Vikublaðið


Vikublaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 1

Vikublaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 1
NormanRush contrmplatus^^ttðtifl oi’ jgHHnHinB socialism •'""^Sfiasa Sósíalisminn / Einkavæðinff og ailur | ■f.— ólétta konan ... ..nu.nvuv £ -V'fll uilliUlmWs (| Forsenda fyrir marktækri ííf, 1| Sf ""JJfSI Umræðan um einkavæðingu gaunrýni á kapftalismann er að V heldur áffam. \rið segjum frá við könnumst við þá staðreynd Kþ fjörugum fundi á Kornhlöðu- í<sí4v \ ií að sósíalisminn sé búinn að JÆfkx loffinu þar sem ólétt kona kom vera. Bls. 12-13 ^ðjögu^- Bls. 4-5 Kúba í kreppu Kúba er í iniðju heimsins. Hvergi væri hægt flg s^eraa jafri almtnn't hin eíhislegu lífskjör án átaka og upplausnar, en samt er Castró enn óumdeildur. Bls 8-9 10. tbl. 3. árg. 10. mars 1994 Ritstjóm og afgreiðsla: sími 17500 250 kr. Ný landsstjórn og ný stefna Stjórnvöld ráðþrota í atvinnumálum. Málefni sjávarútvegsins í ógöngum. Linnulausar deilur lama ríkisstjórnina. Miðstjórn Alþýðubandalagsins telur brýnt að efna til þingkosninga til að þjóðinni gefist kostur á að velja nýja landsstjórnarstefnu. Atvinnumál, fiskveiðistefhan og ný útgáfa Utflutingsleið- arinnar voru helstu um- ræðuefnin á fundi miðstjómar AI- þýðubandalagsins um síðustu helgi á Hótel Sögu í Reykjavík. Fundur- inn mótmælir úrræðaleysi stjóm- valda gagnvart atvinnuleysinu og krefst róttækra aðgerða til að vinna bug á því. Utflutningsleiðin er sóknarstefna gagnvart yfirstand- andi kreppu og gerir ráð fyrir að 1400-2000 ný störf yrðu til á næstu 12 mánuðuin. Sjávarútvegsstefha Alþýðubandalagsins hafnar afdrátt- arlaust núverandi kvótakerfi þar sem það samrýmist ekki þeirri grundvallarreglu að auðlindir hafs- ins em þjóðareign. Alyktun miðstjórnarinnar um at- vinnumál var borin upp af þrem trún- aðarmönnum verkalýðshreyfingar- innar, Benedikt Davíðssyni forseta Alþýðusainbandsins, Birni Grétari Sveinssyni formanni Verkamanna- sambandsins og Guðmundi Þ. Jóns- syni formanni Iðju. I ályktuninni er ít- rekað að pólitísk ábyrgð á atvinnu- leysinu liggur hjá ríkisstjórninni og þess krafist að hún efiii það samkomu- lag sem gert var við verkalýðshreyf- inguna á síðasta ári. „Miðstjórnarfundur Alþýðubanda- lagsins mótmælir harðlega þeim hug- myndum sem fram hafa komið að at- vinnuleysisvandann megi fyrst og fremst rekja til hárra iauna og skipu- lags vinnumarkaðar hér á landi. I stað þess að halda því fram að launataxtar á bilinu 45-55 þús. kr. skapi vanda væri nær að líta á aðra þætti í rekstri fyrir- tækja en Iaunin,“ segir í ályktun um atvinnumál. - Við vildum láta reyna á það hvort Alþýðubandalagið tæki undir verka- lýðspólitík okkar og flokkurinn gerði það með því að samþykkja tillögu okkar óbreytta, segir Björn Grétar Sveinsson formaður VMSI og bætir við að óskandi sé að fleiri stjórnmála- flokkar taki undir sjónarmið verka- lýðshreyfingarinnar. I stjórnmálaályktun fundarins segir að í stað þess að glíma við lausnir á vanda atvinnulífsins standi ráðhcrrar Sjálfstæðisflokks í linnulausum þræt- um þar sem flestar eðlilegar siðaregl- ur séu þverbrotnar. Samskiptin ein- kennast af fjandskap og átökum á meðan vandamál þjóðarinnar magnást dag frá degi. Brýn nauðsyn er að boð- að verði