Vikublaðið


Vikublaðið - 17.09.1993, Qupperneq 7

Vikublaðið - 17.09.1993, Qupperneq 7
VIKUBLAÐIÐ 17. SEPTEMBER 1993 7 Strætó hf.: Fyrsta skrefið til einkavæð- ingar almenningssamgangna í Reykjavík hefur verið tekið Nú hefur verið ákveðið að stofiia hlutafélagið Stræt- isvagna Reykjavíkur hf. Tillaga meirihluta Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík hefur verið samþykkt. Rekstri Strætisvagna Reykjavíkur verður skipt í tvennt. SVR hf. á að sjá uin rekstur og við- hald vagnanna. Stjórnameihd um almenningssamgöngur mun heyra beint undir borgarráð og annast stefhumómn, yfimmsjón með leiðakerfinu og öll samskipti við SVR hf. í fréttatilkynningu um þetta segir að breytingin ffá borg- arfyrirtæki yfir í hlutafélag muni styrkja reksturinn, pólítísk afskipti rnuni minnka og þessu formi muni fylgja aukið aðhald og meiri hag- ræðing. Tillaga um breytinguna kom fram 7. júní sl., en þá fengu fjöl- miðlar og starfsmenn SVR bréf þessa efnis. Bréfinu fylgdu spurn- ingar og svör um þessar breytingar og fundarboð til starfsmanna SVR. í því segir að forsenda þessarra breytinga sé að „allir starfsmenn SVR haldi störfum sínum og laun og réttindi þeirra verði þau sömu fyrir og eftir breytingar." I umsögn starfsmanna SVR koma fram fjöl- margar spurningar um þau áhrif sem þessi breyting mun hafa og segir þar að enn hafi þeir engin skýr svör fengið. Réttindi starfsmanna óljós Starfsmenn láta í ljós áhyggjur vegna ýmissa réttindamála og Sveinn Andri Sveinsson: Sutn mál eru erfið og því erfitt fyrir pólítíktis að taka ákvörðun um þau. Þess vegna er betra að borgin feli sjálf- sueðum fyrirtakjum að sjá um svona rekstur. “ benda á að skýrslu sem borgin lét gera og liggur til grundvallar á- kvörðun um að breyta SVR í hluta- félag beri ekki saman við upphaf- lega bréfið. Sú skýrsla, gorma- skýrslan svokallaða, var lögð ffam á stjórnarfundi SVR 22. júní sl. Þá hafði fulltrúi starfsmanna aldrei séð skýrsluna. Meðal þeirra mála sem starfsmennirnir hafa áhyggjur af eru lífeyrisréttindi, túlkun á orð- inu „starfskjör“, réttur til biðlauna og fleira. Starfsmenn töldu einnig að kynningu með sérffóðum aðil- um vantaði. í ljósi þessa óskuðu þeir að málinu yrði frestað. Því var hafnað. I byrjun ágúst skrifaði Sjöfh Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, borgarstjóra bréf fyrir hönd félagsins. Þar er lýst sömu á- hyggjum og í bréfi starfsmanna SVR og þess óskað að engar á- kvarðanir verði teknar í málinu án náins samsráðs við Starfsmannafé- lagið. Ekki var farið að þeirri ósk. Þann 27. ágúst fengu allir starfs- menn Strætisvagna Reykjavíkur uppsagnarbréf. I því var þeim boð- ið starf hjá nýju hlutafélagi og til- kynnt að ákvörðun um þessa breyt- ingu hefði verið tekin daginn áður. Hver er hagkvœmnin? Minnihlutinn í borgarstjórn var frá upphafi á móti breytingu SVR í hlutafélag. I sameiginlegri bókun minni- hlutaflokkanna segir m.a. að með því að breyta Strætisvögnum Reykjavíkur í hlutafélag sé eitt mikilvægasta þjónustufyrirtæki borgarinnar tekið úr höndum kjör- inna fulltrúi og fært undir umráð valinna Sjálfstæðismanna og að verið sé að knýja fram óhagkvæmt fyrirkomulag sem lagt hafi verið af á Norðurlöndum. Ennfremur segir að engin hald- bær rök hafi verið færð fyrir breyt- ingunni og ekki sé sjáanlegt hver hin aukna hagkvæmni sé, nema hún felist í því að hafa tvær stjórn- arnefhdir í stað einnar og tvo for- stjóra í stað eins. 1 bókuninni segir einnig að flaustur og hroðvirkni hafi einkennt vinnubrögðin í þessu máli og að verið væri að búa til pappírspeninga með því að færa Sjöfn Ingólfsdóttir: I áðru orðinu tala flutningsmenn tillögunnar fyr- ir hönd hins nýja hlutafélags, í hinu orðinu segja þeir ákvarðanir vera í hötidum stjómar nýja félagsins. eiginfjárhlutfallið niður úr 98% í 50% og færa þannig borgarsjóði 300milljóniríformiskuldabréfa. I lokin segir að þessarri ákvörðun verði hnekkt þegar stjórnarskipti verði eftir borgarstjómarkosning- arnar í vor. „Sum mál eru erfið fyrir pólítíkusa “ Sveinn Andri Sveinsson stjórn- arformaður SVR segir að borgar- Stjóri muni skipa stjórn hins nýja hlutafélags. Fram hafa komið efa- semdir um hvort stjórn skipuð af hinum pólítískt valda borgarstjóra verði valin á faglegum grunni. Um það sagði Sveinn Andri: „Þú skalt bara bíða og sjá.