Vikublaðið


Vikublaðið - 17.09.1993, Qupperneq 1

Vikublaðið - 17.09.1993, Qupperneq 1
Karl Marx Er hægt að fella samfélags- þróunina á Islandi að marxískri sögutúlkun? Eða er íslenski veruleikinn handan stéttabarátm og kapítalisma? BIs. 5 Endalok SVR Þegar SVR var breytt í há eff þá var fyrsta skrefið stigið í átt einkavæðingar. Það verður upphafið að endalokum strætó í Reykjavík. Bls. 6-7 Einkavinir Vinsælasti fasti dálkur Vikublaðsins er „Einkavinur vikunnar." I dag er hann tvö- fadur og tilbúinn í fjölskyldu- abúmið. BIs.7 •Wikubla 36. tbl. 2. árg. 17. september 1993 Ritstjóm og afgreiðsla: sími 17500 250 kr. B Ð M V I Kratar undirbúa uppgjör í ríkisstjórn Stjórnarsamstarfið verður látið stranda á kjötinnflutningi og ríkissjóðshalla Alþýðuflokkurinn býr sig undir uppgjör við Sjálf- stæðisflokkinn í ríkis- stjóm Davíðs Oddssonar. A- greiningsefnin scm verða látin skera úr um ffamtíð ríkisstjóm- arsamstarfsins em innflutningur á landbúnaðarafurðum og hall- inn á ríkissjóði. Jón Baldvin I lannibalsson, utan- ríkisráðherra og formaður Alþýðu- flokksins, boðar „fyrirsjáanlegt hmn Iandbúnaðarkerfisins“ og ætl- ar í samstarfi við Jóhannes Jónsson, kaupmann í Bónus, að tryggja inn- flutning á kjöti í gegnum Keflavík- urflugvöll en utanríkisráðherra er yfirmaður tollgæslunnar þar. Þá ætla ráðherrar Alþýðuflokks að herma stíft upp á forsætisráðherra óljós loforð hans um að skera niður ríkisútgjöld um 4-5 milljarða króna þegar fjárlög koina til umræðu á Alþingi í byrjun næsta mánaðar. Ráðherrar Alþýðuflokksins telja sig hafa stcrka stöðu í málefhum sem búast rnegi við að verði hita- mál í næstu kosningum. Forystu- Réttarhjálp í ólestri Almenningur á Islandi á ekki kost á sambærilegri réttarhjálp og veitt er í ná- grannalöndum. Nokkur laga- fmmviirp um opinbera rétt- araðstoð hafa dagað uppi á Alþingi stðustu árin. Lögmannafclag íslands hefur af því áliyggjur að léleg rétt- araðstoð við einstaklinga leiði til þess að fólk, sérstaklega það sem er efnalítið, veigri sér við að leita réttar síns. Það mun aftur leiða til þess að rýra traust almennings á réttarkerfinu. Ragnar Aðalsteinsson, for- rnaður Lögmamtafélagsins , for þess nýlega á leit við dóms- málaráðherra að hann hlutaðist til um að auka réttarhjálp hins opinbera. Þorsteinn Pálsson lýsti því yfir hann myndi fljót- lega skipa nefnd til að rneta þörfina fyrir réttaraðstoð og hve inikill kostnaðurinn yrði. A þeim grundvelli myndu stjórn- völd taka afstöðu til málsins. mcnn flokksins, sérstaklega þeir Jón Baldvin og Sighvatur Björg- vinsson iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, hafa beitt sér af þunga í deil- um um innflutning á landbúnaðar- afurðum og krafist þess að Hag- kaupum verði leyft að selja dönsku skinkuna sem verslunin flutti inn. Þegar Davíð Oddsson forsætisráð- Davíð Oddsson á jýrir höndum erf- iðan lamlsfund Sjálfsta:ðisflokksins og til að halda stnðning landsbyggð- arinnar verður hann að halda land- búnaðararmi flokksins góðum. Kratar vilja að rikisstjómarsam- starfið strandi á landbúnaðar- og byggðamálum. herra úrskurðaði að landbúnaðar- ráðherra skyldi hafa forræði yfir innflutningi landbúnaðarafurða var talið að vopnin væru slegin úr höndum Alþýðuflokksmanna. Jón Baldvin unir því ekki að Sjálfstæð- isflokkurinn lold á kjötinnflutning og ætlar sér að nota aðstöðu sína sem yfirmaður tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli til að leyfa inn- flutning á kjöti. Samflokksmaður Jóns Baldvins, Jóhannes Jónsson eigandi verslun- arkeðjunnar Bónus, fær um helgina 200 kíló af kalkúnakjöti með flugi frá Kaupmannahöfn