Vikublaðið


Vikublaðið - 10.03.1994, Síða 14

Vikublaðið - 10.03.1994, Síða 14
14 Félagsstarflð VIKUBLAÐIÐ 10. MARS 1994 Vönduð 60 W hljómtækjasamstæSa, meö geislaspilara, tvöföldu kassettutæki, ótvarpi, góöum ■ hótölurum, fullkominni fjarstýringu og innbyggóum vekjara 6 fróbæru verói - Goldstar FFH-333L Aðeins 44,900,- kr. eða 39.900.- stgr. SKIPHOLTI 19 SÍMI 91-29800 Útboð F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í iagningu hitaveitulagna í Hafnarfirði. Verkið felst í að leggja aðfærsluæð frá Hvaleyrarholti meðfram Reykjanesbraut að Hellnahrauni og dreifikerfi í hluta hverfisins. Helstu magntölur eru: Lengd aðfærsluæðar 0100 mm, er um 1.100 m Aðrar lagnir eru alls 600 m. Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 8. mars, á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 23. mars 1994, kl. 14.00. iNNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Kjarvalsstofa í París er íbúð og vinnustofa, sem ætluð er til dvalar fyrir íslenska listamenn. Reykjavíkurborg, menntamála- ráðuneytið og Seðlabanki íslands lögðu fram fé til þess að koma upp slíkri starfsaðstöðu í Parísarborg með samningi við stofnun, sem nefnist Cité Internationale des Arts, og var samningurinn gerður á árinu 1986. Kjarvalsstofa er í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Sérstök stjórnarnefnd fer með málefni Kjarvalsstofu, og gerir hún tillögu um úthlutun dvalartíma þar til stjórnar Cité Inter- nationale des Arts, er tekur endanlega ákvörðun um málið. Dvalartími er skemmstur 2 mánuðir, en lengst er heimilt að veita listamanni afnot af Kjarvalsstofu í 1 ár. Vegna fjölda umsókna undanfarin ár hefur dvalartími að jafnaði verið 2 mánuðir. Þeir, sem dvelja í Kjarvalsstofu, greiða dvalargjöld, sem ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts og miðast við kostnað af rekstri hennar og þess búnaðar, sem þeir þarfnast. Þessi gjöld eru lægri en almenn leiga í Parísarborg og er nú Fr. frankar 1400 á mánuði. Dvalargestir skuldbinda sig til þess að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu. Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu, en stjórnin mun á fundi sínum í mars fjalla um afnot listamanna af stofunni tímabilið 1. ágúst 1994 til 31. júlí 1995. Skal stíla umsóknir til stjórnarnefndar Kjarvalsstofu. Tekið er á móti um- sóknum til stjórnarnefndarinnar í skjalasafni borgarskrifstofanna í Ráðhúsinu, en þar liggja einnig frammi umsóknareyðublöð og afrit af þeim reglum, sem gilda um afnot Kjarvalsstofu. Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að koma til greina við þessa úthlutun. Umsóknum skal skila í síðasta lagi 28. mars 1994. Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu. Fundarkonur sknlafyrir Scllunum, hrey fmgu Alþýðubandalagskvenna og annarra róttcekra jafnaðarkvenna. Myndir: Ól. P. Sellurnar taka til starfa Elsa S. Þorkelsdóttir kjörin formaður kvennahreyfmgarinnar að var eftirvænting í Iofti á Hótel Lind í Reykjavík síð- asta föstudagskvöld, en þangað var Alþýðubandalagskon- um og öðrum róttækum jafnaðar- konum steföt í þeim tilgangi að ganga formlega frá stoföun kvennahreyfingar. Akvörðunin var tekin í nóvember síðastliðnum og lauk þar með margra ára tímabili þar sem konur innan Alþýðu- bandalagsins og í tengslum við Jiað hafa velt vöngum yfir hvort form- leg hreyfing væri æskileg og þá á hvaða grundvclli. I nóvember var kosin undirbúningsneföd til að vinna að stoföuninni og skilaði hún af sér á föstudag tillögum að lögum hreyfingarinnar, naföi og starfs- áherslum á fyrsta kjörtímabili stjómar hreyfingarinnar sem einn- ig var kosin á fundinum. I lögum hreyfingarinnar kemur ffam meginmarkmið hennar, en það er að auka völd og áhrif kvenna