Vikublaðið


Vikublaðið - 10.03.1994, Side 13

Vikublaðið - 10.03.1994, Side 13
VIKUBLAÐIÐ 10. MAJR.S 1994 Httgmptdafræftin 13 eignarhaldi - mótar með lymskum hætti svar vinstrimanna við hruninu sem blasir við. A þessum vettvangi er ómögulegt að fara út í umræðuna um hvaða sam- bland innri og ytri aðstæðna orsökuðu hrunið. I öllu falli leiddi hvorki vinstri leið byltingarinnar né hægri leið frjálsra kosninga til þess að sósíalism- inn stæðist samkeppnina við kapítal- isniann og kont margt til. Slæm tíma- setning, stríð, hugvit og kraftur og framleiðni kapítalismans og hernað- arlegur og diplómatískur þrýstingur og óþverrabrögð - allt þetta átti hlut að máli. Einnig er augljóst að mögu- leikar sósíalista í kosningunt snar- ininnkuðu vegna þróunarinnar í sós- íalískum ríkjum. En þegar öll kurl eru komin til grafar er staðreyndin sú að stór efnahagskerfi sem hönnuð eru með það yfirlýsta markmið að tryggja jafnrétti til efnislegra gæða með opin- beru stjórnkerfi höfðu ekld roð við kraftmiklum kapítaiisma. Hvort- tveggja kapítalismi og sósíalismi eru hrjáðir af mótsögnum og kannski gerðist það eitt að ntótsagnirnar kné- settu sósíalismann á undan kapítal- ismanum. Mótsagnir sósíalismans eru raun- verulegar og óvægar og hafa komið upp á yfirborðið hvort sem sósíalism- inn hefur tekið sér bólfestu í heims- veldi, þjóðríki, í lokuðu kerfi, í fýrir- tæki eða alþjóðlegu samfélagi - frá Comecon til Brook Farm. Jafnvel í í- mynduðum sósíalisma er hægt að sjá fyrir þessar mótsagnir. I tímans rás eru tvær tilhneigingar óhjákvæmileg- ar í sósíalismanum. Sú fyrri er upp- lausn sósíalismans gagnvart þrjóskri uppvakningu á einkaeignarforminu. Seinni er að búa til kostnaðarsantt kerfi til að halda í skefjum fyrri til- hneigingunni. Það er til ógrynni af fræðibókmenntum um hagkvæmni sósíalismans eftir efasemdarmenn og meinlegur klassíker er bók eftir Janos Kornai, The Socialist System. Sósíalísku tilrauninni er lokið og kapítaiisminn þýtur áffam í átt til ör- laga sinna. I fyrsta skipti í 150 ár eru listamenn, rithöfundar og skáld og aðrir, sem ásamt stjórnvaldsstéttunum móta opinbera dagskrá, innlyksa í kerfi sem enginn alvöru valkostur er vnð. Fyrir hinn framsækna hluta menntamanna er þetta átakafull stund. Hefðbundin trúarleg gagnrýni á misrétti hefur fyrir löngu misst mátt sinn í augum veraldarsinnaðra menntamanna vegna þess að hún á upptök sín í ósönnum, en myndræn- um að vísu, hugmyndum um stjórnar- skrá mannkyns (systkinahugur undir Guði föður), en einnig vegna þess að svar trúarinnar við misrétti er jafnan góðgerðarstarfsemi sem er ófullnægj- andi. Sósíalisminn bauð upp á mögu- lega og blessunarlega veraldlega leið til að láta í ljós ástríðu sína fyrir fé- lagslegu réttlæti. A sama tíma bauð sósíalisminn samfélag, tilgang og jafn- vel nokkurs konar ódauðleika fyrir þá sem höfðu staðið sig vel í hreyfing- unni. Þrátt fyrir það sem úr Sovét- skipulaginu varð þá litu rnargir á það sem geymslustað fyrir sannan sósíal- isma. Og brjálæðið hélt áffam með viðvarandi og auknu iiiisrétti. Ejiir hrunið Eftir hrunið vakna