Vikublaðið


Vikublaðið - 17.09.1993, Side 10

Vikublaðið - 17.09.1993, Side 10
10 VIKUBLAÐIÐ 17. SEPTEMBER 1993 /• Dog I’accd Hermans eru lítið fyrir myiulalökitr og regna gfir- hugsa um eitthvað annað á meðan ú þeim stendur. Frá vinstri: Wilf Andg og Colin. Fgrir ufian slendur Gert Jan. S Asunnudagskvöldið spilar skosk/hollenska hljómsveit- in The Dog Faced Hérmans á Tunglinu. Hinir eigin- legu hljómsveitarmeðlimir, þau sem standa uppi á sviði og spila á hljóðfærin, eru reyndar öll ífá Skotlandi. En hljómsveitin hefur aðsetur í Hollandi og hljóðmaður- inn sem fylpr þeim á tónleika- ferðalögum er hollenskur. Hvaian kemurþetta nafn? - Þetta er bara kjánalegt nafn úr kjánalegri mynd. Þar með er það útrætt. Hljóm- sveitin var stofnuð í F.dinborg árið 1986. Hljóðfæraskipunin er ekki dæmigerð. Ekki frekar en sú tónlist sem Dog Faced Hermans spila. Marion syngur og spilar á trompet og bjöllur. Hún semur líka textana. Andy spilar á gítar og gyllta fiðlu, Colin á bassa og Wilf á tommur. Tónlistina semja þau í sameiningu. Fimmti meðlimurinn, hljóðmað- urinn Gert Jan (hollenskt nafn sem ekki er hægt að bera fram) bættist í hópinn efdr að DFH flutti aðsetur sitt til Hollands. Þjóðlagafrídjasspönk - eða eitthvaö allt annað Dog Faced Hermans (hér eftir DFH) hafa spilað víða, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Þau hafa komið fram á sjónvarpsstöð- inni BBC og sænska ríkisútvarpið (!) bauð þeim einu sinni að halda tónleika í beinni útsendingu í út- varpinu í Gautaborg. Fyrstu tónleikar DFH hér á Iandi voru á Tveimur vinum. Lík- lega þekktu fæst okkar sem vorum á hljómleikunum mikið til tónlistar DFH. Höfðum kannski lesið eitt- hvað í Pressunni um blending af frídjassi, pönki og heimstónlist. Það er kannski ekki fjarri lagi, a.m.k. hlusta þau flest á tónlist sem hægt væri að flokka svona. En skil- greiningar skipta litlu. Sjálf vilja þau ekki skilgreina músíkina, segja það hlutverk okkar blaðamannanna - erfitt starf blaðamennskan. Þau játa að þessi vandkvæði við að finna hljómsveitinni stað í músíkkflór- unni geti valdið erfiðleikum, t.d. þegar verið er að bóka hljómsveit- ina eða auglýsa hana. En málið eru ekki að flokka heldur að upplifa og tónleikar með DFH gleymast seint. Tónlistin er einkennileg, en það er eitthvað sem grfpur, sefjar. Hún er að því leyti nálægt pönki að hún er hrá, áleitin, en stundum koma kaflar með fallegu trompet- sólói og allt í einu hljóma stríðir fiðlutónar. Allt hljómar þetta eins og það gæti ekki öðru vísi verið. Semjum tónlistina saman - Við setjum tónlistina saman og hún helst saman, svona einfalt er það. Við semjum tónlistina saman. Utkoman er summa þess sem hvert okkar um sig hefur fram að færa. Ekkert okkar er sérstaklega „tekn- ískt“ á hljóðfærin, það er það sem við gerum saman sem virkar á ein- hvern óútskýranlegan hátt. Ef eitt okkar hætti, þá yrðu það endalok hljómsveitarinnar. Tónlist okkar er ætlað að höfða til tilfinninganna, það er ekkert eins óþolandi og tón- list sem virðist korna aðeins frá heilanum. Sjálf vinnum við ekki út frá neinni