og ætlar að fá kjötið afgreitt á Keflavíkurflugvelli. Urskurður forsætisráðherra í skinkumáli Hagkaupa felur það í sér að allur innflutningur á kjöti er háður leyfi Framleiðsluráðs land- búnaðarins. Jóhannes í Bónus mun ekki leita eftir umsögn Fram- leiðsluráðs og Jón Baldvin hyggst leyfa tollafgreiðslu kjötsins á Kefla- víkurflugvelli. I ffamhaldi munu bændasamtökin leggja að landbún- aðarráðherra að bregðast við ráðslagi utanríkisráðherra. Vegna þess sem á undan er gengið er Halldóri Blöndal land- búnaðarráðherra ekki stætt á öðru en að mæta Jóni Baldvin af fullri hörku. Davíð Oddsson styður Halldór í þessum slag enda hefúr hann þegar fallist á sjónarmið land- búnaðararmsins í Sjálfstæðis- flokknum. „Billegar atkvæðaveiðar“ Skinkumál Hagkaupa og kalkúnalæri Bónuss halda athygli Baldvin tapaði ormstu í stríðinu um kjötinnflutning við ráðherra Sjálf- stieðisflokks en í samvinnu við versl- unarkeðjuna Bónus ætlar hann að halda átökunum áfram og leyfa innflutning á kjöti um Keflavikur- flugvöll. fjölmiðla og almennings við mál- efhi landbúnaðarins og það þjónar hagsmunum Alþýðuflokksins sem leggur mikið upp úr sérstöðu sinni í þessum málaflokk. Forystumenn flokksins telja að ef takist að brjóta á bak aftur innflutningsbann á kjöti muni það duga flokknum vel í næstu kosningum. Hinsvegar eru litlar líkur til þess að Sjálfstæðis- flokkurinn fallist á nokkra mála- iniðlun í kjötinnflumingi. A fundi með Alþýðuflokks- mönnum í vikunni Iét Jón Baldvin þau orð falla að örlög landbúnaðar- kerfisins muni ráðast “í fyrirsjáan- legri framtíð“. Hann kvaðst hafa tapað omistu þegar komið var í veg fyrir innflutning á Hagkaupa- skinkunni en bað flokksmcnn sína að örvænta ekki því að stríðinu væri hvergi nærri lokið. Formaður Al- þýðuflokksins hefur þegar fjárfest það mikið í stefnu sinni gagnvart landbúnaðinum að hann má illa við annarri tapaðri orrustu. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins þykjast sjá að hverju stefni. Friðrik Sophusson, sem löngum hefúr verið hlynntur auknu frjáls- ræði í kjötinnflumingi, hefur þveg- ið hendur sínar af málflutningi Jóns Baldvins og sagði í útvarps- frétmm í vikunni að utanríkisráð- herra væri á „billegum atkvæða- veiðurn." Hvaða loforð gafDavíð? Málflutningur Alþýðuflokksins í landbúnaðarmálum er tvfþætmr. Annarsvegar krefst flokkurinn af- náms innflumingshafta á landbún- aðarafurðum og hinsvegar niður- skurðar á opinberum frainlögum til landbúnaðarkerfisins. Frainlög til landbúnaðarins munu koma til umræðu á Alþingi í tengslum við fjárlögin. A fundi með flokksmönnum sín- um í vikunni sagði Jón Baldvin að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi gefið ráðherrum Alþýðuflokks loforð fyrir því að fjárlagafrum- varpið verði endurskoðað af ríkis- stjórninni í haust með það fyrir augum að draga úr halla ríkissjóðs. Formlega er ríkisstjórnin búin að ganga frá afgreiðslu fjárlagafrum- varpsins og það er farið í prenmn með 10 milljarða króna halla. Á fundinum sagði Jón Baldvin reynslu fyrir því að innbyggð skekkja í fjárlagafrumvörpum leiði ávallt til þess að hallinn fari ffain úr áætlun. Þess vegna hafi ráðherrar Alþýðuflokks lagt á það áherslu að ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að fjárlögin verði ekki samþykkt nema með um 5 milljarða króna halla. Alþýðuflokksmenn krefjast þess að frekari niðurskurður á útgjöldum ríkissjóðs verði einkum á sviði landbúnaðar-, samgöngu- og menntamála. Þessir málaflokkar heyra undir ráðherra Sjálfstæðisflokks sem Al- þýðuflokksmenn telja að hafi sloppið vel frá niðurskurði. Ólík- legt er að Davíð