Vikublaðið - 06.05.1994, Qupperneq 2
2
VIKUBLAÐIÐ 6. MAI 1994
u.
BLAÐ SEM V I T ER I
Útgefandi: Alþýðubandalagið
Ritstjóri og ábm.: Ilildur Jónsdóttir
Blaðamenn: Páll Vilhjálmsson, Friðrik Þór Guðmundsson
og Ólafur Þórðarson
Auglýsingasími: (91)-813200 - Fax: (91)-678461
Ritstjórn og afgreiðsla:
Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík
Sími á ritstjórn: (91)-17500 - Fax: 17599
Útlit og umbrot: Leturval
Prentvinnsla: Frjáls ijölmiðiun hf.
Litlifingur
Rislitlu þinghaldi er lokið við Austurvöll. Stjórn-
málastarf meirihlutans hefur í vetur einkennst af
þrálátum deilurn um stór mál og smá. Ríkisstjórnin
var við það að springa útaf búvörulagadeilunni og
einföld ákvörðun um að kaupa nýja björgunarþyrlu
er orðin að rimmu milli stjórnarflokkanna. Lítt dul-
búnar glósur ganga á milli forystumanna Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks bæði innan þings og utan.
Stjórnmái í lýðræðisríki byggja á trausti milli
þegnanna og stjórnvalda. Forsenda fyrir tiltrú fólks
er að stjórnvöld hafi trúverðuga pólitíska stefnu
sem hefur einhvern samhljóm með lífsgildum al-
mennings. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hefur
enga pólitíska stefnu aðra en þá að sitja að völdum.
Sjálfur er forsætisráðherra holdtekja manns sem er
þjálfaður í krókum og klækjum valdabröltara en
stendur hvorki fyrir stefnu né hugmyndafræði sem
hægt er að bera á borð almennings.
Hægripólitísk bylgja á Vesturlöndum á áttunda
áratugnum fleytti Davíð Oddssyni á land í íslensk-
um stjórnmálum. A þessum tíma komust til valda
Ronald Reagan í Bandaríkjunum og Margrét
Thatcher í Bretlandi. Davíð er litlifingur Ronalds
og Margrétar og litlifingur komst til valda og áhrifa
í höfuðborg Islands í skjóli kreppu ættarveldisins
sem hafði stjórnað Sjálfstæðisflokknum frá stofnun
hans. Áður höfðu synir útgerðaraðalsins og ríkra
kaupmanna komist til forystu í Sjálfstæðisflokknum
en Davíð átti að vera sterkur maður með stefnu. I
þann mund sem almenningur í Bretlandi og Banda-
ríkjunum hafnaði frjálshyggju Thatcher og Reagans
varð litlifingur forsætisráðherra á Islandi.
Atburðarásin í vetur sýnir svo ekki verður um
villst að dómgreindin hefur skjöplast þeim sem
héldu að núverandi forsætisráðherra væri tákn
nýrra tíma í Sjálfstæðisflokknum. I Reykjavík gekk
hann inn í valdakerfi Sjálfstæðisflokksins sem ekk-
ert pólitískt afl gat þá ógnað. Um leið og minni-
hlutinn sameinaðist og varð trúverðugur valkostur í
Reykjavík var Sjálfstæðisflokkurinn afhjúpaður sem
hrein og klár machiavellísk klíka. Eins og hendi
væri veifað sagði eftirmaður Davíðs í borgarstjóra-
stól af sér og Sjálfstæðisflokkurinn tók upp félags-
hyggjusjónarmið í kosningastefnuskrá sína. Þetta
gerðist án pólitískra átaka í flokknum vegna þess að
klíkan hefur það markmið eitt að halda völdum.
Þetta er arfleifð litlafingurs í borginni.
I landsstjórninni er það sama upp á teningnum:
Leiðtoginn í Stjórnarráðinu ekur seglum eftir vindi
og þegar virkilega hefur sorfið að týnist hann uppí
sveit, eins og þegar búvörulagadeilan stóð sem
hæst. Leiðindin sem einkenna ríkisstjórnina þreyta
forsætisráðherra en ekki fyrir sitt litla líf áræðir
hann að leggja verk stjórnarinnar fyrir dóm kjós-
enda. Til þess að fara í kosningar þarf maður að
hafa stefnu, bjóða upp á pólitík.
Litlifingur er blóðlaus á hogginni hönd.
Sjónarhorn
Nýtt landslag í Evrópumálum
Enn er af nógu að taka hvað
varðar nýjar fréttir af Evrópu-
málunum, bæði innanlands og
utan. Þrjú Norðurlandanna, Finn-
land, Svíjtjóð og Noregur, hafa nú
loDð samningaviðræðum við F.SB og
framundan eru þjóðaratkvæðagreiðsl-
ur um aðildina, með tilheyrandi um-
ræðu og gerjun. Fátt kemur á óvart í
samninganiðurstöðum frænda okkar
og ekkert, alls ekkert í sjávarútvegs-
samningi Norðmanna við ESB gefúr
tilefni til endurmats á mótaðri stefnu
íslendinga.
