Vikublaðið - 10.03.1994, Qupperneq 15
VIKUBLAÐIÐ 10. MARS 1994
15
Álvktanir
•/
Atvinnumál
Atvinnuleysi héfur aldrei mælst jafn
mikið og nú urn stundir og þúsundir
karla og kvenna eru án atvinnu. Þrátt
fýrir að alntennt launafólk krefjist
raunhæfra úrlausna eru stjórnvöld al-
gerlega ráðþrota og ósætti og úrræða-
leysi á stjórnarheimilinu er slíkt að
ríkisstjórnin er í raun óhæf til þess að
takaSl á við vandann. Miðstjórnar-
fundur Alþýoúb^pdalagsins haldinn
5.-6. mars 1994 ítrekar að poilfífka á-
byrgðin á atvinnuleysinu liggur hjá
ríkisstjórninni og mótmælir harðlega
því stefiiu- og aðgerðarleysi sem ein-
kennir störf hennar.
I nýbirtri þjóðhagsspá kemur frarn
að meginvandi íslensks efnahagslífs er
mikið og langvarandi atvinnuleysi og
lítill hagvöxtur. 1 spánni er jafnframt
undirstrikað að flestytri skilyrði þjóð-
arbúsins séu með þeim hættí að tölu-
vert svigrúm sé til að taka fastar á
þessum vanda en núverandi ríkis-
stjórn hefur gert. Því krefst miðstjórn
Alþýðubandalagsins að gripið verði
nú þegar til róttækra aðgerða til að
sporna við því atvinnuleysi sem nú er
um allt land, m.a. á grundvelli þess
samkomulags sem gert var við verka-
lýðshreyfinguna á síðasta ári. Fjöldi
arðbærra verkefna liggja fullhönnuð
fýrir og ekkert vantar nema ákvörðun
stjórnvalda um að hefja framkvæmdir.
Það er ljóst að núverandi sjávarút-
vegsstefna hefur ekki tryggt framgang
þeirra þriggja meginmarkmiða sem
stefht var að með kvótalögunum
1983, þ.e. að stuðla að hagkvæmari
rekstri, að byggja upp þorskstofhinn
og styrkja byggð uin land allt. Þvert á
móti á sjávarútvegsstefnan beinlínis
þátt í auknu atvinnuleysi og byggða-
röskun. Gífurleg fjölgun frystítogara
og útflutningur á óunnu hráefni hefur
stórlega skert atvinnumöguleika í
landi og sjómenn eru í vaxandi mæli
þvingaðir til þess að taka þátt í kvóta-
braski. Gagnvart þessurn afleiðingum
kerfisins hafa sjórnvöld staðið alger-
lega ráðalaus og fámennur hópur svo-
kallaðra sægreifa hefur stjórnað um-
fjöllun urn fiskveiðistefiiuna. 1 vand-
ræðagangi stjórnvalda hafa tví- og þrí-
höfðanefndir verið skipaðar til þess að
búa tíl haldlitlar bætur á ónothæfa
flík. Miðstjórnarfundurinn telur að
taka verði upp nýja fiskveiðistefnu
sem byggi á söntu markmiðum og nú-
verandi kerfi hefur mistekist að ná.