og stuðla þannig að samfélagi jafnréttis, lýðræðis og félagslegs réttlætis. Til að ná því markmiði vill hreyfingin sty'ðja konur sem vinna að þeiin málefiium kvenna sem samrýmast tilgangi hreyf- ingarinnar; efla umræðu meðal kvenna bæði innan og utan Alþýðú- bandalagsins og á þann hátt auka völd og áhrif kvenna á stefnumörkun flokksins; styðja og styrkja þær konur sem valist hafa til trúnaðarstarfa á vegum Alþýðubandalagsins og auka völd og áhrif kvenna innan stofaana flokksins og í trúnaðarstörfum á hans vegurn, svo sem við framboð til sveit- arstjórna og Alþingis. Tillaga Guðrúnar Helgadótnir al- Elsa S. Þorkelsdóttir formaður. Dagný Kristjánsdóttir flutti spennandi tölu um mynd Þóru í Þórubókunum. þingsmanns að nafni fyrir hreyfing- una var samþykkt með þorra atkvæða, en það er Sellurnar, hreyfing Alþýðu- bandalagskvenna og annarra róttæki-a jafnaðarkvenna. Hreyfingin er opin öllum konum sem vilja vinna að markmiðum hennar og eru annað- hvort félagar í Alþýðuhandalaginu eða óflokksbundnar. Seliurnar eiga ekki beina aðild að Alþýðubandalaginu. Á stofnfundinu voru samþykkt meginverkefni lýrsta starfsárs, sem eru kynning og uppbygging hreyfing- arinnar, upplýsingaöflun um stöðu kvenna innan Aljiýöubandalagsins, framboð til Alþingiskosninga og tengslanet Alþýðubandalagskvenna í sveitarstjórnum. I skipulagi hreyfingarinnar er gert ráð fyrir stjórn sem ber ábyrgð á að hrinda meginverkefaum í framkvæmd en einnig gera lögin ráð fyrir að konur geti stofnað hópa að eigin vild í nafni hreyfingarinnar, svo framarlega að þeir samrýmist markmiðum hennar. Þessir hópar geta bæði verið svæðis- bundnir eða um afmörkuð málefni. Þetta tvíþætta skipulag er hugsað þannig að það geti sameinað kosti grasrótarstarfs annars vegar og hins- vegar samfellu og skilvirkni. I stjórn voru kosnar Elsa S. Þor- kelsdóttir sem jafnframt var kosin for- maður, Stefanía Traustadóttir, Hildur Jónsdóttir, Svanfríður Jónasdóttir og Ragnheiður Jónasdóttir og varamenn Þuríður Pétursdóttir og Guðrún Ágústsdóttir. Skrá yfir stofnfélaga liggur frammi á skrifstofu Alþýðuhandalagsins og geta konur skráð sig sem stofafélaga framt til 15. apríl næstkomandi. Auglýsing um framlagningu skattskrár 1993 og virðisaukaskattsskrá fyrir rekstrarárið 1992 í samræmi við 2. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt er hér með auglýst að álagningu skatta og kærumeðferð er lokið á alla aðila sem skattskyldir eru skv. framangreindum lögum, sbr. 1. kafla laga nr. 75/1981. I samræmi við 46. gr. laga nr. 50/1988, með síðari breytingum, um virðisaukaskatt, er hér með auglýst að virðisaukaskattur fyrir rekstrarárið 1992, liggur frammi en í henni er til- greindur ákvarðaður virðisaukaskattur eða endurgreiddur virðisaukaskattur hvers skatt- skylds aðila. Skattskrár og virðisaukaskattsskrár verða lagðar fram í öllum skattumdæmum miðviku- daginn 9. mars 1994 og liggja frammi hjá skattstjórum í hverju umdæmi og hjá umboðs- mönnum skattstjóra í hveiju sveitarfélagi dagana 9. mars til 22. mars að báðum dögum meðtöldum. 9. mars 1994 Skattstjórinn í Reykjavík. Gestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi. Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi. Elín Arnadóttir. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi Vestra. Bogi Sigurbjörnsson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi Eystra. Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi. Karl Lauritzson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi. Hreinn Sveinsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum. Ingi T. Björnsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi. Sigmundur Stefánsson.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.