ákveðnar sið- ferðilegar spurningar sem eru menn- ingarlegir eftirskjálftar. llér er sýnis- horn af þeim áhugaverðustu. Opinber stjórhmálaumrœða, eitis og btin er. Vinstrið hefur yfirgefið sviðið, miðjan færist til hægri og hægristefn- an geggjast. í þessu landi [Bandaríkj- unum] várðast hægrimenn virkilega hafa þurft á vinstrinu að halda til að sldlgreina sjálfa sig, svo mikið að þeir bjuggu til vinstrimennsku úr afkáran- legu frjálslyndu miðjumoði. Afliökuð orð og hugtök úr þessari moðsuðu eru á vörum hægrisinnaðra forseta síðustu ára og notuð í hægrisinnuðum rabbþáttuin í útvarpi. Hinir fátæku eru skilgrcindir upp á nýtt sem sér- hagsmunahópur. Miðjan er óskipu- lögð og á undanhaldi vegna þeirra undarlegu ásakana sem á hana eru bornar. Enginn möguleiki er á að rnynda bandalag við vinstri hópa sem standa undir nafni og því reynir miðj- an að koma til móts við þá sem of- sækja hana. Vinstrisinnuðum tillögum fækkar og þær verða efnisrýrari og meira að segja þegar vinstrið fær víð- tækan stuðning eins og við ein- greiðslu í heilbrigðiskerfinu [sbr. til- lögur Clintons] og í andstöðunni við NAFTA og GATT þá farnast því illa. Þegar vinstra framlagið er svona efn- islítið verður minna framboð af stefnumótandi tillögum og stjórnvöld haga sér í samræmi við það. Listamenn ogfyrirmyndir. Mikilvægi sósíalískrar fyrirmyndar fyrir forystu- sveit listamanna og rithöfunda hefur verið ótvírætt. Rimbaud skrifaði stjórnarskrá fyrir sósíalískt ríki; Virg- inía Woolf færði fundargerðir fyrir svæðisfélag Verkamannaflókksins; Robert Bly skrifar í Z Magazine árið 1992 „Eg verð áfrarn vinstrimaður." 1 sama anda spyr Allan Gurganus áhorfendur sína, „Getið þið nefnt mér einn meiriháttar rithöfund sem er skráður Repúblíkani?" Leynt og ljóst hefur trúin á sið- ferðiiega réttan samfélagslegan val- kost réttlætt að menn helguðu sig framúrstefiiu í listum. Listaverk fram- úrstefnunnar gerði fólk meðvitað um hvers væri hægt að krefjast af sósíal- ismanum. Fyrir listamanninn bætti hugsjónin upp fátæktina sem gjarnan var fylgifiskur framúrstefnunnar og gaf samfélagsgagnrýni listarinnar auk- inn kraft. Hlutirnir hafa verið að breytast á vettvangi listarinnar síðustu árin og sumar þessar breytingar stafa af hnignun sósíalískra viðmiða. Eftir hrunið má búast við að aukinnar til- heigingar gæti í þá átt að pakka trúar- leguin áróðri í fagurbókmenntir, eft- irlíkingar verða áberandi, myndlist verður skrautlegri skrautsins vegna, metorðastrcð eykst og sömuleiðis eft- irsókn eftir „ffelsun" þar sem blandast list, ofbeldi og siðblinda. Siðferðileg undirbygging. Menn og konur sein trúðu á sósíalismann eru mikilvægir höfundar að siðferðilegri undirbyggingu hins kapítalíska samfé- lags. Ahrifa þeirra gæti víða; í verka- lýðsfélögum, lánsfélögum, átta stunda vinnudeginum, lögum sem banna barnaþrælkun, réttinuin til að neita herskyldu af samviskuástæðum, lög- um um borgaraleg réttindi, almanna- tryggingum og í löglegum getnaðar- vörnum. Stór hluti af þessari siðferði- legu undirbyggingu samfélagsins liggur nú undir ágjöf. Hver mun ó- rnaka