Hlutí af stefnuleysi stjórnvalda hef-
ur m.a. kontið fram í algjöru afskipta-
leysi af málefhum iðnaðarins. Sífellt
fleiri iðngreinum er nú gert að keppa
við undirboðstílboð og ríkisstyrkta
starfsemi erlendis frá án þess að
stjórnvöld hafi beitt þeim varnar-
heimildum sem alþjóðasamningar
veita okkur. Hrun skipaiðnaðarins
blasir við, en öll stærri fýrirtæki í þess-
ari grein eru annað hvort í greiðslu-
stöðvun eða nauðasamningum, en
ekkert bólar á aðgerðum af hálfu
stjórnvalda. Innan skamms verður
sama staða kornin upp í ýmsum öðr-
um iðngreinum. Húshlutaframleiðsl-
unni er gert að vinna eftir mjög
ströngum byggingarreglugerðum sem
innflutningsaðilar fá undanþágu frá
án frekari athugasemda. Húsgagna-
og innréttíngasmíðinni er gert að
keppa við undirboðstilboð frá evr-
ópskum framleiðendum án viðbragða
af hálfu tollayfirvalda. Framleiðsla á
yfirbyggingum sendi- og fólksflutn-
ingabíla þarf að bera vörugjald af bæði
innfluttu hráefni og útseldri vinnu á
meðan innfluttar yfirbyggingar bera
aðeins eitt vörugjald. Miklar viðsjár
eru nú í landbúnaði og úrvinnslu-
greinum hans. Á sama tíma og hrun
blasir við í iðnaði líðst opinberum
stofnunum að sniðganga innlenda
ffamleiðendur, þrátt fýrir að þeir séu
samkeppnisfærir bæði í verðum og
gæðum. Svona mætti lengi telja.
Miðstjórnarfundur Alþýðubanda-
lagsins krefst þess að gripið verði nú
þegar til varnaraðgerða út frá þeim
miðstjórnarfundar Alþýðubandalagsins
Miðstjóiiiaifélagmiih- Guðmitndur Þ. Jónsson fonnaður Iðju, félags verksmiðjufólks, Benedikt Davíðsson forseti ASI og
Bjöni Grétar Sveinssou fonnaður Verkamannasambandsins fluttu sameigtiikgu tillögu að ályktun um atvinnumál.
stjórn fiskveiða.
Ríkisstjórnin ætladi að- keyra þessa
stefnu sína í gegn á Alþingi þrátt fýrir
að samtök sjómanna höfðu lýst yfir
fullri andstöðu við frjálsu framsali
veiðiheimilda vegna kvótabrasks og ó-
eðlilegra viðskisptahátta sem við-
gengst í skjóli kvótakerfisins.
Fjölmörg byggðarlög eru nú að
heimildum sem alþjóðasamningar
veita. Jafnframt verði mótuð stefiia til
lengri tíma um uppbyggingu al-
mennrar iðnaðarffamleiðslu, þar sem
m.a. verði tekið á sambúðarvanda iðn-
aðar og sjávarútvegs. Það er ljóst að
öflugur sjávarútvegur er og verður
undirstaða og meginstoð ýmissa ann-
arra atvinnugreina hér á landi og því
er brýnt að huga að innbyrðis sam-
skiptum milli þessara greina.
Miðstjórnarfundur Alþýðubanda-
lagsins mótmælir harðlega þeim hug-
myndum sent fram hafa komið að at-
vinnuleysisvandann megi fýrst og
fremst rekja til hárra launa og skipu-
lags vinnuntarkaðar hér á landi. í stað
þess að halda því fi-am að launataxtar á
bilinu 45-55 þús. kr. skapi vanda væri
nær að líta á aðra þættí í rekstri fýrir-
tækjanna en launin. Reynsla síðustu
áratuga sýnir svo ekki er uin villst að
sveigjanleikinn á íslenskum vinnu-
markaði er með því sem rnest gerist,
þannig að þar er vanda atvinnuleysis-
ins ekki að finna. Ilugmyndir sem
þessar eru nátengdar því úrræðaleysi
sem ríkir hjá stjórnvöldum varðandi
atvinnuleysisvandann. Miðstjórn Al-
þýðubandalagsins mótmælir þessu úr-
ræðaleysi harðlega og þeirri uppgjöf
sem kemur fram í hinuin sífellda söng
um að atvinnuleysið sé komið tíl að
vera. íslenskt launafólk sættír sig ekki
við ummæli sem þessi, enda þarf at-
vinnuleysi ekki að vera til staðar hér á
landi ef rétt er á málum haldið.