“ Hann sagði til- gang breytinganna vera að fá menn sem vit hefðu á hlutafélaga- rekstri inn í stjórn hlutaféiagsins. Sú stjórn myndi fjalla um útboð á tryggingum, vaktafyrirkomulag, innkaup á varahlutum og eldsneyti. Þetta væm ekki pólítísk mál og því ekki rétt að um þau fjölluðu pólítískt kjörnir nienn. Sveinn Andri var spurður um hvaða póli- tísk afskipti væri verið að forðast, hefði Sjálfstæðisflokkurinn ekki stjórnað borginni og þar með fyrir- tækinu síðustu ár? Vantreysta þeir sjálfum sér? „Það að ég er pólítíkus hefur á- hrif á ákvarðanatöku. Sum mál eru erfið og því erfitt fyrir pólítíkus að taka ákyörðun um þau. Þess vegna er betra að borgin feli sjálfstæðum fyrirtækjum að sjá um svona rekst- ur.“ Sveinn Andri segir breytingamar hafa verið vel kynntar Sveinn Andri sagði að fyrirtæk- inu væri ætlað að standa undir sér og myndi framlag borgarinnar til þess lækka um 2% á hverju ári. Borgin yrði verkkaupi en hlutafé- lagið verktaki. Sveinn Andri benti á að akstur skólabama og fatlaðra væri í höndum verktaka og sagði engan gmndvallarmun á þeim akstri og rekstri strætisvagna. Um niðurfærslu eiginfjárhlutfallsins sagði hann: „Við emm að setja fyr- irtækið í betri rekstrarstöðu." Sveinn Andri sagði breytingarnar hafa verið vel kynntar fyrir starfs- mönnum og að þetta væri í fyrsta skipti sem starfsmenn væra látnir vita af svona breytingu fyrirffam. „Við sátum líka fimm, sex fundi með þeim í júlí.“ Stenst afsal biðlauna fyrir lögum? Sjöfn Ingólfsdóttir formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar sagði ekkert formlegt sam- starf hafa verið haft við Starfs- mannafélagið. Þó hefðu þau fengið því framgengt að komið var á sam- ráðshópi um málefni SVR, en þrátt fyrir hann hefðu ekki fengist fuil- nægjandi svör um áhrif þessarar breytingar á kjijr starfsmanna SVR. „Persónulega er ég mjög ósátt við það hvernig staðið hefur verið að þessu.“ Sjöfn sagði um þau rök fyrir breytingunni að með henni fengi fyrirtækið meira sjálfstæði, að borgaryfirvöldum hefði verið í lófa Lgið að veita stjórnendum fyrir- tækisins meira sjálfstæði. Eitt af ágreiningsefhunum er réttindi starfsmanna til biðlauna. Samkvæmt „gormaskýrslunni“ og uppsagnarbréfunum ffá 27. ágúst sl. munu þeir starfsmenn, sem þiggja starf hjá hinu nýja hlutafé- lagi, afsala sér áunnum rétti til bið- launa. Sjöfn segir þetta ekki stand- ast fyrir lögum og að hér sé verið að brjóta á þessum starfsmönnum. Um svör við spurningum starfs- manna segir hún: „I öðm orðinu tala flutningsnrenn tillögunnar fyr- ir hönd hins nýja hlutafélags, í hinu orðinu segja þeir ákvarðanir vera í höndum stjórnar nýja félagsins.“ Samráðið leiksýning Jónas Engilbertsson var fulltrúi starfsmanna SVR í samráðshópn- um. Hann segir: „Samráðið var leiksýning, ekki var farið eftir til- lögum okkar í einu né neinu og við eram jafhnær.“ Jónas segir þau engar yfirlýsingar hafa fengið um að þau héldu sömu kjöram. Þau hefðu bent á þá lausn að núverandi starfsmenn verði áfram starfsmenn Reykjavíkurborgar, en launakostn- aður vegna þeirra verði uppgjörsat- riði inilli hins nýja félags og Reykjavíkurborgar. Ekki hafi verið hlustað á það. Jónas sagði hugmyndir sem sett- ar hefðu verið fram um kjör starfs- manna tómt klúður, m.a. væri gert ráð fyrir að þeir sem síðar yrðu ráðnir til fyrirtækisins yrðu á lakari kjöram en þeir sem fyrir væra. „Okkur hefur aldrei litist á þetta.