Vikublaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 7
Dagsbrún
sér um sína!
Verkamannafélagib Dagsbrún vekur athygli verkafólks á því aó til aó öólast fullgilda
aöild aó Dagsbrún þarf aó undirrita formlega inntökubeióni. Fullgild aöild borgar sig.
Skrifstofa Dagsbrúnar veitir alhliða upplýsingar og þjónustu varðandi réttinda- og
kjaramál félagsmanna sinna. Félagib skerst í leikinn ef brotib er á verkamönnum og
veitir alla þá aástoð sem möguleg er.
I Ekkert verkalýásfélag í landinu hefur tryggt sína félagsmenn betur. Allir starfandi
Dagsbrúnarmenn, 70 ára og yngri, eru slysa- og líftryggöir allan sólarhringinn. Falli
v Dagsbrúnarmaður frá vegna slyss í vinnu- eða frítíma, eru dánarbætur hans nú samtals
allt að 2,9 milljónir króna. Ororkubætur eru greiddar eftir mati - til viðbótar greiðslum
Tryggingastofnunar ríkisins.
A skrifstofu Dagsbrúnar veita sérfræðingar Landsbanka Islands alhliða
fjármálaráðgjöf alla fimtudaga kl. 14-17 - félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Á skrifstofu Dagsbrúnar er lögmaður félagsins til viðtals og ráðgjafar alla þriðjudaga
kl. 1 3-1 7 - félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Á skrifstofu Dagsbrúnar verður félagsmönnum veitt aðstoð nú um helgina við að telja
fram til skatts - þeim að kostnaðarlausu.
Fyrir jólin greiddi Dagsbrún hátt í 400 atvinnulausum félagsmönnum
desemberuppbót, eins og þeir hefðu verið í vinnu. Samtals voru greiddar tæplega
3 milljónir króna á þennan hátt.
Styrktarsjóður Dagsbrúnarmanna greiddi einnig um 200 öldruðum og sjúkum
félagsmönnum, sem ekki hafa fastar tekjur, liðlega 2,2 milljónir króna fyrir jólin.
Dagsbrún á og rekur 1 8 orlofshús víðsvegar um landið, sem leigð eru
félagsmönnum bæði sumar og vetur.
Styrktarsjóður Dagsbrúnarmanna greiðir félagsmönnum, sem missa tekjur vegna slysa
og/eða veikinda, sjúkradagpeninga sem eru umtalsvert hærri en greiddir eru af
Tryggingastofnun ríksins. Greitt er frá fyrsta degi - og í allt að 300 daga í sérstökum
tilfellum. Ennfremur eru greiddir styrkir vegna endurhæfingar og fyrirbyggjandi aðgerða
af ýmsu tagi.
Fræðslusjóður Dagsbrúnar tekur þátt í að greiða kostnað við ýmis námskeið, s.s.
vinnuvéla- og meiraprófsnámskeið.
Styrktarsjóður Dagsbrúnarmanna greiðir bróðurpartinn af útfararkostnaði félagsmanna.
Leitió nánari upplýsinga á skrifstofu félagsins, Lindargötu 9, Reykjavík, sími 25Ó33.
Daesbrúnarmenn!
íDAGSBRUNI ^
Tryggið réttindi ykkar með fullri félagsaðild.