Miðstjórnarfundur Alþýðubanda-
lagsins telur nauðsynlegt að leitað
verði eftir því að mynda breiða sam-
stöðu inilli aðila vinnumarkaðar og
stjórmálaflokka urn rnótun stefnu í at-
vinnumálum til lengri tíma. Stefna
verður að því að sameina og sam-
tvinna steffiiu í menntamálum og
starfsfræðslu, tækniþróun og nýsköp-
un, markaðsmálum, fjárfestingarmál-
urn einkaaðila og hins opinbera, á-
herslu í byggðamálum og sjávarút-
vegsstefnu þannig að þessir þættír
styðji hver annan.
Stjórnmálaástandið
og ný stjórnarstefna
Miðstjórn Alþýðubandalagsins tel-
ur brýnt að ríkisstjórnin biðjist lausn-
ar, effiit verði til alþingiskosninga og
þjóðinni gefinn kostur á að velja nýja
landstjórnarstefnu.
Atvinnuleysið er orðið djúpstætt
vandamál. 7000 íslendingar eru nú án
atvinnu og sú tala fer hækkandi. Heil-
ar atvinnugreinar eru að hrynja' og
höfuðfýrirtæld margra byggðarlaga að
stöðvast. Málefni sjávarútvegsins eru
komin í algerar ógöngur, harðar deil-
ur eru um stefnumótun í landbúnaði
og hrikalegur samdráttur einkennir
almennan iðnað.
í stað þess að glíma við lausnir á
vanda atvinnulífsins standa ráðherrar
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks í
linnulausum þrætum. Þjóðin hefur
fýlgst með þrætubók þeirra uin sí-
breytilegt orðalag á búvörulögum og
strákslega keppni um hver sé hinn
sterki. Sama dag og lausn er boðuð
hefst síðan ný þræta. Aðrar deilur
bætast við. Einn ráðherra vill kaupa
þyrlu, annar neitar strax. 'Fillögur um
Vestfirði vekja umsvifalaust upp á-
greining og úlfúð. Flestar eðlilegar
siðareglur unt starfshætti og samstarf
ráðherra og stjórnarflokka eru þver-
brotnar.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks er ekki lengur starfhæf.
Stefnan hefur beðið sldpbrot. Sam-
sldpti einkennast af fjandskap og átök-
um. Á meðan Stjórnarraðið logar í
innbyrðis ágreiningi magnast vanda-
mál þjóðarinnar dag frá degi.
Alþýðubandalagið áréttar nauðsyn
þess að ný forysta með nýja stefnu að
leiðarljósi taki við stjórn landsins.
Á landsfundi Alþýðubandalagsins
var fjallað uni ítarlegar tillögur flokks-
ins og á þessum fundi miðstjórnar
hefur verið gengið frá nýrri útgáfu
Utflutningsleiðarinnar með hliðsjón
af fjölmörgum viðbótum og ábend-
ingum sent fram hafa kornið á undan-
förnum mánuðum.
Tillögugerð Alþýðubandalagsins -
Útflutningsleiðin - felur í sér fjöl-
þættar tillögur um aðgerðir gegn at-
vinnuleysi, aðgerðir gegn kjaramis-
rétti og aðgerðir gegn spillingu. Meg-
inþættír tillögugerðarinnar eru þrír:
1. ATVINNA
Endurreisn atvinnulífs. Kerfis-
breytíngar. Hugmyndaendurnýjun.
Nýsköpun.
2. JÖFNUÐUR
Velferð. Réttlætí. Samhjálp. Heil-
brigði og menntun. Fjölskyldan og
börnin.
3. SIÐBÓT
Leikreglur. Velsæmi. Heiðarleiki.
Ábyrgð í atvinnulífi. Hæfileikar í
stjórnkerfi.
I fýrsta áfanga í framkvæmd hinnar
nýju stefnu yrði leitast við að skapa
1400-2000 ný störf á næstu 12 mán-
uðum. Markntið þeirra aðgerða væri
að sýna strax í upphafi hvernig hægt
væri að snúa vörn í sókn með því að
skapa ný störf á mörgum sviðum.