Eftir sein áður liefur sigling frænd-
þjóðanna inn í upprennandi "sam-
bandsríki'' Stór-Evrópu haft sín áhrif
og sér þess stað bæði í almenningsáliti
samkvæmt skoaðanakönnunum, en
einnig á skákborði stjórnmálanna.
Formannaskipti í Fram-
sókn
Um síðastliðna helgi tók nýr for-
maður við stjórnartaumum í Fram-
sóknarflokknum eins og tæpast hefúr
farið fram hjá nokkrum manni. Hall-
dór Asgrímsson, sá hinn sami og veitti
forystu hjásetuarmi Framsóknar-
flokksins við afgreiðslu EES-samn-
ingsins, var þar kominn og beið ekki
boðanna með hinn nýja boðskap.
Vatnaskilin urðu skýr og greinileg á
miðstjórnarfundinum. Fráfarandi for-
maður notaði drjúgan hluta ræðu
sinnar í að vara flokk sinn og þjóð við
aðild að Evrópusambandinu. Hinn
þrautreyndi stjórnmálamaður og for-
sætisráðherra margra ríldsstjórna taldi
að aðild myndi gera okkur að lágt
skrifuðum útnára Evrópustórveldis-
ins. I linn nýi formaður notaði tímann
til að varpa fram hugmyndum um ein-
hverskonar áheyrnaraðild eða aukaað-
ild að Evrópusambandinu, eða a.m.k.
mikilvægustu nefndum þess.
Hvort sem slíkar hugmyndir eru nú
raunhæfar eða ekki er athyglisvert að
Halldór skuli strax í sinni fyrstu ræðu
sem formaður taka svo ákveðinn kúrs
í átt til nánari tengsla við Evrópusam-
bandið. Það hvort menn tala svo um
vinkilbeygju eins og leiðarahöfundur
DV eða eitthvað annað, er aukaatriði.
I öðru lagi vaknar svo auðvitað að
bragði sú spurning hversu lengi menn
myndu una áheyrnaraðildinni einni,
þ.e.a.s. ef menn fengju hana, og hvort
hún gæti í reynd nokkurn tíma falið í
sér annað en fulla aðild að lokum.
Kratar út úr skápnum
Þá gerast enn þau tíðindi að kratar
ákveða að flýta flokksþingi og boðað
er að þar verði nýjar áherslur mótaðar
í Evrópumálum. Þær geta naumast
falist í öðru en stefnu um fulla aðild
eða a.m.k. aðildarumsókn.
Það hefur lengi legið í loftinu hvert
hugur þeirra krata stefnir og ungkrat-
ar hafa ítrekað ályktað um aðild.
Flokkurinn hefur hins vegar hikað við
að taka það upp í sína stefnuskrá. Nú
verður fróðlegt að sjá hvort vígamað-
urinn Jón Baldvin leggur upp í enn
eina herförina með flokk sinn ineð
fyrirhugaðan náttstað í Brussel og það
á fimmtugasta afrnælisári lýðveldisins.
Að ýmslu leyti er það kostur að það
sein verða vill í gerjun þessara mála
innan flokkanna komi upp á yfirborð-
ið. Því fyrr því betra fyrir þá sem
hyggjast taka tíl varna fyrir efhahags-
legt, menningarlegt og stjórnmálalegt
sjálfstæði þjóðarinnar. Þeir verða von-
andi og örugglega margir og þeirra
sigurinn.
Höfúndur er þingmaður AJ-
þýðubandalagsins fyrir Norður-
land eystra og varaformaður
flokksins.
Árni litli Lokbrá
Fréttamannafundur Ama Sigfússonar undir regnhlíf á Ægissíðunni hefúr vakið athygli út fyrir land-
steinana. Borist hefur úrklippa með vísum sem virðast stæling á dönskum vísum um Ola lokbrá með regn-
hlífina sína. Því miður sást ekki ldippinu hvert blaðið var. Edda Heiðrún Bachmann hefur sungið þetta lag
á plötu með íslenskum texta undir heitinu Lonníettumar.
Lille Arnes vuggevise
Den lille Ame meðparaplyen,
som nufor tiden bestyrer byen,
han tvivler ikke om eget værd
- men desto mere pá guders vejr!
Den lille Arne med paraplyen,
han tror sig sikker at kapre byen,
men valg som vejret kan let slá om,
mens Arne venter sin store dom.