formúlu. Ef okkur finnst við vera að endurtaka okkur þá breymm við um stefnu. Þau voru ánægð með fyrsta konsertinn Andy: Eg hafði gaman af hljóm- sveitunum sem hituðu upp fyrir okkur; Stilluppsteypu, Púff og Kolrössu Krókríðandi. Það var ekki endilega allt gott, en það sem þau spiluðu var framandi, öðruvísi. Þau voru að spila sína eigin tónlist. Níutíu prósent þeirra hljómsveita sem hita upp fyrir okkur spila tón- list sem við vitum fyrirffam hvern- ig er: hard core, indie, eða ein- hverja aðra skilgreinda tónlistar- stefnu. Aheyrendur á Tveim vinum voru flestir um og undir tvítugu. -Það er óvenjulegt að spila fyrir svona unga áheyrendur. Það var á- gætt en hvar voru allir jafnaldrar okkar? Kannski er ástæða þess hve á- horfendur voru ungir sú að sá sem flytur hljómsveitina inn, sér um kynningu og bókanir eru sautján ára strákur úr hljómsveitinni Still- uppsteypu. Sjálf eru þau öll á fertugsaldri nema hljóðmaðurinn og fengust við margvíslega hluti áður en tón- listin varð þeirra aðalstarf. Wilf gerði teiknimyndasögur, hannaði boli og plaköt og einu sinni sá hann um útlit tímarit kjarnorkuandstæð- inga í Skotlandi. Wilf: Flestir þeirra gengu svo í Verkamannaflokkinn. Það myndi ég aldrei gera. Eg kýs ekld lengur, treysti ekki flokkunum. Nú er Verkamannaflokkurinn kominn á- líka langt til hægri og Ihaldsflokk- urinn var fyrir tíu árum. Það er ekki svo mikill munur á flokkun- um. Marion: Eg var í myndlistar- skóla. Þegar hljómsveitin tók sér hlé í eitt ár nú fyrir þremur árum þá fór ég til Póllands þar sem ég vann að skúlptúrum. Eg hef haldið nokkrar sýningar og stefni að fleir- um. Andy: Eg var í mannffæði, en hafði fyrst og fremst áhuga á þeim þáttum námsins, sem tengjast hlut- verki tónlistar í ólíkum samfélög- um, hvernig hún virkar á fólk. Colin: Ég var sjálfboðaliði hjá samtökum sem unnu með fólki sem var að koma út úr fangelsi eða venja sig af eiturlyfjum. Við lögð- um mikla áherslu á að virkja sköp- unargáfu fólks. Starfsemin fékk enga opinbera styrki, en lifði á framlögum einkaaðila. Um það leyti sem við ákváðum að helga okkur hljómsveitimii þá var þetta að leysast upp. Ádeilur og ástarljóð Textar Marion eru engir dæmi- gerðir rokktextar, enda er DFH engin rokkhljómsveit og sækir á- hrif sín ekki síður til þjóðlaga- og heimstónlistar og í frídjass. Ekki síst til saxafónleikarans Ornette Coleman. Merking textanna er ekki alltaf auðskilin. Þeir eru nær því að vera ljóð en textar. Sumir textanna á nýjasta diskinum, „Hum of Life“, eru snarpar ádeilur, Hear the Dogs er á kaldhæðin lýsing á því hvernig hin ríku Vesturland taka eða taka ekki á móti flótta- mönnum. Á textablaðinu eru Vesmrlönd sögð sýna tvískinnung í málefnum flóttamanna, nema Bredand sem hæli sér af ómannúðlegri stefhu í málefnum flóttamanna. Viva er stemmingsljóð þar sem litið er aft- ur tíl unglingsára söngkonunnar í upphafi efnahagskreppunnar, The Hook and the Wirc fjallar um ó- löglega fóstureyðingu. En textarn- ir eru ekki allir um dapurlega hluti. Love is the Heart of Everything, títíllinn er frá rússneska skáldinu Mayakovsky, er fallegt ástarljóð: „Ég þigg þig með augum mínum - verm hluti þessa andartaks.