Störfin þurfa að vera arðbær og þau
verður að skapa í tengslum við þau
byggðarlög og atvinnugreinar þar
sem atvinnuleysið er hvað mest og
taka sérstakt tillit til starfsgreina þar
sem konur eru hvað fjölmennastar.
Á næsm mánuðunt munu fulltrúar
Alþýðubandalagsins efna tíl viðræðu-
funda um þessa tíllögugerð. Við bjóð-
uin alla velkomna tíl þátttöku í þeirri
umræðu.
Islendingar þurfa nú að ná víðtækri
samstöðu um nýja leið. Alþýðubanda-
lagið hefur lagt ffiam viðamikinn skerf
til þeirrar stefnumómnar.
Endurskoðun
fískveiðistefnunnar
Miðstjórnarfundur Alþýðubanda-
lagsins haldinn 5.-6. mars 1994 lýsir
yfir þungum áhyggjum vegna þess
uggvænlega ástands sem ríkir í mál-
efnum sjávarútvegsins.
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hef-
ur með vinnubrögðum sínum og með
þeirri ákvörðun að gera stefnumörkun
Tvíhöfðanefndar að sinni gersamlega
klúðrað endurskoðun laganna urn
komast í þrot vegna þess að þau njóta
ekki í núverandi kerfi þeirrar nálægð-
ar við gjöful fiskimið sem skapaði
þeim lífsgrundvöll til að byggja af-
komu íbúanna á.
Alþýðubandalagið hefur lýst sig
reiðubúið tíl að taka þátt í opinni um-
ræðu og stefnumörkun á Alþingi og
með öllum þeim aðilum sem láta sig
málið varða. Afstaða Alþýðubanda-
lagsins tíl grundvallaratariða þeirrar
stefitumörkunar liggur fýrir í sam-
þykkmm æðsm stofnana flokksins,
það er iniðstjórnar og landsfundar-
samþykkmin.
Þar er krafan um afdráttarlausa
tryggingu fýrir þjóðareign á auðlind-
urn hafsins efst á blaði, en núverandi
kerfi með frjálsu framsali aflaheimilda
og sölu á óveiddum fiski í sjó samrým-
ist ekki þeirri grundvallarreglu.
Miðstjórnarafundurinn felur þing-
flokki og framkvæmdastjórn að fýlgja
fast frani þeirri stefnumörkun sem
fýrir liggur í miðstjórnar- og lands-
fundarsamþykkmm við þá endurskoð-
un á lögunum urn stjórn fiskveiða sem
nú virðist vera að hefjast.
FLOKKSSTARFIÐ
Eining Suðurlandi
OPINN FUNDUR
um atvinnumál verður haldinn sunnu-
daginn 13. mars kl. 17 í húsi Verkalýðs-
félagsins Þórs, Eyrarvegi 29, Selfossi.
Frummælendur eru:
Ögmundur Jónasson form. BSRB.
Margrét Frímannsdóttir þingm.
Árni Johnsen þingm.
Þorsteinn S. Ásmundsson form. Atorku.
Reynt verður að varpa Ijósi á stöðu
atvinnumála í dag og skyggnast í
framtíðina.
Eining,
féiag ungs félagshyggjufólks á
Suðurlandi.
Ogmundur Jónasson
Utboð
F.h. Vatnsveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í 1.400 m af
0 600 „ductile iron“ pípum ásamt „fittings".
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 8. mars, á
skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 6. apríl 1994, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Utboð
62 m2
320 m2
31 stk.
350 m2
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboð-
um í viðgerðir og viðhald á vesturálmu Breiðagerðisskóla.
Helstu magntölur eru:
Endursteypa:
Hreinsun og múrhúðun:
Viðhald veltiglugga:
Málun útveggja:
Verktími er frá 1. júní til 20. ágúst 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykja-
vík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 22. mars 1994, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800