Oddsson hafi gef- ið ráðhermm Alþýðuflokks vilyrði fyrir niðurskurði á sviði landbún- aðar- og samgöngumála. Þetta eru dæmigerð byggðamál og Davíð Oddsson á fyrir höndum erfiðan landsfúnd í haust þar sem sjálfstæð- ismenn ráða ráðum sínum. Ef Dav- íð ætlar að gera sér vonir um breið- an stuðning flokksmanna þá verður hann að halda landsbyggðafulltrú- um flokksins góðum. Harkalegur niðurskurður á fjárveitingum til byggðamála er ekki heppilegasta leiðin til þess. Jóhönnumál setja strik í reikinginn Uppákoman þegar Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráðherra gekk af fundi ríkisstjórnarinnar til að mótmæla afstöðu ríkisstjórnar- innar til húsaleigubóta setti strik í reikning Jóns Baldvins og félaga hans í forystuliði Alþýðuflokksins. Jóhanna er fulltrúi vinstri vængsins í Alþýðuflokknum og nýtur stuðn- ings langt út fyrir raðir flokks- manna. Það myndi draga verulega úr fylgi Alþýðuflokksins ef Jóhanna stæði utan flokksins í næstu kosn- ingum eða væri í opinberri and- stöðu við formann flokksins. Þess vegna liggur Jóni Baldvini meira á en áður að fá fram niður- stöðu í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hann metur stöðu Alþýðuflokksins sterka gagnvart Sjálfstæðisflokkn- um þessa dagana en áframhaldandi erjur milli hans og Jóhönnu veikja stöðu Alþýðuflokksins. Og eftir landsfund Sjálfstæðis- flokksins í haust er Davíð Oddsson búinn að tryggja sér umboð til að stýra flokki og ríkisstjórn og ekki líklegur til eftirgjafar í þeim málum sem Alþýðuflokkurinn ber fyrir brjósti. Þess vegna lætur Alþýðu- flokkurinn til skarar skríða núna. Sumarstríð á stjórnarheimilinu Ríkisstjóm Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks und- ir forsæti Davíðs Odds- sonar hefur í sumar orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru. Ágreiningur milli stjómarflokk- anna hefur aukist í takt við úrræðaleysi ríkisstjómarinnar í efnahags- og atvinnumálum. Gengisfellingin í vor var gerð í óþökk ráðherra Alþýðuflokksins. Viðbrögð frá virtum hagfræð- ingum, eins og Guðmundi Magn- ússyni prófessor, staðfestu það mat að gengisfellingin var röng efna- hagsaðgerð þar sem ekki var gripið til nauðsynlegra hliðarráðstafana. Forystumenn Alþýðuflokksins hafa haft uppi stór orð um að kerfis- breyting sé nauðsynleg á sjáv- arútveginum og landbúnaðar- kerfinu en Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki Ijáð máls á róttækum breytinguin á þessum sviðum. Ágreiningur um grundvallarat- riði hefur leitt til þess að ráðherrar eru orðnir óþolinmóðir hver gagn- vart öðrum. Aflciðingin er meðal annars sú að ráðherrar geta ekki lengur komið sér saman um ininni- háttar mál. I deilunni við Norð- menn um veiðar í Barentshafi töl- uðu þeirjón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra hvor í sína áttina. Þegar Simon Peres, utanríkis- ráðherra ísraels, koin í heimsókn til Islands neitaði Jón Baldvin að taka á móti honum og Davíð Oddsson varð gestgjafi ísraelska ráðherrans. Davíð gat síðan ekki stillt sig um að snupra Jón Baldvin í viðtali í Morgunblaðinu. Vinnan við fjárlögin í sumar reyndi á þolrif ríkisstjórnarinnar. Jón Baldvin lýsti því yfir á fundi að frumvarpssmíðin hafi verið „hund- leiðinleg“ enda varð niðurstaðan sú að frumvarpið var sent í prentun með 10 milljarða króna halla og óljósum orðum uni að dregið yrði úr hallanum þegar frumvarpið kemur til umræðu á Alþingi. Stjórnin kernst ekki hjá þrí gera upp sín mál í haust og annað hvort að ná tökum á því verki sem ríkis- stjórn er ætlað að vinna eða að slíta samstarfinu.

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.