“ Marion: Það er smndum svolítið gremjulegt þegar fólk sem kemur á tónleikana gemr ekki náð texmn- um. Þess vegna lámm við þá alltaf fylgja diskunum okkar. Sviðshreyfingar Marion eru sér- stakar og ólíkar hreyfingum söng- kvenna í rokkhljómsveimm. Andy: Llreyfingar hennar tjá það sem hún er að segja í texmnum. Sviðshreyfingar okkar eru aldrei fyrirfram ákveðnar. Marion: Mér líður vel á sviðinu, þar er ég eins og heima hjá mér. Bréffrá stóru útgáju- fyrirtækjunum fara beint í ruslið Konkurrel, lítið útgáfufyrirtæki í Amsterdam, gefúr tónlistina þeirra út. - Við erum ekki með samning - gerum það sem okkur sýnist, en þau hafa reynst okkur vel. Haftð þið reynt að komast að hjá stœn-a litgáfiifyrirtieki? - Nei, við inyndum ekki treysta því. Við höfúm fengið bréf frá stór- um útgáfufyrurtækjum. Það síðasta fór beint í tunnuna. Það er sjaldn- ast neitt varið í þá tónlist sem kem- ur frá stóru útgáfufyrirtækjunum. Það er allt of inikil íhlumn í tón- listina, stöðugar málamiðlanir. Hjá stóm útgáfufyrirtækjum fer líka allt of mikill peningur f yfirbygging- una, það er ótrúleg sóun og hljóm- sveitirnar fá minnstan hluta þess sem inn kemur. Til þess að ágóði verði af plömm þarf að selja miklu meira hjá stóru fyrirtækjunum. Þó að við seljurn aðeins nokkur þúsund eintök af plömnum okkar í Evrópu og eitt- hvað svipað í Bandaríkjunum, þá högnumst við á þeim. Ef við seld- um fimmtíu þúsund plömr þá væri það mjög mikið fyrir okkur, en það þætti ekkert hjá stórfyrirtæki. Flestar þeirra hljómsveita sem semja við svoleiðis fyrirtæld gefa út eina plöm og hætta svo. Álagið er of mikið. Við viljum ekki spila á stórum stöðuin og risatónleikar þar sem fjórar hræður spila fyrir fimmtíu- þúsund eru fáránlegir. Andy: Það minnir jafnvel á áróð- ursfundi Hitíers, áheyrendur verða andlitslaus múgur. Colin: Ég er ekki sammála. U2 tónleikar eru skelfilegir en mér finnst þetta of mikið sagt. Um kvöldið spiluðu þau svo í Norðurkjalla Menntaskólans í Hamrahlíð. Viðbrögðin og læti áhorfenda voru slík að Marion varð að standa aftast á sviðinu sem er mjög lágt og Colin benti krökkun- um vinsamlegast á að fara varlega. Þau gæm meitt sig. Það er ekki víst að lætin verði svona mikil á síðustu tónleikuin Dog Faced Hermans hér á landi á sunnudagskvöldið, enda verða áheyrendur væntanlega aðeins eldri. En tónleikarnir verða góðir. Diskar hljómsveitarinnar Dog Faced Hermans eru seldir á tón- leikum og í Hljómalindinni í Aust- urstræti. Þeir sem vilja nánari upp- lýsingar geta skrifað til: DFH, Postbus 14767, 1001 LGAmsterdam Holland -IS. Aðdáendur hljómsveitarinnar voru svolítið herskáir í Norðurkjallaranum í MH og þurfti hóp fílefldra manna til þess að verja hljómsveitina. Þrengslin voru slík að meira að segja veggimir svitnuðu. Hljómsveitin er góð en er nauðsynlegt að láta svona? Fór þetta ekki úr tísku með Clash? Myndir: Gunnar Þór Gunnarsson. Mynd: Ol.P. UPPUFIÐ reynið ekki að

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.