“ Jónasi sagði starfsmenn SVR nú vera í biðstöðu, uppsagnarbréfið tæki gildi 1. desember og enn hefði stjórn hlutafélagsins ekki verið skipuð; „Menn eru uggandi og kvíðnir." Jónas sagðist búast við að Jótias Engilbertsson: Kostiingamar í vor em eina von okkar um að hcett verði við þetta. Ef sami meirihluti helst verður jýrittækið einkavætt strax eftir kosningar. flestir tæku boði um vinnu hjá hlutafélaginu, enda erfitt um at- vinnu. „Kosningarnar í vor eru eina von okkar um að hætt verði við þetta. Ef sami meirihluti helst verður fyrirtækið einkavætt strax eftir kosningar." Flaustur og mótsagnir í „spurningum og svörum" sem fylgdu fréttatilkynningunni sem send var út 7. júní segir að hér sé um formbreytingu en ekki einka- væðingu að ræða og að engar á- kvarðanir hafi verið teknar um að bjóða út almenningssamgöngur í Reykjavík. Þó segir í „gorrna- skýrslunni" að tillögurnar miði að því að auka samkeppni og að færa eigi eiginfé hlutafélagsins niður til þess að auðvelda sölu fyrirtækisins. Hér er mótsögn. Oll framkvæmd þessa máls hefur einmitt einkennst af flaustri og mótsögnum. Engum þeim sem fylgst hefur með málinu dylst að ætlunin er að einkavæða strætisvagnana. Þess vegna er eiginfjárhlutfallið fært niður. Það hefur líka þann auka- bónus að laga stöðu borgarsjóðs, á pappírunum. Enn eru starfsmenn SVR í óvissu urn stöðu sína eftir breytingarnar og það hefur heyrst að jafnvel embættismenn borgar- innar séu gáttaðir á flýtinum sem einkennt hefur framkvæmd þessa máls. Skyldi Sveinn Andri fá mörg at- kvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins út á þessi fyrstu skref í einka- væðingu almenningssamgangna? Það fer eftir því hvort Sjálfstæðis- menn í Reykjavík læra af mistökum skoðanabræðra sinna og systra í Bredandi. í Morgunblaðinu birtist í fyrra viðtal við breskan íhalds- manninn Douglas Smith. Hann segir: „Við höfum einkavætt sam- göngurnar og uppskerum nú sífellt færri strætisvagnaferðir, hækkandi farmiðaverð. ... Nú er ég smeykur um að sumir kjósendur eigi eftir að launa okkur lambið gráa.“ Kannski einmitt það gerist í Reykjavík í vor? EINKAVINUK Vikumwr Við lofuðum því síðast að í þessu blaði yrðu tveir einkavinir - án þess að hækka áskriftargjaldið! Þessir tveir einkavinir eru eiginlega einkavinir einkavinarins Guðinundar Magnússonar sem ennþá starfar sem þjóðminjavörður. Guðmundur hefur verið einkar röskur við að tryggja sínum mönnu m réttar stöður. Fyrst var það vegna ákvörðunar hans um að hætta að notast við þá arkitekta sem höfðu teiknað endurbætur hússins við Suðurgötu. Þeir höfðu unnið að verk- inu um árabil. Ríkið hafði greitt fyrir vinnu þeirra veralega fjármuni. En Guðmundur Magnússon gat ekki notað það verk. Hann varð að SYNA vald sitt. Hann leysti þá þess vegna frá störfum. Hann réð annan arkitekt sem heitir Ogmundur Skarphéðinsson. Og honum var ekki aðeins ætlað að teikna lagfæringar hússins, hann var líka látinn undirbúa teikningu að nýju húsi fyrir Þjóðminjasafnið. Það hús á að vera vestan Suðurgötu. Fyrir því hefur að vísu aldrei verið veitt nein heimild. Og það hefur aldrei verið samþykkt á alþingi. En það er sama. Ogmundur einkavinur hefur verið ráðinn. Hinn einkavinur vikunnar er forstöðumaður Sjóminjasafnsins. Hann hefur aldrei komið nálægt sjó. En hann söng uin Suðurnesjamenn með Savannatríóinu og það er nú nokkuð. Hann hefur líka séð um sjóbissness fyrir Davíð Oddsson í kos- ningabaráttu hans gegn öðram Sjálfstæðismönum. Þetta er þess vegna góður maður og í FLOKKN- UM. Hann heitir Bjöm G. Bjömsson. I næsta tölublaði verðuR enn þátmr urn einkavi- ni. Sá verður um þann einstaka drengskaparmann Hrafn Gunnlaugsson. Fylgist með og klippið þættina um einkavinina út. Framhald í naesta blaði.

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.