að
fara. í Evrópu eru tíu milljónir at-
vinnulausra.
Leifur: Við erum að tala hér um
atvinnuleysisbætur upp á 46 þúsund
krónur á mánuði. En þeir sem eru á
berstrípuðum taxta fá ekki miklu
tneira. Dagsbrúnannaður á hæsta
taxta hjá okkur, sem starfar á stórum
sjö til átta þúsund manns og þetta at-
vinnulausa fólk á sama rétt til að lifa
og við hin. Verkalýðshreyfingin
verður að taka á þessu máli og við
verðum að nota janúar til að stilla
saman krafta okkar og nota allar lög-
legar aðferðir til að breyta þessu
ástandi.
Alþýðan hefur ekki efni á ríkis-
stjórninni
Blaðamaður: Benedikt Davíðs-
son, forseti ASÍ, sagði í sjónvarps-
viðtali fyrir skömrnu að hann gæti
vel hugsað sér að taka þátt í því að
koma ríkisstjóm frá sem væri and-
stæð verkalýðshreyfingunni. Rökin á
móti þessu sjónarmiði eru að þjóðin
hefur kosið þessa stjómmáiaflokka
lil að fara með ríkisstjómarvald.
Guðmundur: Þessi ríkisstjóm á
að fara frá. Það er í sjálfu sér ekki
markmið að koma ríkisstjóminni frá,
heldur að hafa áhrif á afgreiðslu
mála og þótt ein ríksstjóm fjúki þá er
engin eftirsjá í þvt. Okkar kjör ráðast
ekki í samningum við atvinnurek-
endur, kannski að minnstu leyti þar.
Öll okkar stærstu kjaratnál hafa
komið í gegnutn löggjafann sem hef-
ur hlustað á kröfur verkalýðshreyf-
ingarinnar á mörgum sviðutn.
Stjómarflokkarnir fóru ekki út í
þessar kosningar með það á stefnu-
stjóra. Það er ekki markmið verka-
lýðshreyfingarinnar að standa fyrir
stjórnarskiptum, en það getur verið
nauðsynlegt.
Leifur: Engin stjómmálaskoðun
er svo heilög að ekki megi hafna
henni fyrir hagsmuni verkalýðsins.
Sigríður: Það er engin ástæða
fyrir verkalýðshreyfinguna að gang-
ast inn á trúarbrögð ríkisstjómarinn-
ar. Fólkið í landinu hefur byggt upp
þetta þjóðfélag, en ekki ríkisstjómin.
Ef ríkisstjórn reynir að eyðileggja
þetta þjóðfélag verður að koma
henni frá.
Eiríkur: Aðstoðannaður forsæt-
isráðherra sagði við okkur að að-
gerðir ríkisstjómarinnar snerust ekki
unt peninga heldur prinsipp.
Sigríður: Það var Ólafur Davíðs-
son sem sagði þetta þegar við rædd-
um um velferðarkerfið. Prinsippið
var það að þegar við vorum búin að
semja um að ekki skyldi hróflað við
velferðarkerfinu þá skrúfuðu þeir í
sundur lappimar á rúmum gamal-
menna og sendu þau á Vífilsstaði.
Prinsippið var að loka sjúkradeildum
til að sýna að Jreir hefðu valdið.
Guðrún: Islensk alþýða hefur
ekki efni á að hafa þessa ríkisstjóm
lengur. Hún var kosin á allt öðrum
forsendutn heldur en hún hefur starf-
að á. Það eru fordæmi fyrir því að
þegar ríkisstjóm hefur gengið of
svíkja allt sem lofað var í kosningun-
um. Skattar hafa hækkað og þeir lof-
uðu stöðugleika, en hvaða stöðug-
leiki er það þegar 500 manns missa
vinnuna í hverjum mánuði. Verka-
lýðshreyfingin getur aðeins farið út í
baráttu, hún hefur ekki efni á öðru.
Sigríður: Fólk hefur engu að
tapa. Það er alltaf verið að hóta, það
á að taka barnabætur af fólki, hækka
lyfin, hækka skatta og svo má áfratn
telja. Okkur er sífellt hótað til að
halda okkur í hræðslu og óvissu, en
fólk lætur ekki bjóða sér þetta leng-
ur. Eina von okkar er að öll verka-
lýðshreyfingin standi saman.
Blaðamaður: Er von til þess?
Eiríkur: Það er ekkert sem kemur
í veg fyrir það. Stjómvöld reyna að
vísu alltaf að setja eitthvað fram sem
splundrar samstöðunni. Við verðutn
bara að sýna þá skynsemi að láta rík-
isstjómina ekki komast upp með
slíkt.
Leifur: Ef við snúum okkur ekki
að þessurn málum strax eftir áramót
eru við illa stödd. Verkalýðshreyf-
ingin verður að standa saman sem
einn maður, annars verður valtað yftr
okkur.
Guðmundur: Það er andskotans
ábyrgðarleysi að láta þetta yfir okkur
ganga án þess að bregðast við með
öllum t'áðum.
Páll Vilhjálmsson