til alþingiskosninga til að ný forusta með nýja stefhu taki við lands- stjórninni. Miðstjórnin gekk frá nýrri útgáfu af Utflutningsleiðinni með hliðsjón af fjölmörgum viðbótum og ábending- urn sem komið hafa fram frá því að Útflutningsleiðin var kynnt á lands- fundi flokksins í haust. Útflutningsleiðin gerir ráð fyrir að í fyrsta áfanga nýrrar stefnu nýrrar landsstjórnar yrði gripið til aðgerða sem sköpuðu 1400-2000 ný störf. Markmið þeirra aðgerða væri að sýna strax í upphafi hvernig hægt væri að snúa vörn í sókn. Störfin þyftu að vera arðbær og þau þyrfti að skapa í tengsl- um við þau byggðarlög þar sem at- vinnuleysið er hvað mest og taka sér- stakt tillit til starfsgreina þar sem kon- ur eru tjölmcnnar. Sjá nánar ályktanir miðstjómar Alþýðubandalagsins á bls. 15. Áhrifamikil ganga gegn kynferðis- legu ofbelöi Mikil þátttaka var í göngunni gegn kynferð- islegu ofbeldi á þriðju- dag 8. mars, alþjóðleg- um baráttudegi kvenna. Gengið var frá Hlemmi niður á Hlaðvarpa með viðkomu á nokkrum stofnunum réttarkerfis- ins, svo sem Lögreglu- stöðinni, dómsmálaráðu- neytinu og Hæstarétti þar sem göngufólk af- henti áskoranir um rétt- arbætur fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis. Forseti Hæstaréttar neitaði að taka við á- skoruninni. Fremst í flokki göngumanna fóru svartklæddar konur sem eru fómarlömb kynferð- islegs ofbeldis. Örvæntingarfull leit að framboði Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja- vík leitar logandi ljósi að fram- bjóðenduin til að firíkka upp á lista flokksins. Kjörnefnd flokksins hefur hug á að ryðja af listanum þeim borgarfulltrú- um sem fengu verstu útreiðina í próf- kjöri flokksins í janúar. Páll Gíslason, Anna K. Jónsdóttir, Júlíus Hafstein og Sveinn Andri Sveinsson fengu all- ir harkalega útreið og með því að fá annað fólk í sæti þeirra vonast sjálf- stæðismenn til að framboðið fái betri hljómgrunn. Skoðanakannanir sýna að fylgi flokksins er í sögulegu lág- marki og myndi aðeins skila flokkn- um fimm borgarfulltrúum en Reykjavíkurlistanum er spáð tíu. Þeir sem hugsanlega leysa föllnu borgarfulltrúana af hólmi eru Guð- mundur Gunnarsson formaður Raf- iðnaðarsambandsins og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir formaður Lands- sambands verslunarmanna. Bændur kjósa um sameiningu Anýafstöðnu Búnaðarþingi var einróma samþykkt að leggja tillögu um sameiningu Búnaðarfé- lags Islands og Stéttarsambands bænda undir atkvæði bænda. Er ráð fyrir því gert að atkvæðagreiðslan fari frarn samhliða sveitarstjórnar- kosningunum í vor. Fram að því verður málið kynnt. á1 vettvangi Búnaðarsambandanna og búgreinafélaganna og ffarn fer könn- un á fjárhagslegum ávinningi við sam- eininguna. Einnig á að hafa fullt sam- ráð við starfsinenn Búnaðarfélagsins og Stéttarsambandsins. Búnaðarþingið afgreiddi með þess- um hætti álit félagsmálanefndar þingsins, en nefridina skipuðu þau Þórólfur Sveinsson, Stefán Halldórs- son, Annabella Harðardóttir, Her- mann Sigurjónsson og Jón Gíslason. Nefndin taldi nauðsynlegt að auk kynningar verði á næsmnni fjallað frekar um skilgreininguna á því hver telst vera bóndi, á aðild að búgreinafé- lagi og á ákvæðum um kosningar.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.