sig við að korna henni til bjarg- ar? Llvaða öfl? „Sósíalisminn er nn'n ástríða,“ skrif- aði Tolstoj og hafði rétt fyrir sér. Vegna þess að skilyrðin eru svo sértæk fyrir því að sósíalisminn gæti hugsan- lega náð fram að ganga er hann ekki marktækur. Sósíalisminn er von, ekki markmið. Maður sem segist verá sósí- alisti er bara að segja það að honurn er ekki saina. Þetta viðhorf er ekki hættulegt nema að það komi í staðinn fyrir ítarlega skoðun á því hvernig hægt er að koma orðum að umbóta- stefnu og hvaða hlutverki hún hefur að gegna í umhverfi hins algjöra og alltumlykjandi kapítalisma. Ný gagmýni nauðsynleg Eftir-sósíalísk gagnrýni á kapítal- ismann verður erfitt verk. Hægri- stefnan í stjórnmálum og trúmálum agnúast út í hvaðeina sem ögrar ríkj- andi ástandi og hefur tekist að loka á umræður utn mikilvæg svið. Utlend- ingahatarar úr röðum öfgafúllra hægrimanna með ofbeldissinnað bull á sinni stefiiuskrá ryðjast inn á sviðið í efnahagskreppunni í Evrópu og ekki aðeins þar. Þórðargleði, eða afneitun, mun draga úr vilja margra hugsuða sósíalismans til að taka þátt. En slík gagnrýni er bráðnauðsynleg gagnvart útþenslu kapítalismans sem hefur inn- byggða hneigð til að koma sér undan eftirliti. Ný hagnýt og siðferðileg gagnrýni á á kapítalismann verður sinárn saman til. Ilún verður sniðin að þörfinni hverju sinni, tekur á málum þegar þau konia upp og leitar víða fanga. Gagn- rýnin mun ekki byggja á altæku niark- rniði. Hún mun ekki vera endurnýjun á frjálslyndisstefnunni en sú kenning er urn það bil að gefa ffá sér síðustu einkenni andófs. Gagnrýnin verður klunnnaleg og mun fela í sér andstæðar og óaðlað- andi fullyrðingar. Hún er ekki frum- leg sú spá mín að nýja gagnrýnin mun mótast af ótta við umhverfisskaðann sem óbeffur kapítalismi veldur og vax- andi vilja til að andæfa honum. Gagn- rýnin verður borin fram af fólki sem bregst við áreiti síðkapítalismans þeg- ar hann mótar heiminn eftir sínu höfði. A vinstri vængnum var það í eina tíð uppnefni að vera kallaður um- bótasinni svo að það kann að hafa ein- hverja kosti að sósíalisminn missir gildi sitt sem viðinið. Sósíalisminn var eklci beint hjálp- legur þegar konr að því að ræða fólks- fjöldatakmarkanir og sósísalísk þjóð- félagsgreining eyddi óhóflegum tíma í það að sanna fyrir hinum trúuðu að sjálfseyðing kapítalismans væri á næsta leyti. Engu að síður munu frunrherjar nýju gagnrýninnar líða fyrir það að vera án viðlíka sjálfbirg- ingslegs grundvallar og sósíalismmn einu sinni var. (Viðvarandi þrætur milli helstu hópa umhverfissinna er vísbending uni það hversu erfitt er að ná samstöðu um þessi mál.) Einu skil- yrði verða þeir að lúta sem vilja mæta mótsögnum kapítalismans án þess að vera með bundnar hendur. Þeir verða að gleyrna sósíalismanum. Landslagið sem sósíalistar þvældust um verður mjög póst-módcrnískt. -pv Sagl með ínynd Höfundar: Hjörtur Gunnarsson og Þuríður Hjartardóttir Laúsn myndagátunnar í síðasta blaði cr: „Frakkar bcita bellibrögðum til að tálma sölu á íslenskum fiski.“

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.